Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Síða 15
MÁNUDAGUR 9. NÖVEMBER 1987. 15 dv_________________Neytendur Jarðarförin getur kostað á annað hundrað þúsund kr. Eitt af því fáa sem er öruggt í þess- um heimi er að við eigum öll eftir að deyja. Sem betur fer vitum við ekki hvenær það gerist en máltækið segir: ungur má en gamaU skal. DauðsfaU í íjölskyldunni er erfiö reynsla og fólk oft ekki í stakk búið að spyijast fyrir um ýmislegt er varðar útfarir og kostnað við þær þegar það þarfnast þeirra upplýs- inga. Við leituðum því eftir upplýs- ingum um útfararkostnað hjá þeim tveimur útfararstofnunum sem starfa í Reykjavík. Úti á landsbyggð- inni er engin slík þjónusta enn sem komið er sem okkur er kunnugt um. Á Akureyri starfar einn líkkistu- smiður og fékk fréttaritari okkar á Akureyri, Gylfi Kristjánsson, upp- lýsingar um útfararkostnað þar. Ýmsir verðflokkar Segja má að jarðarfarir megi fá í ýmsum veröflokkum. Okkur reUcn- ast til að meðalkostnaður við jarðar- för, með söng og organleik, geti verið rúmlega 50 þúsund kr. en kostnaður- inn getur hæglega farið upp í 80 þúsund kr. ef um er að ræða útfór í Reykjavík með miklum íburði. Á Akureyri kostar venjuleg jarðarför rúmlega 42 þúsund kr. Þá er eftir að reikna með auglýsing- um í útvarpi og a.m.k. í einu dag- blaði, kistuskreytingu og jarðarfar- arkaffi sem oftast er boðið upp á. Allur útfararkostnaðvuinn getur hæglega farið allt upp í 130 þúsund kr. Er þá reiknað með 90 manns í jarðarfararkaffi og það á meðalveit- ingahúsaverði, sjá annars staðar hér á síðunni. Það er því meira en að segja það að jarða sína nánustu með „stæl“. Hins vegar er ekki, strangt til tekið, nauðsynlegt að eiga sjálfur fyrir út- fórinrn. Félagsmálastofnun Reykja- víkurborgar hleypur undir bagga og greiðir reikninginn ef um er að ræða íbúa í Reykjavík. Úti á landi verða viðkomandi sveitarfélög að greiða útfararkostnað þeirra sem ekki eiga fyrir útfórinni sinni. Hins vegar eru engar reglur sem segja til um að slík- ar jarðarfarir skuli vera íburðar- minni en aðrar þótt eflaust sé borgin ekki tilbúin að greiða erfidrykkju á veitingastað eftir útfórina. Heildarkostnaður gæti hugsanlega litið svona út: Meðalkostnaður við útfor, 50.000 Kaffi á veitingastað, 90 manns, 62.000 Auglýsingar í útvarpi 5.100 Auglýsingar í einu dagblaði, 4.350 Kistuskreyting, 6.000 -A.BJ. Beinn kostnaður við jarðarför Á meðfylgjandi töflu er tilgreindur kostnaðurinn við jarðarför en þó án söngsins og orgelleiks. Tónlistin er gífurlega mikið atriði í jarðarför og nú á seinni tímum eru jarðarfarir orðnar eins og merkustu tónleikar því boðið er upp á dásamlega tónlist í einu orði sagt. Er hér átt við Ljóðakórinn sem öll- um kemur saman um að sé frábær- lega góður. Hafa menn haft á orði að þegar Ljóðakórinn syngur Faðirvor- ið sé það einna líkast opinberun. Kostnaðurinn við söng og organ- leik fer nokkuð eftir því hve íburðar- mikill söngurinn er. Organleikur, söngur Ljóðakórs, einleikur á selló (eða einsöngur) og stefgjald getur farið upp í tæplega 20 þúsund. Á Akureyri kostar organleikurinn 2.500 kr. en 3.650 ef leikið er undir einsöng og hver söngmaður í kórrn um fær 850 kr. Geta aðstandendur' ráðið hve marga söngmenn þeir velja. -A.BJ. Kirkjug. Rvk. Likkvst. Eyvindar Akureyri Kista 13.750 17.750 í kistu 2.145 2.810 24.600 Likklæði 770 1.750 Söiuskattur 25% 4.331 5.805 (m/sölusk.) Prestur 5.100 * 6.780 5.000 Umsjónargjald 2.357 1.950 Bill f. prest, organista og söngf. 3.086 Likvagn 2.050 Samtals.: 31.539 38.890 29.600 * Bíll innlfallnn. Jarðarfararkaffið ómissandi Mörgum finnst jarðarfararkaffið ómissandi hluti af jarðarförinni sjálfri. Verður að viðurkennast að það er einkar smekklegt að bjóða þeim sem sækja jarðarförina upp á einhveria hressingu, einkum ef um er að ræða roskna þjóðfélagsþegna sem eru aö kveðja eftir langt líf. Ef um yngra fólk er að ræða, sem jafn- vel hefur farist af slysförum, getur það e.t.v. orðið aðstandendum um megn tilfmningalega að standa fyrir jarðarfararkaffi. En sitt sýnist hverj- um í þessu efni. Margir kjósa að bjóða heim til sín eftir jarðarförina en aðrir hafa ekki tök á því. Nú er algengt að boðið sé upp á veitingar eftir jarðarförina í veitingasölum, þá jafnvel í nágrenni við kirkjuna. Einnig er oft boðið upp á slíkar veitingar í samkomusal kirkjunnar ef hann er fyrir hendi. Aðstandendur sjá þá sjálfir um veitingarnar og er ekki nokkur leið að geta sér til um kostnað vegna þeirra. Hins vegar höfðum við samband við þrjú veitingahús sem bjóða upp á útfararkaffi, þeir vpru: Hótel Loft- leiðir, Hótel Holt og í kvosinni. Á Hótel Loftleiðum er boðið upp á 2 snittur á mann, marsípantertu, riómatertu, fjórar tegundir af þurr- kökum, flatbrauð með hangikjöti og pönnukökur með sykri. Verð 550 kr. á manninn. Á Hótel Holti er boðið upp á þrenns lags kaffiborð: Pönnukökur og epla- tertur, verð 595 kr. á mann. Þá er boðið upp á snittur, eplatertur og súkkulaðitertu og kostar það 725 kr. á mann og loks er kaffiborð sem þeir kalla brúðarkaffi á Holti. Þaö eru allar tegundirnar sem áður eru nefndar og að auki rjómaterta. Slíkt kaffiborð kostar 895 kr. á mann. í kvosinni er boðið upp á hlaðborð, þar sem er að finna rjómatertur , brauðtertur, jólakökur, pönnukök- ur, hvort sem heldur er með rjóma eða sykri, eða þá að aðstandendur geta ráðið hvað þeir vilja bjóða upp á. Verð á mann er 700 kr. Á öllum stöðunum ganga þjónar um beina, borð eru dúkuð og kerta- ljós skreytir sali. Ekki er gott að vita fyrirfram hve margir gestir koma í útförina því að gestum er ekki boðið sérstaklega. Veitingastaðirnir eru undir það bún- ir að taka á móti mismunandi stórum hópum og geta auðveldlega bætt við veitingarnar ef fleiri koma en gert var ráð fyrir. Á Holtinu sögðu þeir okkur að um daginn hefði verið pant- að fyrir 50 manns en gestirnir reyndust 90 talsins. Slíkt skapar ekki vandræði á veitingastað en gæti gert það í heimahúsi. Þannig má sjá að verulegur kostn- aður getur bæst við útfararkostnað- inn með kaffinu. Ef við gerum ráð fyrir 90 manna jarðarför og reiknum með meðaltali af kostnaðinum á áð- urnefndum veitingahúsum er upphæðin komin upp í rúmlega 62 þúsund kr.! HÖRPU- SILKI//X HINN SÍGILDI TÓNN Styrkleiki 30 ára þróunar HÖRPUSILKI, þessi einstaka inni- og útimálning, vakti verðskuldaða athygli fyrst þegar hún kom á markaðinn, fyrir slitþol og óvenju mikla þekjueiginleika. HÖRPUSILKI er þó ekki sama málningin pUiirrviinmg r*wd Mbem* o"**1 kétt i notkun jalnt utMSCm mr» nú og hún varfyrir30 árum. Hún hefur þróast í takt við tímann og kröfuharða HÖRPUSILKI neytendur. - láttu reynsluna ráða. HÖRPUSILKI er akrýlbundin, p vatnsþynnanleg plastmálning með 5% gljástigi, auðveld í notkun og þrifum og litamöguleikarnir nær óteljandi. HARPA lífinu lit. A.BJ. AUKhl. 111,6/StA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.