Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1987, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987.
9
Utlönd
Árás á íranskt
olíuflutningaskip
íraskar herþotur gerðu í gærkvöldi
árás á íranskt olíuflutningaskip á
Persaflóa og hitti eitt flugskejti í
mark. Eldý hefur verið tilkynnt um
slys á mönnum né alvarlegar skemmd-
ir á skipinu.
Þetta var sjötta árás íraka á írönsk
skip frá því á laugardaginn er írakar
hófu árásir sínar að nýju eftir sex
vikna hlé. Yfirvöld í írak höfðu í síð-
ustu viku gefið í skyn að þolinmæði
þeirra væri á þrotum vegna tregðu
Irana að samþykkja vopnahlésályktun
Sameinuðu þjóðanna. Telja þau írani
hafa notað tímann sem gafst vegna
kyrrstöðu í málinu til þess að flytja
mikið magn olíu á markaði og afla
þannig fjármagns til áframhaldandi
stríðsreksturs. Árás írana á flutninga-
skip frá Kuwait í gær var hefndarráð-
stöfun vegna árása íraka og stríðið
þar með hafið á ný á flóanum. Frá því
1981 hafa írakar og Iranir gert árásir
á þrjú hundruð og fjörutíu skip á Pers-
aflóa.
Mikil spenna ríkir nú vegna þessara
nýju árása stríðsaðilanna en stjómar-
erindrekar draga í efa að íranir ráðist
beint á tvö olíuflutningaskip frá
Kuwait sem sigla undir bandarískum
fána og herskipafylgd þeirra sem sam-
anstendur af sex herskipum. Skipalest-
in er nú á leið til Kuwait þar sem
þrjú fullhlaðin olíuflutningaskip em
tilbúin til að leggja upp.
í gær var skipalestin vöruð við ein-
hverjum gmnsamlegum hlut sem var
á floti í vatninu og hófu tvær þyrlur
þegar tundm-duflaleit en fundu ekkert.
Bandarísk stjómvöld óttast nú að
þessar nýju árásir íraka og hugsanleg-
ar gagnaðgerðir Irana kunni að leiða
til þess að bandarískur herafli neyðist Bandarískar þyrlur voru sendar út af örkinni í gær eftir að tilkynnt hafði verið
til þáttöku í átökunum fyrír botni um grunsamlegan hlut á fioti í Persaflóa á siglingaleið olíuflutningaskipa frá
Persaflóa. Kuwait. Ekkert fannst við leitina. Símamynd Reuter
Jafhaðantienn tapa fylgi
Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmarmahrfe
Dagblaðið Det fri Aktuelt birti um
helgina niðurstöður skoðanakann-
anar sem blaðið hafði látið gera fyrir
sig. Aðalniðurstaða hennar er að
jafnaðarmenn tapa töluverðu fylgi.
Er þeim spáð aðeins 27 prósent at-
kvæða gegn 31,6 í kosningunum í
janúar 1984. Er sú niðurstaða í sam-
ræmi við niðurstöður skoðanakann-
ana helgarinnar 22. og 23. ágúst.
Sósíalíski þjóðarflokkurinn fær 16
prósent atkvæða og þannig ráða
þessir tveir flokkar, sem mögulega
myndu mynda stjóm saman, yfir 43
prósent atkvæðanna. Ríkisstjómin
og stuðningsflokkur hennar, Rót-
tæki vinstri flokkurinn, fá sam-
kvæmt könnuninni 47 prósent
atkvæðanna og Framfaraflokkurinn
fær 4 prósent.
Hjálpa „töpuð atkvæði", eins og
blaðið kallar það, stjómarflokkun-
um þar sem smáflokkar á vinstri
vængnum auk græningja og húman-
ista ná saman 5 prósent atkvæð-
anna. Allir liggja flokkar þessir
undir 2 prósent mörkunum sem þarf
til að fá mann á þing.
Hinir litlu stjómarflokkar, Kristi-
legi þjóðarflokkurinn og Miðdemó-
kratar, fá hvor um sig 2 prósent
atkvæðanna og em þá á mörkunum
að ná manni inn en þó þykja þeir
þó nokkuð ömggir samkvæmt fyrri
reynslu.
Samkvæmt könnun sem Gallup
hefur unnið fyrir Berlingske Tidende
kemur fram að 40 prósent þeirra
þrjú hundmð þúsund ungra kjó-
senda sem kjósa í fyrsta skipti em
enn óákveðnir. En þeir sem em
ákveðnir virðast ekki hallast að
jafnaðarmönnum. Aðeins 10 prósent
hinna ungu kjósenda setja kross við
jafhaðarmenn, 30 prósent velja borg-
aralegan flokk en tæp 20 prósent
velja flokk til vinstri við jafnaðar-
menn.
Samkvæmt Det fri Aktuelt er það
leiði á stjómmálamönnum sem ein-
kennir viðhorf hinna nýju kjósenda
til kosninganna. Segja kosningasér-
fræðingar að um þriðjungur þeirra
muni kjósa 8. september.
Við tilraunakosningar í tveimur
menntaskólum urðu úrslitin mjög í
samræmi við áður kunngerðar skoð-
anakannanir. Sósíalíski þjóðar-
flokkurinn og íhaldsflokkurinn fá
flest atkvæði unga fólksins og meðal
smáflokkanna em það græningjar
og húmanistar eða Flokkur manns-
ins sem hafa náð einhverjum tökum.
Segja ungu kjósendumir að Jafnað-
arflokkurinn höfði alls ekki til þeirra
og vanti trúverðuga foiystumenn.
Krefjast skaðabóta
Haukur L. Hauksuan, DV, Kaupmaimahofn:
Kvikmyndafyrirtækið UIP, er
framleiðir nýjustu James Bond
myndina, krefst skaðabóta frá félagi
ungra jafnaðarmanna, þar sem fé-
lagið hefur notað auglýsingavegg-
spjald Bond-myndarinnar til að
auglýsa Jafhaðarflokkinn og þá
sérstaklega Anker Jörgensen.
Framkvæmdastjóri Danmerkur-
deildar UIP segir að horfið hafi verið
frá því að láta fógeta banna vegg-
spjaldið þar sem slíkt hefði verið
óframkvæmanlegt. Hárrar en
óþekktrar skaðabótaupphæðar verði
þó krafist vegna brota á höfundar-
rétti.
Formaður ungra jafnaðarmanna
segir að UIP hafi einungis krafist
skaðabótanna til að fá ódýrt umtal
f evrópsku pressunni. Telur hann
bæði James Bond og Anker Jörgens-
en hafa grætt á stymum í kringum
veggspjaldið.
'had heitir hefndum á Líbýu
Chad viðuricenndu í
gær að her landains hefói misst bæ-
inn Aouzou, í norðurhluta Chad, f
hendur líbýskra hersveita. Aouzou
hefur verið að meetu í höndum
Iibýumanna undanfarin górtán ár
en Chad nóði bænum í síðaata mán-
uði. Talsmenn stjómarinnar í Chad
hétu því jafhframt í gærkvöldi að
borginni yrði innan skamms náð af
Líbýumönnum að nýju.
Friðarvonir dofna í Ð Salvador
Vonir manna um viðræður, sem
bundið gætu enda á stríðsástand í
£1 Salvador, dofriuðu verulega í gær
þegar tímamörk þau sem ríkisstjóm
landsins hafói sett uppreÍBnarmönn-
um liðu án þees að deiluaðilum
tækist að koma sér saman um til-
högun samræðna.
Stjómarherinn í E1 Salvador
skýrði frá því í gær að tólf hermenn
og fimm skæruliðar hefóu fallið f
árás uppreisnarmanna á stöðvar
hersins í austurhluta landsins und-
anfama daga. Er það mesta mannfall
sem oröið hefur á svo skömmum tima
sfðan forseti landsins, Napoleon
Duarte, og fjórir aðrir leiðtogar
Mið-Ameríkuríkja undirrituðu frið-
arsáttmálann í byrjun ágústmánað-
ar.
Hátíðin endaði með blóðsúthellingum
Mesta útihótíð Evrópu endaði í óeirðum og blóðsúthellingum síðastliðinn
sunnudag þegar lögreglan f London reyndi að dreifa hálfri milljón manna
sem stefridi í slagsmál við óeirðaseggi.
Meira en sextíu manns meiddust þegar til átaka kom í lok kjötkveðjuhá-
tíðar í London um helgina og lögregla í borginni segir að átökin hafi verið
þau mestu sem séat hafi um árabil. Tilkynnt var urn nokkiu tilvik þar sem
hnífum var beitt, í einu tilviki með þeim afleiðingum að fómarlambið lét
Iffið. Var það liðlega tvítugur piltur sem stunginn var eftir rifrildi út af bjór-
dós.
Einn lögreglumaður meiddist alvarlega í átökunum.
Hafa fellt nær fmim hundruð
Skæruliðar kontrahreyfingarinn-
ar, sem berjast gegn stjómvöldum í
Nicaragua, segjast hafa fellt og sært
nær fimm hundruð stjómarhermenn
á tíu daga tímabili í lok ágústmánað-
ar.
Skæruliðamir, sem befyast með
fidltingi Bandaríkjamanna, segja að
komið hafi til átaka í fimmtíu og sjö
tiivikum þessa daga. Ekki var tiltek-
ið hvert mannfall skæruliðar sjáifir
hefóu þurft að þola.
I tilkynningu skœruliðaima segir að þeir hafi lagt herstöð sandinista í
Matagalpa héraði, í miðju Nicaragua, f rúst þann 25. ágúst og að þeir hafi
tekið herskildi vopnað samyrkjubú í norðurhluta landsins tveim dögum siðar.
Dole hittir Ortega að méli
Til harðra orðaskipta kom milli
Daniel Ortega, forseto Nicaragua,
og Robert Dole, öldungadeildar-
þingsmanns frá Bandaríkjunum, á
íundi þeirra tveggja í gær en Dole
er nú í heimsókn til Nicaragua.
Þeir Ortega og Dole áttu klukku-
stundarlangan fund og að sögn
fréttamanna lá oíl við að viðræðum-
ar milli þeirra breyttust í öskur-
keppni, því báðum mun hafa hitnað
í hamsi.
Að sögn viðstaddra skýiði Ortega Dole frá því að það væri ekki hlutverk
Bandaríkjamanna að segja þjóð Nicaragua fyrir verkum. Vísaði forsetinn
þar til kröfugerðar Bandaríkjamanna um brej'tingar í átt til lýðræðis í Nic-
aragua. Var sagt að Dole hefói greinilega verið orðinn ergilegur og að þeir
heföu akilið að skiptum án verulegrar vinsemdar.