Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Blaðsíða 36
MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1987.
'48
TOkyimingar
ITÍ færð málmhúðunartæki að
gjöf
Málmtæknideild Iðntæknistofnunar fékk
nýlega að gjöf frá svissneska fyrirtækinu
Eutectic-Castilon fyrir milligöngu Is-
tækni hf. mjög vandaðan tækjabúnað til
málmhúðunar. Gjöfin var færð í tilefni
50 ára afmælis rannsókna í þágu ís-
lenskra atvinnuvega sem hófust með
stofnun atvinnudeildar Háskólans 1937
en arftakar hennar, rannsóknastofnanir
atvinnuveganna, minnast þeirra tíma-
móta nú með ýmsu móti. Mikill fengur
er að þessum nýju Castolintækjum og
hyggst málmtæknideild gangast fyrir
námskeiðum á þessu sviði í náinni fram-
tíð. Gjöfinni fylgir ennfremur aðgangur
að áratugalangri þekkingaruppbyggingu
Castolin með ráðgjöf og gagnabanka. Var
það staðfest með viðurkenningarskjali
sem einn forstjóra Castolin, Dr. Rothen-
buhler, afhenti dr. Hans Kr. Guðmunds-
syni, deildarstjóra málmtæknideildar,
ásamt tækjabúnaðinum við sérstaka at-
höfn í Iðntæknistofnun í þessum mánuði.
Starfsstyrkur til að skrifa um
þjóðfélagsmál
Hagþenkir, félag höfunda fræðirita. og
kennslugagna, hefur ákveðið að veita
starfsstyrk til höfundar eða starfshóps til
að semja rit um þjóðfélagsmál eða ljúka
við slíkt verk. Stjórn félagsins hefur aug-
lýst umsóknarfrest og er hann til 1.
nóvember nk. Styrkur þessi er auglýstur
í framhaldi af umræðum innan Hag-
þenkis og fundarsamþykkt um notkun
íjár sem greitt er til félagsins vegna samn-
inga um heimild skóla til að ljósrita úr
útgefnum verkum að vissu marki. Því fé,
sem greitt hefur verið til Hagþenkis sam-
kvæmt þessum samningum, hefur til
þessa verið veitt í skaðabætur og starfs-
styrki eftir úthlutunarreglum sem félags-
fundur hefur samþykkt. Þetta er hins
vegar í fyrsta sinn sem félagið gefur höf-
undum kost á að sækja um styrk til að
vinna verkefni. Tilgangurinn með því að
veita styrk til að samja rit um þjóðfélags-
mál er sá að auðga íslenska þjóðfélagsum-
ræðu. Félag höfunda fræðirita og
kennslugagna vill leggja sitt af mörkum
til þess að gefnar séu út bækur um mikil-
væg viðfangsefni sem eru vanrækt í
íslenskri bókaútgáfu. Bók er besti miðill-
inn til að gera viðfangsefni rækileg skil
og gefa almenningi kost á að kynna sér
árangur athugana og hugsunar. Nánari
upplýsingar veitir Hörður Bergmann,
formaður Hagþenkis.
Minnisbók Bókrúnar 1988
Minnisbókin, sem nú kemur út öðru sinni,
er um 200síðurí gormbindingu. Við hvern
dag er, auk rýmis fyrir minnisatriði, texti
þar sem greinir frá ýmiss konar viðfangs-
efni kvenna fyrr og nú. Einnig eru þar
gullkorn sem fólk hefur í tímans rás látið
frá sér fara. Við upphaf hvers mánaðar
er heilsíðu ljósmynd sem tekur mið af
einhverju sem gerst hefur í þeim mánuði.
Fimm valinkunnum konum var boðið orð-
ið og rita þær á eina síðu hver. Aftast eru
nokkrar síður méð tölfræðilegum fróðleik
um stöðu íslenskra kvenna í samfélaginu,
svo sem skrá yfir þær konur sem hafa
verið kosnar á alþingi frá upphafi og
konur sem kjörnar hafa verið í borgar-
stjórn Reykjavíkur. Minnisbók Bókrúnar
1988 er fáanleg á öllum helstu bóksölu-
stöðum. Hönnuður hennar er Elísabet
Cochran, setning og umbrot fór fram í
Leturvali og filmuvinna og prentun í
Grafik. Ritstjóri Minnisbókarinnar er
Valgerður Kristjónsdóttir, varaformaður
Bókrúnar hf.
I'-
SÉ
Þrjárkiljurfrá Máli
og menningu
Mál og menning hefur gefið út þrjár kiljur
með verkum rússneskra öndvegishöfunda:
Glæpur og refsing er ein frægasta skáld-
saga Fjodors Dostojevskís. Hún kom fyrst
út hjá Máli og menningu árið 1984 í þýð-
ingu Ingibjargar Haraldsdóttur. Þessi
saga er mikil að vöxtum og því er henni
í þessari útgáfu skipt í tvö bindi, 241 og
232 bls. að stærð. Skáidsagan Dauðar
sálir eftir Nikolaj Gogal er háðsk lýsing
á því ástandi sem ríkti í Rússlandi á 4.
áratug síðustu aldar. Magnús Magnússon
þýddi söguna sem kom fyrst út hér á landi
áríð 1950 en hefur nú um langt árabil ve-
rið ófáanleg. Bókin er 331 bls. að stærð.
Um þessar mundir sýnir Ríkissjónvarpið
myndaflokk sem byggður er á þessari sögu
Gogals. Allar kiljurnar eru prentaðar hjá
Norhaven bogtrykkeri a/s í Danmörku en
Teikn sá um hönnun á kápum.
Ný bón- og þvottastöð í Kópa-
vogi
Nýlega var opnuð ný bón- og þvottastöð
í Kópavogi. Nefnist hún Bónþjónustan
hf. og er til húsa að Kársnesbraut 100.
Það eru hjónin Sveinn Sævar Valsson og
Birna Magnúsdóttir sem reka stöðina og
ver þetta eina þjónusta þessarar tegundar
í Kópavogi. Bónþjónustan hf. er opin alla
daga nema sunnudaga frá kl. 9-19 og er
síminn 44755. Hjá Bónþjónustunni hf. er
boðið upp á djúphreinsun og háþrýsti-
þvott á öllum tegundum fólksbíla, jeppa
og sendibíla. Að sögn eigenda er boðið
upp á heimsendingarþjónustyu þannig að
fólk þarf ekki að hreyfa sig að heiman til
að fá vel þrifinn bíl.
Verðlaunasamkeppni lækna-
félaganna 1987
1 tilefni 75 ára afmælis Læknablaðsins
hafa lækriafélögin ákveðið að efna til
hugmyndasamkeppni er fjalli um við-
fangsefnið „Mannvist í þéttbýli".
Samkeppninni er ætlað að hvetja fólk til
umhugsunar um húsakost okkar og um-
hverfi og leiða fram nýjar hugmyndir að
umbótum í húsnæðis-, skipulags- og um-
hverfismálum, er geti stuðlað að betra
mannlífi. Frjálst er að taka á þessu við-
fangsefni á fjölbreytilegan hátt og koma
til greina ritgerðir, uppdrættir, mynd-
bönd, myndir, ljóð og hvaðeina sem
mönnum er tiltækt sem tjáningarform.
Úrlausn skal senda til Útgáfustjórnar
læknafélaganna, Domus Medica, 101,
Reykjavík, eigi síðar en 29. feb. 1988.
Verðlaunafé er samtals 500.000 kr.
Rausnarleg gjöf til íbúa
Bessastaðahrepps
Frú Louisa Þórðarson, sem varð áttræð
í gær, 25. október, hefur gefið Bessastaða-
hreppi land sitt er Haukshús á Álftanesi
standa á. Haukshús voru um áratuga
skeið sumarhús Louisu og eiginmanns
hennar, Þórðar Þórðarsonar yfirlæknis,
en hann lést þann 10. mars 1985. Sam-
kvæmt gjafabréfi, sem hreppsnefnd
Bessastaðahrepps hefur veitt móttöku, er
Haukshúsum í framtíðinni ætlað að vera
dagvistarheimili fyrir börn í hreppnum.
Einnig er óskað eftir því í bréfinu að forn
brunnur í landi Haukshúsa verði varð-
veittur og saga hans könnuð.
Eiðfaxi
10. tbl. ársins 1987 er komið út. í blað-
inu er að finna margar fróðlegar
greinar um hesta og hestamennsku.
Aðalviðtalið er við Baldur Jónsson,
fyrrverandi vallarstjóra en núver-
andi hestamann, Anders Hansen
skrifar um ættbókarnúmer og nafn-
númer kynbótahrossa, skrifað er um
kvikmyndagerðarmenn frá Svíþjóð
sem eru að gera kvikmynd um ís-
lenska hestinn, fjallað er um val á
landsmótsstað, Reynir Aðalsteinsson
skrifar um úrbætur við lulli, Erna
Arnardóttir skrifar um konur og
keppni, fjallað er um hrossasýningar
á Bú ’87 og birtur er 5. hluti fram-
haldssögunnar um Perlu. Einnig er
fjallað um hestabúgarð Höskuldar
Aðalsteinssonar og Michaelu
Uferbach á Frosthof, góðhesta-
keppni og kappreiðar Léttis, íþrótta-
mót Þyts, hestamót Harðar og
hestamót Þjálfa og Grana. Birtar eru
síðbúnar svipmyndir frá hestamótum
á Murneyrum og Vindheimamelum,
en einnig er að finna í blaðinu
smærri greinar.
Nýtt jólakort frá Ásgrímssafni
Jólakort Ásgrímssafns 1987 er komið út.
Það er prentað eftir olíumálverkinu
Hafnarfjörður (um 1930). Kortið er í sömu
stærð og fyrri listaverkakort safnsins
(16x22 sm) og er með íslenskum, sænskum
og enskum texta á bakhlið. Grafík hf.
offsetprentaði. Listaverkakortið er til
sölu í Ásgrímssafni, Bergstaðastræti 74,
á opnunartíma þess, á sunnudögum,
þriðjudögum og fimmtudögum kl.
13.30-16, og í Rammagerðinni, Hafnar-
stræti 19.
GANGLERI
i IW7 Pt>sn«)l.p ••?.«?
Tímaritið Gangleri,
síðara hefti 61. árgangs er komið út. Það
flytur greinar um andleg og heimspekileg
mál og alls eru 18 greinar í þessu hefti
auk smáefnis. Grein er um mannlegan
þroska eftir Jón Arnalds og sagt frá já-
kvæðri beitingu hugans til lækninga. Þá
er grein um dulfræði og önnur um Tarot
spilin. Gangleri er ávallt 96 blaðsíður og
kemur út tvisvar á ári. Áskriftargjald er
kr. 550. Sími 39573.
Hljómplata með samleik
gítars og orgels
Ut er komin hljómplata með samleik gít-
ars og orgels. Á henni leika Símon H.
ívarsson og dr. Orthulf Prunner verk eft-
ir Bach, Vivaldi og Rodrigo. Platan var
tekin upp í Dómkirkjunni í Reykjavík sl.
vetur og annaðist Halldór Víkingsson
hljóðritunina með stafrænni tækni (digit-
al) en platan er pressuð hjá Teldec í
V-Þýskalandi og skorin með DMM aðferð
(Direct Metal Mastering). Útgefandi er
Fermata en dreifingu annast bókaútgáfan
Örn og Örlygur. Platan kostar 899 kr.
MÆNUSKAÐI
Upplýslngar og lelðbelningar fyrlr
þverlamaða og aðstandendur þelrra.
Bæklingur um mænuskaða
er kominn út í 2. útgáfu. Sjálfsbjörg, lands-
samband fatlaðra gefur hann út. Mænu-
skaði veldur svokallaðri þverlömun í
útlimum og verður yfirleitt af völdum
slysa. Þeir sem þverlamast þurfa oft að
horfast í augu við ný og óþekkt vandamál
og er bæklingurinn til þess ætlaður að
leiðbeina mænusködduðum og aðstend-
endum þeirra. Bæklingurinn fæst á skrif-
stofú Sjálfsbjargar, landssambands
fatlaðra, Hátúni 12, s. 91-29133. Hann er
seldur á kostnaðarverði, nema hvað ein-
staklingar fá hann afhentan ókeypis.
Ný Vera er komin
Kynlífið er meginefnið í nýjasta tölublaði
kvennatímaritsins Veru en fimmta tölu-
blað er nú komið út. Auk þess meginefnis
er margt annað að finna í Veru sem
endranær. Rætt er við Nínu Björk Árna-
dóttur sem gefur út fyrstu skáldsögu sína
í haust. Kristín Ástgeirsdóttir skrifar um
stöðuna að afloknum kosningum og til-
lögur Kvennalistans í stjórnarmyndunar-
viðræðum í vor eru birtar. „Fréttir úr
borgarstjórn sem blöðin segja ekki“ koma
fram og fjallað er um þátt skólans í félags-
mótun kvenna. Það er Kvennaframboðið
í Reykjavík og Samtök um kvennalista
sem gefa blaðið út og kemur það út sex
sinnum á ári. Verð í lausasölu er nú 275.
Heimili Veru er á Hótel Vík, Vallar-
stræti í Reykjavík, og áskriftasíminn er
22188 eða 13725.
áhyggjufuUur?
MrvmcrMSgM
MAD
Út er komið 3. tölublað MAD á íslensku.
Að vanda lætur blaðið hin óskyldustu mál
til sín taka og má nefna að kvikmyndahetj-
an Krókódíla-Dundee fær umfjöllun sem
og sjónvarpsstjarnan Bjargvætturinn.
Sérrit er í blaðinu um sálgreiningar og
birtar eru sparnaðaraðferðir sem halda
uppi kaupmættinum. Litið er á lófalestur
og haldið áfram frásögnum af þjóðsagna-
persónunni Tarsan svo dæmi séu tekin.
Blaðið birtir nú í fyrsta sinn myndir eftir
ungan efnilegan skopmyndateiknara, Ás-
geir Jón Ásgeirsson. Mad á íslensku
kemur út í 10.000 eintaka upplagi og er
því dreift í flestar bókabúðir og á blaða-
sölustaði um land allt. Engar auglýsingar
eru í MAD. Blaðið er 52 síður að stærð.
I önnum dagsins
Bókaútgáfan Skógar hefur sent frá sér bók
sem ber heitið 1 önnum dagsins. Höfundur
er Sigurður Gunnarsson, fyrrverandi
skólastjóri. Efni bókarinnar er skipt í
fimm kafla sem nefnast: Erindi, ávörp og
greinar við ýmis tækifæri. Ræður og grein-
ar um bindindismál. Um öldrunarmál.
Minnst nokkurra samferðamanna. Nokk-
ur ljóð og stökur og loks er skrá yfir
ritgerðir Sigurðar í blöðum og tímaritum.
Bókin er fallega út gefin, í stóru kilju-
broti, 279 tölusettar síður með táknrænni
teikningu á kápu. Hún er unnin í prent-
smiðjunni Odda hf. Bókin fæst í nokkrum
bókaverslunum í Reykjavík, úti á landi
og hjá höfundi á krónur 650.