Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1987, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1987, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1987. pv Útlönd Mótmæli vegna fjáriagafrumvarps Snoni Valsson, DV, Vín: Þaö er víðar en á íslandi sem skipt- ing fjárlagakökunnar góðu veldur deilum. Við háskólann hér í Vínar- borg hófust mótmæli gegn fjárlaga- frumvarpi austurrísku stjómarinn- ar sama dag og þau voru birt. Hafa stúdentar yfirtekið aðal- kennslusal skólans og neitað að yfirgefa hann fyrr en úrbætur hafa fengist í skólamálum. Einnig hafa þeir hótað allsherjarverkfalli næstu daga og hafa mótmælin fengið góðan hljómgrunn í öðmm skólum. Meira að segja prófessorar háskólans hafa lýst yflr stuðningi við námsmenn. Það sem veldur öllu umrótinu er auðvitað mikill niðurskurður á framlögum ríkisins til skólamála og námsstyrkja. Meðal annars á að skerða núverandi lán til íjölskyldu- fólks eftir tuttugu og fimm ára aldur en hingað til hafa mörkin verið við tuttugu og sjö ár. Meirihluti með lestargongum Haukui L. Hauksson, DV, Kaupmaiuiaha&u Frode Nör Christensen, samgöngu- ráðherra Dana, er hissa á skyndilegri löngun Svía til að taka ákvörðun um fastar samgöngur milli Kaupmanna- hafnar og Malmö. Er meirihluti í danska í þinginu fyrir lestargöngum þeim sem um er að ræða. Viröast danskir og sænskir jafnað- armenn hafa orðið sáttir um málið en sænski samgönguráðherrann, jafnaðarmaðurinn Sven Hult- erström, hafði talað um að engin ákvörðun yrði tekin fyrr en að ári liðnu. Fagnar Frode Nör hugarfarsbreyt- ingu Svía og sættir sig við að bílaum- ferð verði látin bíða fyrst um sinn. Þróunin í Evrópu sýni að þungan farm eigi að senda með jámbrautar- lestum og verði ekki um bílagöng eða brú að ræða fljótlega verði bílar að keyra frá Helsingjaeyri yfir Sjáland sem fyrr. Frode Nör reiknar með að lestar- göngin verði tilbúin 1995 ef fram- kvæmdir hefjast bráðlega. Handteknir með bensínsprengjur Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmaimahö&u Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur handtekið tvo menn sem grunaðir eru um aðild að skemmdarverkum á bensínstöðvum Shell fyrr á árinu. Eru þeir einnig grunaðir um náin tengsl við hópa hústaka. Voru mennirnir handteknir fyrir tilviljun er lögreglan stöðvaði mótor- hjól í útjaðri Kaupmannahafnar. Við nánari athugun komu flöskur með eldfimum vökvum og bensínsprengj- ur í ljós í bakpoka eins þeirra og hhðartösku mótorhjólsins. Leit út fyrir að mennimir ætluðu að kveikja í einhvers staðar. Voru þeir settir í þriggja daga gæsluvarð- hald sem reynt verður að framlengja. Ung móöir í Reykjavík: „Dóttur minni var rænt“ . Interpol í málið Æ „Hæstánægður með íslenska áheyrendur iK Æ ofneysla ^ , jurtafitu á í 1 \ I / -JI \ áwy I / j “1 \ 1 1 w * *nær öllum w * ~ íslenskum Ný og gjörbreytt Vika ó nœsta blaðsölustað Sama gamla verðið: Aðeins 150 krónur Fimm sinnum í viku til Amsterdam - Og þaðan með KLM til yfir 130 borga í 76 löndum f 6 heimsálfum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.