Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1987, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1987, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1987. 31 Sandkom Á brauðfótum til Seoul? Atgangurinn í Handknatt- leikssambandi íslands tekur engan enda og ekki við því að búast í bili þar sem karla- landsliðið á að leika 50 leiki fram að næstu ólympíuleik- um, eftir tvö ár, og ekki er meiningin að leggja aðra handknattleiksiðkun niöur, hvað sem verður. Það nýjasta er að HSÍ vélaði bakara til þess aö hnoða saman bolta- brauði og gefa sér 3 krónur af hveiju stykki sem gengur oní landann. Með þessu er ætlunin að ná inn allt að tveim milljónum króna sem er góð búbót þótt hún dugi skammt í allt ævintýrið. En þar með hefur HSÍ tryggt að karlalandsliöið standi á brauðfótum í Seoul og spumingin er sú hvort það var í raun og veru meiningin. Jaki frá Júgóslavíu Handknattleikssambandið hefur legið undir ámæh frá konum, sem iðka handknatt- leikinn, fyrir tómlæti í þeirra garð. Nú hefur HSÍ tekið á honum stóra sínum og ráðið í skyndi heilan Júgóslava til þess að þjálfa kvennalands- Uðið enda þótti orðið alveg sýnt að konumar sættu sig ekki við neina eskimóa til þess að stjórna sér. Þessi ráð- stöfun er auðvitað ekki ókeypis og segir sagan að Júgóslavinn með öllu kosti tvær milljónir króna, eða álíka og karlalandsUðið fær fyrir smn snúð af boltabrauð- inu. Og nú vona menn bara í lengstu lög að nýi þjálfarinn UggiekkiáUðisínu. KaupirTrab- antumboðið eftirlitið? Ógnvekj andi fréttlr hafa nú borist þeim mörlöndum sem láta skynsemina ráða í bíla- kaupum. Einhveijir speking- ar í BifreiðaefdrUtinu hafa fundið út að banna eigi inn- flutning á Trabantbílum af því að bensíntankurinn sé undir einu sætinu í þeim og þess vegna sé stórhætta á að sá sem situr þar fuðri upp eða springi í loft upp ef kviknar í bílnum. Stálminnuga menn, rámar að vísu ekki í að þetta hafi gerst. Sumir mundu hugsanlega segja að það væri kannski ekki seinna vænna fyrir Bifreiðaeftirhtið að gera eitthvað í málinu áður en því verður breytt í einkafyrir- tæki og jafnvel selt Trabant- umboðinu. Slökktu Ijósin, maður Einn Trabanteigandinn lenti í svo hörðum árekstri núna að bókstaflega aUt fór framan af nýj a skynsemis- tákninu hans og tvístraðist út um aUar koppagrundir. Afgangurinn var ekki alveg eins splundraður og eigand- inn hélt lífi og lhnum, sem áhorfendum þótti ganga kraftaverki næst, ef ekki tveim. Fyrsta vitni á staðinn rauk að eigandanum þar sem hann sat eins og steini lostinn í nýja flakinu sínu og æpti upp í eyrað á honum: Slökktu ljósin, maður. Og auðvitað hlýddi Trab- anteigandinn þótt hann vissi ekkert hvar ljósin af bílnum væru niðurkomin, hvað þá rafgeymirinn. En, sem sagt, allur er varinn góður þar sem skynsemin ræður. Nýja yfirvaldið í Hafnarfírði tók á móti leynifélögum sínum í Fjörunni þar sem menn átu Möðruvelling honumtil heiðurs. Möðruvelling- ur í eftirrétt Leynifélagsskapurinn Loki hélt á dögunum blót og þá í fyrsta sinn utan Reykjavík- urgoðorðs. Var blótið haldið í Fjörunni í Hafnarfirði, í til- efni af nýj um frama eins af foringjunum, Más Pétursson- ar, sem nýlega hreppti embætti sýslumanns í Kjós- arsýslu og bæjarfógeta í Hafnarfirði, Garðabæ og á Seltjarnamesi. Þar tók Már á móti blótsgestum i fullum skrúða og sagði þeim frá því hvar þeir væru staddir. Á matseðlinum var í eftir- rétt grjónagrautur með kanil og var hann borinn fram í minningu þess að Már og Friðgeir Bjömsson, sem hlaut yfirborgardóm um leið og Már sín embætti, vom i hópi uppreisnarmanna ungra framsóknarmanna, svokaUaðra MöðruvelUnga, og höfðu nú hlotið í samein- ingu upphefð úr hendi Jóns Helgasonar, dómsmálaráð- herra Framsóknarflokksins. Jón Oddsson hrl., forseti Loka, gat þess að þessa vegna væri eftirrétturinn auðvitað Möðmvellingur. Þarsem valdið er og gáfumar í leynifélagsskapnum Loka em fleiri en þeir Már og Jón Oddsson. Staðreyndin er sú, segja fróðir menn, aö þar er saman komiö ótnilegt vald á einn staö og heldur þó valda- söfnun félagsins áfram. Félagsmenn hafa á höndum lögreglustjórn í öUum sveit- arfélögum á höfuðborgar- svæðinu nema í Kópavogi, en þaö stendur til bóta. Þá hafa þeir í höndum borgarstjóm og fara með fiármál ríkisins, og er þó fátt eitt taUö. Ekki mun vanta gáfurnar, hvað sem valdinu Uður í því efni, þar sem flokkinn prýða ýmsir andlegir pamfílar þjóðarinn- ar og þykja ekki aðsópsminni en valdsmennimir á Loka- blótum. Blótinemendasögð skrautleg á köflum og hafa Lokalimir unnið sér það til frægðar meðal annars að vera úthýst um aldur og ævi af einu virðulegasta hóteU borgarinnar. Umsjón: HerbertGuömundsson Laus staða Staða sérfræðings í innkirtlafræði húsdýra við Til- raunastöð Háskólans í meinafræði að Keldum er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni ræki- lega skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Með umsókninni skulu send eintök af vísinda- legum ritum og ritgerðum umsækjenda, prentuðum og óprentuðum. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. desember nk. Menntamálaráðuneytið, 19. október 1987. Að gefnu tilefni: Jerúsalem - hemumin borg Mánudaginn 12. október sl. var birt frétt í DV með fyrirsögninni „Óeirðir í Jerúsalem“. Fréttin gefur mér til- efni til nokkurra athugasemda af því að sumt í henni er óljóst og annað getur valdið misskilningi. í fréttinni er sagt að óeirðir hafi verið í „arabahverfum í austurhluta Jerúsalemborgar" og á Gazasvæð- inu. Austurhluti Jerúsalem hefur ætíð verið arabískur að meirihluta. Hann var hemuminn af Ísraelsríki árið 1967 og innlimaður gegn vilja íbúanna, í trássi við mótmæli allra aðildarríkja Sameinuðu þjóöanna, þ.m.t. ísland. í arabískri borg eru engin arabísk hverfi, á sama hátt og það eru engin íslensk hverfi í Reykja- vík. Annars staðar er sagt frá ísraels- manni sem að sögn hefur verið skotinn af „skæruhðum Palestínu- manna“. í næstu setningu er sagt frá palestínskri stúlku sem einnig lést, en þar kemur ekki fram hver drap hana, aðeins að hún dó í „átökun- um“. Var enginn ábyrgur fyrir dauða hennar? Var ísraelsmaöurinn her- maður? Hvað var hann að gera? Hvergi í greininni er minnst einu orði á þá staðreynd að Palestínu- menn lifa undir hemámsoki ísraela. Enginn efaðist um rétt Norðmanna þegar þeir börðust gegn hemámi Þjóðverja. Og með sama hætti verð- skuldar frelsisbarátta Palestínu- manna samúð og stuðning hvers réttsýns manns. Síðar í fréttinni er talað um óeirðir á Gazasvæðinu (þar búa 500 þús. Palestínumenn undir drottnun ísra- elskra hemámsyfirvalda). Sam- kvæmt fréttinni bmtust óeirðirnar út eftir að „fjórir byssumenn úr röð- um Palestínumanna og ísraelskur leyniþjónustumaður vom skotnir þar í síðustu viku“. Vom þetta ein- hveijir ótíndir bófar („byssumenn") eða frelsishetjur sem berjast gegn hemámsliðinu? Hvernig á maður að skilja slíka frétt? Kjallarinn Elías Davíðsson kerfisfræðingur Síðar meir er vikið að tveim þús- undum Palestínumanna sem hafi safnast saman og kastað gijóti og glerflöskum að lögreglumönnum. Og féttin endar á vangaveltum forsætis- ráðherra ísraels um það hvort innleiða eigi dauðarefsingu. Brot á alþjóðalögum Forsætisráðherra Israels, J. Sham- ir, fyrrverandi foringi í hryðjuverka- samtökum LEHI, þarf ekki aö innleiða dauðarefsingu í ísrael. ísra- elsríkið hefur leitt mörg þúsund Palestínumenn í dauðann án dóms og laga, með loftárásum og með hreinum og beinum fjöldamorðum. En kannski lítur það betur út.að setia gæðastimpil laganna á ofbeldisstefn- una. Hver veit? Og hveijir eru svo þessir „þrjótar'' sem virða ekki lög og reglu? Er lög- reglan þeirra eða hernámsliðsins? Yfirráð ísraela yfir Palestínumönn- um eru brot á alþjóðalögum og á mannréttindasáttmála Sameinuöu þjóðanna. Ekkert þjóðríki í heimin- um viðurkennir þau, jafnvel ekki Bandaríkin, sem eru þó síðasti bandamaður Ísraelsríkis. Enn eitt. í fréttinni er minnst á tvö bænahús Palestínumanna í Jerúsal- em. Ef mér skjátlast ekki þá stendur styrinn ekki um einhver bænahús Palestínumanna heldur um eitt helg- asta musteri íslamsheimisins, þ.e. musteri sem tilheyrir einum millj- arði manna. Menn gleyma iöulega að Jerúsalem tilheyrir ekki einungis gyðingum. Þar eiga kristnir og íslam- skir menn sín allra helgustu vé. Hernám gyðinga á allri Jerúsalem er ögrun við stóran hluta mannkyns- ins og er því harðlega fordæmt af kristinni kirkju, íslamsheiminum og öllum aðildarrríkjum Sameinuðu þjóðanna. Elias Daviðsson Séð yfir hluta hinnar sögufrægu borgar, Jerúsalem. Silkiáferð með Kópal Flos Kópal Flos innimálningin hefur gljástig 30, sem gefur silkiáferð. Kópal Flos er sterk málning sem hæfir þar sem mikið mæðir á. Viljir þú hærri gljáa á veggi sem meira mæðir á, skaltu velja Kópal Geisla. OsarfslA-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.