Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1987, Side 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987.
Jarðarfarir
Jóhann Jóhannsson hárskerameist-
ari, Álfheimum 54, Reykjavík, sem
lést 23. ágúst, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 1. sept-
ember kl. 13.30.
Þórdís Stefánsdóttir, Holtagerði 48,
Kópavogi, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 1. sept-
ember kl. 15.00.
Guðrún Jónsdóttir verður jarðsung-
in frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
1. september kl. 13.30.
TiJkyimingar
Fréttatilkynning
Fimmtudaginn 3. sept. verða haldnir stór-
tónleikar í Hollywood undir nafninu
„Heilagt strið“ Hljómsveitirnar Óð-
menn, Sykurmolarnir, Björn Thorodds-
en kvintett, Halldór Pálsson saxófón-
leikari og Johnny Triumph munu sjá
gestum fyrir ógleymanlegri kvöldstund.
Sú útgáfa Óðmanna sem spilar nú var
stofnuð árið 1969 og var aðalsmerki þeirra
flutningur tónsmíða Hendrix og Hljóm-
sveitarinnar Cream ásamt frumsömdu
efni. Ljóst er að tilkoma þeirra nú er tíma-
mótaviðburður í íslensku tónlistarlífi.
Björn Thoroddsen mun flytja frumsamið
efni með kvintett sínum sem skipaður er
þeim Jóhanni Ámundssyni, Gunnlaugi
Briem, Kjartani Vaidemarssyni og Stefáni
Stefánssyni en þeir munu fara með Bimi
til frænda okkar Norðmanna í tónleikaför.
Undanfarin 12 ár hefur Halldór Pálsson
dvalið í Svíaríki og spilað mikið í leik-
húsum og við upptökur á hljómplötum og
sjónvarpsþáttum, m.a. með hljómsveitinni
ABBA ásamt fleiri frægum listamönnum.
Það er góður hvalreki á fjörur okkar Is-
lendinga þegar samlandar okkar sem gert
hafa garðinn frægan erlendis sjá sér færi
á að koma heim og spila. Halldór mun
spila frumsamin lög og útsetningar ásamt
því að „jamma“ með Óðmönnum.
í kjölfar hinnar meintu heimsfrægðar
Sykurmolanna hafa þeir ákveðið að hefja
„Heilagt stríð" gegn heimsfrægð. Þeirra
fyrsta skref í því stríði verður stigið í
Hollywood lifandi tónlistar. Mikill kurr
er um þessar mundir í kring um Molana
í Bretlandi og víðar vegna smáskífu þeirra
„afmæli" sem kosin var single of the week
í hinu virta popptímariti Melody Maker
og er það í fyrsta skipti sem íslensk hljóm-
sveit hlýtur þaxrn heiður.
Með Sykurmolunum þetta kvöld mun
hin heilladi persóna Johnny Triumph birt-
ast í eigin persónu en hann er nú þegar
plánetufrægur á reikistjömunni Plútó.
I dag eru Sykurmolamir álitnir ein besta
tónleikahljómsveit Islands og því má fast-
lega búast við heilögu stríði í bókstaflegri
merkingu sem hefst stundvíslega kl. 21.53
fimmtudaginn 3. sept.
Hljómsveitin Óðmenn verður að æfa í
Hollywood þriðjudaginn 1. sept. kl. 20.00
til 22.00 og verður Halldór Pálsson með
þeim.
Listamennimir verða allir að hljóðprufa
fimmtudaginn 3. sept. kl. 14.00 til 17.00.
Námskeið fyrir læknanema
Dagana 2. til 11. september næstkomandi
verður haldið námskeið fyrir stúdenta sem
em að hefja nám í læknisfræði við Há-
skóla lslands. Námskeiðið, sem ber yfir-
skriftina „Læknisfræði, hvað er það?“, er
haldið á vegum læknadeildar og er valn-
ámskeið, ætlað til þess að kynna háskóla-
nám í læknadeild. Fluttir verða 16
fyrirlestrar um efni sem ætla má að gagni
þeim sem em að hefja háskólanám í fyrsta
skipti. Forseti læknadeildar, prófessor
Ásmundur Brekkan og prófessor Helgi
Valdimarsson, formaður kennslunefndar,
kynna læknadeild, starfsemi hennar og
skipulag og Sigurður V. Siguijónsson
adjúnk ræðir um hlutverk háskóla. Ásta
K. Ragnarsdóttir, námsráðgjafi Hl, talar
um vinnubrögð í háskóla. Jón Júlíusson
phil. kand og læknamir Jóhannes Björns-
son og Sigurður Ámason tala um orðaf-
orða læknisfræðinnar með sérstöku tilliti
til latínu. Þá mun Sólveig Þorsteinsdóttir
bókasafnsfræðingur tala um notkun bóka-
safna. Prófessor Páll Skúlason ræðir um
siðfræði Iæknisfræðinnar og kennarar í
lyflæknisfræði, handlæknisfræði, geð-
læknisfræði og heimilislækningum kynna
greinarnar. Þá munu fulltrúar frá Félagi
læknanema kynna félagsstarf læknanema.
Námskeiðið er haldið í stofu 101 í Lög-
bergi og hefst miðvikudaginn 2. september
en lýkur föstudaginn 11. september.
Haldnir verða tveir fyrirlestrar daglega
klukkan 17.15-19. Eins og að ofan greinir
er námskeiðið fyrst og fremst ætlað þeim
sem eru að hefja nám í læknadeild en öll-
um læknanemum er heimill aðgangur
meðan húsrúm leyfir. Umsjón með nám-
skeiðinu hefur Sigurður Árnason læknir,
kennslustjóri læknadeildar.
Ættfræðinámskeið
Ný ættfræðinámskeið hefjast senn hjá
Ættfræðiþjónustunni í Reykjavík.
Standa þau frá fyrstu eða annarri viku
september fram undir lok október.
Markmið námskeiðanna er að gera
menn færa um að rekja ættir sínar og
annarra af öryggi og kunnáttusemi með
notkun aðgengilegra heimilda.
Annað starfsár Ættfræðiþjónustunnar
er nú að hefjast en starfsemi hennar er
fyrst og fremst fólgin f námskeiðahaldi.
Áðsókn var mikil fyrsta starfsárið og því
hefur tækjabúnaður og gagnasafn Ætt-
fræðiþjónustunnar verið stóraukið svo að
þar er nú fyrsta flokks aðstaða til rann-
sókna jafnt sem kennslu.
Boðið er upp á 8 vikna grunnnámskeið
og 5 vikna framhaldsnámskeið. Fjöldi
þátttakenda er takmarkaður við átta
manns í hverjum námsflokki. Geta menn
valið um að vera í námsflokki að kvöldi
dags eða á laugardögum.
Kennslan fer að hluta fram í fyrirlestr-
um en umfram allt í rannsóknum á
frumheimildum um ættir þátttakenda
sjálfra. Leiðbeint er um ættfræðileg vinnu-
brögð, heimildimar, gildi þeirra og
meðferð, hjálpargreinar ættfræðinnar, að-
ferðir við samantekt ættartölu og niðja-
tals, uppsetningu ættarskráa o.s.frv.
Þátttakendum eru útveguð þau frumgögn,
sem til þarf, s.s. ættartré, heimildaskrár
og aðrir leiðarvísar. Þá er veitt sérstök
handleiðsla í þeim rannsóknarverkefnum
sem þátttakendur velja sér.
Forstöðumaður Ættfræðiþjónustunnar
og leiðbeinandi á þessum námskeiðum er
sem fyrr Jón Valur Jensson. Skráning á
námskeiðin er nú hafin hjá forstöðumanni
í síma 27101.
Eiðfaxi, 8. tbl ársins 1987, er kom-
inn út. Þar er að fmna margar góðar
greinar um hesta og hestamennsku.
Eiðfaxi á 10 ára afmæli um þessar
mundir og vandar því útgáfu sína
af því tilefni. Ásdís Haraldsdóttir
skrifar leiðara um útflutning og vin-
sældir íslenska hestsins, sagt er frá
aðstöðu hestamanna á ísafirði og
aðstöðu og úrslitum móts á Söndum
á Vestfjörðum. Rætt er við Tómas
Jónsson á Þingeyri, Hafliði Stefán
Gíslason skrifar um íslandsmótið,
sagt er frá héraðssýningu og Geysis-
móti á Gaddstaðaflötum, Leifur
Jóhannesson, formaður Landssam-
bands hestamanna, fjallar um næsta 1
landsmót L.H., Ármann Gunnarsson
dýralæknir fjallar um sama mót, sagt
er frá vígslu Reiðhallarinnar hf. og
skýrt er frá starfsemi Skugga, félags
hestaeigenda í Borgarnesi. Þráinn
Bertelsson skrifar um fjölföldunar-
tilhneigingu hrossa og leitina að
kvenhestinum og Sigrún Björgvins-
dóttir skrifar þriðja þátt framhalds-
sögunnar um Perlu. Einnig er sagt
frá vaxandi áhuga á íslenska hestin-
um í Svíþjóð, Ómari Sverrissyni,
járningamanni í Danmörku og ýmsu
fleiru sem varðar hesta og hesta-
menn.
Hjartans þakklæti til allra þeirra sem glöddu mig á
níræðisafmæli mínu með heimsóknum, gjöfum, blóm-
um og skeytum.
Guð blessi ykkur öll.
ANDREA BJARNADÓTTIR,
LINDARGÖTU 41
í gærkvöldi
Gunnar Atlason sölumaður
Allt of mikið popp
Ég hlusta á útvarp allan daginn í
vinnunni og þá á þessar popprásir
sem fara svona inn um annað eyrað
og út um hitt. I gær fór ég að leggja
eyrun við útvarpi til að geta talað
um það og ég held bara að mér hafi
þótt mest gaman að rás eitt ríkisút-
varpsins. Þar voru fróðlegir þættir
og tók ég sérstaklega eftir jassþætti
sem ég hafði gaman af að heyra.
Hvað sjónvarp varðar þá finnst
mér bamaefhi á báðum stöðvum í
seinna lagi og það ber upp á þeim
tíma sem allt venjulegt fólk notar
til að borða kvöldmat. Eftir kvöld-
mat horfði ég á Bjargvættinn á Stöð
2. Hann er góður en þar sem hann
er svona snemma á dagsskránni þá
mætti að skaðlausu geta þess í dags-
skrárkynningu að hann sé ekki við
hæfi bama.
Eitt sem ég tók eftir í gær var
auglýsingar. Það var t.d. auglýst
kvikmyndin Lethal Weapon sem
sýnd er í einu af bíóhúsum bæjarins
Gunnar Atfason.
en hún er bönnuð innan 16 ára. I
auglýsingunni em sýnd ein þrjú at-
riði sem mér finnst vafasamt að séu
við hæfi bama. Ég hafði aldrei tekið
eftir þessu fyrr en í gær að ég horfði
með gagnrýni.
Ég skrapp út um tíma í gærkvöldi
og kom aftur í tæka tíð til að horfa
á lokaþáttinn um dagbækur Ciano
greifa. Ég hef gaman af leiknum
heimildarkvikmyndum um söguleg
efhi.
Að lokum horfði ég á Dallas sem
er alltaf sent út ótruflað. Þessi þátt-
ur er alltaf samur við sig, alltaf sama
vælan, en það er þó vel horfandi á
hann. Annars er ég einn af þeim sem
velur og hafnar ef mér líkar ekki
eitthvert efni í sjónvarpi sný ég mér
frekar að því að gera eitthvað annað
heldur en að horfa.
Spakmælið
Þú kveikir aldrei í annarra sálum ef ekki nema rétt rýkur úr þinni.
H. Redwood
Vitni vantar
' Ökumaður á bifreiðinni R-62367, sem varð
fyrir ákeyrslu á mótum Bústaðavegar og
afrennslis írá Kringlumýrarbraut (við
brúna) um 11.00 leytið á þriðjudag 25.ágúst
óskar eftir vitni að árekstrinum sem þarna
varð. Vitni að árekstrinum hringi í síma
76882.
Hallgrímskirkja
Fyrirhuguð er ferð til Þingvalla næstkom-
andi fimmtudag 3. september. Lagt verður
af stað frá kirkjunni kl. 13.00. Farið verð-
ur um Grafning og Mosfellsheiði heim.
Nánari upplýsingar gefur Dómhildur
Jónsdóttir í kirkjunni í dag milli kl. 11.00
og 16.00 í síma 10745 og heima í síma 39965.
Fréttatilkynning frá
gatnamálastjóra
Miðvikudaginn 2. september kl. 14.00
verða tekin í notkun ný umferðarljós á
gatnamótum Bústaðavegar og Suðurhlíð-
ar. Ljósin hafa þegar verið tengd og látin
blikka gulu fram að opnun til að vekja
athygli vegfarenda á hinum nýju umferð-
arljósum.
Norræna myndlistarsam-
bandið hefur starfað frá 1945
I ringulreið stríðsins fannst norrænum
myndlistarmönnum full ástæða til að taka
saman höndum og leggja brýr milli Norð-
urlandanna 5 og hefja samstarf. Hlutverk
bandalagsins hefur verið að kyxma norr-
æna myndlist á Norðurlöndum og á
alþjóðlegum vettvangi. íslendingar geta
verið stoltir af mynlistarlegu framlagi sínu
og hefur þetta opnað mörgum íslenskum
myndlistarmanninum leið út í heim og
hefim íslenska birtan skinið víða.
Á áttunda áratugnum stóð Norræna
myndlistarbandalagið að stofnun Mynd-
listarmiðstöðvarinnar á Sveaborg í Finnl-
andi, sem sér um samnorrænar sýningar.
Þar eru vinnustofur sem Islendingar hafa
nýtt sér í ríkum mæli. 1 Hafnarborg, Hafn-
arfirði, er eina gestavinnustofan á Islandi
sem hýsir norræna myndlistarmenn og er
aðsókn að henni mikil. Ætti þetta að vera
liður í jákvæðri landkynningu.
Samar voru teknir inn í samstarfið 1982
og nú liggja fyrir umsóknir frá Færeying-
um, Grænlendingum og Álendingum.
I tengslum við aðalfund Norræna mynd-
listarbandalagsins, sem haldinn er hér á
landi dagana 4., 5. og 6. sept. 1987, höldum
við námsstefnu um efnið Myndlist í fjöl-
miðlum (Konsten í multimedia) dagana
7. og 8. sept. 1987.
Ættarmót í Svarfaðardal
Afkomendur Sigfúsar Jónassonar, bónda
á Grund í Svarfaðardal og konu hans,
Önnu Sigríðar Bjömsdóttur, halda ættar-
mót á Dalvík 5. september nk. en þann 6.
sept. em liðin 150 ár frá fæðingu Sigfúsar.
Hópferð um Svarfaðadal verður farin frá
Víkurröst kl. 13.30 á laugardag og stansað
á Tjöm. Þar verður sóknarnefnd færð
minningargjöf um þau hjón. Þá verður
einnig stansað á Gmnd og minningarreit-
ur Eiríks Hjartarsonar skoðaður og nesti,
sem fólk hefur sjálft með sér, snætt úti
verði veður gott.
Um kvöldið kl. 18 verður hóf í Víkurröst
og heldur Anna Sigrún Snorradóttir hátíð-
arræðuna og sitt hvað verður sér til
gamans gert.
Börn Sigfúsar og Önnu Sigríðar voru:
Guðlaug, Björn, Ingigerður, Halldór, Arn-
grímur, Þuríður og Snorri og áðúr átti
Sigfús soninn Jón. Stefnt er að því að taka
saman niðjatal þeirra að ættarmótinu lo-
knu.
Þátttakendur úr Reykjavík fara í hópferð
norður föstudaginn 4.9 kl. 15 (áhugafólk
hringi til Bjarkar Guðjónsdóttur í síma
91-35314) og til baka á sunnudag.
Áhugafólk um hringferðina um Svarfað-
ardal hafi samband við Maríu Snorradótt-
ur á Dalvík (sími 96-61163) og hún selur
einnig miða að hófinu í Víkurröst um
kvöldið.
Firmakeppni
Hin árlega firmakeppni ÍK í knattspymu
utanhúss verður haldin á Vallargerðis-
velli í Kópavogi 5.-6. september.
Leikið verður á þveran völlinn, 7 leik-
menn í liði, auk 3-4 varamanna. Leiktími
er 2x15 mínútur.
Leikið er um vegleg verðlaun, fallegan
eignarbikar og verðlaunapeninga fyrir
þijú efstu sætin.
Þátttaka tilkynnist í síma 681333 (Logi)
og 75209 (V íðir) fyrir fimmtudaginn 3. sept-
ember.
Hundrað fyrirburðir
Þorvaldur Þorsteinsson.
Ot er komin bókin „Hundrað fyrirburðir"
eftir Þorvald Þorsteinsson myndlista-
mann. Hún hefur að geyma 50 svart/hvítar
ljósmyndir af málverkum og vatnslita-
myndum eftir höfundinn, auk fimmtíu
smátexta.
Þorvaldur Þorsteinsson útskrifaðist úr
Nýlistadeild Myndlista- og handíðaskóla
Islands nú í vor. Á undanfömum þremur
árum hafa komið út eftir hann nokkur
bókverk í takmörkuðu upplagi, auk bama-
bókarinnar „Skilaboðaskjóðan" sem Mál
og menning gaf út á síðasta ári.
Bókin „Hundrað fyrirburðir" er um það
bil einn sentimetri á þykkt, rúmlega 20
sentimetrar á hæð og tæplega 15 senti-
metrar á breidd. Hún er gefin út í 200
tölusettum og árituðum eintökum og er
til sölu í Hafnargallerýinu (yfir Bókpversl-
un Snæbjarnar í Hafnarstrætinu) og í
bókabúð Máls og menningar.
Affingrum fram.
Unnur Svavars sýnir í Þrastarlundi yfir
20 myndir, akrýl og pastel. Sýningin stend-
ur yfir frá 31. ágúst til 20. sept. Þetta em
Stevie Wonder aðdáendur í
ferðahug
Ferðaskrifstofan Terra og Útvarpsstöðin
Stjarnan efna í sameiningu til skemmti-
ferðar til London. Hápunktur ferðarinnar
verða hljómleikar með Stevie Wonder, sem
haldnir verða á Wembley Arena fimmtu-
dagskvöldið 3. september.
Ýmislegt annað verður einnig gert sér til
skemmtunar þessa 5 daga. Má þar nefna
ferð á hinn fræga skemratistað Hippodrom.
Knattspymuáhugamenn fá einnig eitt-
léttar myndir og verðið létt í vasa. Nafnið
á sýningunni er tilkomið vegna þess að
myndirnar koma af sjálfu sér eða ósjálf-
rátt. Þetta er fjórtánda einkasýningin.
hvað við sitt hæfi. Laugardaginn 5.
september fer fram leikur milli Westham
og Liverpool á Uptown Park sem án efa
verður eftirminnilegur.
Fararstjóri í þessari ferð verður hinn góð-
kunni hljómlistarmaður Magnús Kjart-
ansson, sem sagt er að sé mesti Stevie
Wonder aðdáandi allra tíma og öllum fróð-
ari um þennan merka tónlistarmann.
Gist verður á Hótel Mount Royal, sem
stendur á besta stað við Oxford Street.
Þetta er tækifæri sem enginn ætti að láta
fram hjá sér fara.