Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Qupperneq 39
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987.
39
Verðlaunadiykkur Valgeirs
- villandi ummæli ÁTVR-fulltrúa
Tvöfeldni er það þegar forstjóri
ÁTVR lætur hafa efdr, sér að ástæð-
umar fyrir því að hann hafi neitað að
taka vín Valgeirs á söluskrá séu aö
ekki sé „rétt að bjóða upp á vöru sem
væri merkt með alþjóðlegu eiturefni,
hauskúpunni. Þetta sé svona
„prinsip-ástæða" “. Veit forstjóri
ATVR ekki að áfengi er eitur eða finnst
honum ástæða til að fela það fyrir
sjálfum sér og öðrum? Þessi ummæli
forstjórans eru þeim mun athyglis-
verðari séu höfð í huga orð yfirbrugg-
ara ÁTVR í grein um vodkategundina
Eldurís í DV 22. ágúst síðastliðinn. Þar
Sérpöntun á víntegundum
Forstjórinn gefur eftirfarandi yfir-
lýsingu: „Valgeiri er það alveg frjálst
pkkar vegna að flytja svartadauða til
íslands og það er rekin og leyfð sér-
pöntunarþjónusta á víninu. Þannig
geta allir, sem óska eftir að kaupa ví-
nið, fengið það með stuttum fyrir-
vara.“ Öllum þeim sem kynna sér
„sérpöntunarþjónustu" ÁTVR verða
skjótt ljósir erfiðleikar, bæði fyrir ein-
stakling og fyrirtæki, á að nýta sér
þessa „þjónustu" og fhætti útlista það
hér. Látið verður þó nægja að spyrja:
Trúir þvi nokkur að einhver sá sem
fær áhuga á þvi að kaupa sér vín til
hátíðabrigða fylli út pöntunareyðu-
blað ÁTVR og bíði svo vikum skipti
eftir að fá vínið í hendur?! - eða þurfa
ella að greiða dýran flutningskostnað?
Það eru gömul og ný sannindi, og ættu
íslendingar manna best að þekkja það,
að þeir sem eru í einokunaraðstöðu
viðhafa gjaman hræsnisfull og vill-
andi ummæli um vöm sína og versl-
„Er það ný stefna hjá ÁTVR að gylla eitur-
framleiðslu sína fyrir væntanlegum
kaupendum með því að leggja 1 kostnað
við að hanna freistandi umbúðir?“
unarhætti og forráðamenn íslensku
einokunarvinsölunnar em þar að
sjálfsögðu engin undantekning. -
Gaman væri að sjá röksemdir for-
stjóra ÁTVR fyrir því af hveiju fyrir-
tæki hans kaupir spritt inn í landið
af dönskum milliliðum en ekki beint
af Austur-Þjóðveijum. Ofar öllu er þó
sú spuming af hveiju íslenskum
manni, sem neyddur er af íslenskri
löggjöf til að framleiða vöm sína er-
lendis, er meinaö að selja hana innan
um hundmð af erlendum vintegund-
um sem fylla hiliur útsölustaða ÁTVR.
Sverrir Öm Sigurjónsson
KjaUarinn
Sverrir Örn
Sigurjónsson
viðskiptafræðingur
stendur m.a.: „Þá má geta þess að Jón
0. Edwald, ifirbruggari hjá ÁTVR, er
ánægður með framleiðsluna á Eldurís
og þá sérstaklega umbúðimar. Hann
lét þess getið við blaðamann DV fyrir
stuttu aö Eldurís væri fyrsta íslenska
áfengið sem tappað væri á flösku sem
fældi ekki frá viðskiptavini.“ Er það
ný stefna hjá ÁTVR að gylla eitur-
framleiðslu sína fyrir væntanlegum
kaupendum með því að leggja í kostn-
að við aö hanna freistandi umbúðir?
Forstjóri ÁTVR telur að vín Valgeirs
sé mjög góð effirlíking af brennivíni
þvi er stofnun hans framleiðir. Full-
yrðing hans um eftirlíkingu er röng
því vín Valgeirs er unnið úr spíra úr
hærri gæðaflokki en ÁTVR notar.
Virðist því að forstjóri ÁTVR óttist
samkeppnina þvi ljóst er að hér er um
að rseða verðlaunadrykk. Hvemig
stendur á þvi að íslenska brennivínið
hefur ekki hlotið verðlaun sambærileg
þeim sem vín Valgeirs Sigurðssonar
hefur fengið að undanfómu?
Röng fullyrðing
Forráðamenn ATVR virðast vera
famir að berjast um á hæl og hnakka
við að koma afurð sinni á framfæri
og gylla hana fyrir kaupendum og
„fæla“ þá ekki frá kaupum. Af hveiju
koma þeir ekki afurðum sínum, vodka
eða brennivíni, í keppni erlendis og
afla sér þess orðstírs sem dugir þeim
til aukinnar sölu sem þeir greinilega
sækjast eftír?
Forstióri ÁTVR segir að frá þvi að
hann tók við starfi hafi ekki verið
bætt við nýjum tegundum af sterku
víni nema vínum sem einkenndu eitt-
hvert land og nefndi hann ítalska vínið
Grappa sem dæmi. Fróðlegt væri að
fá það upplýst hjá forstjóranum
hvemig Grappa „einkenndi" Ítalíu!
Tegundir og einkenni?
í famhaldi af þessu má í sambandi
við yfirlýsta stefnu forstjórans um að
fækka tegundum spyrja af hveiju
nauðsynlegt sé að hafa á boðstólum
36 tegundir af koníaki, 49 tegundir af
skosku viskíi og þar að auki 11 tegund-
ir af írsku, kanadísku og bandarísku
viskíi, samtals 96 tegundir. Þessar töl-
ur eru samkvæmt verðlista þeim sem
liggur frammi í verslunum ÁTVR. 15
brennivínstegundir eru á boðstólum.
Flestar tegundanna, sem nefndar eru
hér að framan, eru að sjálfsögðu fram-
leiddar af erlendum aðilum. Hvers
vegna má eklti bæta við einni tegund
á söluskrá ÁTVR, framleiddri af is-
lenskum ríkisborgara, víni sem hlotiö
hefur verölaun, og leyfa íslenskum
kaupendum hér innanlands að dæma
hér um?
Áskrifendur!
Takið vel á móti blaðberunum
DV býður aukna þjónustu.
Blaðberar okkar á Stór-Reykjavíkursvæðinu bjóða nú áskrifendum að áskriftargjaldið
verði fært á EURO eða VISA-reikning mánaðarlega.
Meðþessum
boðgreiðslum
vinnst margt:
• Þærlosaáskriféndur
viðónæðivegna inn-
heimtu.
t Þæreruþægilegur
greiðslumátisem
tryggir skilvisar
greiðslur þrátt fyrir
annireðafjarvistir.
• Þærléttablaðberan-
um störfín en hann
heldurþóóskertum
tekjum.
• Þæraukaöryggi.
Blaðberareratil
dæmisoftmeðtolu-
verðarfjárhæðirsem
geta glatast.
Umboðsmenn og btaðberar úti á landi
munu um næstu mánaðamót, í byrjun
nóvember, bjóða áskrifendum EURO
og VISA boðgreíðslur með svipuðum
hætti.
Hafið samband við afgreiðslu DV
kl.9-20virka daga,
laugardaga kl. 9-14,
ef óskað er nánari upplýsinga.
Síminner 27022.