Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1987.
Fréttir
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins:
Alþýðubandalagið
er mætt til leiks
- eftir því munu allir landsmenn fá að taka á næstunni
Ólafur Ragnar Grímsson hlaut
60% atkvæða við formannskjör á
landsfundi Alþýðubandalagsins á
laugardaginn. Almennt var búist
við að mjótt yrði á mununum í
formannskjörinu og því komu úr-
slitin nokkuð á óvart. Ólafur
Ragnar var fyrst spurður hvort
þessi munur hefði komið honum á
óvart
„Með vissum hætti kom hann
þægilega á óvart, enda þótt ég hafi
orðið var við vaxandi stuðning síð-
ustu vikurnar og einnig hér á
landsfundinum. Ég er sérstaklega
ánægður og þakklátur fyrir það að
stuðningurinn kemur frá öllum
landshlutum og sýndi mjög breiða
samstöðu í flokknum með hina
nýju forystu. Mér þykir það dýr-
mætt veganesti þar sem í hönd fara
mikil verkefni."
Þú hefur talað um að taka verði
upp ný vinnubrögð í flokknum. Þú
stendur uppi með flokk sem er með
8% fylgi í skoðanakönnunum.
Hvernig munu menn taka eftir því
næstu daga að komin er ný forysta
í Alþýðubandalaginu?
„Við munum strax hefja kynn-
ingu á þeirri ítarlegu stefnu sem
við erum að ganga frá hér á lands-
fundinum. Sú stefna sýnir ótvírætt
að Alþýðubandalagiö er mætt til
leiks og er reiðubúið til að verða
ráðandi afl í stjórn landsins. Al-
þýðubandalagið er tilbúið til að
taka forystu á sviði efnahags- og
launamála, jafnréttis og atvinnu-
mála og á ýmsum öðrum sviðum,
svo sem í umhverfismálum og ut-
anríkismálum. í reynd má draga
þetta saman og segja:
Þessi landsfundur staðfesti þann
vilja Alþýðubandalagsins að verða
á ný sterkur og lýðræðislegur
Olafur Ragnar ávarpar landsfundinn eftir að hann hafði verið kjörinn
formaður Alþýðubandalagsins. DV-mynd BG
vinstri flokkur. Á þeim tímum, sem
viö lifum nú, tímum upplausnar
og sundrungar í ríkisstjórninni,
tímum efnahagserfiðleika í heim-
inum og hjá okkur sjálfum, er mikil
þörf fyrir breiðan og lýðræðislegan
vinstri flokk sem tilbúinn er til að
veita skýr svör við þeim stefnu-
spurningum sem bornar eru fram.“
Á hverju ætlarðu að byrja, hvernig
verður upphaf kynningarinnar?
„Ég tel nú ekki skynsamlegt að
skýra frá því á þessari stundu en
það kemur í ijós á næstu vikum og
mánuðum. Ég mun hins vegar
strax leggja mikla áherslu á að
flytja boðskap flokksins um allt
land. Ég mun heimsækja alla
landshiuta, ekki eingöngu til að
flytja stefnu Alþýðubandalagsins
heldur líka til að hlusta á þau sjón-
armið og ábendingar sem fram
koma hjá þeim sem gerst þekkja
aðstæður á hverjum stað. Þá mun
ég bjóða velkomnar til starfa þær
þúsundir af ungu fólki sem ég hef
fundið á undanförnum vikum að
binda miklar vonir við þær breyt-
ingar sem gætu orðið í Alþýðu-
bandalaginu. Gera flokkinn þannig
í verki að hann verði það baráttu-
tæki sem þetta fólk hefur viljað fá
en ekki fundið.“
Ertu með þessu að boða slag við
Alþýðuflokk og Kvennalista?
„Þaö hafa verið margvíslegar til-
raunir í gangi að undanfömu á
vinstrivæng íslenskra stjórnmála.
Þær leiddu meðal annars til klofn-
ings í Alþýðuflokknum og Banda-
lag jafnaðarmanna varð til. Síðan
var það lagt niður. Þær tilraunir
sköpuðu Kvennalistann, sem ýms-
ir draga nú ákveöinn lærdóm af.
Þessar tilraunir fólu fyrst í stað í
sér ákveðinn ferskleika í nýrri for-
ystu í Alþýðuflokknum, ferskleika
sem nú hefur dagað uppi í rangöl-
um ráðuneytanna. Það er nú
verkefni Alþýðubandalagsins að
sýna að þessu tilraunatímabili er
lokið og Álþýðubandalagið er mætt
til leiks í því að verða flokkur þess-
arar vinstri umsköpunar í
landinu.“
Óttastu klofning í flokknum?
„Nei, því fer viðs fjarri. Eins og
ég sagði í aðdraganda landsfundar-
ins, meðal annars í viðtali við DV
og ýmsir töldu þá vera kokhreysti
frambjóðanda í formannsslag, að
ég hef fundið mjög breiðan sam-
stöðuvilja í flokknum, allt í kring-
um landið. Þessi vilji fólksins sjálfs
í flokknum er auövitað það aðhald
sem einstakir forystumenn finna.
Ég er sannfæröur um að það á eftir
að koma mönnum á óvart hvað
Alþýðubandalagið mun koma sam-
einað og sterkt fram eftir lands-
fundinn.
-S.dór
Bátur sökk:
Skipstjórinn
bjargaðist
naumlega
Friðgeir Höskuldsson, skipstjóri og
eigandi mótorbátsins Grímseyjar frá
Drangsnesi, bjargaðist naumlega
þegar báturinn sökk seint á föstu-
dagskvöldið. Báturinn hafði strand-
að á Steingrímsfirði og verið var að
reyna að draga hann á flot þegar
hann lagðist skyndilega á hliðina og
sökk. Friðgeir var þá í stýrishúsinu
og rétt náði að smeygja sér út um
glugga áður en báturinn sökk. Tveir
aðrir voru á Grímsey en voru komn-
ir um borð í annan bát þegar farið
var að reyna að draga bátinn á flot.
Nýbúið var að landa úr Grímsey á
Drangsnesi og voru bátsveijar á leið
að bátalægi innar í Steingrímsflrði
þegar báturinn strandaði. Bátsveijar
kölluðu á hjálp og komu strax bátar
frá Drangsnesi og Hólmavík Gríms-
eynni til aðstoðar.
Að sögn Svövu Friðgeirsdóttur,
dóttur skipstjóra, var báturinn dreg-
inn að landi í gær og voru notuð til
þess stórvirk vinnutæki. Um kaffl-
leytið í gær var svo lokið við að dæla
sjó úr bátnum. Virðist svo sem bátur-
inn hafi lítið skemmst við þetta volk
nema hvað eitthvað hefur skolast til
í vistarverum bátsverja. -ATA
Bílvelta
í Keflavík
- ölvuðumökumönnumfjöigar
Bílvelta varð í Keflavík um þrjú
leytið aðfaranótt laugardags. Öku-
maöurinn virðist hafa misst stjórn á
ökutæki sínu í miðjum bænum og
velt því. Hann var einn í bílnum og
meiddist eitthvað lítils háttar en var
fluttur á sjúkrahús til skoðunar.
Hann er grunaður um ölvunarakst-
ur.
Fimm ökumenn voru teknir í
Keflavík um helgina grunaðir um
ölvun við akstur. Að sögn lögregl-
unnar í Keflavík hefur ölvunarakst-
ur færst mjög í vöxt í ár en það sem
af er árinu hafa 160 ökumenn verið
færðir til blóðrannsóknar vegna
meintrar ölvunar. Allt árið í fyrra
voru þeir 133. -ATA
í dag mælir Dagfari
Olafur verður ofan á
Alþýðubandalagið hélt landsfund
um helgina eins og alþjóð er Ijóst
eftir nákvæmar og dramatiskar
lýsingar fjölmiðla af atburðará-
sinni. Slagurinn stóð um það hvort
Ólafur Ragnar Grímsson eða Si-
gríður Stefánsdóttir yrði kosin
formaður eftir að Svavar hafði gef-
ist upp. Miðað við aödraganda
fundarins lá alls ekki Ijóst fyrir
hvernig þessi kosning gengi fyrir
sig eða hvað væri í rauninni að
gerast í Alþýðubandalaginu. Menn
voru ýmist felldir eða kosnir til
setu á landsfundinum, formenn og
varaformenn einstakra félaga
sögðu af sér í hópum og forseti
Alþýðusambandsins varð að fá sér
sæti niður á alþingi af því hann var
ekki talinn þess virði að hafa á
landsfundinum. Ólafur Ragnar hélt
kokkteilboð heima hjá sér til að
fylla þá sem áttu að Kjósa hann og
Sigríður hélt kafflfundi með þeim
sem hún vissi að ekki mundu kjósa
sig.
Þegar nær dró fundinum var allt
í óvissu um úrslit. Báðum var spáð
sigri. Alls kyns lýsingar voru gefn-
ar á ástandinu í Alþýðubandalag-
inu og ekki allar hafandi eftir.
Morgunblaðið, sem er afar vinsam-
legt allaböllum í hvert skipti sem
eitthvað bjátar á í þeirra herbúð-
um, tók þó af skarið daginn sem
landsfundurinn var settur og sagði:
Allt í jámum hvort verður ofan á.
Rann þá upp ljós fyrir þeim sem
ekki eru í Álþýðubandalaginu og
ekki fengu að sækja þennan örlaga-
ríka fund, að málið snerist ekki um
það hvort Ólafur Ragnar yrði kos-
inn eða hvort Sigríður yrði kosin.
Málið snerist um það hvort þeirra
yrði ofan á hinu.
Svavar Gestsson lýsti því yfir í
setningarræðu að Kvennalistinn
hefði sótt mikið fylgi til Alþýðu-
bandalagsins. Þess vegna væri það
nauðsynlegt að kona yrði ofan á.
Það mundi styrkja flokkinn ef Si-
gríður yrði ofan á. Hinir sem
studdu Ólaf brugðust hins vegar
illa við þessari skoðun Svavars og
töldu það merki um styrk og stöð-
ugleika og skynsamleg viðhorf í
flokknum ef Olafur yrði ofan á.
Þetta var andófshópurinn, íhalds-
sömu öflin í flokknum sem þekkja
ekki aðrar aðferðir en þær að mað-
urinn sé ofan á. Hann vildi ekki
breyta þeirri aðferð.
Einhverjum datt það í hug á fund-
inum að einfaldast væri að tefla
þeim einum fram, Ólafi og Sigríði,
bæði til formanns og varaform-
ÓUfur ÍUgBnr GHbwob
I jámum hvort
verður ofan á
anns, þannig að sá sem yrði ofan á
yrði formaöur en sá sem yrði undir
yrði varaformaður. Þannig mundi
málið leysast af sjálfu sér og form-
aðurinn yrði ofan á varaformann-
inum.
Ekki var fallist á þessa málamiðl-
unartillögu enda best að ákveða
það í eitt skipti fyrir öll hver yrði
ofan í flokknum og forystunni.
Flokksmenn voru orönir þreyttir á
því að vita aldrei með vissu hver
er ofan í flokknum og raunar er
það þannig að fráfarandi formaður,
sem hefur verið ofan á, hefur aldr-
ei almennilega notið sín síðustu
árin vegna þess að hann fékk ekki
að vera ofan á í friði. ,
Það er ekki laust við að annarra
flokka menn öfundi allaballa af því
að geta haldið landsfund þar sem
það eitt er til ákvörðunar hver
verður ofan á. Aðrir flokkar halda
landsfundi þar sem málum er drep-
ið á dreif, þvælt um pólitík og
landsmál, á sama tíma og flestum
er ljóst að það sem skiptir máli í
stjórnmálunum ér hver er ofan á.
Sérstaklega er þetta orðið mikil-
vægt eftir að Kvennalistinn kom til
skjalanna og eftir að konur fóru að
sækjast eftir meiri völdum í pólitík.
Þá hefur ekki verið nokkur friður
fyrir þá sem hingað til hafa verið
ofan á. Þeir hafa jafnvel orðið und-
ir þegar þeir eiga einskis ills von
og konurnar hafa orðið ofan á og
karlarnir undir þegar síst skyldi.
Þorvaldi Garðar tókst að vísu að
vera ofan á þegar konurnar í Sjálf-
stæðisflokknum vildu vera ofan á
í sambandi við kosningu forseta
sameinaðs þings. En Þorvaldur er
líka sérstakur ágætismaður sem er
ekki vanur að láta sinn hlut og
vera undir þegar konur eru annars
vegar.
Nú hefur Alþýðubandalagið látið
til skara.r skríða. Það hefur tekið
ákvörðun með formlegum hætti og
svarað þeirri pólitísku spurningu
Morgunblaösins um það hver verð-
ur ofan á. Það er ekki lengur í
járnum. Teningnum hefur verið
kastað. Ólafur Ragnar var kosinn
formaður. Hann verður ofan á.
Dagfari