Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1987, Side 37
ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987.
37 •
Allt dettur þeim í hug í Amerík-
unni. Ulla Matteson var orðin leið á
því að pósturinn hyríí alltaf úr póst-
kassanum áður en hún fengi hann í
sínar hendur. Það var aðeins eitt ráð
við því og það var að vera á staðnum
þegar póstmaðurinn kæmi. Og auð-
vitað var allra öruggast að fá póstinn
strax í sínar hendur í bókstaflegri
merkingu. Því ákvað hún að troða
sér í póstkassann, þannig fengi hún
örugglega póstinn beint. Og það varð
úr; Ulla tróð sér í kassann eins og
sjá má á myndunum.
Póstmaðurinn tók ekki eftir neinu,
hún fékk bréfið beint í sínar hendur
og allt gekk vel. Hún notaði tröppu-
stiga til að komast í og úr kassanum.
Ekki fylgdi sögunni hvort stúlkan
hugðist beita þessu bragði á morgni
hverjum. En verði henni að því...
Fyrrum James Bond-leikarinn
Roger Moore brá á leik fyrir ljós-
myndara á dögunum. Hann var í
sumarfríi í Sviss og því í sínu
besta skapi. En hann er nú bara
betri eins og hann á að sér að
vera, eða hvað finnst ykkur?
- _______ ‘ '
Fróðleiksmolar
um háðfugl.
Háðfuglinum, leikstjóranum, handritshöf-
undinum og leikaranum Woody Allen er
margt til lista lagt. Hann hefur verið einn af
umdeildari leikstjórum og myndir hans hafa
hvarvetna hlotið mikla eftirtekt. Það er ann-
aðhvort af eða á. Fólki stórlíkar myndir hans
eða þolir þær alls ekki.
Það líkar honum einmitt. Hann vill ekki
vera allra en samt vill hann vera vinsæll.
Woody hefur gert margt í gegnum tíðina og
brugðið sér í hin ýmsu gervi. En hann hefur
aldrei orðið pabbi. Ekki ennþá að minnsta
kosti.
Skírnarnafn hans er Allan Stewart Konigs-
burg.
Hann ætlaði einu sinni að verða ballett-
dansari.
Hvort sem það er trúlegt eða ekki, er hann
mikill íþróttamaður. Hann syndir mikið, leik-
ur körfubolta og fleira.
Hann geymir óskarana, sem hann hefur unn-
ið, ekki á heimili sínu. Þeir eru einhvers
staðar í geymslu hjá foreldrum hans.
Ef hann væri ekki Woody Allen vildi hann
vera Louis Armstrong.
Hann borðar kvöldverð úti á veitingahúsum
þrjú hundruð og sextíu sinnum á ári.
Hann komst oft í vandræði í skóla, alveg frá
barnaskóla og upp í háskóla. Alls kyns klúð-
ur elti hann í þeim stofnunum.
Hann er sjúkur í súkkulaði - hitt og þetta.
Woody hatar banka. Hann hefur ekki komið
inn í einn slíkan í tíu ár. Ekki einu sinni til
að skipta ávísun.
Hann þolir ekki sveitina. Er algjört borgar-
barn sem fer ekki einu sinni með Miu sinni
út fyrir borgina.
Woody getur ekki snætt nokkurn mat án
þess að hann sé að lesa eitthvað.
Hann hóf feril sinn á því að auglýsa líkjöra
og sólgleraugu, hérna í þá gömlu, góðu....
Það er nú eiginlega ekkert skrýtið að hann hafi hætt við að verða
ballettdansari, eða hvaö?
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Burt Reynolds
er orðinn dauðþreyttur á þeim
sögum sem herma að hann sé
með eyðni en sá orðrómur hefur
gengið fjöllum hærra í
Hollywood sem og annars stað-
ar. Sögurnar hefur hann tekið
mjög nærri sér. Segir hann þær
hafa skaðað sig, einkalífið og
ekki síður fjölskyldu sína. Hvað
kom þessum orðrómi af stað
veit hann ekki nema hann lagð-
ist i flensu fyrir ári og um leið
og fólk frétti að hann hefði ve-
rið lasinn heima var sagt að
hann væri að deyja úr eyðni.
Allt þetta tal er hins vegar mesta
firra. Leikarinn hefur aldrei verið
hressari og leikur á als oddi.
Bill Gosby
fyrirmyndarfaðirinn er fyrir-
myndarfaðir í raunveruleikanum
líka. Fyrir nokkru kom út bók
eftir leikarann þar sem hann
gefur öðrum feðrum góð og
holl ráð í sambandi við bar-
nauppeldi. Bókin varð strax
metsölubók og fólk varð ýfir sig
hrifið af uppátækinu. En fólk
fékk ekki nóg. Nú er bókar núm-
er tvö beðið með eftirvæntingu.
Bill hefur fengið ótal beiðnir um
að sjónvarpsþáttur verði gerður
um þetta efni. Leikarinn hefur
tekið vel í þá hugmynd en mál-
ið er í nefnd. Það vilja sýnilega
allir verða fyrirmyndarfeður í
Ameríkunni.
Don Johnson
hefur gengið vel að koma sér á
framfæri og öðlast frægð og
frama. En mikið vill meira. Nú
segist hann ætla að gerast
vandlátari á þá sjónvarpsþætti
sem hann kemur fram í. Þá seg-
ist hann helst kjósa að fá góð
aðalhlutverk í góðum kvik-
myndum í framtíðinni. En það
verður erfitt fyrir kvikmynda-
framleiðendur að semja við
kappann. Fyrir leik í hverri mynd
hefur hann sett upp rosalegar
launakröfur. Svo miklar að
framleiðendurnir brosa bara og
segja: „Hvað þykist hann vera?"
En Don lítur stórt á sig og stend
ur fast á sínu.