Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1987, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1987, Side 26
26 MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1987. Jarðarfarir Gertrud Hauth Ásgrímsson, Skriðu- stekk 27, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 2. september kl. 10.30. sonar, vinnusími 686125 Oieima 37392) eða Ástvalds Guðmundssonar, vinnusími 686312. Vettvangsferð Aðalstræti 16, elsta hús Reykjavíkur við elstu götu landsins. Á fimmtudagskvöldið kl. 20.00 stendur Náttúruvemdarfélag Suðvesturlands fyrir kynningu á Aðalstræti 16 (á homi Aðal- strætis og Túngötu). Guðjón Friðriksson sagnfræðingur mun lesa með okkur húsið sem er sennilega elsta húsið að stofni til í Reykjavík. Hug- takið að lesa hús er ættað frá Þórbergi Þórðarsyni. Guðjón mon segja sögu húss- ins og nánasta umhverfis. Með leyfi húseiganda gengur Guðjón með okkur um húsið, sýnir okkur það sem þar er að sjá frá fyrri tíð og getur um atburði er því tengist. Hann mun svo svara spurningum. Allir em velkomnir. Þátttökugjald er ekk- ert. Áætlað er að vettvangsferðin taki 1 til l'/i klukkustimd. I gærkvöldi Díana Mjöll, Hrafnagilsstræti 21, sem lést 25. ágúst, verður jarðsungin frá Glerárkirkju á Akureyri 2. septemb- er kl. 13:30. Kristín Jóhannsdóttir, fyrrum hús- freyja að Gestsstöðum í Norðurárdal, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 2. september kl. 15.00. Pétur Vigfússon frá Hægindi verður jarðsunginn frá Reykholtskirkju miðvikudaginn 2. september kl. 14.00. Benedikt Halldórsson, Kjarrvegi 10,- verður jarðsettur frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 2. september kl. 1.30. TiBcynningar Haustferð Hin árlega „13. september ferð“ Jökla- rannsóknafélagsins í Jökulheima verður farin föstudaginn 11. september 1987 kl. 20 frá Guðmundi Jónassyni hf. (austurdyr). Þátttaka tilkynnist til Stefáns Bjama- Bjami Hinriksson teiknari: Utvarpsrásimar vantar stfl Ég horfði á Taggart í gærkvöldi og hafði gaman af. Annað sá ég nú ekki. Ég hef lítið fylgst með útvarpi og sjónvarpi þar sem ég er búsettur erlendis á vetrum og geri flest annað á sumrin en setjast fyrir framan kassann. Ég hef þó reynt að fylgjast með því helsta með því að lesa dag- skrá ef ekki vill betur. Ég held að öll þessi útvarps- og sjónvarpsframleiðsla fari að taka á sig einhverja mynd nú í vetur en það er komin fremur lítil reynsla á þetta enn sem komið er. Stöð 2 er nú búin að sanna tilveru- rétt sinn og að dæmið gangi upp fjárhagslega. Það hlýtur því að fara að koma að því að það leggist á þá sú ljúfa kvöð að fara að huga meir að innlendri dagskrárgerð og því miður virðist ríkissjónvarpið ætla að veita þeim litla samkeppni á því sviði. Ég vona að þessi íslenska sápuópera, sem er að hefja göngu sín á Stöð 2, verði góð, ég gæti trúað því að hún verði með fagmannlegum hætti, nokkuð sem oft hefur skort með íslenska grínþætti. Mér finnst það alvarlegt mál hvað innlend framleiðsla ríkissjónvarps hefur ver- ið lítil og léleg og að ekkert virðist framundan. Sjónvarpið hefur þó að ýmsu leyti Bjami Hinriksson. haft gott af samkeppninni við Stöð 2 og hefur hún veitt því hressara yfirbragð. Mér finnst þó að fyrst þessir ríkisfjölmiðlar eru til á annað borð þurfi hið opinbera að veita þeim samkeppnisgrundvöll. Fyrst og fremst þyrfti sjónvarpið þó að sinna þáttum sem útundan eru hjá Stöð 2. Af því sem ég hef verið að sjá í sjónvarpinu finnast mér þættimir um meistaraverkin á sunnudags- kvöldum t.d. mjög góðir og hefði viljað sjá meira af slíku. Mér finnst Ríkisútvarpið hafa komið mjög vel út úr samkeppninni, og sýnist að þar sé margt framund- an. Hvað hinar stöðvamar varðar þá em þær fullungar til að hægt sé að dæma um þær en ég held að þær þurfi óhjákvæmilega að fara að skapa sér einhvem stíl hver um sig. Ég er spenntur fyrir hugmyndinni um grasrótarútvarp það sem tekur til starfa nú um áramótin. Það vant- ar hins vegar gersamlega einhverjar „underground" stöðvar, eitthvert mótvægi við allt listapoppið. Fréttatilkynning Hljómsveitin Gildran heldur tvenna tón- leika í þessari viku. Þeir fyrri verða miðvikudaginn 2. sept. í Duushúsi og þeir seinni fimmtudag 3. sept. í Casablanca. Firmakeppni Hin árlega firmakeppni lK í knattspymu utanhúss verður haldin á Vallargerðis- velli í Kópavogi 5.-6. september. Leikið verður á þveran völlinn, 7 leik- menn í liði, auk 3-4 varamanna. Leiktími er 2x15 mínútur. Leikið er um vegleg verðlaun, fallegan eignarbikar og verðlaunapeninga fyrir þrjú efstu sætin. Þátttaka tilkynnist í síma 681333 (Logi) og 75209 (Víðir) fyrir fimmtudaginn 3. sept- ember. Skáldakvöld Besti vinur ljóðsins heldur skáldakvöld á Hótel Borg kl. 21.00 í kvöld. Þar verður lögð megináhersla á að kynna bækur sem eru nýútkomnar eða væntan- legar. Þessi skáld lesa úr verkum sínum: Sigfús Daðason, Jón Egill Bergþórsson, Steinunn Sigurðardóttir, Þorgeir Þor- geirsson, Jóhann árelíuz, Þorsteinn frá Hamri, Gunnar Hersveinn, Kristín Ómars- dóttir, Vilborg Dagbjartsdóttir og Isak Harðarson. Að auki mun Ámi Ibsen lesa þýðingu sína úr verkum Samuels Beckett. Kynnir verður Viðar Eggertsson leikari. Seldar verða veitingar á Hótel Borg eins og endranær. Miðaverðið á skáldakvöldið er krónur 300,- Islendingar með tvo Evrópu- meistara í karate karla - á EM-móti í London í gærkvöldi Tveir íslenskir karatekappar tryggðu sér Evrópumeistaratitil í Lon- don í gærkvöldi. Það eru þeir Ámi Spakmælið Ef ríkur maður er hreykinn af auðæfum sínum ætti ekki að lofa hann fyrr en vitað er hvernig þau eru fengin. SIGLUFIRÐI Blaðbera vantar víðs vegar um bæinn. Upplýsingar í síma 96-7108. Ólsal hf Hreinlætis- og ráðgjafarþjónusta auglýsir eftir starfs- fólki, körlum og konum, til starfa í Kringlunni. 1. Almenn þrif í Kringlunni, vaktavinna á bilinu kl. 10-22. Aðlaðandi vinnuaðstaða. 2. Hreingerningar, föst störf, mikil vinna Ólsal hf., Dugguvogi 7 - sími 33444 Einarsson og Atli Erlendsson sem náðu þessum góða árangri. Keppt var í Go ju-kai-afbrigðum. Ámi varð sigur- vegari í -60 kg flokki í kumite og Atli Erlendsson í -65 kg flokki í kumite. Jónína Olsen tryggði sér silfurverð- laun í kata kvenna og þá varð íslenska kvennasveitin í öðru sæti. íslendingar fengu þrenn bronsverðlaun í kumite karla og íslenska karlasveitin hafiiaði í þriðja sæti. Nánar verður sagt frá Evrópukeppn- inni í blaðinu á morgun. -sos Leiðrétting ...flýgur örn yfir...“ Hinn 20. ágúst sl. ritaði Öm Ólafsson langt svar við stuttri athugasemd við ritdóm Amar um útgáfu undirritaðs á Hávamál- um og Völuspá. öm fer mörgum orðum um varðveislu kvæða á munnlegu stigi og meðferð okkar nútímamanna á fornum uppskriftum slíkra kvæða en segir undir lokin: „Ég sagði að það væri ósamræmi í því hjá Gísla að hafna á einu bretti erindunum sem Hauksbók hefúr fram yfir Konungs- bók, en taka þó „stundum" texta Hauks- bókar fram yfir texta Konungsbókar, í einstökum línum. í svari sínu vill Gísli aðeins kannast við að hann geri þetta einu sinni, í 58. erindi. En annað dæmi blasir þó við þegar í upphafi kvæðisins þótt þess sé ekki getið í skýringum. Gísli prentar 2. erindi (s.hl.): „Níu man ég heima / níu íviðjur / mjötvið mæran / fyr mold neð- an“ eftir Hauksbók, en í Konungsbók stendur: „Níu man ég heima / níu íviði..." sem er torskilið mjög.“ Hér er farið rangt með. Árið 1979 birti Stefán Karlsson stutta athugasemd í Griplu 3, bls. 227-28, undir fyrirsögninni: „íviðjur". Þar bendir hann á að úr Konungsbókartextanum skuli ein- mitt lesa „niu íviðjur" en ekki „níu íviði" eins og útgefendur hafa löngum gert. Stef- án lýkur athugasemdinni með þessum orðum: „Rétt mun þvi að leggja fyrir róða þær skýringar á Völuspá 2.6, sem eru reist- ar á leshættinum „iviþi“. Nóg er samt.“ Gísli Sigurösson Vrfilfell og Akra: „Spennandi markaður - segir Lýður Friðjónsson „Þetta getur ekki talist hefiidarráð- stöfun, þetta er spennandi markaður með hagnaðarmöguleika," sagði Lýð- ur Friðjónsson, fjármálastjóri Vífilfells í gær, þegar ummæli Davíðs Scheving Thorsteinsson um kaup Vífilfells á Akra voru borin undir hann en Davíð hafði kallað kaupin hefndarráðsstöfun og nefndi sérstaklega að Vífilfell hefði tapað samkeppninni á milli Svala og Hi-C og væri Vífilfell því með hefndar- ráðstöfun á hendur sínum fyrirtækj- um. Lýður sagði það ekki vera rétt að Vífilfell hefði tapað í samkeppni við Svala. Vífilfell hefði náð 40% af mark- aðnum á tveimur árum og bætti við að ef þeir stæðu sig jafii vel í smjörlík- issölunni þá væri það vel. Viðtaliö Hjörtur Hjartar: Toppurínn á kransakökunni - segir nýráðinn forstöðumaður markaðsdeildar Bmskips „Þegar það kom upp að þessi staða var laus og að ég hefði möguleika á því að fa hana sló ég til því að mér finnst alltaf spennandi að takast á við eitthvað nýtt,“ sagði Hjörtur Hjartar sem tók við starfi forstöðu- manns markaðsdeildar Eimskipafé- lags íslands um síðustu mánaðamót. „Það sem dró mig fyrst og fremst hingað er að þetta er stórt fyrirtæki sem beitir háþróuðum stjómunarað- ferðum. Það er ekki víða sem menn fá tækifæri til að taka þátt í svona samhæfðum og vönduðum stjómun- araðferðum. Hvað stjómun varðar er Eimskip toppurinn á kransakök- unni.“ Hjörtur sagði að markaðsdeildin væri ábyrg fyrir stefiiu fyrirtækisins gagnvart viðskiptavinunum, eða að koma markaðsstefhu fyrirtækisins niður á sölumannsplanið. „Það er því hlutverk forstöðu- manns deildarinnar að taka þær hugmyndir sem hann og fyrirtækið hefur, móta þær og hanna vinnuað- ferðir fyrir einstaka starfsmenn. Mér líst mjög vel á þetta starf, það virðist bæði vera fjölbreytt og skemmtilegt." Hjörtur er 39 ára gamall rekstrar- hagfræðingur. Hann lauk námi frá háskólanum í Álaborg árið 1979 og réð sig þá til starfa hjá Hagvangi. Síðan vann hann í tvö ár hjá OLlS og fór þaðan til Félags íslenskra iðn- rekenda þar sem hann starfaði sem hagfræðingur í þrjú ár eða þar til hann fór til Eimskips. Hjörtur er kvæntur Jakobínu Sig- tiyggsdóttur og eiga þau tvö böm, 17 ára son og 4 ára dóttur. Hjörtur hefur gaman af að fara til rjúpna og fær alltaf fiðring þegar veiðitíma- bilið hefet. Sumarfríið notaði hann til gönguferðar og jeppaferðar um hálendi íslands. „Ég er hrifinn af útiveru þó ég verði að viðurkenna að þetta er í fyrsta skipti sem sumarfríi mínu er varið á þennan hátt.“ Þá segist Hjörtur hafa mikinn áhuga á tölvum og tölvuvinnslu og einnig tekur hann þátt í félagsmál- um. „En fyrst og fremst hef ég gaman af faginu og mikið af mínum frítíma fer í lestur og athuganir varðandi fagið,“ sagði hjörtur. -ATA Hjörtur Hjartar, nýráðinn forstööu- maður markaösdeildar Eimskipafé- lags íslands. DV-mynd BG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.