Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1987, Síða 40
A->
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62.-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Oreifing: Sími 27022
Frjálst,óháö dagblaö
ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987.
Báðirábatavegi
Gyffi Kristjánssan, DV, Akureyii
Pilturinn, sem hrapaði 7-9 metra
er hann var að sýna sig á húsi við
Ráðhústorg á Akureyri á laugardag,
mun vera minna meiddur en álitið
var í fyrstu.
Hjálparsveit skáta var með sýn-
ingu á sigi utan á húsinu er pilturinn
hrapaði og horfðu þúsundir manna
á atburðinn sem einnig var útvarpað
í beinni útsendingu Hljóðbylgjunnar
á Akureyri. Samkvæmt heimildum
DV mun pilturinn hafa tvíhand-
leggsbrotnað, hælbrotnað og hlotið
fleiri minni háttar áverka.
Þá er það að frétta af Dalvíkingn-
um, sem varð fyrir hnífsárás Portúg-
ala á Dalvík um helgina, að meiðsli
hans voru mun minni en óttast var
í fyrstu og hefur hann þegar fengið
að fara heim af sjúkrahúsinu á Ak-
ureyn.
Hvalveiðamar
DregUr til tiðinda
f dag mun ríkisstjómin greina frá
hvort hvalveiðar verða leyfðar á
ný eða ekki. Fregnir hafa hermt,
að stjómin muni þegar hafa tekið
ákvörðun um að hvalveiðum verði
haldið áfram. Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra vildi ekki
segja í gær hvort yrði ofan á, veið-
ar eða áframhaldandi hlé á hval-
veiðum.
Halldór sagði að ekki hefðu bo-
rist mótmæli erlendis frá vegna
frétta í fjölmiðlum um að veiðar
hæfust á ný í þessari viku. Hann
sagðist ekki eiga von á viðbrögðum
fyrr en ríkisstjórnin tilkynnti um
afstöðu sína til hvalveiðanna.
Hvort það þýddi að veiðar yrðu
leyfðar á ný vildi ráðherra ekkert
segja um.
-sme
Frá og með 1. september hækkar
áskrift DV í kr. 600,-.
Lausasöluverð virka daga verður
kr. 60,- og Helgarblað DV kostar
kr. 75,-.
Grunnverð auglýsinga verður kr.
400,- hver dálksentímetri.
LOKI
Það er enn hægt að fá
miða í bankalottóinu.
Valur Amþórsson um Útvegsbankamálið:
„Okkur kom saman um á fúndin-
um í i
skýra frá því hvað þar gerðist. En
ég játa að lagaskýring ráðherrans
að fúndinum loknum kom mér á
óvart. Hann er ráðherra, en ég vek
athygli á því að hann er ekki dóm-
ari og ekki einu sinni lögfræðingur.
Við hjá Sambandsfyrirtækjunum
höfúm lögfræðilega álitsgerð sem við
treystum og það hefúr engin breyt-
ing átt sér stað á okkar afetöðu. Við
teljum okkur hafa keypt hlutaféð og
að ekki hafi komið fram nein fram-
bærileg ástæða fyrir því að staðfesta
ekki þau kaup,“ sagði Valur Am-
þórsson, stjómarfonnaður Sam-
bandsins, í samtali við DV í morgun.
þeim aðferðum sem hann gæti fallist
á fyrir þvi að menn tali saman. Hann
sagðist viðurkenna þær staðreyndir
að uppi væri hnútur í málinu, sem
ekki væri tilkominn að undirlagi
Samvinnufyrirtækjanna, en þyrfti
að leysa. Ennfremur sagðist Valur
ekkert hafa á móti þeim einstakling-
um og fyrirtækjum sem væru í 33ja
manna hópnum og því væri sjálfeagt
að tala við þá, til hvers sem það svo
myndi ieiða.
„Ég endurtek það sem ég sagði
áðan, við höfúm ekkert gefið eftir,
þótt við föllumst á viðræður við
mótaðila okkar ef það mætti leiða
til þess að ágreiningurinn, sem uppi
er vegna þessa raáls, yrði settur nið-
ur,“ sagði Valur Amþórsson.
Kristján Ragnarsson, talsmaður
þrjátíu og þremenninganna, sagðist
ekkert vilja segja um þetta mál fyrr
en að loknum firndi sem þeir ætla
að halda um raálið í dag.
-S.dór
Kfnverski utanrikisráðherrann, Zheng Tuobin, er nú staddur hér á landi eins og fram hefur komið í fréttum.
Hann þáöi i gærkvöldi kvöldverðarboð Steingrims Hermannssonar utanrikisráðherra í ráðherrabústaðnum.
Hér sést Steingrímur taka á móti ráðherranum kínverska, sem heldur aftur utan á morgun. DV-mynd JAK
Malagakonan:
Þetta
hefur verið
hræðilegt
„Ég sit hér hjá konsúlnum og hef
það gott. Þetta hefúr allt verið hræði-
legt. Meira segi ég ekki við blaða-
menn,“ sagði konan, sem átt hefúr í
útistöðum við lögreglu og íslenska
konsúlinn í Malaga undanfamar vik-
ur, í símtali við DV í gær.
Eins og skýrt var frá í DV á laugar-
daginn varð konan óð og barði ís-
lenska konsúlinn niður á fimmtudag-
inn. Síðan fór hún af sjúkrahúsi sem
henni hafði verið komið á og enginn
vissi hvar hún var á föstudaginn. Hún
er nú aftur komin í leitimar og dvaldi
í gær hjá konsúlnum í Malaga.
Konan mun væntanleg heim til Is-
lands með flugvél frá Malaga í dag.
-S.dór
Ungur maður fékk í sinn hlut 5.4
milljónir í Lottóinu um helgina. Hann
er ásamt unnustu sinni að stofna heim-
ili og hafa þau verið að leita sér að
íbúð. Þeim mun reynast auðveldara
að festa sér fasteign nú en þau hugðu
fyrir helgi.
Hæsti vinningur í Lottóinu nú var
10.8 milljónir króna og vom tveir mið-
ar með fimm rétta. Annar miðinn var
í eigu mannsins sem áður er getið um,
en hinn miðann áttu þrír menn saman
og skipta þeir því á milli sín 5.4 millj-
ónum. Þeir hafa áður unnið hæsta
Veðrið á morgun:
Norðanátt
um land
altt
Á morgun verður norðanátt um
allt land með súld eða rigningu
norðan- og norðaustanlands. Þurrt
og sums staðar bjart veður verður
syðra. Hiti verður á bilinu 5 til 8
stig norðanlands en 8 til 12 stig á
Suður- og Suðausturlandi.
Akranes:
Eldurí
strætisvagni
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
vinmng.
Vilhjálmur Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóri íslenskrar getspár,
sagði að vinningshafamir hefðu allir
óskað nafiileyndar. -sme
Eldur varð laus í strætisvagni á
Akranesi í gærkvöldi. Vagninn var
mannlaus þegar eldurinn kviknaði.
Eldsupptökin > eru ókunn. Það var
laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi
sem lögreglunni barst tilkynning um
að eldur væri í vagninum.
Lögreglan réðst að eldinummeð sín-
um tækjum og síðar kom slökkvilið
og tók við slökkvistarfinu. Vagninn
mun vera töluvert skemmdur eftir
óhappið. -sme