Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 9. NÖVEMBER 1987. •35 Fréttir Steingrímur ræðir við aðaHramkvæmdastjóra Efnahagsbandalagsins í desember: Eigum vonlausa framtíð nema við getum hamið verðbólguna „Númer eitt, tvö, þrú og fjögur er verðbólgan og efnahagslífið. Ef við ætlum að vera sullandi hér áfr§m í verðbólgu sem er 25 af hundraði, ég tala nú ekki um 30 af hundraði eða hvað, þá er þetta von- laust mál, þá lendum við á köldum klaka,“ segir Steingrímur Her- mannsson utanríkisráðherra. Einar Benediktsson sendiherra undirbýr nú fund hans meö de Clercq aðalframkvæmdastjóra Efnahagsbandalags Evrópu. Þessi fundur er á dagskrá í des- ember og þar mun utanríkisráð- herra kynna viðhorf íslendinga til samskipta við bandalagið. Ráð- herrann telur útilokað að við göngum í það skilyrðislaust og að stefna beri að nýjum samningi sem tryggi okkur yfirráð yfir fiskimið- um okkar og orkulindum. Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra lætur nú kanna hvort áhugi sé á því inn- an EBE að nýta íslenska orku. „En það talar enginn við þjóð þar sem verðlagið er alltaf á fleygiferð og öryggisleysiö algert. Þetta er langstærsta málið sem við verðum að glíma við til þess að standast í þeim heimi sem er að mótast í kringum okkur á næstu árum. Við verðum að ná festu í efnahagslífið og verðbólgu niður á svipað stig og í nágrannalöndum okkar,“ segir Steingrímur. Hann leggur áherslu á að við veröum þegar í stað að búa okkur undir nánari samskipti við EBE, meðal annars með því að aðlaga alla staðla því sem þar tíðkast og ýmsum öðrum aðgerðum sem eru nauðsynlegar til þess að mæta alls konar kröfum sem bandalagið mun gera. Þetta er í samræmi við þá þróun sem er að gerjast innan EBE en þjóðirnar í bandalaginu eru að samræma öll sín efnahags- og við- skiptamál. Þróun þessara mála í heiminum gerir þaö óhjákvæmilegt að íslend- ingar taki þau nýjum tökum og skipuleggi efnahagslíf og fram- leiðslu þannig að við stöndumst nýja viðskiptahætti og samkeppni á allt öðrum grunni en við eigum að venjast. -HERB Ingi Sigfússon smiður og Bæring Sæmundsson byggingameistari fyrir utan húsið sem verkamannaíbúðirnar tvær eru í. DV-mynd Ægir Þórðarson Hellissandur: Verkamanna- íbúðir afhentar Ægir Þórðaison, DV, Hellissandi: ' Seinni tvær íbúðirnar í byggingum Verkamannabústaða á Hellissandi voru afhentar um mánaðamótin síð- ustu en fyrri tvær íbúðirnar voru afhentar í vor. Þessar íbúðir eru byggðar eftir teikningum frá Húsnæðisstofnun ríkisins, tvær íbúðir í hvoru parhúsi. Framkvæmdir við byggingu þess- ara húsa hófust í ágúst 1986 og tók því ekki nema rétt um ár að fullklára þessar fjórar íbúðir. Seinni íbúðirnar tvær voru til sýnis fyrir almenning fostudaginn 30. október og kom fjöldi íbúa Neshrepps til að skoða þær. Gunnar' Már Kristófersson, sveitar- stjóri Neshrepps utan Ennis, sagði að svo virtist sem fólk væri hrifið af þessum íbúðum, bæði af innrétting- um og einnig af öllum frágangi verktaka. íbúöirnar eru þriggja og fjögurra herbergja, þær stærri rúmlega hundrað fermetra stórar og þær minni um áttatíu fermetrar. Húsin voru byggð af Bæring Sæ- mundssyni, byggingameistara á Rifi, og var öll vinna við þau unnin af heimamönnum. Akureyri: Ibúðaverð 70-80% af verðinu í Reykjavík Ibúðaverð á Akureyri hefur hækk- að talsvert það sem af er árinu og er hækkunin svipuð og verið hefur á höfuðborgarsvæðinu. Sævar Jónatansson, fasteignasali á Akureyri, sagöi í samtali við DV að íbúðaverð á Akureyri í dag næmi á milli 70 og 80% af verði íbúða í Reykjavík þegar á heildina er litið. Framan af árinu hefði verðið hækk- að meira á Akureyri en í Reykjavík og þá hefði munurinn á fasteignum á Akureyri og í Reykjavík verið minni eða nærri 15%, en Reykjavík hefði sigiö fram úr aftur nú upp á síðkastið. Sævar sagði að 3 herbergja íbúðir heföu hækkaö mest á Akureyri und- anfarin misseri. talsvert meira en Ibúðir hafa hækkað verulega í verði aðrar íbúðir. Hann sagði að gamalt fólk, sem væri að minnka við sig í húsnæði, færi gjarnan í þriggja her- bergja íbúðir og einnig færi það talsvert í vöxt að ungt fólk, sem er að byggja í fyrsta skipti, keypti þriggja herbergja íbúðir í staö tveggja herbergja áður. „Fyrri hluta ársins og fram á haust stoppuðu íbúðir iitið sem ekkert á á Akureyri siðustu misseri. sölunum hér,“ sagði Sævar. „Á þeim tíma nálguðumst við verðið í Reykja- vík talsvert en upp á síðkastið hefur verið mun meiri þensla í höfuðborg- inni og munurinn hefur aukist aftur. Okkur gengur illa að ná í skottið á Reykvíkingunum í þessum efnum. það virðast vera meiri peningar í umferð þar,“ sagöi Sævar Jónatans- son. Sértilboð Hægindastóll með leðri, á snúningsfæti, stillanlegt bak. Tilboð: Stóll með skemli stgr. 24.415, § Gunnar Már Kristófersson, sveitarstjóri Neshrepps utan Ennis. DV-mynd Ægir Þóröarson SUDURLANDSBRAUT 22 S:36011

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.