Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Qupperneq 23
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987.
23
Iþróttir
„Þáttur dómarans átti
ekkert skyltvið heiðarteika“
- sagði Guðjón Þórðarson eftir 0-1 tap Skagamanna gegn Kalmar í Svíþjóð
• Guðmundur Albertsson, leikmaður KR, sést hér skora gegn Breiðabliki.
Hann fékk að sjá rauða spjaldið undir lok leiksins. DV-mynd GUN
Ungu KR-ingamir
lögðu Blikana
„Hvert stig skiptir miklu máli,“ sagði Ólafur, þjálfaii KR
„Þessi leikur er vísbending um það
sem koma skal á íslandsmótinu, jafnir
og spennandi leikir. Fyrir okkur skipt-
ir hvert stig miklu máli þvi ég er með
ungt og óreynt lið í höndunum,“ sagði
Ólafur Jónsson, þjálfari KR-inga, eftir
að lið hans haíði sigrað Breiðablik,
18-20, í fyrsta leik liðanna í 1. deild
íslandsmótsins í handknattieik sem
hófst í gærkvöldi. Leikurinn fór fram
á heimavelli Breiðabliks í íþróttahús-
inu í Digranesi í Kópavogi.
KR-ingar komu mjög ákveðnir til
leiks og það var Guðmundur Alberts-
son sem skoraði fyrsta mark leiksins.
Aðalsteinn Jónsson jaínaði í næstu
sókn Blikanna. í kjölfarið íylgdi góður
leikkafli hjáKR og skoruðu þeir íjögur
mörk í röð og breyttu stöðunni í 1-5.
Á þessum leikkaíla lokaði Gísli Felix
Bjamarson, markvörður KR-inga,
markinu. Hann varði oft á tíðum hin
ótrúlegstu skot eins og hann gerði
raunar allan leikinn. Geta KR-ingar
öðru fremur þakkað honum sigurinn
í leiknum.
Fimm marka munur hélst á liðunum
mestallan fyrri hálfleik. Lið Breiða-
bliks virkaði óöruggt framan af og
mátti halda að Evrópuskellurinn um
síðustu helgi stæði ennþá í mönnum.
Staðan í hálfleik var 5-10 KR-ingum í
vil.
Breiðablik skoraði fyrsta markið í
seinni hálfleik en síðan komu þrjú
mörk í röð frá KR og staðan breyttist
í 6-13. Á þessu leiktímabili var ráð-
leysi algjört í leik Breiðabliks og héldu
margir að í uppsiglingu væri stórsigur
KR en það var öðru nær. Breiðablik
„Við lékum mjög sterkan vamarleik
sem skilaði okkur í framlengingu. Þar
skomðu hins vegar Svíamir en við
ekki. Strákamir náðu ekki að nýta þau
færi sem féllu í þeirra hlut. Því fór sem
fór.“
Þetta sagði Guðjón Þórðarson, þjáif-
ari Skagamanna, í spjalh við DV í
gærkvöldi.
Lið hans tapaði, 1-0, fyrir sænska
félaginu Kalmar og em Akumesingar
úr Evrópukeppni í kjölfarið. Þeir
gerðu markalaust jafntefh við Svíana
á Skaganum fyrir skemmstu.
Leikurinn í gær þróaðist með þeim
hætti að Skagahðið lét eftir miðjuna
en rauk síðan fram þegar boltinn
vannst. Áttu leikmenn hðsins nokkur
færi í skyndisóknum sem hefðu átt að
nýtast en allt kom fyrir ekki.
Jafnt var eftir hefðbundinn leiktíma,
0-0.
í fyrri hálfleik framlengingar náðu
heimamenn síðan að skora og var Stef-
án Alexandersson þar að verki.
Skagamönnum tókst ekki að jafna
þrátt fyrir ákafar tilraunir á þá áttina.
Dómari leiksins var pólskur og var
sá slakur að sögn Guðjóns.
„Við vorum mjög ósáttir við dóm-
gæsluna og þá undirlægju sem henni
tengdist," sagði Guðjón í spjahinu við
DV.
„Þáttur dómarans í leiknum hér úti
átti ekkert skylt við íþróttamennsku
og þaðan af síður við heiðarleika."
-JÖG
Rögnvald og Gunnar fengu góða dóma
Um síðustu helgi dæmdu þeir Rögnvald Erlingsson og Gunnar
Kjartansson leik norska hðsins Stavanger og Kolding frá Danmörku
í Evrópukeppninni í handknattleik. Danska hðið sigraði í leiknum,
16-25, sem fram fór í Stavanger. Þeir félagar fengu mjög góða dóma
fýxir dómgæsluna í norsku blöðunum eftir leikinn.
JKS
vaknaði til lífsins og skoruðu leik-
menn þess fjögur mörk í röð og
munurinn á hðunum var orðinn þrjú
og aht gat gerst.
KR-ingar voru hins vegar ekki af
baki dottnir og náðu fjótlega aftur
góðri forystu, 13-18. Breiðabliki tókst
á nýjan leik að klóra í bakkann og
mimikaði muninn í 17-19. Það reynd-
ist um seinan og KR-ingar tryggðu sér
dýrmætan sigur.
Leikmenn Breiðabliks virkuðu
margir hveijir þungir en engu að síður
býr margt í liðinu. Einhver deyfð er
yfir hðinu þessa dagana, ef til vih
þreyta eftir strangar æfingar. Þórir
Siggeirsson markvörður var þeirra
besti maður. Einnig átti Kristján
Hahdórsson ágætis spretti.
Hið unga og óreynda hð KR-inga
kom á óvart í þessum leik. Liðinu var
ekki spáð góðu gengi fýrir mótið en
eftir þennan leik mætti ætla að leik-
menn hðsins væru á aht öðru máh og
á hðið eftir að koma á óvart í vetur.
Nýhðinn, Stefán Kristjánsson, styrkir
hðið mikið og átti hann mjög góðan
leik. Eins og áður sagði átti Gísli Felix
markvörður stórleik. Konráð Ólafsson
var sterkur í hominu.
Mörk Breiðabliks: Kristján 4, Jón
Þórir 3, Hans 3, aht víti, Svavar 2,
Aðalsteinn 2, Bjöm 2, Dempsey 1,
Magnús 1.
Mörk KR: Stefán 8/3, Konráð 5, Guð-
mundur 2, Guðmundur P 2, Sigurður
1, Þorsteinn 1, Bjami 1.
• Mjög góðir dómarar vora þeir
Rögnvald Erhngsson og Gunnar
Kjartansson. JKS
-Li«;
ato skoi
ístöng
Krit^án Beiriburg, DV, BelgH:
Amór Guöjohnsen kom inn á
sem varamaður lýá Anderlecht
þegar félagið varð að sætta sig við
jaftitefh, 1-1, gegn Malmö FF frá
Sviþjóð í Briissel - í afepymuléleg-
um og leiöinlegum leik. Amór fékk
tvö góð marktækifæri undir lok
leiksins. Áhorfendur risu úr sæt-
um til að fagna marki þegar Amór
skallaöi rétt yfir og síðan átti Am-
ór þrumuskot sem smah á stöng-
inni á sænska markinu.
Sérfræðingar hér í Belgíu sögöu
aö þetta væri lélegasti Evrópuleik-
ur sem Anderlecht hefði leikið.
Anderlecht komst áfram þar sem
félagiö vann, 1-0, í Malmö.
• FC Brugge stóö sig aftur á
móti vel i UEFA-bikarkeppninni.
Danski leikmaðurinn Kenny
Brylle skoraði fiögur mörk þegar
Brugge vann, 5-0, og samanlagt,
5-2. Jan Ceulemans skoraöi
fimmta markiö. Leikmenn hðsins
léku hreint út sagt frábæra knatt-
spymu. -SOS
„Gott að vera búnir að
leika hér á Akureyri“
- segir Gunnar Einarsson, þjálfari Stjömunnar, eftir 20-26 sigur á KA
Gyffi Kristjánssan, DV, Akureyri:
„Ég er ánægður með sigurinn. Það
kom mér á óvart hve Util stemmning
var í KA-hðinu. Við lékum mjög sterka
vöm og yfir höfuð smah þetta aht sam-
an hjá okkur. KA-liðið verður hættu-
legt á heimavehi í vetur og ég er feginn
aö vera búinn að spha hér á Akureyri
og fá tvö stig,“ sagöi Gunnar Einars-
son, þjálfari Stjömunnar, í viðtali við
DV eftir að Stjaman hafði sigrað KA
20-26 í íþróttahöhinni á Akureyri í
gærkvöldi í 1. deild íslandsmótsins í
handknattleik. í hálfleik var staðan
10-12 Stjömunni í vh.
Eftir fimm mínútna leik var Stjam-
an komin í 0-3 forystu eftir að fjórar
sóknir KA vom búnar aö renna út í
sandinn. Jakob Jónsson skoraði fyrsta
mark KA eftir átta mínútur og norðan-
mönnum tókst að jafna, 3-3. Síðan var
jafnt upp að 6-0 en þá skhdu leiðir og
Stjaman seig fram úr og hafði tveggja
marka forystu í hálfleik.
KA skoraði fyrsta markið í seinni
hálfleik og minnkuðu muninn í eitt
mark, 11-12, en nær komust þeir aldr-
ei í leiknum. Stjaman breytti stöðunni
í 11-15 og eftir tíu mínútna leik var
staðan 13-18. Eftir þetta var aldrei
spuming um hvar sigurinn myndi
lenda.
Sfjaman sphaði mjög sterkan vam-
arleik og komust KA-menn htið áleiðis
gegn henni. Einnig var Sigmar Þröstur
í banastuði í marki Stjörunnar og
varði meðal annars tvö víti í seinni
hálfleik. Sljaman komst oft inn i send-
ingar og skoraði síðan upp úr hraða-
upphlaupum. Ekki verður annað sagt
en útlitið sé bjart hjá Stjömunni þrátt
fyrir talsverðan leikmannamissi.
KA virkaði baráttulaust í þessum
leik og þá sérstaklega í vöminni og
oftsinnis í leiknum gekk Stjaman
hreinlega í gegnum vömina. Brynjar
Kvaran markvörður varði mjög vel
og ef hans hefði ekki notið við hefði
ósigur KA orðið mun stærri.
Hjá Stjömunni var Sigmar Þröstur
bestur og Skúh Gunnsteinsson var
sterkur í vöm og fiskaði oft knöttinn.
Um 1000 þúsund áhorfendur fylgd-
ust með leiknum.
í KA hðinu bar mest á Bynjari Kvar-
an og einnig var Axel Bjömsson góður.
Mörk KA: Jakob 6/1, Axel 5, Guð-
mundur 3, Friðjón 2, Pétur 2, Eggert
2/1.
Mörk Stjömunnar: Skúh 9, Sigurður
5, Sigurjón 4, Gylfi 4, Magnús 1, Einar
1, Hafsteinn 1, Hermundur 1.
• Einar Sveinsson og Garðar Sig-
urðsson dæmdu leikinn þokkalega.
JKS