Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Blaðsíða 14
14
MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1987.
Neytendur
Útfarir og greftranir 1986
Á sl. ári fóru fram 856 útfarir og
gieftranir í Reykjavíkurprófasts-
dæmi. Skipting á milli safnaða var
eftirfarandi:
Aðventkirkja 7
Áskirkja 10
Bústaðakirkja 42
Dómkirkja 155
Fossvogskirkja 332
Fossvogskapella 153
Fríkirkjan 29
HaUgrímskirkja 19
Háteigskirkja 19
Kirkjubær 2
Krists kirkja 4
Kópavogskirkja 22
Langholtskirkja 26
Laugameskirkja 10
Neskirkja 20
Fíladelfla 4
Vottar Jehóva 2
Kirkjugarðar Reykjavíkurprófasts-
dæmis önnuðust 1759 athafnir og
Líkkistuvinnustofa Eyvindar Áma-
sonar 356 athafnir. Þær skiptust
þannig:
Bálfarir 100
Fossvogsgarður, teknar grafir 329
Gufunesgarður, " " 367
Suðurgötugarður, " " 34
Duftreitur, * " 41
Landakotsgarður, "," 2
Kirkjugarðar Reykjav. 819 bænir
Líkkistuvinnustofa Eyvindar
169 bænir
Bessastaðir 3 athafnir
Garðabær 8 "
Hafnarfj. Lágafell út á land 243 "
-A.BJ.
STOFNUN
FYRIRTÆKIS
ERTU VISS UM RÉTT ÞINN ?
Upplýsinqabæklinqar oq ráðqjöf
á skrifstofu okkar.
Ingólfur Hjartarson • Ásgeir Thoroddsen
William Thomas Möller • Kristján Ólafsson
Lára Hansdóttir • Ingibjörg Bjarnadóttir
iPll Lögfræöiþjónustan hf
Verkfræöingahúsinu, Engjateigi 9
105 Reykjavík, sími (91 )-689940
Tvær útfarar-
stofnanir
Tvær útfararstofnanir eru starf-
andi í höfuðborginni, Kirkjugarðar
Reykjavíkurprófastsdæmis og Lík-
kistuvinnustofa Eyvindar Ámason-
ar.
Kirkjugarðarnir em sjálfseignar-
stofnun, rekin af 19 söfnuðum í
prófastsdæminu sem nær yfir
Reykjavík, Seltjarnarnes og Kópa-
vog. Að sögn stjómarformanns
kirkjugarðanna, Helga Elíassonar,
og rekstrarstjórans, Guðmundar
Guðjónssonar, sem ræddu við blm.
DV í íjarveru forstjóra kirkjugarð-
Simon Konráðsson er að gylla gifsskreytingar sem eru utan á kistunum
hjá Líkkistuverkstæði Eyvindar Árnasonar. DV-myndir Brynjar Gauti
anna, Ásbjörns Björnssonar, eru þeir
þjónustuaðilar sem þjónusta í raun
allt landið ef því er að skipta. Á tré-
smíðaverkstæði kirkjugarðanna eru
smíðaðar líkkistur sem seldar eru á
kostnaðarverði. Eina líkgeymsla
borgarinnar er hjá kirkjugörðunum
í Fossvogi og er verið að bæta þá
aðstöðu verulega. Þrír líkbílar eru á
vegum stofnunarinnar og auk þess
einn líkflutningabíll.
Líkflutningar eru ókeypis fyrir
íbúa prófastsdæmisins, sömuleiðis
grafartaka eða líkbrennsla og afnot
af kapellu og kirkju í Fossvogi. Þeir
sem búsettir eru utan prófasts-
dæmisins verða að greiða lágmarks-
gjald fyrir þessa þjónustu.
Við spurðum þá Helga og Guð-
mund hvemig þeim málum væri
háttað á landsbyggðinni. Sögðu þeir
að í stærri bæjum væri grafartaka
yílrleitt framkvæmd á vegum kirkj-
unnar en að öðra leyti bæru aðstand-
endur sjálfir kostnað af grafartök-
unni. Við spurðum þá um dýmstu
gröfina sem heyrst hefur um er verk-
taki í Hveragerði tók nærri 40
þúsund kr. fyrir aö taka gröf í Kot-
strandarkirkjugarði á dögunum.
Guðmundur sagði að það hefði verið
algjört hneyksh.
Eins og áður sagði eru söfnuðimir,
sem standa að rekstri kirkjugarð-
anna, 19 talsins. Nokkuð er mismun-
andi hvort greiða þarf fyrir afnot af
kirkjunum undir jarðarfarir en aö
sögn er það eins mismunandi og
kirkjurnar em margar. Sumar kirkj-
ur taka ekkert gjald er sóknarbörn
eru jarðsungin.
Dómkirkjan í Reykjavík tekur hins
vegar gjald fyrir jarðarfarir og er það
nú 2.300 kr. Einnig virðist mismun-
andi hvað prestamir taka fyrir
athöfnina en við emm með tvenns
konar verð, sitt frá hvorri útfarar-
stofnuninni. í öðm tilvikinu kostaði
prestsþjónustan 5.100 kr. en í hinu
6.780 kr. Þá er innifalinn akstur fyrir
prestinn. Á Akureyri kostaði prests-
þjónustan 5 þúsund kr. (1.090 kr. ef
aðeins er um kistulagningu að ræða).
Líkkfsturnar
Á verkstæði kirkjugarðanna vinna
sex menn, þar af tveir við málningu
og bólstmn á kistunum.
Sölusvæði verkstæðisins er aht
landið og á sl. ári vom smíðaöar 1200
kistur á verkstæðinu. Þær em smíð-
aðar úr novapanplötum og fum.
Ásmundur Þorkelsson verkstjóri
sagði að árið 1974 hefði laginu á kist-
unum verið breytt og þær gerðar
einfaldari í sniðum og jafnframt
traustari.
Þær kistur, sem framleiddar em á
verkstæðinu, duga að minnsta kosti
í 20 ár, að sögn þeirra verkstæðis-
manna. í Danmörku eru smíðaðar
kistur sem duga ekki nema í 3-5 ár.
Þeir höfðu ennfremur haft spumir
af norskum líkkistum sem duga ekki
nema 3-4 daga í jörðinni.
Það er hins vegar spuming hve
Helgi Elíasson, stjórnarformaður Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæmis,
stendur þarna við fullbúna kistu. Allur umbúnaðurinn er bæði smekklegur
og látlaus.
lengi er nauðsynlegt að líkkistur
endist og væntanlega koma þær aldr-
ei aftur fyrir augu fólks eftir að þær
eru komnar í jörðina. Að sögn starfs-
manna verkstæöisins leggur borgar-
læknir áherslu á að hkkistur séu
gerðar úr efni sem eyðist sem fyrst
í náttúrunni.
Grafarhelgi á íslandi er nú 75 ár
en jörðin varðveitir hér aht miklu
betur en í þeim löndum, sem sunnar
eru á hnettinum, þannig að grafar-
helgi er hér lengri en annars staðar.
Ef flytja á lík út á land verður það
að gerast í blikkfóðruðum kistum
sem síðan em bólstraðar og klæddar
að innan eins og aðrar kistur.
Á báöum verkstæðunum er hægt
að fá kistur frá 60 og upp í 210 cm á
lengd og einnig í mismunandi breidd-
um.
Fullbúin líkkista frá verkstæði
kirkjugarðanna kostar 22.919 kr. með
söluskatti.
Kista frá Líkkistuverkstæði Ey-
vindar Ámasonar er dýrari en hún
kostar fullbúin 27.887,50 kr. með
söluskatti. Á Akureyri kostar sam-
svarandi kista 24.600 kr.
Gullskreyttar kistur
Á Líkkistuverkstæði Eyvindar
Árnasonar vinna tveir menn. Símon
Konráðsson hafði orð fyrir þeim en
er okkur bar að garði var hann aö
vinna við skreytingu á kistu; mála
með gulli gifsskreytingar á hhðum
kistunnar.
Hann sagði að þegar shk guh-
skreyting hefði verið tekin upp hefðu
þeir verið smeykir um að fólki þætti
þetta of mikið skraut á kistunum en
skreytingin hefði líkað mjög vel.
Símon sagði að þeir hefðu rétt undan
eftirspuminni en í fyrra voru smíð-
aðar 192 kistur á verkstæðinu.
Þessar kistur em úr 22ja mm þykk-
um spónaplötum sem fluttar em inn
frá Svíþjóð. Neðan á kistunum er 12
cm þykkur sökkuh. Símon sagði að
þeir lykju við eina og hálfa kistu á
dag ef þeir væm ekki í öðm en oft
hafa þeir verið th aðstoðar við út-
farir. Símon sagði að á undanfórnum
ámm hefði ekki verið dregið úr gæð-
um þeirra klstna sem smíðaðar væra
á verkstæðinu. Ef eitthvað væri þá
væm gæðin meiri nú í dag.
Fyrirtækið stendur á gömlum
merg, var stofnað í kringum alda-
mótin. Sonarsonur Eyvindar Áma-
sonar, stofnandans, Davíð Ósvalds-
son, rekur fyrirtækið í dag. Hann
sagðist vhja halda sig við gamla lagið
hans afa síns í hkkistusmíðinni. Fyr-
irtækið rekrn: einn líkbh sem hefur
það virðulega númer R-14.
-A.BJ.