Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1987, Page 9
LAUGARDAGUR 11. JÚLl 1987.
9
Ferðalög
Við opnun hinnar glæsilegu upplýsingamiðstöðvar, f.v. Óli J. Ólason, Áslaug Alfreðsdóttir, Guðjón Ingvi Stefáns-
son og Kjartan Lárusson.
Fleiri einstaklingar núna
Kjartan Lárusson, formaður
Ferðamálaráðs, sagði að þróunin í
ferðamálum á íslandi hefði orðið sú
að nú væru langtum fleiri stakir
ferðamenn hér á ferð en áður voru
það meira hópferðir. Þörfin fyrir
upplýsingamiðstöðvar er því brýnni,
því hópunum var hægt að sinna nán-
ast áður en þeir fóru að heiman.
Kjartan sagði að íslendingar væru
einnig farnir' að ferðast meira um
eigið land og því aúkin þörf fyrir
upplýsingar fyrir þá.
Margrét Sigurðardóttir hefur unnið við að miðla upplýsingum til ferða-
manna I gamla turninum á Lækjartorgi sl. tuttugu ár. Hún hefur nú látið
af störfum og turninum hefur verið lokað. Hún sagði í samtali við DV að
mikill fjöldi ferðamanna hefði komið daglega i turninn til hennar, suma
daga á annað hundrað manna.
Kostnaður við upplýsingamiðstöð-
ina er milli 5 og 6 milljónir kr. og
skiptist þannig að ferðamálasjóður
greiðir 2 milljónir, Samband gisti-
og veitingahúsa 1,5 millj., Reykja-
víkurborg 500 þús. kr. og ýmis fyrir-
tæki í ferðaþjónustu það sem á
vantar. Þrir til fjórir starfsmenn
starfa hjá nýju upplýsingamiðstöð-
inni í framtíðinni, fyrir utan starfs-
menn Búnaðarbankans.
Ódýrar flugferðir
Ef farið er á stærri flugvelli er
hægt að komast í hreint ótrúlega
ódýrt flug. Sem dæmi um þetta má
nefha að hoppfargj ald (stand by) með
leiguflugi frá París til New York er
um sjö þúsund krónur og frá London
er hægt að komast til margra borga
á Spáni fyrir þrjú þúsund krónur
fram og til baka.
Flugfélögin bjóða upp á margs
konar fargjöld. Hér á eftir verður
gerð grein fyrir flestum þeirra svo
að ferðamaður, sem hyggat halda
áfram leið sinni eftir að út er komið,
geti áttað sig betur.
Áætlunarflug Þetta eru fastar
flugferðir flugfélaga og á fostu verði.
Sé keyptur miði á þessum kjörum
gildir hann í heilt ár og er möguleiki
á að breyta honum eða fá hann end-
urgreiddan.
Excursion Þetta er afsláttur af
venjulegu áætlunarflugi sé keyptur
miði fram og til baka með tiltekinni
lágmarksdvöl.
Visiting Skilyrðin eru þau að mið-
inn sé staðfestur og greiddur um leið
og pantað er. Einnig eru skiiyrði um
lág- og hámarksdvöi.
Budget Pöntun, útgáfa og greiðsla
miðans er gerð fyrirfram. Skilyrt er
hámarksdvöl.
Leiguflug Þetta eru ferðir á vegum
ferðaskrifstofa eða hópa. Miða í
áætlunarflugi er yfirleitt ekki hægt
að breyta. Oft er hægt að komast
ódýrt með leiguflugi sé miðinn
keyptur rétt fyrir brottfór.
APEX Miðann verður að panta og
greiða 21 degi fyrir brottfór. Ákveða
verður fyrirfram alla tíma. Lág-
marksgildistími miðans er sjö dagar
en hámarksgildistími þrír mánuðir.
APEX midweek Ódýrari en
APEX. Aðeins er hægt að ferðast á
mánudögum, þriðjudögum og mið-
vikudögum í báðar áttir og panta
verður flug og greiða miðann 14
dögum fyrir brottför. Gildir minnst
í viku en mest í sex mánuðl
ABC Panta verður minnst 15 dög-
um fyrir brottför. Þetta fargjald er
venjulega notað í leiguflugi, aðal-
lega milli Evrópu og Ameríku, og
er ódýrara er APEX.
ABC með afslætti Þetta fargjald
er enn ódýrara en það fyrmefhda,
en farþeginn fær ekki svar fyrr en
48 stundum fyrir brottför. Oft þarf
að bíða á biðlista.
Námsmannaafsláttur fæst að-
eins ef viðkomandi getur fært sönnur
á það að hann stundi háskólanám.
Stand by Kaupa verður miðann
án þess að panta flug og bíða síðan
á biðlistum þangað til sæti fæst.
Aðeins sum flugfélög bjóða upp á
þetta fargjald.
-PLP
Hamborg er stærsta borg í
Vestur-Þýskalandi og hefur
allt frá dögum Hansa-kaup-
manna verið ein helsta versl-
unarmiðstöð landsins. Hún
er líka einstaklega skemmti-
leg heim að sækja fyrir ferða-
menn. Hamborg er oft kölluð
borgin græna, því skemmti-
garðar eru þar fleiri og stærri
en í öðrum borgum og laða
til sín þúsundir gesta á góð-
um dögum.
Eiginlega má segja að lífið
í borginni færist út á götur,
torg og garða á sumrin, því
þá líður varla svo dagur að
ekki sé einhvers konar uppá-
koma einhvers staðar.
Tónlistarunnendur geta til
dæmis hlýttá Níundu sinfón-
íu Beethovens á Ráðhústorg-
inu eða fræga rokkhljóm-
sveit í einhverjum skemmti-
garðanna.
Afkomendur víkinga vilja
kannski ýta úr vör. Þaö er
hægt á Alster-vatni, sem er í
miöri borginni. Um það sigla
bátar meö ferðamenn, en
það er líka hægt aö fá leigða
farkosti fyrir þá sem sjálfir
vilja vera skipsyórar.
Þú getur leigt þér bát og siglt á Alster vatni.
i Hamborg eru niu yfírbyggðar göngugötur, þar sem
hver verslunin er við aðra.
Fhig
sm
Skemmtanalífið í Ham-
borg er svo alveg kapítuli út
af fyrir sig. St. Pauli er líklega
eitt frægasta lastabæli í heim-
inum, en þaö er líka fleira í
boði. í borginni eru fjölmargir
bjórkjallarar þar sem menn
skemmta sér á bavariska vísu,
með söng og dansi. Þar er
líka nóg af diskótekum og
næturklúbbum fyrir þá sem
vijja.
Það getur veriö talsverður
vandi að fara út aö borða í
Hamborg því þar er um að
velja eina 800 matstaði frá
40 þjóðlöndum. í grennd við
Hamborg eru líka margir
staðir sem gaman er að
heimsækja, svo sem gamlir
kastaiar og lítil sveitaþorp.
Þaðan er líka stutt til ann-
arra skemmtilegra borga eins
og t.d. Berlinar og Kaup-
mannahafnar. Það verður
enginn svikinn af heimsókn
til Hamborgar.
^fARNARFLUG
Lágmúla 7, sími 84477