Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987. 27 Iþróttir Fjórir efhi- legir á föram til Texas Helgi Þór kastaði kringlunni 55,38 m Fjórir ungir og e&iilegir kastarar í fijálsum iþróttum eru á fórum tii Bandaríkjanna þar sem þeir munu stunda nám í háskóla í Texas. Það eru þeir Helgi Þór Helgason, USAH, Unnar Garðarsson, HSK, og bræðurnir Pétur og Andrés Guömundssynir. Þessir efiiilegu kastarar fara utan í janúar. Helgi Þór náöi mjög góöum ár- angri í kringlukasti á þriöjudags- kvöldiö. Hann kastaði kringlunni 55,38 m sem er áttundi besti árang- ur íslendings. Unnar kastaöi 48,68 m og Pétur Guðmundsson kastaöi 48,60 m. Gömlu kempumar, Elías Sveins- son og Ólafur Unnsteinsson, voru þá einnig í sviösljósinu. Elias kast- aöi 40,40 m og Ólafur 3938 m. Það er greinilegt aö Ólafur er í góðri æfingu um þessar mundir. Hann hefur æft vel enda stefnir hann á aö taka þátt í heimsmeistaramóti öldunga í Ástraliu. -SOS Nuddarinn fór tvisvar holu í höggi Nuddari landsliðsins í knatt- spymu, Þorsteinn Geirharösson, hefur heldur betur veriö iðinn viö aö slá snilldarhögg í golfinu síð- ustu daga. Flestir vepjulegir kylf- ingar láta sig dreyma um aö fara holu í höggi einu sinni á ferlinum sem getur orðið lengri fijá kylfingi en öðrum íþróttamönnum. Þor- steinn geröi sér lítið íyrir og fór holu í höggi í firmakeppni GS á laugardag á 16. holu. Ekki lét nuddarinn þar við sitja heldur sló golíboltann vinalega beint í holu í upphafshöggi á 13. brautinni i gær. Þorsteinn fór því tvívegis holu í höggi á fimm dögum. -SK Júdódeild Ármanns, sem verður 30 ára á þessu ári, er brautryðjandi í frúarleikfimi. Mörg hundruð, ef ekki þús- undir kvenna, hafa tekið þátt í starfi okkar- viltu ekki slást í hópinn? Fyrsti prufutíminn ókeypis. Innritun og frekari upplýsingar alla virka daga frá kl. 13-22 í síma 83295. [30áraí J957-1987Í Brautryðjendur - stórskemmtilegt jafntefli íslands og Svíþjóðar í Laugardal innar skammar" I Gyifi Kristjánssan, DV, Akureyii „Mér finnst þetta svo mikil van- Ivirðing, bæði við þá Stefán og Ólaf sem dómara og ekki síður við leik- I menninasemifyrrakusuþábesta dómarapariö á íslandi, að það er ekki hægt að sitja þegjandi undir þessu,“ segir Erlendur Hermanns- son, þjálfari 1. deildar liðs Þórs frá IAkureyri í handbolta um niður- röðun dómara á leikina í fyrstu Ifimm umferðum íslandsmótsins. „Þeir Stefán Amaldsson og Ólaf- ur Haraldsson á Akureyri voru verðskuldað kosnir bestu dómarar á íslandi sl. vetur," sagði Erlend- ur. „Það er því alveg furðulegt að þeir skuli aðeins vera settir á einn Ileik í fyrstu fimm umferðum ís- landsmótsins. Ég hef leitað eftir skýringum á þessu hjá HSÍ en þar eru engin svör aö fá, aðeins vísað I áþásemsjáumniöurröðunáleik- ina.“ Erlendur heldur áfram: „Ég held Iaö þeir menn ættu að fara að taka sér tak í stað þess að einblína allt- Iaf á sömu mennina. Ég get nefnt bara sem dæmi að Guðmundur Kolbeinsson og Þorgeir Pálsson, sem eru dómarar númer fimm samkvæmt einhverri niöurröðun dómaranefiidarinnar sjálfrar, fá | - segir Eriendur Hermannsson, þjátfari Þórs fimm leiki í fyrstu fimm umferð- unum, sömuleiðis dómarapar númer sex en ég veit ekki hvaða menn það eru. Ólafur og Stefán eru hins vegar hafðir sem dómarapar númer þrjú og það væri í sjálfu sér allt í lagi ef þeir fengju einhver verkefiii. Ég hef heyrt sem skýringu á þessu að þeir Stefán og Ólafur hafi beðið um að dæma ekki leiki fyrir áramót en það er ekki rétt. Þeir báðu einungis um að dæma ekki á tímabilinu 19.-25. október. Fram- koma þeirra sem sjá um niðurröð- un dómara á leiki í 1. deild er til háborinnar skammar og ég veit að ég tala þar fyrir munn margra ef ekki flestra leikmanna í 1. deild- inni. Það hefur veriö sagt að það sé of dýrt að fá Ólaf og Stefán suður til aö dæma. Það er einfaldlega ekki dýrara en fyrir okkur á Akur- eyri að fá dómara að sunnan. Svo heyrir maður það aö Ólafur og Stefán geti ekki dæmt hjá Þór á Akureyri af því aö þeir eru Akur- eyringar. Svona nokkru er ekki hægt að taka þegjandi og því sé ég enga ástæðu til að gera það,“ sagði. Erlendur Hermannsson, þjálfari Þórs, að lokum. -SK Karlmenn! Hinir vinsælu herratímar í hádeginu. JúdódeildÁrmanns Armúla 32. • Ríkharður Daðason (nr. 11) sést hér skalla knöttinn glæsilega í netið hjá Svíum og jafna, 3-3. DV-mynd HH Pittamir slógu upp markaveislu Piitalið íslands og Svíþjóðar, skipuð leikmönnum yngri en 16 ára, skifdu jöfn í Laugardalnum í gær. Gerði hvor aðili þrjú mörk. Viðureignin var liður í Evrópukeppni i þessum aldurshópi en leikið er heima og heiman. Síðari rimman fer fram í Svíþjóð eftir tæpan mánuð. Leikurinn í gær var bráðskemmti- legur enda létu liðin knöttinn ráöa fór og stefndu bæði aö sigri. Svíamir voru mun sterkari líkamlega og taktískari á ýmsan hátt. íslendingamir voru hins vegar kvikari og gjaman beittari í sín- um aögerðum. íslenska liðiö geymir upprennandi sniilinga og gladdi einstaklingsfram- lag margra þeirra augu. Svíamir tóku forystuna snemma í leiknum með marki Ulf Liljus en Rík- harður Daðason jafnaði metin skömmu fyrir leikhlé, 1-1. í síðari hálileiknum kom Steinar Guðgeirsson íslandi síðan yfir með ágætu marki en reyndist sú forysta fremur skammvinn. Á örstuttum tíma náðu Sviamir að jafna og sigla fram úr með mörkum þeirra Niklás Gud- mundsson og Ulf Liljus. Undir lokin rétti síðan Ríkharður Daðason okkar hlut að nýju með góðu skallamarki. Ef á heildina er litið má segja að úrslitin spegli gang leiksins. Engu að síður þótti mörgum súrt að ísland næði ekki að knýja fram sigur. Þegar staðan var 2-1 okkar piltum í vil brást Steinari Guðgeirssyni, besta manni valiarins, skotfimin í opnu færi. Þar gat þessi stórefnilegi piltur gert út um leikinn. En svona er knattspyman - lánið er ekki ávallt okkar megin. Bestu dómaramir dæma aðeins einn af 20 fyrstu leikjunum: „Þessi framkoma er til hábor- Dömur: Nú drifið þið ykkur í leikfum! Tímarvið allra hæfi Láms Loftsson, þjálfari íslands, lenska liðið væri bersýnilega í mikilli sagðist sáttur við framgöngu sinna framför og em það orð að sönnu. manna eftir átökin. Harrn sagði að ís- -JÖG/HH > Strákarnir fagna hér marki Steinars Guðgeirssonar. DV-mynd HH Ný 5 vikna námskeið hefjast 5. október. Þarftu að missa 15 kíló? Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af vöðvabólgum. Frábær aðstaða Ljósalampar, nýinnréttuð gufuböð og sturtur. Kaffi og sjónvarp í heimilislegri setu- stofu. Leikfimi fyrir konur á öllum aldri. Hressandi, mýkjandi, styrkj- andi ásamt megrandi æfingum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.