Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1987.
19
Fréttir
Reglugerð frá dómsmálaráðuneyti um fasteignasala:
að sækja um löggildingu
Verða
„Lögin tóku gildi á sínum tíma
en í raun má segia að þau hafi ekki
komið til framkvæmda fyrr en
reglugerðin kemur,“ sagði Þor-
steinn Geirsson, ráðuneytisstjóri í
dómsmálaráðuneytinu, þegar
hann var spurður hvort lög um
fasteignasölu frá því í maí 1986
hefðu nokkurn tímann komið til
framkvæmda.
Nú hiliir samt sem áður undir að
lögin komist í framkvæmd því ný
reglugerð er varðar löggildingu og
tryggingarskyldu fasteigna- og
skipasala er væntanleg innan mjög
skamms tíma, að sögn Þorsteins.
Reglugerð er varðar sömu atriði
og sú reglugerö sem nú er í burðar-
liðnum var gefin út í maí á þessu
ári. í henni var kveðið á um að fast-
eignasalar yrðu að kaupa 10 milljón
króna tryggingu hjá viðurkenndu
vátryggingarfélagi sem ætti að
bæta fjárhagslegt tjón sem fas-
teignasah kynni að vera valdur að
í starfi sínu, en tryggingarfélögn
neituðu.
„Það var eðlilegt að það tæki þau
tíma að komast að niðurstöðu um
hvernig tryggingarskilmálar
yrðu,“ sagði Þorsteinn um þetta
atriði.
- Verður ríkið skaðabótaskylt ef
upp kunna að koma einhver mál á
þessu tímabili er varða íjárhagslegt
tjón af völdum fasteignasala?
„Við teljum að svo sé ekki en
sjálfsagt verður að reyna á slíkt
fyrir dómstólum."
- Það segir í lögunum frá 1986 að
fasteignasali megi aðeins hafa eina
starfsstöð á sama stað og fasteigna-
sala er rekin. Hefur dómsmála-
ráðuneytið kannað hvort þetta
ákvæði laganna er brotið?
„Það hefur ekki verið gerð nein
könnun á því. Við höfum ekki talið
eðlilegt að fara út í neina slíka rass-
íu þar sem von var á þessari nýju
reglugerð en samkvæmt henni
verða allir fasteignasalar að sækja
um löggildingu til dómsmálaráðu-
neytisins upp á nýtt um leið og
þeir skila inn til dómsmálaráðu-
neytisins gögnum um vátryggingu.
Þegar menn hafa skilað inn þeim
gögnum kemur í ijós hvort fas-
teignasalan uppfyllir öll skilyrði
lagannna. Geri hún það ekki fá
menn ekki endurnýjað leyfi.“
- Nú segir líka í lögunum frá 1986
að dómsmálaráðherra skuli stofna
með hæfilegum fresti til námskeiða
fyrir þá sem vilja öðlast réttindi til
fasteignasölu en hafa ekki lokið
prófi í viðskipta- eða lögfræði.
Hvenær eru fyrstu námskeiðin fyr-
irhuguð?
„Við vinnum nú að undirbúningi
þessara námskeiða í samvinnu við
Háskóla íslands. Fyrstu námskeið-
in verða haldin seinni partinn í
vetur ef næg þátttaka fæst,“ sagði
Þorsteinn að lokum.
-J.Mar
Nám í fiskeldi:
Kennt
við tvo
skóla
Bændaskólarnir á Hólum og á
Hvanneyri kenna báðir fiskeldi. Á
Hólum hefur fiskeldi verið kennt
sem sérstök fiskeldisbraut frá árinu
1984. Áður var fiskeldi kennt sem
valgrein. Aðsókn að náminu hefur
verið góð. í vetur eru 14 nemendur
á öðru ári og sex á fyrra ári.
Aö Hólum fer kennslan fram í skól-
anum og í ám og vötnum í nágrenn-
inu og í húsnæði Hólalax. Skólinn
hefur gert samning við eldisstöðvar
um land allt. í þeim stöðvum eru
nemendur í verknámi í eina önn.
Námið er í stöðugri endurskoðun.
Þaö hefur tekið breytingum með þró-
un fiskeldis í landinu. Meðal nýjunga
eru áfangar í slátrun og meðferð og
sölu matfisks og neta- og nótafræði.
Við búvísindadeild Bændaskólans
á Hvanneyri hefur fiskeldi og fisk-
rækt verið kennd í 30 til 35 ár. Við
bændadeildina á Hvanneyri hófst
kennsla í fræðunum fyrir nokkrum
árum. Námið er valgrein við skól-
ann.
Tekist hefur samkomulag milh
skólans, búnaðarsamtaka Vestur-
lands og Veiðimálastofnunar um að
ráðinn verði maður sem jafnframt
því að annast kennslu í fiskeldi við
skólann sinni ráðgjöf til bænda.
Þeir nemendur, sem lokið hafa
námi í þessum fræðum, eru almennt
eftirsóttir til vinnu í laxeldisstöðvum
um aht land.
Hólaskóh hefur haldið kynningar-
námskeið í fiskeldi og í silungsveið-
um. Ætlunin er að auka þessa
starfsemi og bjóða jafnvel starfs-
mönnum eldisstöðva að sækja tiltek-
inn fjölda námskeiða sem myndu
veita þeim einhver ákveðin réttindi.
-sme
#"|j ITL IT
FYRIR JÓL ■ ■
ALLT AÐ 20% afsláttur til 20. des.
FLISAR
KORKUR
PARKET
MÚRSTEINSFLÍSAR
INNIMÁLNING
® SliPPFElAGID
MAfíKAÐURINN
MYRARGATA2. REYKJAVlK. SIMAR G22 422 OG 10123.
ISUZU
ISUZU
rnrnn
ISUZU
Verð:
Trooper - bensín 2,3 Itr. Kr.1.096.000,-
Trooper — diesel 2,8 Itr. turb. Kr.1.358.000,-
ISUZU TROOPER er framleiddur af
fyrsta og elsta bílaframleiðanda
Japans.
ISUZU TROOPER er fjölhæfur og
sterkbyggður ferðabíll með gnægð
rýmis fyrir farþega og farangur,
þægilegur og sparneytinn fólksbíll í
borg og bæ.
ISUZU TROOPER er orðinn einn
vinsælasti innflutti jeppinn í
Bandaríkjunum og valinn einn af 10
bestu fjórhjóladrifsbílum þar í landi.
er án efa einn sá
traustasti á markaðinum í dag, enda
framleiddur af QEI
Styttri gerðir fáanlegar um áramót.
ðí
BÍLVANGUR Sf=
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300