Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1987, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987.
3
Fréttir
t
Kaupfélag Svalbarðseyrar. Fjárhagserfiðleikar fyrirtækisins draga enn dilk á eftir sér.
Fjámám hjá 5 bændum vegna skulda Kaupfélags Svalbarðseyrar:
„Við missum allt
sem við eigum“
- segir Tryggvi Stefánsson, bóndi á Hallgilsstöðum í Fnjóskadal
Gjffi Kristjánsscn, DV, Akuieyii
„Þetta er nú það sem maður hefur
upp úr því að hafa setið í stjóm sam-
vinnufélags og reynt að bjarga því.
Segir ekki einhvers staðar að laun
heimsins séu vanþakklæti?" sagði
Tryggvi Stefánsson, bóndi á Hallgils-
stöðum í Fnjóskadal, í samtali við DV.
Tryggvi er einn þeirra bænda sem
gert var íjámám hjá á dögunum vegna
skulda Kaupfélags Svalbarðseyrar.
Þar sat hann í stjóm á sínum tíma er
greiðsluerfiðleikar fyrirtækisins vom
sem mestir og gengu fimmmenning-
amir þá í íjárhagslega ábyrgð fyrir
félagið.
Bæjarfógetaembættið á Húsavík
gerði fjámám hjá bændunum fimm á
dögunum og ekkert bendir enn til
annars en að málinu verði fylgt eftir.
Tryggvi sagði að enn lægi ekki fyrir
hversu háar kröfur væri á hvem þeirra
fimm en neitaði ekki að sá sem verst
stæði i þessu máli væri með 7 milljón
króna kröfú á sig.
„Ef þessu verður fylgt eftir þá blasir
auðvitað ekkert annað við okkur en
gjaldþrot, jarðimar verða teknar af
okkur, atvinnan og heimilið. Það er
nefnilega dálítið meira mál að verða
gjaldþrota í sveit en í kaupstað, við
missum allt sem við eigum og höfum
byggt upp,“ sagði Tryggvi.
Bændur letta lausnar:
Hef trú á að
við lettum
til Sam-
bandsins
segir Guðmundur Þórtsson
Gyifi Kris$ánsecn, DV, Akmeyri;
„Við höfúm elcki leitað til Sam-
bandsins vegna þessa máls enn sem
komið er en ég hef trú á því að það
verði gert,“ sagði Guðmundur Þóris-
son, bóndi að Hléskógum í Grýtu-
bakkahreppi, í samtali við DV en
Guðmundur er einn fimmmenning-
anna sem gengu í fjárhagsábyrgð
fyrir Kaupfélag Svalbarðseyrar og
nú hefur verið gert fjámám hjá.
Hinir fimmmenningamir eru; Jón
Laxdal í Nesi, Ingi Þór Ingimarsson
á Neðri-Dálksstöðum, Bjami Hólm-
geirsson, Svalbarði, og Tryggvi
Stefansson, Hallgilsstöðum í
Fnjóskadal. Talað er um að upphæð-
imar, sem þeir gengu í ábjTgð fyrir,
séu á bilinu 3-7 milljónir króna hjá
hverjum þeirra um sig.
„Það er Ijóst að það verða mikil
vandræði hjá okkur ef þessu máli
verður fylgt fast eftir,“ sagði Guð-
mundur. „Hér er um allháar
upphæðir að ræða sem haia safiiað
á sig vöxtum, að vísu er búið að
greiða eitthvað inn á þetta en við
höfúm ekki i höndunum tölur um
hversu háar eftirstöðvamar eru, þær
virðast ekki liggja fyrir.“
Talsverðar líkur em á að fimm-
menningamir muni leita til stjómar
Sambands islenskra samvinnufélaga
vegna þessa máls og reyna að fa
ábyrgð sína vegna fjárhagsskuld-
bindinga KSÞ fellda niður. En eins
og sagði hér að framan hefur endan-
leg ákvörðun ekki verið tekin f því
efhi enn, beðið er eftir upplvsingum
frá bústjóra um upphæð skuldanna
áður en ákvörðun verður tekin í því
efni.
UTSALA A TEPPUM
MIKIÐ ÚRVAL - MJÖG HAGSTÆTT VERÐ
TEPPAVERSLUN FRIÐRIKS BERTELSEN H/F,
Siðumúla23, Selmúlamegin. Símar 686260 og 686266.
Ölvaður á
stolnum bíl
Lögreglan í Árbæ tók í gærmorgun
ökumann sem var áberandi ölvaður.
Hann var á bifreið sem hann hafði
tekið traustataki skömmu áður. Að
sögn lögreglu vildi eigandi bifreiðar-
innar þó ekki kæra manninn fyrir
stuld og sleppur hann því með ákæm
fyrir ölvun við akstur. -PLP
Leiðrétting
við
leikdóm
í leikdómi í blaðinu í gær misritað-
ist eitt orð þannig að setningin
brenglaðist og varð illskiljanleg. Rétt
hljóðar málsgreinin svo: „Það kann
mörgum að finnast mikið í ráðist að
taka leikrit eins og Ofúrefli til sýning-
ar hjá áhugahóp. Hefðin er jú sú að
gutla svona heldur á grunnmiðum og
velja gjaman léttmeti til meðferðar ef
menn em ekki með atvinnuliðið á
sviðinu."
/
FID Betri kennsla - betrí árangur.
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar
Tveir nýir kennslustaðir: Dansstúdíó Sóleyjar, Engjateigi 1 og
Þarabakka 3 í Mjóddinni. Ennfremur sem fyrr í Auðbrekku 17, Kópavogi.
Kennum alla samkvæmisdansa: suöurameríska, standard og gömlu dansana.
Einnig bamadansa fyrir yngstu kynslóðina - laugardagskennsla á öllum stöðum.
Nemendur skólans unnu 12 af 18 íslandsmeistaratitlum í samkvæmisdönsum
1987.
Innritun og upplýsingar dagana 1.-14. september kl. 10 - 19 í símum:
641111,40020 og 46776.
Kennsluönnin er 15 vikur, hefst mánudaginn 14. september og lýkur með jólaballi.