Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Síða 6
6
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987.
Atvinnumál
Nú er óttast að Sovétmenn kaupi enga sild í ár.
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýöubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir
15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæöur
þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra
16 ára. 65-60 ára geta losað innstæður sínar
með 9 mánaða fyrirvara, 70-74 ára með 6 mán-
aða fyrirvara og 75 ára og eldri með 3ja mánaða
fyrirvara. Reikningarnir eru verðtryggðir og með
8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9%
nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris-
sjóðum eða almannatryggingum. Innstæður eru
óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 18%
og ársávöxtun 18%.
Sérbók. Við innlegg eru nafnvextir 15% en
2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttekt-
ar upp í 21%. Hvert innlegg er meðhöndlað
sérstaklega. Áunnið vaxtastig helst óbreytt óháð
úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán-
uði ef innleggiö er snert. Á þriggja mánaða
fresti er gerður samanburður viö ávöxtun þriggja
mánaða verðtryggóra reikninga, nú með 2%
vöxtum eftir þrjá mánuði og 4% eftir sex mán-
uði, og sú tala sem hærri reynist færð á
höfuðstól. Úttekt vaxta fyrir undangengin tvö
vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir.
Búnaöarbankinn: Gullbók er öbundin með
24% nafnvöxtum og 25,4% ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun verðtryggös
reiknings með 3,5% vöxtum reynist hún betri.
Af hverri úttekt dragast 0,8% í svonefnda vaxta-
leiðréttingu. Vextir færast misserislega.
Metbók er meó hvert innlegg bundið í 18
mánuði á 27% nafnvöxtum og 28,8% ársávöxt-
un, eða ávöxtun verötryggös reiknings með
3,5% vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg
er laust að 18 mánuðum liðnum. Vextir eru
færðir misserislega.
lónaóarbankinn: Bónusreikningur er óverð-
tryggður reikningur með 20% nafnvöxtum og
23,4% ársávöxtun. Verðtryggö bónuskjör eru
3%. Á sex mánaða fresti eru borin saman verð-
tryggð og óverðtryggð kjör og gilda þau sem
hærri eru. Heimilt er að taka út tvisvar á hverju
sex mánaða tímabili. Hreyföar innstæður innan
mánaðarins bera sérstaka vexti, nú 0,75% á
mánuði, cg verðbætur reiknast síðasta dag
sama mánaiv3r af lægstu innstæðu. Vextir fær-
ast misseris.ega á höfuðstól.
18 mánaóa bundinn reikningur er með 27%
nafnvöxtum og 28,8% ársávöxtun.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 24%
nafnvöxtum og 25,4% ársávöxtun. Af óhreyfð-
um hluta innstæðu frá síðustu áramótum eöa
stofndegi reiknings síðar greiðast 25,4% nafn-
vextir (ársávöxtun 27%) eftir 16 mánuði og 26%
eftir 24 mánuði (ársávöxtun 27,7%). Á þriggja
mánaða fresti er gerður samanburður á ávöxtun
6 mánaða verðtryggðra reikninga og gildir hærri
ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast 0,8% í svo-
nefnda vaxtaleiðréttingu. Vextir færast misseris-
lega á höfuðstól. Vextina má taka út án
vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxtatímabil
á eftir.
Samvinnubankinn: Hávaxtareiknlngur hefur
stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3
mánuðina 15%, eftir 3 mánuði 19%, eftir 6
mánuöi 25%, eftir 24 mánuði 27% eða ársávöxt-
un 28,8%. Sé ávöxtun betri á 6 mánaða verð-
tryggðum reikningum gildir hún um hávaxta-
reikninginn. Vextir færast á höfuöstól 30.6. og
31.12.
Hóvaxtabók er óbundin bók sem ber 26%
nafnvexti og 27,7% ársávöxtun á óhreyfðri inn-
stæóu. Ef ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs
reiknings reynist betri gildir hún. Vextir færast
misserislega. Af útttekinni upphæð reiknast
0,75% úttektargjald, nema af uppfærðum vöxt-
um síðustu 12 mánaöa.
Útvegsbankinn: Abót ber annaðhvort hæstu
ávöxfun óverðtryggðra reikninga í bankanum,
nú 24,88% (ársávöxtun 25,80%), eöa ávöxtun
3ja mánaða verðtryggðs reiknings, sem reiknuð
er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman-
burður er gerður mánaðarlega en vextir færðir
í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda al-
mennir sparisjóðsvextir, 15%, þann mánuð.
Heimilt er að taka út vexti og vaxtaábót næsta
árs á undan án þess að ábót úttektarmánaðar
glatist. Ef ekki er tekiö út af reikningnum í 18-36
mánuði tekur hann á sig kjör sérstaks lotusparn-
aðar með hærri ábót. Óverðtryggð ársávöxtun
kemst þá í 26,73-29,55%, samkvæmt gildandi
vöxtum.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur. Meg-
inreglan er aö innistæða, sem er óhreyfð í heilan
ársfjórðung, nýtur kjara 6 mánaða bundins
óverötryggs reiknings, nú meö 21,0% ársávöxt-
un, eða 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú
með 2% vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxt-
un fyrir þann ársfjórðung.
Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok
hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notið þess-
ara „kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör,
þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem
færðar hafa verið á undangengnu og yfirstand-
andi ári. Úttektir umfram það breyta kjö unum
sem hér segir:
Við eina úttekt í fjórðungi reiknast almennir
sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæö, en kaskó-
kjör af eftirstöövum. Við fleiri úttektir fær öll
innistæða reikningsins sparisjóðsbókarvexti.
Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virk-
an dag ársfjóröungs, fær innistæðan hlutfalls-
legar veróbætur m.v. dagafjölda í innleggsmán-
uði, en ber síðan kaskókjör út fjórðunginn.
Reikningur, sem stofnaður er síðar fær til bráða-
birgða almenna sparisjóðsbókavexti en getur
áunnið sér kaskókjör frá stofndegi að uppfyllt-
um skilyrðum.
Sparlsjóöir: Tromprelknlngur er verðtryggð-
ur og með ávöxtun 6 mánaóa reikninga með
3,5% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja
mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með
svokölluðum trompvöxtum, 22,5% með 24,12%
ársávöxtun. Miöað er við lægstu innstæöu í
hverjum ársfjóröungi. Reynist trompvextir gefa
betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning-
inn. Hreyfðar innstæður innan mánaöar bera
trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða,
annars almenna sparisjóösvexti, 15%. Vextir
færast misserisiega.
12 mánaöa reikningur hjá Sparisjóöi vélstjóra
er með innstæöu bundna í 12 mánuði, óverð-
tryggða en á 26,5% nafnvöxtum. Misserislega
er ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú
með 3,5% vöxtum, borin saman við óverö-
tryggöa ávöxtun, og ræður sú sem meira gefur.
Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs.
í myrkri gildir
að sjást.
Notaðu endurskinsmerki!
mIumferðar FararheHt
Uráð
Síldveiðamar að hefjast:
Ótti um að
Sovétmenn kaupi
enga síld í ár
- vegna niðurboðs Kanadamanna og veiða Sovétmanna í norskri landhelgi
Undanfarin ár hefur oröiö æ erfiöara
aö fá Sovétmenn til að kaupa af okkur
saltsíld en þó keyröi um þverbak í
fvrra. Þá komu síldarviðskipti þjóð-
anna inn á borö ráöherra og leystust
ekki fyrr en eftir afskipti þeirra með
tilvísan til viöskiptasamnings þjóð-
anna. Nú segja fróðir menn aö sé enn
þyngra fyrir fæti með sölu á saltsfld
til Sovétríkjanna. Sumir eru svo svart-
sýnir að halda þvi fram aö okkur
takist ekki að selja þeim ugga í ár.
Ástæðan fyrir svartsýni manna nú
er sú aö Sovétmenn fá meiri sfld en
þeir þarfnast frá Kanadamönnum og
með veiðum sínum innan norskrar
landhelgi. Kanadamenn bjóða niður
verð á sfld til Sovétmanna og þeir
Topp-bók nokkurra sparisjóða er meö inn-
stæðu bundna í 18 mánuði óverötryggða á
25,5% nafnvöxtum og 27,6% ársávöxtun eða á
kjörum 6 mánaða verötryggðs reiknings, nú
með 3,5% vöxtum. Vextir færast á höfuðstól
misserislega og eru lausir til útborgunar á næsta
vaxtatimabili á eftir. Sparisjóðirnir I Keflavík,
Hafnarfirði, Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirði,
Ólafsfirði, Dalvik, Akureyri, Arskógsströnd, Nes-
kaupstað, Patreksfirði og Sparisjóður Reykjavlk-
ur og nágrennis bjóða þessa reikninga.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verð-
bréfasölum. Þau eru almennt tryggö með veði
undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf-
in eru ýmist verðtryggð eða óverðtryggð og
með mismunandi nafnvöxtum. Algengustu
vextir á óverðtryggðum skuldabréfum vegna
fasteignaviöskipta eru 20% eða meöalvextir
bankaskuldabréfa. Þau eru seld með afföllum
og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verð-
tryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkisins
getur numið 2.688.000 krónum á 3. ársfjórð-
ungi 1987, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á
síðustu þrem árum, annars 1.882.000 krónum.
Út á eldra húsnæði getur lán numið 1.882.000
krónum, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á sl. þrem
árum, annars 1.317.000 krónum.
Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru
hugsanlegar vegna sérstakra aðstæðna.
Lánin eru til allt að 40 ára og verðtryggð.
Vextir eru 3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins
verðbætur og vextir, síðan hefjast afborganir
af lánunum jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hversjóður
ákveöur sjóðfélögum lánsrétt, lánsupphæöir,
vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er
30-60 mánuöir. Sumir sjóðir bjóða aukinn láns-
rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru
mjög mishá eftir sjóðum, starfstíma og stigum.
Lánin eru verötryggð og með 5-9% vöxtum,
algengastir eru meðalvextir, nú 8,1%. Lánstími
er 15-42 ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt
er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða
safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir f heilt ár og reiknaöir í
einu lagi yfir þann tlma. Séu vextir reiknaðir og
lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxta-
vextir og ársávöxtunin verður þá hærri en
nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni 112 mánuði á 10%
nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímabilsins
1100 krónur. Arsávöxtunin verður því 10%. Sé
innstæðan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr
raunávóxtun sem því nemur og hún getur jafn-
vel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni I 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6
mánuði. Þá veröur upphæðin 1050 krónur og
ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6
mánuðina. Á endanum verður innstæöan því
1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3,5% á mánuði eða 42% á
ári.
Vísitölur
Lánskjaravfsltaia í september 1987 er 1778
stig en var 1743 stig I ágúst. Miðaðerviö grunn-
inn 100 I júnl 1979.
Bygglngarvfsltala fyrir september 1987 er
324 stig á grunninum 100 frá 1983, en 101,3
á grunni 100 frá júll 1987.
Húsalelguvisltala hækkaði um 9% 1. júll.
Þessi vfsitala mælir aöeins hækkun húsaleigu
þar sem við hana er miöaö sérstaklega I samn-
ingum leigusala og leigjenda. Hækkun vlsi-
tölunnar miöast viö meðaltalshækkun launa
næstu þrjá mánuði á undan.
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 14-17 Lb.Úb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 15-19 Úb
6mán. uppsögn 16-20 Úb.Vb
12mán. uppsögn 17-26,5 Sp.vél.
18mán. uppsögn 25,5-27 Bb.lb
Tékkareikningar 6-8 Allir
Sér-tékkareikningar 6-17 nema Vb Ib
Innlán verðtryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 3-4 Ab.Úb
14-24,32 Úb
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 5,5-6,5 Ab.Vb
Sterlmgspund 8,25-9 Ab,Úb,
Vestur-þýsk mörk 2,5-3,5 Vb Ab.Vb
Danskarkrónur 9-10,5 Ib
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 28-29,5 Bb.Lb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 30,5-31
Almenn skuldabréf eða kge 29,5-31 Lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
. Hlaupareikningaríyfirdr.) Útlán verðtryggo 30 Allir
. Skuldabréf 8-9 Lb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 28-29 Vb
SDR 8-8,25 Bb.Lb.
Bandaríkjadalir 8,5-8,75 Úb.Vb Bb.Úb,
Sterlingspund Vb
11,25- Sp
Vestur-þýsk mörk 11,75 5,5-5,75 Bb.Sp.
Húsnæðislán 3,5 Úb.Vb
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 42
MEÐALVEXTIR
óverðtr. sept. 87 29,9
Verðtr. sept. 87 8,4%
VISITÖLUR
Lánskjaravísitala sept. 1778stig
Byggingavísitala 1 sept. 324 stig
Byggingavísitala 2 sept. 101,3stig
Húsaleiguvísitala Hækkaöi9%1.júli
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
(uppl. frá Fjárfestingarfélaginu):
Ávöxtunarbréf 1,2375
Einingabréf 1 2,301
Einingabréf 2 1,356
Einingabréf 3 1,422
Fjölþjóðabréf 1,060
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,296
Lífeyrisbréf 1,157
Markbréf 1,150
Sjóðsbréf 1 1,120
Sjóðsbréf 2 1,180
Tekjubréf 1,251
HLUTABREF
Söluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 114 kr.
Eimskip 278 kr.
Flugleiðir 196 kr.
Hampiðjan 118 kr.
Hlutabr.sjóöurinn 119 kr.
Iðnaöarbankinn 143 kr.
Skagstrendingur hf. 182 kr.
Verslunarbankinn 126 kr.
Útgeröarf. Akure. hf. 160 kr.
(1) Við kaup á viöskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavixla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb=Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánarl upplýslngar um peningamarkaö-
Inn hirtast i DV á fimmtudögum.
kaupa af þeirn mikið magn gegn því
að fá að veiða annan fisk innan kana-
dískrar landhelgi.
Þá hafa Norðmenn leyft Sovétmönn-
um að veiða sfld innan norskrar
landhelgi. Þar hafa þeir verið með
verksmiðjuskip og norsk sfldveiðiskip
hafa landað um borð í sovésku verk-
smiðjuskipin. Norðmönnum hefur
gengið illa að selja verkaða sfld og
megnið af þeirra sfldarafla fer í
bræðslu.
Vegna ormafársins í Þýskalandi hef-
ur enn ekki tekist að selja Þjóðveijum
edikverkuð sfldarflök eins og undan-
farin ár. Umtalsverður markaður
hefur einnig verið í Þýskalandi fyrir
frysta sfld og er hætt við að hann sé
algerlega hruninn eftir ormafárið.
Það verður því ekki sagt að bjart sé
framundan í sfldarsölumálum okkar.
Menn mega þó ekki gleyma því að
Sfldarútvegsnefhd með Gunnar Fló-
venz í broddi fylkingar hefur oft unnið
kraftaverk á liönum árum í sfldarsölu
og fullkomlega ástæðulaust að afskrifa
árangur þeirra félaga fyrr en í fulla
hnefana þótt útlitið sé dökkt. -S.dór
Hráefnisskortur hrjáir nú Utgerðar-
félag Akureyringa.
Útgerðaifélag Akureyringa:
Skortur á
hráefhi
Gjffi Kristjánssan, DV, Akuieyri:
Hráefnisskortur hefur verið hjá
frystihúsi Útgerðarfélags Akur-
eyringa í þessari viku og stafar það
bæði af dræmum aflabrögðum vegna
ótíðar og vegna þess að tveir togarar
útgerðarinnar eru í shpp.
Tveir togarar lönduðu í síðustu viku
og var afli þeirra unninn fyrir helgi.
Kaldbakur landaöi síðan á þriðjudags-
morgun og með því að vinna þann
afla, sem var 90 tonn af þorski i dýrar
umbúðir, var hægt að treina aflann
þar til í dag. Síðan verður lítíð um að
vera þar til eftir helgi er næst berst
afli á land.
Sléttbakur, einn af togurum ÚA,
hefur verið í slipp undanfama tíu
mánuði þar sem unnið hefur verið við
miklar breytingar á skipinu. Og Harð-
bakur heftir verið í slipp í hálfan
mánuð en fer á veiöar nú í vikulokin.