Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1987, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1987, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987. 5 Fréttir Gagnvýni á Rannsóknastofnun landbúnaðarins: Endurteknmgar og gagnslitlar rannsóknir Endurtekningar og gagnslitlar rannsóknir einkenna strirf Rannsókn- arstofhunar landbúnaðarins, að því er fram kemur í skýrslu W.F. Raymond, sem dvaldist hér á landi í boði land- búnaðarráðuneytisins fyrir nokkru. Þá gerði hann úttekt á samtökum og starfsemi rannsókna- og þróunarstofn- ana landbúnaðarins. í niðurstöðum Raymond kemur margt athyglisvert í ljós. Raymond segir að aldrei verði hægt að framkvæma allar þær rannsóknir sem allir myndu vilja. Reyna eigi í frekari mæli að notfæra sér erlendar rannsóknir í stað þess að endurtaka þær á íslandi því þannig megi þróa niðurstöðumar og nýta fyrr í fram- kvæmd. Einnig eigi að endurskoða ýmsar rannsóknir sem staðið hafi yfir í langan tíma og athuga hvort niður- stöður þeirra hafi skilað sér í fram- kvæmd. í ýmsum málum megi kaupa aðstoð erlendis frá. Nefhir hann eink- um sem dæmi frækomaframleiðslu og ræktun dýrastofria. Raymond segir: „Á íslandi er of óstöðugt loftslag fyrir frækomafram- leiðslu og slík framleiðsla gæti leitt til þess að íslensk grænmetisframleiðsla yrði ekki hagnýtt sem skyldi, vegna þess að fræið yrði of dýrt og framboð óstöðugt." I framhaldi af þessu segir hann að gagnsemi rannsóknastarf- seminnar á Sámsstöðum í þessu efni sé því spumingarmerki. Varðandi ræktun dýrastofria segir Raymond að nú séu flutningar á frjóvguðum eggj- um mögulegir og því þurfi ekki að flytja inn skepnumar sjálfar. Segir hann slíkan gena-innflutning geta bætt stofha hérlendis og segir að til dæmis mætti auka fijósemi og afurða- gæði svínastofiisins á þann hátt. Of mikið um „rútínuvinnu“. Raymond segir að endurskoða þurfi gagnsemi ýmiss konar „rútínuvinnu" sem unnin sé hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Segir hann hana þurfa að vera markvissari og nefhir þar einkum til jarðvegsrannsóknir, fóðurrannsóknir og prófun á tækja- búnaði. Varðandi jarðvegsrannsóknir segir Raymond að spyrja verði að því hvort allar þær þúsundir sýna séu erfiðisins virði, hvort bændur fylgi niðurstöðun- um og rækti betra grænmeti af þeim sökum og hvort þessi „rútínuvinna" valdi því að mikilvægari verkefrii sitji á hakanum. Sömu spumingar telur Raymond rétt að spyija varðandi fóð- urrannsóknir og einnig varðandi prófun tækjabúnaðar. Þar segir Ra- ymond of mikla vinnu fara í að prófa of margar gerðir tækja sefn séu á markaðnum. Prófunin eigi að vera markvissari þannig að einungis séu prófuð tæki sem reynst hafi vel í Evr- ópu eða Norður-Ameríku. Einnig eigi innflytjendur að greiða fullan kostnað af prófuninni því það muni draga úr fjölda tegunda á markaðnum. Þörf á ómenntuðu starfsfólki Raymond segir að mikil þörf sé á að ráða svokallaða „tæknilega aðstoð- armenn" sem vinni undir leiðsögn hins hámenntaða starfsfólks við ýmsar „rútínurannsóknir“. Telur hann það standa rannsóknastarfsemi fyrir þrif- um að sérfrasðingamir séu uppteknir við vinnu þar sem menntun þeirra nýtist illa. Telur Raymond að miklu frekar eigi að snúa sér að land- græðslu, plöntumeinafræði, landbún- aðarvélaþróun og „dýrafóðurshagræð- ingu“. Þykir W.F. Raymond ófært að hér skuli einungis vera tveir plöntumeina- fræðingar sem hafi enga „tæknilega aðstoðarmenn" en eigi að sjá um kennslu, rannsóknir og ráðgjöf. Einnig telur Raymond að rétt sé að aðskilja nánar starf rannsóknaaðila og ráðgjafa þannig að menn séu jafn- vel ekki i hvom tveggja í einu. Stöðug endurskoðun nauðsyn- leg Raymond hvetur til stöðugrar end- urskoðunar á öllum verkefiium sem unnin em hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins á 3-4 ára fresti til að koma í veg fyrir stöðnun. Eigi hún að vera i höndum hverrar deildar og stundum með aðstoð erlendra sérfræð- inga til að fá hlutlægt mat. I framhaldi af stöðugri endurskoðun telur Raymond að fylgjast þurfi vel með niðurstöðum erlendra rannsókna- aðila i landbúnaði og notfæra sér þekkingu þeirra til að koma í veg fyr- ir að sömu rannsóknir séu endurtekn- ar hérlendis. Aukin tölvuvæðing Að síðustu segir W.F. Raymond að þörf sé á aukinni tölvuvæðingu hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins og það eigi að hafa forgang. Vöntun á tölfræðigetu valdi ófullnægjandi nýt- ingu á vinnuafli og tefji starfsemina. Jafhhliða þessu telur hann nauðsyn- legt að starfsliðið sé í stöðugri endur- menntun, að það sé sent út til að nema nýjustu tækni á þessu sviði. -JFJ Það eru viða stundaðar veiðarnar þessa dagana. DV-mynd G. Bender Hvolsá og Staðarhólsá í Dolum 16 punda lax á flugu „Það hafa veiðst 26 laxar og veiði- menn, sem vom við veiðar á mánu- dagsmorguninn, vom búnir að fá 4 laxa og vom þeir við veiðar í Staðar- hólsánni," sagði Dagur Garðarsson er við spurðum um Staðarhólsá og Veiðivon Gunnar Bender Hvolsá í Dölum. „Hollið á undan þess- um veiðimönnum veiddi 6 laxa og 6 bleikjur, það er mjög gott vatn í ánum og 5-7 laxar koma á hveiju flóði. Stærsti laxinn, sem veiðst hefur enn- þá, er 16 punda og veiddist í Kaup- félagshylnum á flugu. Laxamir em vænir margir hverjir, 12, 13 og 14 punda. Bleikjan er farin að koma í ríkari mæli og sú stærsta sem hefur fengist er 4 pund,“ sagði Dagur enn- fremur. Vatnsdalsá í Vatnsfirði hefur gefið 25 laxa og silungsveiði í vatninu hefur verið góð. Móra á Barðaströnd hefur gefið 7 laxa og hefur eitthvað sést af laxi í ánni. Suðurfossá á Rauðasandi hefur gefið 21 lax og er hann 15 punda sá stærsti sem veiðst hefur. Vestfirskir veiðimenn hafa töluvert rennt fyrir fisk í Sauðlauksdalsvatni og hefur veiðin verið góð, veiðidaginn héldu þeir og mættu 60 manns til veiða, vom menn hressir með hann. -G.Bender Álftá á Mýrum: Laxinn farinn að veiðast „Álftá á Mýrum byrjaði heldur ró- lega en núna er laxinn farinn að veiðast og mun vera kominn 21 á land,“ sagði veiðimaður sem var að koma úr ánni. Ekki sá þessi veiðimað- ur þó mikið af fiski í henni. „Það hafa verið svona 10-15 laxar á dag og ætli það séu ekki um 300 laxar hér fyrir landi Ánabrekku,“ sagði Runólfur Ágústsson, veiðivörður við Langá. „Það em Spánverjarhérna við veiðar eins og er en svo verður þetta blandað, Islendingar og útlendingar. Laxinn er víða héma hjá okkur eins og í Strengjunum og á Breiðunni. Á hveiju flóði kemur alltaf eitthvað af laxi,“ sagði Runólfur í lokin. Setbergsá er ennþá laxlaus en mikið hefur sést af fiski fyrir utan hana en hún er víst orðin ótrúlega vatnslítil. Töluvert hefur veiðst af silungi og em stærstu bleikjumar 4 pund. Það þarf regn svo fiskurinn gangi í ána. Langholt í Hvitá hefur gefið 63 laxa og hefur veiðin verið róleg, veiðimenn veiddu á laugardaginn 8 laxa. Við sögðum frá 22 punda laxi í Rangá á mánudaginn fyrir viku og hann kom á land en það var Jóhannes Sigmarsson sem veiddi fiskinn á gyllt- an Toby og Steinar Björgvinsson fékk 14 punda á annan eins. Sex tjöldum stolið Það virðast ekki allir vera tilbún- ir að eyða stórum upphæðum til að fá sér viðlegubúnað. Hjó Seglagerð- inni Ægi er orðið árvisst að tjöldum sé stolið af sýningarsvæði fyrirtækis- ins. Mest er um þjófhaðina skömmu fyrir verslunarmannahelgar. í fyrra var fjórum tjöldum stolið og það sem af er sumri hefur sex tjöldum verið stolið. Eitt þeirra hefur fundist. Ófúndin em fjögur göngutjöld og eitt tuttugu og tveggja fermetra hústjald af Dallasgerð. óli Barðdal hjá Seglagerðinni Ægi sagði við DV í gær að grípa hefði þurft til þess að auka næturvörslu á sýningarsvæðinu. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.