Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1987. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerö: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 600 kr. Verð í lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblað 75 kr. Nýr formaður Athyglin hefur beinst að landsfundi Alþýðubandalags- ins um þess helgi. Slagurinn um formannssætið var bæði harðvítugur og spennandi og fjölmiðlar komust inn á gafl í frásögnum og lýsingum á þeim innanflokksátökum sem voru að baki þess uppgjörs. Það er reyndar tímanna tákn að stjórnmálaflokkarnir hafa svipt hulunni af erjum og ágreiningi innan sinna raða og fjölmiðlamenn fá leyfi til að sitja í innsta hring þegar atburðirnar sjálfir gerast eins og á fyrrgreindum landsfundi Alþýðubandalagsins. Áður fyrr þótti það veikleikamerki ef slíkur ágreiningur komst í hámæh og fjölmiðlar og almenningur fengu htla vitneskju um þá hluti. Það þótti kappsmál að hafa allt slétt og blúndulagt á yfirborðinu til að sýna og segja frá samstöðunni út í frá. En þeir tímar eru breyttir og enda þótt sumum kunni að finnast það óvinafagnaður þegar menn berast á bana- spjótum í æðstu valdastöðum í Alþýðubandalaginu þá er hitt alveg eins líklegt að Alþýðubandalagið hagnist á öllu umtalinu og athyglinni sem flokkurinn fær um þessar mundir. Framboð tveggja einstaklinga til formanns er hður í lýðræðinu og þarf ekki að bera vott um klofning ef baráttan fer drengilega og heiðarlega fram. Hins vegar verður ekki framhjá því litið að uppdráttar- sýkin hefur verið á háu stigi í Alþýðubandalaginu að undanfórnu. Svavar Gestsson, fráfarandi formaður, hefur upplýst að ekki hafi verið vinnufriður í flokknum um langan tíma. Hann og varaformaðurinn töluðust ekki við og aðrir áhrifamenn í flokknum voru á bakinu á Svavari, tilbúnir með rýtinginn þegar færi gafst. Þessum köldu kveðjum var fyrst og fremst beint að Ólafi Ragnari Grímssyni, sem Svavar og flokkseigendafélagið barðist hatrammlega á móti í formannsslagnum. Þrátt fyrir þá andstöðu bar Ólafur Ragnar sigurorð af keppinaut sínum og fékk góða kosningu til formennsk- unnar. Það er nokkurt afrek hjá Ólafi og víst er að hann mun áreiðanlega mæta til leiks með fítonskrafti og fyrir- gangi. Ólafur er æfður og lærður stjórnmálamaður og vel til forystu fahinn. En björninn er ekki unninn. Allt bendir til að Ólafur Ragnar hafi meirihlutann á móti sér í framkvæmdastjórn flokksins og þingflokkurinn er yfirgnæfandi andvígur forystuhlutverki hans. Persónuleg og illvíg andstaða fjöl- margra áhrifamanna gagnvart Ólafi Ragnari getur orðið honum fjötur um fót og það á eftir að koma í ljós hvern- ig Ólafur tekur á þeim málum. Úrslitum ræður hvernig honum tekst að ná til kjósenda, því ef skoðanakannanir og úrslit næstu kosninga sýna vaxandi fylgi við Alþýðu- bandalagið geta óvildarmenn Ólafs innan flokksins lítt eða ekki stuggað við honum. Það er á þeim vígvelli sem Ólafur Ragnar verður að berjast. Alþýðubandalagið hefur smám saman verið að missa fótfestuna sem fjöldaflokkur til vinstri. Hann hefur virk- að þreyttur og staðnaður og hann er með mörg lík í lestinni að því er varðar úreltar kennisetningar sem eru arfur kommúnískra trúarbragða í Alþýðubandalaginu. Enginn vafi er á því að Ólafur Ragnar og hans fylgismenn hafa áhuga á að breyta áherslum, stefnumálum og ímynd flokksins í átt til frjálslegra viðhorfa. Þar er mikið verk að vinna. Ný forysta í Alþýðubandalaginu verður bæði að yfirstíga fjandskapinn í eigin röðum og brjóta á bak aftur sögulega ímynd gamals kommúnistaflokks. Hinn nýi formaður hefur ekki efni á að misstíga sig í þeirri endurhæfmgu. Ellert B. Schram Versnuðu kjör al- mennings við iðnbylt- inguna? Það er alkunna, að stjórnmála- skoðanir einstaklinga ráðast að miklu leyti af sögulegum viðhorf- um þeirra. Ef reynslan sýnir, að kenning hafi slæmar afleiðingar, þá eru fáir auðvitað líklegir til að aðhyllast hana. Með sama hætti hlýtur stjómmálastefna aukið fylgi, haldi menn yfirleitt, að hún hafi gefist vel. En því segi ég þetta, að til er þrálát goðsaga, sem hefur áreiðanlega valdið miklu um hversu margir hafa á liðnum ára- tugum hneigst til félagshyggju. Hún er, að kjör almennings hafl stórlega versnað við iðnbylting- una. Eftir því sem atvinnufrelsi í anda Adams Smiths hafi aukist, hafi hinir ríkari orðið ríkari og hin- ir fátæku fátækari. Ríkið eða verkalýðsfélög hafi þvi orðið að jafna metin. Karl gamli Marx trúði þessari kenningu og taldi raunar ekkert geta ráðið bót á ófremdarástandinu nema byltingu öreiganna. Og eftir daga Marx hefur þessi goösaga um iðnbyltinguna gengiö ljósum log- Eymd félagshyggjunnar KjaUaiinn Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðingur iðnbyltingunni og að þeim hefur þótt ásýnd hinnar nýju verk- smiðjualdar ljót. En okkur hættir því miður stundum til að gleyma öllum þeim skara, sem áður fyrr dró annaðhvort fram lífið eða féll úr hor. Venjulegir alþýöumenn gátu auövitaö ekki skrifað nöfn sín á spjöld sögunnar eins og höföingj- amir með listaverkakaupum eða smíði myndarlegra sveitasetra. Nefna má tvennt í viðbót, sem kann að hafa að einhverju leyti ráðið goðsögunni um versnandi kjör almennings af völdum iðn- byltingarinnar. Tveir áhrifamiklir hagsmunahópar græddu á því að mikla fyrir sér og öðrum slæmar afleiðingar atvinnufrelsis og einka- framtaks: annars vegar íhaldsamir landeigendur, sem héldu fram sér- réttindum sínum gegn kröfunni um opið skipulag, og hins vegar ýmsir róttækir og stjórnlyndir menntamenn, sem töldu sig sjálf- kjörna leiðtoga verkalýðsins, en um í flestum kennslubókum og yfirlitsritum, ekki síður í verkum virtra íslenskra fræðimanna en yfirlýsts félagshyggjufólks. Hér ætla ég hins vegar að freista þess að varpa nokkru ljósi á málið. Fátækt minnkaði og lífskjör bötnuðu í þessu sambandi er alltaf vísaö til Bretlands á fyrri hluta nítjándu aldar. Og vissulega var þaö óskap- leg fátækt. En rannsóknir Sir Johns Claphams í Cambridge, T.S. Ashtons og W.H. Hutts í Lundúna- háskóla, R.M. Hartwells í Oxford og margra fleiri fræöimanna sýna þó ótvírætt, að fátækt minnkaði þar mjög á þessu tímabili og lífs- kjör almennings bötnuðu óðum. voru þó engin verkalýðsfélög kom- in þá til sögu, og ríkisafskipti af tekjuskiptingunni voru einnig óveruleg. Ef til vill er það skýrasti vitnisburðurinn um þessa þróun, hversu ört fólki fjölgaði á tímabil- inu, en áður hafði hungurvofan með aðstoð óviðráðanlegra farsótta haldið aftur af fólksfjölgun. Þótt lífskjör flestra atvinnustétta hafi þannig batnað á fyrri hluta nítjándu aldar, er því ekki að leyna, aö kjör sumra bötnuðu miklu hæg- ar en annarra og að kjör nokkurra atvinnustétta versnuðu beinlínis, einkum vegna þess að þörfm fyrir þjónustu þeirra hvarf vegna tækni- framfara. Um það er ekki heldur deilt, að margir bjuggu viö vesöld. En hversu margir þeirra, sem hafa séð myndir í sögubókum af stritandi konum i breskum kola- „Til er þrálát goðsaga, sem hefur áreið- anlega valdið miklu um, hversu margir hafa á liðnum áratugum hneigst til fé- lagshyggju.“ námum, vita, að samkvæmt manntali frá árinu 1841 voru aðeins 2% þeirra, sem störfuðu þar neðan jarðar, konur eða ungar stúlkur? Og hversu margir þeirra, sem hafa lesið um illa meðferð ríkisins á breskum fátæklingum, vita, aö frjáls líknarfélög lögðu á þessu tímabili allt að tíu sinnum meira fé fram til fátækrahjálpar en ríkið? Hvers vegna hafa menn látið blekkjast? Ýmsar ástæður kunna að vera til þess, að heiðarlegir fræðimenn hafa látið blekkjast. Ein er, aö fá- tækt var af völdum iðnbyltingar- innar að breytast úr reglu í undantekningu á nítjándu öld. Þess vegna bar meira á henni, en áður haíði hún ekki þótt í frásögur fær- andi. Um leið breyttist fátæktar- hugtakið. Áður hafði það skírskot- að til skorts á lífsnauðsynjum, en nú varð það miklu frekar andstæða velmegunar. Önnur ástæða er ugglaust, að fag- urkerar, eins og hinn áhrifamikli rithöfundur Charles Dickens, hafi ahð með sér óraunhæfa sveita- sæludrauma um tímabiliö á undan þurftu að æsa hann upp til and- stöðu við atvinnurekendur, ef þeir áttu að gera sér vonir um að ná markmiðum sínum. Hitt er, að okkur hættir til að leggja mæhkvarða samtíöarinnar á söguna. En það, sem okkur finnst sjálfsagt í dag, var óhugsandi mun- aður í gær. Okkur hryllir við allri eymdinni á nítjándu öld, og við gerum okkur þess vegna enga grein fyrir, að kjör manna voru þá yfir- leitt þrátt fyrir allt miklu betri en þau höfðu nokkru sinni verið áður. Fólk fékk nýja von Einar Benediktsson yrkir á ein- um stað um frelsisins eilífu, eggj- andi von, og vissulega fékk allur almenningur - forfeður mínir og þínir, lesandi góður - nýja von, eft- ir að iðnbyltingin gekk í garð (en hér á landi tók hún á sig mynd vélvæðingar í sjávarútvegi). Hvað sem öllum sögulegum bábiljum fé- lagshyggjufólks líður, er markaðs- kerfið mikilvirkasta tækið sem mannkynið hefur fundið til að breyta fátækt í bjargálnir. Hannes Hólmsteinn Gissurarson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.