Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987. Utlönd Vopnahlé í Nicaragua Daniel Ortega, forseti Nicaragua, kynnir einhliöa vopnahlé stjórnvalda í baráttunni við skæruliða kontrahreyfingarinn- ar. Ortega sýnir á korti svæði þau sem stjórnarhermenn eiga að yfirgefa. Simamynd Reuter Ríkisstjóm Nicaragua lýsti í gær vopnahléi í baráttu sinni gegn skæra- liöum kontrahreyfingarinnar sem berst gegn ríkisstjóm sandinista í landinu með fulltingi og íjárhagsleg- um stuðningi bandarískra stjóm- valda. Lýstu talsmenn ríkisstjómar landsins því yfir að hersveitir stjóm- arhersins yrðu fluttar á brott af þrem átakasvæðum í Nicaragua á næstu viku. Daniel Ortega, forseti Nicaragua, sagði í útvarpsávarpi í gær að vopna- hlé þetta myndi standa í einn mánuð, frá 7. október að telja. Myndu stjómar- hermenn draga sig til baka frá svæðum í Jinotega, Nueva Segovia og Zelaya héraðum. Vopnahlé þetta er nýjasti liðurinn í framkvæmd stjómvalda í Nicaragua á friðaráætlun þeirri sem forsetar fimm Mið-Ameríkuríkja samþykktu og und- irrituðu í Guatemala þann 7. ágúst síðastliðinn. Samkomulag þetta gerir ráð fyrir að vopnahléi verði komið á í þeim þrem skæruliðastyrjöldum sem standa á svæðinu, það er í E1 Salva dor, Guatemala og í Nicaragua. Ortega sagði í gær að ef árangur næðist af þessu vopnahléi yrði það útvíkkað þar til það næði til alls lands- ins. Skæruliðar kontrahreyfingarinn- ar hafa þegar hafnað vopnahléinu alfarið og krefjast þeir beinna samn- ingaviðræðna við fulltrúa ríkisstjóm- arinnar áður en þeir faUast á að taka þátt í því. Stjómvöld í Nicaragua hafa einnig hafið framkvæmd áætlunar þar sem skæruliðum kontrahreyfingarinnar er gefinn kostur á því að leggja niður vopn sín og snúa aftur til heimila sinna án þess aö verða sóttir til saka á nokkum hátt. Ortega sagðist í gær vonast til þess að margir skærulið- anna myndu nota vopnahléið til þess að hætta baráttu sinni og nýta þannig sakaruppgjöf þá sem í boði er nú. Chun varar við kommúnistum Forseti Suður-Kóreu, Chun Doo Hwan, lýsti í morgun yfir áhyggjum sínum yfir kommúnistum sem hann sagði að væm að reyna að grafa undan sjtómmálakerfi landsins og varaði for- setinn menn við að styðja þá. Lét forsetinn þessi orð falla í ræðu á degi hersins. Að tilefni dagsins gengu tuttugu þúsund hermenn fylktu liði um götur í Seoul, höfuðborg landsins. Er það stærsta fylking hermanna sem gengiö hefur um götur borgarinnar síðan vopnahléð var komið á 1953 í Kóreustríðinu. Her Suður-Kóreu var settur í sér- staka viðbragðsstöðu í gær vegna mögulegrar áreitni úr norðri í tilefni af frídögum í Suður-Kóreu næstu tvær vikumar, að því er sagt var. Á hersýningunni í morgun lagði for- setinn áherslu á að efldar hefðu verið eldflaugavamir ríkisins og fjölgað hefði veriö oirustuþotum. Sagði hann að eftir fáein ár væm Suður-Kóreu- menn ekki einungis færir um að hrinda hverri árás kommúnista held- ur gætu þeir ráöist á Norður-Kóreu. 12} Electrolux Ryksugu- úrvalið D-720 1100 WÖTT. D-740 ELECTRONIK. Z-165 750 WÖTT. Aðeins 1.500 kr. út og eftirstöðvar til allt að 6 mánaða. Vörumarkaðurinn hf. Kringlunni, sími 685440. Chun Doo Hwan, forseti Suður-Kóreu, sagði á hersýningu í Seoul í morgun að eftir nokkur ár hefði landið farið fram úr Norður-Kóreu hvað varðar hernað. Simamynd Reuter Kosningar Búist við almennum kosningum í Surinam Yfirmaður hersins i Surinam, Desi Bouterse, er hann greiddi atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni um nýja stjómarskrá í gær. Simamynd Reuter Þjóðaratkvæðagreiðsla var í gær í Surinam um nýja stjómarskrá eftir sjö ára stjómartíð hersins. Leiðtogar stjómarinnar og stjóm- arandstöðunnar spáðu því að kjós- endur í þessari fyrrverandi hollensku nýlendu myndu einróma samþykkja stjómarskrána sem hefði í for með sér almennar kosningar þann 25. nóvember næstkomandi. Kjörsókn var sögð mikil meðal hinna flögur hundmð þúsund íbúa landsins. Búist er við harðri kosningabar- áttu fyrir komandi vikur en kosið verður um fimmtíu og einn þing- mann sem síðan velur nýjan forseta. Fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Henk Arron, sem steypt var af stóli 1980, er nú leiðtogi stjóm- arandstöðunnar. Leggur stjómar- andstaðan aðaláherslu á bættan efnahag en fæðuskortur er nú í landinu. Vonast er til að Holland veiti á ný hundrað milljón dollara aðstoð á ári sem hætt var 1982 eftir að fimmtán leiðtogar sljómarand- stöðunnar létu lífið í gæslu stjómar- innar. Minni möguleikar fyrir Willoch PáD Vilhjálmsson, DV, Osló: Það dregur úr líkum þess að Norðmaöurinn Káre Willoch fái embætti framkvæmdastj óra Nató, segja norsk dagblöð. Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, er sagður beita sér mjög fyrir því að Wömer, vest- ur-þýski vamarmálaráðherrann, fái embættið á eftir Carrington lá- varði. Norsk dagblöð, sem fylgjast náið með baktjaldamakkinu, segjast sjá þess teikn að Bandaríkjamenn muni styðja framboð Wömers. Ástæðan sé sú að Bandaríkjamenn taki meira tillit tii Vestur-Þjóð- veija en Norðmanna og mikiivæg- ara sé að haida þeim fyrmefhdu góðum í Natósamstarfi. Norðmenn séu smáþjóð og vegi ekki þungt í alþjóðapólitík. Ef Wömer fær stuðning Banda- ríkjamanna, sem stærsta Nató- landsins, era mjög góðar líkur á að hann hreppi stöðu fram- kvæmdastjórans í haust. Willoch hefur hingað til aðeins fengið stuðning tveggja landa utan Noregs, þaö er íslands og Dan- merkur. Wömer er hins vegar studdur af Ítalíu og, að því er norsk blöð segja, Bandaríkjamönnum. Fleiri konur í norskri pólitík Páll Vilhjálmsson, DV, Osló: Konum fjölgaði í norskum sveit- arstjómum og fylkisþingum í kosningunum fyrir háifum mán- uði. í sumum sveitarstjómum em konur ailt að helmingur kjörinna fulltrúa. Þverpóhtísk samtök kvenna unnu að því fyrir þessar kosningar að koma konum í ömgg sæti á öll- um framtioðslistum. Á blaða- mannafundi, sem samtökin héldu í gær, kváðust konur vera ánægð- ar með árangurinn. Konum fjölgaöi um átta prósent í sveitarstjómum og fylkisþingum í kosningunum 14. september.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.