Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Side 5
MÁNUDAGUR 9. NOVEMBER 1987.
5
Fréttir
Stofnfundur Ágætis:
16 milljónir
söfnuðust
„Stofnun þessa fyrirtækis hefur
verið í undirbúningi síðan í sumar
en nú á laugardaginn var gengið
formlega frá stofnun þess,“ sagði
Magnús Sigurðsson, bóndi í Birt-
ingaholti, en stofnfundur nýs
grænmetisfélags, Ágætis, fór fram á
Selfossi um helgina. Stofnfélagar
voru 102 og söfnuðust hlutafjárloforð
fyrir 16 milljónum króna. Að sögn
Magnúsar var þetta fyllilega það sem
menn áttu von í að fá en hann kvað
vel hugsanlegt að auka þetta fé enn
frekar. Það yrði þó að bíða ákvörðun-
ar stjórnar.
Þetta nýja fyrirtæki verður byggt
á grunni sölusamtaka íslenskra
grænmetisframleiðenda sem hafa
starfað undir nafni Ágætis. Magnús
sagði að það sem ræki bændur nú til
að stofna þetta fyrirtæki væri að það
heföi vantað fjármagn frá framleið-
endum inn í starfsemina og þurft
hefði að koma eignarrétti á ákveðn-
ara form.
Fyrirtækið er sjálfstætt fyrirtæki,
óháð sölusamtökunum en mun yfir-
taka rekstur þeirra. Út af því hafa
spunnist deilur varðandi rétt hins
nýja fyrirtækis til þeirra eigna sem
sölusamtökin hafa notfært sér frá
dögum Grænmetisverslunarinnar.
„Það var gengið frá því fyrir jólin
1986 að sölusamtökin myndu kaupa
þessar eignir og hið nýja félag mun
yfirtaka þær. Það eru uppi hugmynd-
ir um aukin umsvif í dreiflngu og
þannig nýta húsin betur,“ sagði
Magnús. Ekki er vitað nákvæmlega
hvenær yfirtakan fer fram - hugsan-
lega þó um áramótin.
-SMJ
Glæfralegur akstur:
Ölvaður á
ofsahraða
Lögreglan stöðvaði bíl á 123 kíló-
metra hraða á Skúlagötunni aðfara-
nótt sunnudagsins. Ökumaðurinn er
grunaður um ölvun við akstur.
Alls voru níu ökumenn teknir um
helgina í Reykjavík grunaðir um ölv-
unarakstur. Ellefu ökumenn misstu
ökuskírteinið á staðnum vegna hrað-
aksturs. -ATA
„PARKET“
INNISKÓR
Fótóhúsið, Bankastræti, sími 91-21556.
Opið kl. 10-18, laugard. 10-14.
S VISA S EUROCARD
Þessir mjúku, vel fóðruðu skór úr villi-rúskinni munu sjá fyrir því!
I þessum skóm máttu vera viss um að þér hitni fljótt ó fótunum. Þeir eru fóðraðir með mjúkum vefpels (100% polyakryl). Villileðrið gerir þá sérlega
létta, svo létta að þú finnur varla fyrir þeim. Þú finnur bara hinn notalega hita sem streymir fró fótunum um allan líkamann. Ef þú ert ein(n) af þeim
sem verður auðveldlega fótkalt munu þessir skór gera þig alsæla(n).
Stærðir: 35 og 36-37 og 38-39 og 40—41 og 42-43 og 44
HEILDSÖLUBIRGÐIR PRÍMA, HEILDVERSLUN, SÍMI 651414.
Pöntunarsímar 91-651414 og 623535
Símapantanir alla daga vikunnar kl. 9.00-22.00
Póstverslunin Príma, Box 63, 222 Hafnarfirði
Aldrei aftur kalt á fótunum!
✓
LENGI BÝR AÐ FYRSTU GERÐ.
Dagvist barna í Reykjavík rekur 61 dagvistarheimili
víðs vegar um borgina fyrir um 4000 börn á aldrinum
6 mán — 10 ára.
Megin viðfangsefni Dagvista er að búa hinum ungu
Reykvíkingum þroskavænleg uppeldisskilyrði í öruggu
og ástríku umhverfi í leik og starfi með jafnokum.
Við erum nú þegar um 600 manns sem önnumst þessa
yngstu borgara, en til að ná ofangreindum markmiðum
þurfum við liðstyrk áhugasamra einstaklinga.
Við óskum eftir: Fóstrum. þroskaþjálfum, uppeldis
fræðingum (BA —próf eða sambærilegt), einstaklingum
sem hafa öðlast reynslu við uppeldi eigin barna,
einstaklingum sem vilja öðlast reynslu í dagvistaruppeldi
fyrir væntanlegt nám.
Allar nánari upplýsingar um störfin gefur Fanny Jónsdóttir, deildarstjcri í síma 2 72 77 alla virka daga
frá kl. 9.00 — 16.00 og í síma 2 14 96 laugardag og sunnudag frá kl. 11.00 — 15.00