Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1987. 11 Utlönd Efnt var til mikilla mótmæla gegn Bandarikjunum I Teheran i síðustu viku og þá mátti sjá þessa bandarísku sjóliða og kistur með bandaríska fánanum á vegatálma. Simamynd Reuter Eldflaugaárás á Bagdad Iranar skutu í gær tveimur eldflaug- um að Bagdad í hefndarskyni fyrir auknar árásir íraka undanfarið að því er þeir tilkynntu. Var árásin gerð rétt áður en toppfundur Bandalags arabaríkja hófst í Amman í Jórdaníu í gær. Var flaugunum beint að útvarps- og sjónvarpsbyggingu og samgöngu- miðstöð. Að sögn heryfirvalda í írak hitti ein eldflauganna í mark og var tilkynnt að nokkrir hefðu fallið eða særst. í útvarpinu í Teheran var því hald- ið fram að írakar hefðu að undan- fórnu aukið árásir á íran til þess að sýna þátttakendum toppfundarins að írakar væru ekki veiki aðihnn í Persaflóastríðinu. íranar hefðu ákveðið að láta ekki íraka komast uþp með shk brögð. írakar og bandamenn þess vonast til þess að toppfundurinn þrýsti á írana til þess að ganga að vopnahlé- sályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þrjú þúsund í veislu Gorbatsjovs Hátíðahöldin í Moskvu í tilefni sjötíu ára afmælis byltingarinnar náðu hámarki á laugardaginn hersýning var haldin á Rauða torg- inu. Báru sumir hermannanna búninga frá árunum 1917 til 1922 og frá seinni heimsstyijöldinnni. Meðal þeirra sem virtu fyrir sér hersýninguna var Castro Kúbuleið- togi sem ekki hefur verið alls kostar hrifinn af umbótastefnu Gorbatsjovs. Hann var samt við hlið þeirra hæst settu í Sovétríkjunum er sýningin fór fram. Og á laugardagskvöldið var kvöld- verðarboð fyrir þrjú þúsund manns og var fjöldi erlendra gesta viðstadd- ur. Til vinstri við Gorbatsjov sat Castro og til hægri við Sovétleið- togann sat Jaruzelski, leiðtogi Pól- lands. Við sama borð sátu leiötogar og flokksforingjar frá öðrum komm- únistaríkjum. Meðal þeirra var Yasser Arafat, leiðtogi Frelsishreyf- ingar Palestínumanna. Þetta var veisla Gorbatsjovs og þótti hún frábrugðin fyrri veislum að því leyti að ekki var boðiö upp á vodka og koníak. Ávaxtasafi var framreiddur með matnum og einnig hvítvín og kampavín. Gorbatsjov ræddi við gesti og þótti Hersýning og fjöldaganga settu svip sinn á Moskvu á laugardaginn en þá lauk hátiöahöldunum vegna byltingarafmælisins. Simamynd Reuter stjórnarerindrekum ekki fara á milli mála aö hann meinti það sem hann sagði, ekki væri um aö ræða neina uppgerð. Á Rauða torginu fyrr um daginn hvatti Sovétleiðtoginn landa sína til þess að leggja sig fram til þess að halda mætti upp á framtíðina eins og nú væri verið að halda upp á bylt- ingarafmæli. Mayor fékk mlkiitn mebfhluta Tilnefning spænska lífefnafræö- ingsins Federico Mayor Zaragoza í embætti aðalframkvæmdastjóra menningarmálastofnunar Samein- uðu þjóðanna, UNESCO, var á laugardag samþykkt með miklum meirihluta á þingi stofnunarinnar í París. Mayor tekur því nú viö embætti af Amadou Mahtar M’Bow frá Senegal. M’Bow var framkvæmda- stjóri UNESCO í þrettán ár og mjög umdeildur i starfi. Bandaríkin, Bretland og Singapore hættu öll aöild aö stofnuninni vegna óánægju með stjómarhætti hans. Tamilar fa aukna sjáKsstjónt Hæstiréttur Sri Lanka hefur samþykkt tvær mjög umdeildar lagasetningar sem kveða á um stofnun sérstakra svæöastjóma á eyjunni til þess að veita tamilum þar aukna sjálfsstjóm. í tilkynningu frá skrifstofu for- seta Sri Lanka segir að þessi nýju lög skaði ekki einingu landsins né Sjálfstæði þess. Mikill fiöldi stjómarandstöðuflokka, samtaka búddatrúarmanna og ein- staklinga, hefur undanfariö reynt að fá hæstarétt landsins til aö hafna lagasetningum þessum. Lögin eiga enn eftir að hljóta samþykki þings Sri Lanka áður en þau ganga í gildi. Réðust Inn í fangelsi Belgíska lögreglan réðst á fóstudagskvöld inn i fangelsi í Brussel og batt enda á óeirðir liðlega hundrað fanga sem héldu fjórum fangavörðum í gíslingu. Að sögn talsmanna lögreglunnar voru allir gíslanna heilir á húfi. Óstaöfestar fregnir herma að óeiröirnar hafi brotist út þegar fangaverð- ir neituöu fóngum um að horfa á sjónvarp. Fangamir réðust þá til atlögu við verðina, tóku fióra þeirra og kveiktu síðan í húsgögnum í hluta fang- elsisins. Að sögn fangelsisstjómarinnar unnu fangamir miklar skemmdir á fang- elsisbyggingimni. Sovétríkin heimsvaldasinnuð Caspar Weinberger, fráfarandi vamarmálaráöherra Bandaríkj- anna, sakaði í gær Sovétríkin um að hyggja á heimsyfirráð og reyna að koma sér upp vömum gegn kjamorkuvopnum. í viðtali viö bandarísku sjón- varpsstöðina NBC sagði Weinberg- er ennfremur að Gorbatsjov, aðalritari sovéska kommúnista- flokksins, væri ósanngjam og bætti við að efnahagur Sovétríkjanna væri f hræöilegu ástandi. Weinberger fullyrti í viðtalinu að Sovétraenn ynnu að hönnun og upp- setningu vamarkerfis gegn kjamorkuvopnum, bæði á landi og úti í geimnum. Sagöi hann Sovétmenn viija stöðva geimvamaáætlun Banda- ríkjamanna til þess að geta unnið í friöi aö sínum eigin áætlunum. Sagði Weinberger að þaö væri nauösynlegt að Bandaríkjamenn kæmu sér upp geimvamakerfi eins fijótt og mögulegt væri. Weinberger sagði af sér í síöustu viku. Hann mun þó gegna embætti áfram meöan öldungadeild bandaríska þingsins fiallar ura tilnefiidan eftir- mann hans, Frank Carlucci. AS E A Cylinda þvottavélar*sænskar og sérstakar Fá frábæra dóma í neytendaprófunum fyrir þvott, skolun, vindingu (fjölhraða lotuvind- ing upp í 1200 snúninga), taumeðferð, sápu- og orkusparnað. Efnisgæði og öryggi ein- kenna ASEA. Gerðar til að endast. jfo nix Hátúni 6A SÍMI (91)24420 jFOmx ábyrgð SÉRTILBOÐ ASEA Cylinda 11000 Verðáður kr. 44.990 Afsláttur kr. 7.000 Nú staðgr. kr. 37.990 Ath. tilboðið gildir aðeins í stuttan tíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.