Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1987.
41
pv Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
Fréttir
40% allra vatnsveitna
mengaöar af geriagróðn
■ Bílar til sölu
Lada station. Til sölu Lada station
1500 ’87, aðeins bein sala. Uppl. í síma
52926.
M. Benz 280 SE ’80 og M. Benz 280
SE ’73 til sölu. Uppl. í síma 75416 eða
686876.
MMC Galant 79 til sölu, ekinn 80 þús.
km, nýsprautaður, góður bíll. Uppl. í
síma 92-68680 eftir kl. 22.
Nissan Cherry, silfurgrár, ’83 til sölu,
sjálfskiptur, ekinn 73 þús. km. Góður
bíll. Verð 250 þús. Uppl. í síma 621318.
Opel Rekord dísil '82 til sölu, sjálfskipt-
ur. Uppl. í síma 96-62408 á kvöldin og
96-62194 á daginn.
Subaru 1600 4x4 árg. ’78 til sölu, ný-
legt lakk, gott verð. Uppl. í síma 78455
e. kl. 18.
Takið eftir. Til sölu Willys árg. ’66 í
pörtum, mjög gott boddí. Uppl. í síma
651707 eftir kl. 19 næstu daga.
VW bjalla '68 til sölu, þarfnast smá-
lagfæringar, ekkert ryðguð, selst
ódýrt. Uppl. í síma 78878 e.kl. 19.
Volvo station 1974, með dráttarkrók,
til sölu, verð kr. 90.000. Uppl. í síma
656035 eftir kl. 19 næstu kvöld.
Datsun Cherry árg. 79 til sölu. Uppl.
í síma 76582.
Lada Sport ’80 til sölu. Uppl. í síma
93-51396.
Nissan Laurel ’83 til sölu, dísil, 6 cyl.,
ástand gott. Uppl. í síma 98-1483. Óli.
Subaru 1600 árg. 79 til sölu, ekinn
77.000 km. Uppl. í síma 39178.
Toyota Celica 1600 73 til sölu, selst
ódýrt. Uppl. í síma 54429.
Volvo 73 til sölu, mjög góður bíll á
kr. 60 þús. Uppl. í síma 43470.
Volvo 244 árg. 79 til sölu, sumar- og
vetrardekk. Uppl. í síma 73066.
■ Húsnæði í boði
Ný 2Ja herb. íbúð við Hvammabraut í
Hafnarf. til leigu frá 1. des. Fylgihlut-
ir: ísskápur, þvottavél, aðgangur að
þurrkara, Stöð 2 tengd í stigagangi,
inntengdur sími. Hvaða tryggingu
getur þú sett fyrir að íbúð skilist í
góðu ásigkomulagi? Hvað getur þú
greitt fyrirfram? Meðmæli. Tilboð
sendist DV, merkt „Tryggt 100%“.
Nýstandsett 103 ferm 3ja herb. ibúð til
leigu. Ibúðin verður leigð í eitt eða
jafnvel til tveggja ára. 10-12 mánaða
fyrirframgreiðsla. Greiðslufyrirkomu-
lag samkomulagsatriði. Tilboð sendist
DV, merkt „íbúð 103“.
Miðbær. Tvö samliggjandi herb. með
aðgangi að eldhúsi, baði og þvottavél.
Leiga 17.000, innifalið rafmagn og hiti,
einnig einstaklingsherb. Tilboð
sendist DV, merkt „Fyrirframgr.“.
Löggiltir húsaleigusamningar fást á
smáauglýsingadeild DV, Þverholti 11,
síminn er 27022.
2ja herb. ibúð til leigu í vesturbænum,
parket á gólfum, snotur íbúð. Tilboð
■ sendist DV, merkt „X-6126“.
4ra-5 herb. ibúð til leigu í Breiðholti.
Tilboð sendist DV, merkt „30“, fyrir
fimmtudagskvöld.
Góð 3ja herb. íbúð með bílskýli til leigu
í Seljahverfi. Laus 1. des. Tilboð
sendist DV, merkt „D-12“.
Lítið herb. með aðgangi að snyrtingu
til leigu. Tilboð sendist DV, merkt
„D-5“.
M Húsnæði óskast
Einhleypur karlmaður á miðjum aldri
óskar eftir að taka á leigu herb. með
aðgangi að eldhúsi eða einstaklings-
íbúð, reglusemi og góðri umgengni
heitið, meðmæli frá fyrri leigjanda
fyrir hendi. Uppl. í síma 17127.
Hekla hf. óskar eftir íbúð fyrir starfs-
mann sinn, 3ja herb. eða stærri,
fjölskyldustærð: hjón með 18 ára
skólapilt, fyrirframgreiðsla eftir
nánara samkomulagi. Uppl. í
vs. 695500, Gunnar, og heima 16921.
Einstæð móðir utan af landi, með eitt
barn, óskar eftir 2ja herbergja íbúð í
Reykjavík eða Kópavogi. Er reglu-
söm, góðri umgengni heitið, öruggar
mánaðargreiðslur. Sími 98-1389.
Húseigendur, athugið. Höfum leigjend-
ur að íbúðum, sérstaklega 2ja-3ja
herb., einnig að öðru húsnæði. Opið
kl. 9-12.30. Húsnæðismiðlun stúdenta
HÍ, sími 29619.
Sjómaður sem litið er heima óskar eft-
ir íbúð strax. Uppl. í síma 52646.
28 ára gamall maður óskar eftir að
taka á leigu einstaklings- eða 2 herb.
íbúð í 1 eða 2 ár. Uppl. í síma 84089
e.kl. 20.
2ja-3ja herb. ibúð óskast á leigu sem
fyrst, skilvísum greiðslum heitið.
Uppl. gefur Öm í síma 687022 milli
kl. 8 og 16.
Bílskúr óskast fyrir geymslu á bil, verð-
hugmynd 3-5000 kr. á mánuði (fer eftir
stærð). Hafið samband við auglþj. DV i
síma 27022. H-6130.
Einstæð miðaldra kona í góðri stöðu
óskar eftir einstaklings- eða.lítilli 2ja
herb. íbúð. Uppl. í síma 21183 eftir kl.
16.15.
Hjón með 2 litil börn óska eftir íbúð til
leigu strax. Eru reglusöm, ömggar
mánaðargreiðslur, meðmæli ef óskað
er. Uppl. í síma 39429 e. kl. 20.
Hljómsveitin Greifarnir óskar eftir æf-
ingahúsnæði frá og með 1. des. Góðri
umgengni og reglusemi heitið. Vin-
samlegast hringið í s. 79692 e.kl. 19.
Leiguibúðaskipti. Óska eftir leigu-
íbúðaskiptum á 3-4 herb. íbúð í
Reykjavík fyrir sams konar íbúð á
Akranesi. Uppl. í síma 93-12986.
Par óskar eftir einstaklings- eða 2ja
herb. íbúð, erum reglusöm, öruggar
mánaðargreiðslur. Vinsamlegast
hringið í síma 77158 e.kl. 20.
Tvær 24 ára stúlkur óska eftir 3ja-4ra
herb. íbúð til leigu á höfuðborgarsv.
í lengri tíma. Góðri umgengni og skil-
vísi er heitið. S. 32451. Guðrún.
Ung hjón með eitt barn óska eftir 2-3
herb. íbúð í Hafnarfirði frá áramótum.
Vinasmalegast hringið í síma 651665
e.kl. 18.
Agætu húseigendur. Unga konu vant-
ar sárlega litla íbúð eða herb. í
Reykjavík, helst í miðbænum, einhver
fyrirframgr. Hringið í síma 92-37794.
Óska eftir einstaklings- eða 2ja herb.
íbúð til leigu, reglusemi og góðri um-
gengni heitið. Nánari uppl. í síma
75249.
Löggiltir húsaleigusamningar fást á
smáauglýsingadeild DV, Þverholti 11,
síminn er 27022.
S.O.S. Óska eftir einstaklingsíbúð eða
2ja herb., skilvísar greiðslur. Nánari
uppl. í síma 71312 e.kl. 19. Vala.
Fjölskyldu utan af landi vantar íbúð í
Reykjavík frá og með áramótum, helst
3-4 herb. Uppl. í síma 93-12986.
Húsnæðislaus 4 manna fjölsk. óskar
eftir íbúð, 1. flokks umgengni heitið.
Uppl. í síma 673703.
Ungt reglusamt par utan af landi vant-
ar húsnæði, helst til lengri tíma. Uppl.
í síma 18076 milli kl. 9 og 17.
Vantar góða 3ja herb. íbúð í Reykjavík.
Erum tvö í heimili. Fyrirframgreiðsla.
Uppl. í síma 76704 eftir kl. 16.
3ja herb. íbúð óskast til leigu. Uppl. í
síma 617688 í dag næstu daga.
M Atvinnuhúsnæði
Gott húsnæði á 2. hæð í Múlahverfi til
leigu, alls 325 ferm, sem unnt er að
tvískipta. Góð bílastæði. Tilboð,
merkt „Múlahverfi", sendist smáaug-
lýsingadeild DV fyrir kl. 18 nk.
fimmtudag.
Nýstandsett húsnæði á besta stað í
miðbænum til leigu, alls 320 m2, leig-
ist í einu lagi eða smærri einingum,
hentar vel fyrir skrifstofu eða aðra
skylda starfsemi. Uppl. á skrifstofu-
tíma í síma 622780.
Til leigu 3 herbergi á 1. hæð vlð aðal-
götu i miðborginni fyrir skrifstofu eða
léttan Iðnað, um 65 ferm. Hafið sam-
band við auglþj. DV i sima 27022.
H-6135.
Atvinnuhúsnæði til leigu, í einu til
"■ tvennu lagi, frá 60 ferm upp í 140 ferm.
Lofthæð 4 m, stórir auglýsinga-
gluggar. Uppl. í síma 15888.
Til leigu verslunarhúsnæði í Laugar-
neshverfi, stærð ca 30 m2, góð bíla-
stæði, laust strax. Uppl. í síma 36125
seinni part dags.
Til leigu 250 m1 iðnaðarhúsn. á götu-
hæð við Dugguvog, góðar innkeyrslu-
dyr, lofthæð 3,75 m, laust strax. Uppl.
í síma 79822.
Óskum eftir húsnæði eða bílskúr, 40
m2 eða stærra, undir geymslu og litla
smíðavinnu. Uppl. í síma 32846, Þór,
og 18205, Gunnar.
Skrifstofuherb. Til leigu á góðum stað
í Hafnarfirði 30 ferm skrifstofuherb.,
laust nú þegar. Uppl. í síma 652200.
■ Atviima í boöi
Blikksmiðja i Reykjavík óskar eftir að
ráða meistara í faginu til starfa sem
fyrst. Starfið felst í að annast faglegan
rekstur fyrirtækisins. Umækjendur
sendi umsóknir sínar á augld. blaðsins
fyrir 16. nóv., merkt „Meistari". Farið
verður með allar umsóknir sem trún-
aðarmál og öllum umsóknum verður
svarað.
Leikskólinn Arnarborg óskar að ráða
fóstrur eða fólk með aðra uppeldis-
menntun eða reynslu af uppeldisstörf-
um. Um er að ræða hálfa stöðu á deild
3-4 ára bama og eina stöðu við stuðn-
ing fyrir böm með sérþarfir. Uppl.
veitir Guðný í síma 73090.
Smáauglýsingaþjónusta DV. Þú getur
látið okkur sjá um að svara fyrir þig
símanum. Við tökum við upplýsingun-
um og þú getur síðan farið yfir þær í
ró og næði og þetta er ókeypis þjón-
usta. Síminn er 27022.
Bakari. Óskum eftir að ráða vanan
starfskraft í afgreiðslu, verður að geta
byrjað strax, góð laun í boði. Hafið
samband við DV í síma 27022. H-6138.
Hárgreiösla. Starfskraft vantar á hár-
greiðslustofu, svein í hlutastarf eða
nema sem lokið hefur skóla. Uppl. í
síma 673722 fyrir þriðjudag.
Starfskraftur óskast til ýmissa starfa í
kjörbúð, einnig starfskraftur með bíl-
próf. Uppl. Kjöthöllin, Háaleitisbraut
58-60, sími 38844.
Sölumenn ath.l Duglega sölumenn
vantar um allt land, auðseljanleg
vara, góðir tekjumöguleikar. Hafið
samband við DV í síma 27022. H-6122.
Veitingastað í borginni vantar starfs-
fólk í sal við afgreiðslu. Laun sam-
kvæmt samkomulagi. Hafið samband
við auglþj. DV í síma 27022. H-6125.
Óskum aö ráöa starfsstúlku í verslun
okkar, hálfan daginn (eftirmiðdag).
Árbæjarkjör, Rofabæ 9, sími 681270,
kvöldsími 41303.
Óskum eftir laghentum starfsmönnum
til verksmiðjustarfa. S. Helgason hf.,
steinsmiðja, Skemmuvegi 48,
Kópavogi, sími 76677.
Lagermaður. Óskum eftir að ráða lag-
henta eldri mannneskju sem getur
unnið við framleiðslu á lager (véla-
vinna). Isblikk hf„ sími 54244, Jón
Isdal.
Nýja Blikksmiðjan hf. óskar eftir að
ráða lagtækan mann á verkstæði.
Uppl. hjá verkstjóra, sími 681104.
Starfsfólk óskast til framleiðslustarfa,
hálfan eða allan daginn. Dósagerðin
hf„ Kópavogi, sími 43011.
Starfskraftur óskast til starfa í eldhúsi
við matargerð (heitan mat). Vinnutími
frá kl. 8-12.30 ca. Uppl. í síma 17261.
Óska eftir að ráða trésmiði og verka-
menn strax. Uppl. í síma 671803 eftir
kl. 19.
Óskum eftir að ráða bílstjóra, mikil
vinna, frítt fæði, húsnæði í boði ef
óskað er. Uppl. í síma 40733.
Heimilishúshjálp. Áreiðanleg og reglu-
söm manneskja óskast á heimili á
Seltjamarnesi 1-2 í viku. Hafið sam-
band við DV í síma 27022. H-6133.
Starfskraftur óskast í söluturn í Kópa-
vogi. Uppl. í síma 34186 eftir kl. 17.
Starfskraftur óskast í léttan iðnað, á
aldrinum 16-26 ára. Uppl. í síma 78710.
M Atvinna óskast
34 ára einhleypan mann vantar góða
vinnu hvar sem er á landinu, hefur
unnið við vöru- og rútubílaakstur,
vinnuvélar, viðgerðir o.fl. Uppl. í síma
9643561 og 9643506.
23 ára gamall maður óskar eftir vel
launuðu innheimtu- eða sölumanns-
starfi, er vanur. Hafið samband við
auglþj. DV í síma 27022. H-6101.
Rafverktakar! Rafvirki (meistari) með
margra ára starfsreynslu óskar eftir
kvöld- og/eða helgarvinnu. Hafið
samb. við auglþj. DV í s. 27022. H-6139.
Óska eftir vel launuðu framtíðarstarfi,
er vön afgreiðslu, allt kemur til greina
nema vaktavinna. Get byrjað strax.
Hafið samb. við DV í s. 27022. H-6118.
Bakari. Bakari óskar eftir góðu staríi
sem fyrst. Hafið samband við auglþj.
DV í síma 27022. H-6124.
24 ára gömul stúlka óskar eftir vel
launaðri vinnu, allt kemur til greina.
Uppl. í síma 42538 e.kl. 18.
Get tekið að mér heimilishjálp einu
sinni í viku. Uppl. í síma 621967. Hildi-
gunnur.
„Samkvæmt þeim upplýsingum
sem ég hef eru 40% allra vatnsveitna
á íslandi í svipuðu ástandi og vatns-
veitan á Bfidudal, það er mengaðar
af gerlagróöri," sagði Jónas Bjama-
son, verkfræðingur hjá Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins.
„Upplýsingamar hef ég frá gerla-
fræðingum og samkvæmt þeim er
ástandið víða á landinu í ólagi. Þess-
ar upplýsingar eru að vísu ekki alveg
nýjar en mér er ekki kunnugt um
að miklar breytingar hafi orðið.“
DV bar orð Jónasar undir Guðlaug
Hannesson, forstöðumann Hollustu-'
vemdar ríkisins. „Ég get hvorki
játað eða neitað þessari fullyrðingu,
það er þó vitað að það em nokkur
slæm vatnsból, sérstaklega þar sem
vatnsveitur þurfa aö notast við yfir-
borðsvatn. Það er hins vegar erfitt
að staðhæfa nokkuö um þetta mál
þar sem það getur verið mjög árstíða-
bundið hversu gott eða vont vatnið
er. Þegar vorleysingar era getur það
verið slæmt en svo betra á öðmm
árstímum," sagði Guðlaugur
- DV hefur heimfidir fyrir því að
þær vatnsveitur sem hér um ræðir
séu allar á Austíjörðum og Vestfjörð-
um. Þú segir að það séu nokkur
„Það vantar mikið á aö það sé í lagi
með loftræstinguna hérna,“ sögðu
starfsmenn Kolaportsins, þeir
Christer Sörensen og Sigurjón Jóns-
son.
„Við höfum ítrekað farið fram á
úrbætur og öflugri loftræstingu en
því hefur ekki verið sinnt, það hefur
alltaf verið hummað fram af sér að
laga loftræstinguna hér.“
Þaö var ekki ofsögum sagt af sót-
inu; annar starfsmaðurinn sýndi
blaðamanni og ljósmyndara DV inn
á kafíistofu þeirra félaga, veggir voru
þar dökkir af sóti og i kringum viftur
á kaffistofunni var allt svart. Það
sama má segja um glugga í skýli
starfsmanna; þegar strokið var yfir
þá varð alit svart.
Vinnueftirlit ríkisins lét gera mæl-
ingar á koldíoxíðmengun í Kolaport-
inu 1984, í niðurstöðum skýrslunnar
segir: „Af niðurstöðum mælinganna
er ljóst að starfsmenn verða fyrir
verulegri kolmónoxíðmengun. Sam-
Geislun vatns til að drepa í þvi
örverur er ekki það sama og geislun
matvæla til að auka geymsluþol
þeirra. Að sögn Arnars Björnssonar,
forstjóra Hollustuvemdar ríkisins,
eru notaðir venjulegir flúrlampar
þegar vatn er geislað til að eyða ör-
verum, eins og á Akranesi, sem DV
hefur sagt frá.
Örn sagði að tfi þess að hægt væri
að geisla vatn á þennan hátt þyrfti
það fyrst að fara í gegnum síur sem
taka úr því allar agnir. Síðan fer
vatnið í gegnum kör og þar skín ljós
á flúrlömpum og geislar þeirra drepa
örvemr sem hugsanlega eru í vatn-
inu. Ef vatnið er ekki síaö endur-
kasta agnir í vatninu geislunum og
vatnsból sem séu öðrum verri. Hvaöa
vatnsból em þetta?
„Það get ég ekki sagt þér. Það er
trúnaðarmál af okkar hálfu hvaöa
vatnsból hér er um að ræða. Viö
sendum niðurstöðumar til þeirra
sveitar- og bæjarfélaga sem biðja
okkur að rannsaka vatnssýni frá sér,
það er síðan þeirra ákvörðun hvort
þau gefa upplýsingar um ástand
vatnsins á viðkomandi stöðum."
- Gefur Hollustuvemd ríkisins
ekki bæjar- og sveitarfélögum fyrir-
mæh um að koma vatnsbólum sínunT'1
í lag reynist þau ekki viðunandi?
„Nei, það gerum við ekki. Það er
mál hvers sveitarfélags að sjá um að
vatnsbólin séu í lagi.“
DV hafði samband við Neytenda-
samtökin vegna þessa máls. „Það er
skýlaus krafa almennings að vita um
ástand neysluvatns á hveijum staö,
svo fólk geti bmgðist við á réttan
hátt til dæmis með því að sjóða
drykkjarvatn sé það mengað af gerla-
gróðri. Þaö er hinn almenni skatt-
borgari sem greiðir fyrir þessar
rannsóknir og því ekki upplýsingar
sem á að leyna," sagði Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna. -J.Mar
fara kolmónoxíömengun veröa þeir
fyrir mengun af öðrum efnum í út-
blæstri bifreiðanna." Einnig kemur
fram í skýrslunni að kolmónoxíð
minnkar getu blóðsins til að flytja
súrefni og að einstaklingar, sem
haldnir eru vissum sjúkdómum, svo
sem hjartasjúkdómum, æöakölkun,
öndunarerfiðleikum og blóðskorti,
eru sérstaklega viökvæmir fyrir
kolmónoxíðáhrifum. En þess má geta^
að báðir starfsmennimir eru hjarta-
sjúklingar.
Víðir Sigurösson hjá Vinnueftirliti
ríkisins tjáði DV að ekki hefðu verið
gerðar neinar mæhngar nýlega á
mengun í Kolaportinu. Ennfremur
sagði hann að eftir því sem hann vissi
best ætti að fara hefjast handa við
þrif á aðstöðu starfsmanna og eins
ætti að gera úrbætur á loftræsting-
unni svo tryggt væri að hreint blési
inn í skýh starfsmanna og á kaffi-
stofu þeirra.
örveramar drepast ekki.
Geislun matvæla til að auka
geymsluþol þeirra er allt annað mál.
Þar era notaðir kobaltgeislar sem
geta verið hættulegir. Þaö er mjög
umdeilt meðal sérfræðinga hvort
leyfa eigi geislun matvæla til að auka
geymsluþol þeirra og í flestum lönd-
um er innflutningur á geisluðunv „
matvælum bannaður. Víða er geisl-
un matvæla bönnuð en í nokkrum
löndum er hún leyfð þótt innflutn-
ingur sUkra matvæla sé bannaður tfi
þeirra landa.
Örn sagði að hér á landi væru tæki
til -að geisla matvæli ekki til. Slík
tæki væru ipjög dýr og notkun þeirra
sömuleiðis. -S.dó^,
Christer Sörensen og Sigurjón Jónsson i Kolaportinu.
Mengun í Kolaportinu
-J.Mar
Venjulegir flúriampar
notaðir við vatnsgeislun
- geislun matvæla ekki á dagskrá hér á landi