Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987. 7 Viðtalið Dr. Freyr Þórarinsson við heimil- istölvuna sína en á hana vinnur hann visindaverkefni sin. DV-mynd GVA Doktor í jarðfræði: Hvemig rvfnar landí sundur? - er aðaláhugamálið „Það hefur verið aðaláhugamálið mitt síðustu tíu árin að velta fyrir mér spumingunni um það hvemig land eins og ísland rifnar í sund- ur,“ sagði Freyr Þórarinsson sem varði doktorsritgerð við Colorado School of Mines í Bandaríkjunum 28. ágúst. Ritgerð Freys nefnist á íslensku „Hagnýta stærðfræðin, tölvufor- ritun og jarðfræðin". „Ég kenni stærðfræði í Versló nokkra tíma í viku en aðalstarfið mitt er húsmóðurstarfið og hefur verið um árabil. Það era ekki mörg stöðugildi fyrir jarðfræðinga á lausu og þeim fækkaði til muna í gær er þrjátíu manns var sagt upp hjá Orkustofnun. Annars kann ég vel við mig inn- an um kjötkatlana og þar get ég unnið að vísindaiðkunum mínum. Sem stendur fæst ég við rannsókn- ir á kortum af íslandi og er að reyna að lesa út úr þeim hvemig landið rifnaði í sundur. En að standa í svona rannsókn- um er eins og að semja skáldsögu sem ekki selst. Maður skrifar fyrir skúffuna og lætur konuna sjá fyrir sér. Og það er í rauninni ekki svo slæmt." Freyr Þórarinsson er 37 ára gam- all. Hann varð stúdent úr Mennta- skólanum við Hamrahlíð árið 1971. Hann lauk jarðeðlisfræðiprófi frá Háskóla íslands 1975. „Eftir að ég útskrifaðist fór ég að vinna hjá Orkustofnun eins og allir aðrir jarðfræðingar og gegndi herþjónustu þar þangað til ég fór í framhaldsnám til Bandaríkjanna árið 1981.“ Freyr skrifaði masters- ritgerð árið 1984 og varði svo doktorsritgerð nú í sumar. Freyr Þórarinsson er kvæntur Kristínu Geirsdóttur bókasafns- fræðingi og eiga þau tvo syni. „Þeir era orðnir þrettán og níu ára og það gerir störf húsmóðurinnar enn léttari. Helstu áhugamál mín era bók- lestur en ég er alæta á bækur. Svo stunda ég lyftingar í húsmóður- tímanum og velti því svo fyrir mér hvemig landið rifnar í sundur. Þetta tel ég vera ágætis áhuga- mál,“ sagði Freyr Þórarinsson. -ATA DV Aukafjárveitingar Jóns Baldvins: Tíu milljón- ir á viku skipulagsstjóri ríkisins fékk 214 milljón króna Aðstoðarmenn Jóns Baldvins Hannibalssonar fjármálaráðherra hafa sent út skrá um aukafjárveitingar fyrstu 6 vikur hans í starfi og era þær 59,4 milljónir króna samtals á 6 vikna timahili frá 4. ágúst til 17. september, eða um tíu milljónir króna á viku. Hæstu aukafjárveitinguna hefur skipulagsstjóri ríkisins fengið, 21,1 milljón króna en næsthæstu auka- íjárveitinguna fékk Listasafn ríkisins 10,0 milljónir króna sem er ónotuð aukafjárveiting frá 1985. Af einstökum ráðuneytum hefur menntamálaráðuneytið fengið mest eða 24,7 milljónir króna, félagsmála- ráðuneytið 22,9 milljónir króna og heilbrigðisráðuneytið 4,6 milljónir króna. í skránni er tekið fram að aðalskrif- stofa heilbrigðisráðuneytisins hafi fengið 4,0 milljónir króna vegna rekstrarerfiðleika. Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri sagði rekstrarerfið- leikana stafa af því að í fyrra hafi fjárveiting á fiárlögum til aðalskrif- stofunnar verið vanáætluð og fjárveit- ingin frá byijun of lág. Reynt hafi verið að sinna öllum verkefnum skrifstof- unnar og ekkert dregið saman og því hafi vantaö fjármagn nú á haustmán- uðum. -S.dór Ríkisendurskoðun athugar kaupleigu „Við erum búnir að biðja ríkisend- urskoðun um að athuga málið," sagði Karl Th. Birgisson, blaðafulltrúj fiár- málaráðherra, í samtali við DV þegar hann var spurður að því hvort ríkis- fyrirtæki hefðu átt í kaupleiguvið- skiptum umfram heimildir. Karl sagði ráðuneytið hafa beðið rík- isendurskoðun um að kanna hvort fullyrðingar í þessa átt væra réttar og þá hvort um heimild hefði verið að ræða fyrir fjárfestingunum, eða hvort fjárfest hefði verið í heimildarleysi. -ój __________________Fréttir Mikið byggt á Dalvík Gyifi Kris^ánason, DV, Akureyii Miklar byggingaffamkvæmdir hafa staðið yfir á Dalvík í sumar og era þar nú um 20 íbúðir í bygg- ingu auk framkvæmda við annað húsnæði. Hilmar Daníelsson er að byggja ellefu íbúða fjölbýlishús og fyrir- tækið Tréverk er að byggja sjö íbúða raðhús. Þá er unnið af krafti við byggingu iðnaðarhúsnæðis og einnig er byggt á vegum fyrirtækja í sjávarútvegi. „Hér er allt á fullri ferð og við gætum notað fleiri hendur,“ sagði Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri. Hann sagði einnig að erfitt væri að fá fólk til bæjarins, ekki síst vegna þess að ekkert húsnæði væri að fá í bænum eins og er en það stendur væntanlega til bóta áður en langt um líður. Á vegum Dalvíkurbæjar hefur verið unnið að heitavatnsborun- um í sumar. Borað var ein hola og gaf hún 50-60 sekúndulítra af um 65 gráða heitu vatni. Eftir er að kaupa dælubúnaö fyrir holuna en þegar það hefur verið gert er lítið mál að tengja hana við bæjar- veituna og verður það gert í vetur. Gjallarhorn, kr. 10.000,- Simahlerari, verð kr. 250,- Magnari, kr. 1790, Klær, kr. 20,- Deilir, kr. 100,- Kapall, kr. 20,- Sjánvarpsefni ALTMULIGT - verslun meö hitt og þetta - Lauyavegi 134, hinum megin við Hlemm, s. G24050. Mælar og verkfæri Dipmælir, kr. 6200,- Tinsuga, kr. 300,- Hitaprope i Avo-mæla, kr. 1000,- Snúrur og tengi E m headphone, kr. 210,- 20 m XLR. kr. 1500,- 2 m sjónverps. kr. 100,- 3 m RS232, kr. 700,- Tengi. BNC, kr. 50,- XLR. kr. 100,- DIN, kr. 10,- RS232, kr. 70,- Phono, kr. 20,- Billjós, kr. 700,- Vatnshitari í bil- inn, kr. 400,- CHEROKEE 1988 PIONEER CHIEF LAREDO LIMITED ■mrámimi 1.120 IHTiTil I 1.220 liTiTil I 1.660 IfiTiTil VERKSMIÐJUÁBYRGÐ n Jeep er aðeins á bílunum frá okkur. ÁBYRGÐ er ÖRYGGI. n Jeep EGILL VILHJÁLMSSON HF. EINKAUMBOÐ A ISLANDI Smiðjuveg. 4. kop . s. 172 00 - 7 72 02

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.