Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Blaðsíða 16
16
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987.
Spumingin
Hver spáir þú að verði
næsti formaður Alþýðu-
bandalagsins?
Reynir Ragnarsson: Hef enga hug-
mynd. Vil engu spá um þaö.
Ásgerður Gísladóttir: Mér fmnst að
Ólafur Ragnar Grímsson sé rétti
maðurinn í það starf. Hann hefur
aUt til að bera sem þarf til starfans.
Ég vil óska honum gæfu og gengis.
Snorri Steinsson: Norðanstúlkan.
Það er tilbreyting að fá hana í starf-
ið. Góð tilbreyting frá núverandi
forystu. Góður fulltrúi landsbyggð-
arinnar, og er kona í þokkabót.
Einar Jónsson: Ósennilegt að Ólafur
Ragnar verði formaður. Tel líklegt
að Svavar verði áfram. Hann vill
verða formaður.
Björgvin Kristbergsson: Ólafur
Ragnar. Mér fmnst hann góður mað-
ur og hann hefur góða rödd og beitir
henni vel. Mér líst vel á hann.
Kjartan Bendtsen: Hefi enga hug-
mynd um þaö. Þekki engan þar í
flokki. Ég er ekkert inni í málunum.
Lesendur
„Reynsla undangenginna ára sýnir fram á að það er ekki hægt aö kenna flestum Islendingum að neyta vins í hófi.“
íslendingar:
Kirkjumar í Amesi:
Eftirmál
Kunna ekki að
neyta áfengis
Lesandi skrifar:
Vegna þess að „neytandi" sem
hringdi í DV þann 24.09 sl. og óskaði
efitír því að verslun ÁTVR í Kringl-
unni yrði opin á laugardögum langar
mig að segja mitt álit á því.
Mér finnst kannski í lagi að hafa
opið á laugardögum í Kringlunni en
ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því
að ekki sé svo nú aðeins til að vægja
alkóhólistum frekar en öðrum.
Jón Jónsson, vagnstjóri SVR, skrifar:
Ekki er aö furða þó umferðarmál
okkar séu í megnasta ólestri, a.m.k.
ef mið er tekið af skoðanakönnunum
blaða um þá spumingu hvort lögregl-
an skuli mæla hraða bíla í merktum
eða ómerktum bílum. Meirihluti fólks
vildi mælingar í merktum bílum
vegna þess að þá sé auðveldara að
forðast það að vera nappaður. Ég spyr,
til hvers eru umferðarlög ef ekki á að
fara eftir þeim? Lögreglan eins og hún
hefur unniö upp á síðkastið er eins og
lögreglan ætti að vera, en því miður
grunar mig að þetta sé einungis bóla
sem fljótlega springur.
Eitt er það sem kappaksturshetjur
strætanna þola illa en það er þegar
bifreiðum er ekið er á löglegum hraða
(og minni) á vinstri akrein af tveimur
mögulegum. Ég spyr lögreglustjóra.
Reynsla undangenginna ára hlýtur
að hafa sýnt „neytanda" fram á aö það
er ekki hægt að kenna flestum íslend-
ingum að neyta víns í hófi.
„Neytandi" talar um að ef reglur
þær og lög sem ef til vill standa á
móti opnun á laugardögum séu vegna
alkóhólista þá sé það út í hött. Einnig
talar hann um að hann og fleiri geri
og hafi gert nóg fyrir alkóhólista, t.d.
kostað þá inn á Vog og víðar.
- á vinsbi akrein
Skiptir nokkru máli á hvorri akrein-
inni er ekið ef ekiö er á leyfilegum
hámarkshraða, aðeins ef lögreglu, sjú-
krabílum og bílum með löglegum
auðkennum er hleypt fram úr?
Önnur spuming hefur brunnið á
vörum mínum allt frá því að ég tók
bílpróf en enginn hefur treyst sér til
að svara óyggjandi. Ef ekið er á eftir
bíl sem ekur á leyfilegum hámarks
hraða, má þá aka fram úr honum?
(Til þess þyrfti að sjálfsögðu að aka
hraðar en löglegur hámarkshraði leyf-
ir)
Sektir hafa hækkaö. Sektir eru í
sjálfu sér ágætar en ökuleyfissvipting
er miklu áhrifaríkari og jafhvel fang-
elsi við umferðalagabrotum s.s.
ofsahraða, ekið yfir á rauðu ljósi og
ekki stöðvað við STOP-merki svo eitt-
hvað sé nefnt.
Þá spyr ég. Mega þá ríkisspítalamir
og heilbrigðiskerfið í heild senda hon-
um og hinum sem sjá eftir peningun-
um á Vog reikninga? Reikninga vegna
kostnaðar af ölvunarakstri og óhöpp-
um sem þeim em fýlgjandi ásamt
flefru, jafnvel gistingarkostnað á spít-
ulum og öðrum stofnunum vegna
áfengisneyslu.
Einhver talaði um að ísland væri að
verða að lögregluríki. Lögregluríki er
að minu mati réttlætanlégt þar sem
umferö á í hlut. Umferðarráð og lög-
reglan hafa verið ötul að hvetja fólk
til að nota öryggisbelti og ökuljós.
Ekki ætla ég að draga hið núnnsta úr
gagni bílbelta né ökuljósa en ljósleysi
og bílbeltaleysi era alls ekki orsök
slysa heldur gáleysi og hraði.
Að lokum hef ég smátillögu til lög-
gjafans: Sé ökumaður staðinn að
hraðakstri þá séu viðurlögin eftfrfar-
andi miðaö við 60 km hámarkshraða;
Minni en 80 km = sekt,
80 til 100 km = ökuleyfíssvipting,
100 km og yfir = fangelsi.
Þetta er hörkulegt en að mínu mati
eina vonin til að draga úr þjáningum
fómarlamba og minnka álagið á
sjúkraflutningamenn og lækna.
H.K. skrifar:
Ég get ekki lengur orða bundist
vegna þeirra skrifa sem hafa birst
undanfarið um kirkjumar í Ámesi
í Ámeshreppi.
Það er skömm fyrir hreppsbúa
hvað menn hafa látið frá sér fara
af rógburði ffarnmi fyrir alþjóð.
Safnaðarfundur samþykkti að
byggja nýja kirkju gegn þvi skil-
yrði að við fengjum að gera við
okkar gömlu og góðu kirkju, sem
við og gerðum. Nú er búið að gera
við kirkjuna að utan.
Einnig er búið að gera við gólfiö
í henni og veggir og gólf líka ein-
angrað. Nú getur blessuð kirkjan
staðið í önnur hundrað ár a.m.k„
þó svo hún hafi verið dæmd ónýt.
Það hefðu ekki þurft að verða þessi
læti út af kirkjumálunum ef farið
hefði verið eftir ofannefndri fund-
arsamþykkt.
Ég skil ekki hvað hlaupið hefur
í fólk sem vildi rifa þessa kirkju
sem þjónað hefur hreppsbúum öll
þessi ár. Víst er að hún er ekki of
lítfl núna frekar en áður, þegar
hreppsbúar vora 3-4 sinnum fleiri
en þeir era í dag.
Að lokum vil ég þakka öllum
þeim sem hafa gert okkur fiár-
hagslega kleift að gera við kirkjuna
okkar. Það hefði reynst erfitt án
þeirra. Peningana notum við í
þágu kirkjunnar en ekki fyrir okk-
ur sjálf eins og sumir hafa gefið í
skyn, því miður. Og sannast þar
máltækið „Margur hyggur mig
sig“.
Góðar ástir í
austurvegi
Helga S. hringdi:
Ég má til með að hrósa fram-
haldsþættinum „Ástir í austur-
vegi“ sem sýndur hefur verið
undanfarin sunnudags- og mið-
vikudagskvöld á Stöð 2. Þessir
þættir eiga að gerast í Indlandi á
þeim tíma þegar Bretar fóra með
öll yfirráð þar og fylgst er með lífi
og ástum ungs „indversks Breta“.
Það er mjög gaman að þessum
þáttum og mikil tílbreytni er að
skipta um umhverfi frá amerísku
unúiverfi sápuþáttanna Dallas og
Dynasty. Stöð 2 á þökk skilið fyrir
sýningamar.
Ekki
erfitt að
komast í
Kringluna
Anna hringdi:'
Það er alltaf verið að tala um
Kringluna og að það sé svo erfitt
að komast til og frá verslanamið-
stöðinni.
Ég bý nú í nágrerminu og fer
þama um oft á dag. Ég verð ekki
vör við neina óeðlilega umferð og
það er ekki mjög mikil umferð um
Iistabrautina. Aftur á móti er
nokkuð mikil umferð af Kringlu-
mýrarbrautinni.
Mig langar til að kvarta yfir því
að verslun ÁTVR í Kringlunni er
ekki opin um helgar. Þaö er óþægi-
legt að þurfa að gera sér tvær ferðir
í staðinn fyrir eina þar sem hægt
væri að kaupa vin um leiö og mað-
ur kaupir inn fyrir helgina.
Ég vil að lokum þakka fyrir góða
þjónustu og afgreiðslu í Kringl-
unni. Þessi verslanamiðstöð hefúr
gjörbreytt öllum verslunarháttum
og á alla þökk skilda fyrir.
„Skiptir nokkru máli á hvorri akrein er ekið ef ekið er á leyfilegum hámarkshraða?" spyr bréfritari.
Á leyfilegum hámarkshraða