Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1987, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1987, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1987. 3 DV Fréttir AJþýðubandalagið: Til mín hefur verið leitað um framboð - segir Ólafar Ragnar Grímsson prófessor „Á undanfomum vilcum hafa fjöl- margir félagar í Alþýðubandalaginu farið þess á leit við mig að ég gefi kost á mér í framboð til formanns á landsfundinum í haust. Þessir aðilar hafa fært fyrir þessu ýmis rök og þama er um að ræða fólk á öllum aldri,“ sagði Ólafar Ragnar Gríms- son um formannsframboðið í Al- þýðubandalaginu í samtali við DV. Ólafur sagði að á meðan Svavar Gestsson, formaður flokksins, hefði ekki verið búinn að gefa út yfirlýs- ingu um það hvað hann ætlaði að gera hefði ekki verið tímabært að svara umleitunum þessa fólks. Nú hefði komið yfirlýsing frá Svavari um að hann færi ekki fram. „Ég hef verið erlendis síðustu tvær vikur en mun nú ræða þetta mál við félaga mína í flokknum og síðan gefa út yfirlýsingu um hvað ég geri að því loknu,“ sagði Ólafúr Ragnar. Þótt Ólafur vilji ekki segja af eða á um það hvort hann gefi kost á sér hefur DV heimildir fyrir því að nær ömggt sé að svo verði. -S.dór Olafur Ragnar Grímsson. Enn langt í svar Hvalveiðar hefjast á föstudag; Kvótinn minnkaður Frá blaðamannafundi sjávarútvegsráðherra þar sem hann kynnti ákvörðun rikisstjómarinnar um hvalveiðar. DV-mynd Brynjar Gauti Ríkisstjómin hefur ákveðið að hval- veiðar í vísindaskyni hefjist aftur á föstudag. Halldór Ásgrímsson sjávar- útvegsráðherra gerði grein fyrir þessari ákvörðun á blaðamannafundi í gær. I máli ráðherrans kom fram að ákveðið hefði verið að falla frá hrefhu- veiðum og að veiddar verði helmingi færri sandreyðar en ákveðið hafði ver- ið, eða tuttugu í stað fjörutíu. Nú em tvö hvalveiðiskip á miðunum við hvalatalningu. Á föstudag geta þau hætt talningu og snúið sér að veiðum þar sem ríkisstjómin hefur ákveðið að þá megi veiðar heíjast á ný. Ráðherra sagði að vegna þessa nið- urskurðar á veiðum væri hætta á að rannsóknaráætlunin, sem á að ljúka á árinu 1990, drægist eitthvað. Ráð- herra sagði að þetta væri pólitísk ákvörðun og hún væri ekki byggð á mati Hafrannsóknastofnunar. Halldór Ásgrímsson sagði að ekki hefðu borist viðbrögð frá Bandaríkj- unum vegna þessarar ákvörðunar ríkisstjómar íslands. Halldór sagði að ekki væri að vænta viðbragða frá Bandaríkjunum strax, þar hefði verið haldinn formlegur fundur um málið í gær og viðbragða væri ekki að vænta fyrr en að einhverjum dögum liðnum. Ráðherra sagðist ekki vilja til þess hugsa að Bandaríkjastjóm gripi til viðskiptaþvingana vegna hvalveið- anna. Ráðherra sagði að ísland hefði aldr- ei brotið stofhsamning eða samþykktir Alþjóða hvalveiðiráðsins en segir að ályktun, sem samþykkt var á síðasta þingi þess að frumkvæði Bandaríkj- anna þar sem mælt er með þvi að íslendingar endurskoði rannsóknará- ætlunina, sé ólögmæt. Islendingar, Japanir og Norðmenn hafa átt samræður um sameiginlega hagsmuni í hvalveiðum og líklegt er að þjóðimar þijár haldi fund hér á landi fyrripart vetrar. Á þeim fundi er ætlunin að ræða starfið innan Al- þjóða hvalveiðiráðsins og hvemig halda megi áfram vísindastarfsemi. -sme Ferskfiskútflutningurinn frá Vestmannaeyjum: - segir Steingrímur J. Sigfússon „Ég neita því ekki að það hefur verið orðað við mig hvort ég væri tilbúinn að gefa kost á mér til for- manns á landsfundi. Ég get aðeins sagt það að enn er langt í að ég svari þessu og ég mun gera það á réttum stað, sem er innan flokksins," sagði Steingrímur J. Sigfússon alþingis- maður í samtali við DV. Samkvæmt heimildum DV er hart lagt að Steingrími að gefa kost á sér við formannskjörið á landsfundi i nóvember. Hann sagði að menn yrðu að skoða máhð í nýju ljósi þar sem Svavar Gestsson hefði nú skýrt frá því opin- berlega að hann gæfi ekki kost á sér áfram. Sagði Steingrímur eðlilegt að það tæki nokkum tíma að átta sig á þessu nýja viðhorfi, jafnvel þótt það kæmi ýmsum ekki mjög á óvart að Svavar ætlaði að hætta. -S.dór Steingrímur J. Sigfússon Boða til fúndar um skýrsluna „Við teljum ferskfiskútflutninginn og niðurstöðu skýrslu sem unnin var fyrir atvinnumálanefnd Vestmanna- eyja það alvarlegt mál að við höfum ákveðið að boða til fundar um málið. Til fundarins verður boðið öllum aðil- um sem málið varðar, þar á meðal fulltrúa frá sjávarútvegsráðuneytinu," sagði Magnús Magnússon, formaður atvinnumálaneíhdar Vestmannaeyja, í samtali við DV. Eins og skýrt var frá í DV á laugar- daginn kemur fram í skýrslu, sem Hilmar Victorsson viðskiptafræðingur hefur unnið fyrir atvinnumálanefnd- ina í Eyjum, að þjóðarbúið tapi 800 milljónum á þvi að flytja fisk út í gám- um í stað þess að vinna hann hér heima. Skýrslan hefur enn ekki verið birt opinberlega. Magnús var spurður hvernig þessi upphæð væri fundin? „Hún er fundin með þeim hætti að taka þá upphæð sem fékkst fyrir fersk- fisksöluna á erlendum markaði og síðan hvað fjTÍr þetta sama magn hefði fengist ef fiskurinn hefði verið unninn hér heima og seldur á Bandaríkja- markaði," sagði Magnús. Hann sagði að í skýrslunni kæmi einnig fram að fyrir utan 100 ársverk, sem töpuðust í Vestmannaeyjum vegna gámaútflutnings, tapaði Vest- mannaeyjabær 10 milljónum króna í minni tekjum fiskvinnslufólks og þar af leiðandi lækkuðu útsvör og að- stöðugjöld sjómanna. Á móti væru teknar hærri tekjur sjómanna og út- gerðarmanna en samt væri tap bæjarins þetta mikið. ..Við teljum þetta svo alvarlegt mál fyrir atvinnulíf Vestmannaevja að ekki verður hjá þvi komist að halda fund um málið." sagði Magnús Magn- ússon. -S.dór Hef ekki léð máls á því að gefa kost á mér - segir Sigríður Stefánsdóttir „Ég neita því ekki að það heíúr verið fært í tal við mig að ég gefi kost á mér til formanns á lands- fundinum í haust. Ég hef aftur á móti ekki léð máls á þessu og þann- ig standa málin nú,“ sagði Sigríður Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins á Akureyri, í samtali við DV. Eins og áður hefúr verið skýrt frá í DV hefúr verið leitað stíft eftir þvi við Sigríði að hún gefi kost á sér við formannskjörið. Hún var spurð að því hvort það væri búseta hennar á Akureyri sem réði því að hún hefði ekki léð máls á framboði? „Nei, enda lít ég svo á að það sé ekkert sjálfgefið að formaður flokks- ins búi í Reykjavík. Það eru aðrar ástæður fyrir þessu sem ég hirði ekki um að skýra frá,“ sagði Sigríður Stefánsdóttir. Á það má minna að enn eru tveir mánuðir til landsfúndar og tveir mánuðir eru langur tími í pólitík. -S.dór Sigríður StefánsdóRir BMAHÚSID Laugavegi 178 sími 68-67-80 Næsta hús við sjónvarpestöö 1.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.