Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Síða 9
MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1987.
9
Utlönd
Tuggið og spýtt
í Rangoon
Rauöar slettur eru út um allar göt-
ur í Rangoon í Burma þannig aö
ætla mætti að særðir og blæðandi
hermenn heíðu átt þar leið um. Svo
er ekki en þaf hafa hins vegar farið
um þeir sem haldnir eru þeim vana
að tyggja blöö betelplöntunnar og líta
á gangstéttir og götur borgarinnar
sem eigin hrákadalla.
Að tyggja betelblöð, blönduð lyfja-
sulh og sætuefnum, er eitt af því fáa
sem Burmabúar veita sér. Þessi sið-
ur, sem er vinsæll meöal milljóna
manna í Suðaustur-Asíu, hefur hald-
ist svo til óbreyttur í aldaraðir í
Burma og hafa bæði fátæklingar og
kóngar leyft sér þennan munað.
Gimsteinum prýddar skálar undir
betelblöð frá átjándu öld eru til sýnis
í þjóðminjasafninu í Burma og bera
þær vitni um að þeir sem voru efnum
búnir hafi ánetjast þessari nautn.
Viðhafnarminni ílát
Úti á strætum Rangoon, þar sem
almenningur hefst við í frítíma sín-
um, eru ílátin undir betelblöðin
viðhafnarminni. Hinn vandlátasti
kaupandi getur þó fengið allt sem
hann þarfnast á trébökkum sem
komið er fyrir með jöfnu millibili á
gangstéttum í miðborginni. Þar eru
einnig seldir grænir sterkir smá-
vindlar sem margir reykja.
Á bakkanum kennir margra grasa.
íhalds i-
menn
ihugak slóða yn- ■
skipti
Haulcur k Haukssom. DV, Kaupmh.:
A fundi í þingflokki Ihalds-
flokksins fyrir stuttu lét Poul
Schluter, forsætisráðherra og
formaöur flokksins, þau orð falla
að ekki yrði litið hjá þeirri stað-
reynd aö nokkrir framraámenn
flokksins væru að komast á efri
ár.
Að gegna valdastöðum væri
slítandi. Það færi ekki fram hjá
neinum meðal almennings og því
væru viðhorfm til þeirra gömlu
títt samkvæmt því. Þess vegna
yröi aö fá yngri krafta til leiks
og þaö yrði að gerast markvisst.
Samkvæmt Extrabladet, er
vitnar í heimildir innan íhalds-
flokksins, mun Schluter, sem
veröur sextugur í apríl 1989, segja
af sér flokksformennsku um leið
og núverandi stjórn fer frá völd-
um. „Hann viil ekki enda stjóm-
málaferil sinn sem eitthvert
rekald“ er haft eflir ónafngreind-
um samstarfsmanni hans.
Schlúter hefur einnig látið
skína í þessar skoðanir sínar
gagnvart öðrum flokkum og þá
sagt meðal annars að það væri
ekki svo skemmtilegt lengur aö
vera forsætisráöherra.
Sem mögulegur arftaki er
nefhdur Palle Simonsen fjár-
málaráðherra sem sagður er
hans hægri hönd í einu og öllu.
Henning Dyremose atvinnumála-
ráðherra, sem ekki er Kjörinn
þingmaður, er einnig nefndur.
Hann kemur frá viðskiptalífinu
og þykir hafa staðiö sig vonum
framar.
Þar má sjá hrúgu af dökkgrænum
betelblöðum, krukkur með hvítu
kalki og rauðbrúnu lími, kókóshnet-
ur, litaöan sykur, ilmandi tóbak,
brúnt duft með sætum ilmi og hnetu-
börk. Þessu er öllu dreift á betelblað
sem síðan er vafið saman og sett í
munninn. Kosta herlegheitin aðeins
fáeinar krónur. Hægt er að tyggja
hvert blað í allt að hálftíma.
Vegna bragðsins
Burmabúar segja að það sé aöal-
lega vegna bragðsins sem þeir tyggja
blöðin. Þeir vara þó við því að ef of
mikið tóbak er sett á blaðið geti menn
orðið ringlaðir.
Það er einnig hægt að verða ringl-
aður af grænu smávindlunum sem
bæði lágt og hátt settir reykja. Innan
í græn tóbakslauf er vafið einhvers
konar blöndu úr tóbaksjurtinni.
Ódýrari tegundir, sem ekki eru fram-
leiddar á vegum tóbaksverslunar
ríkisins, hafa hlotið nöfn eins og Silf-
urfjallið, Máninn og Dúfan. Flestar
þessara tegunda eru á svipuðu verði
og betelblöðin.
Besta tegundin er framleidd á veg-
um ríkisins. Erfitt er að komast yfir
þá vindla og eru þeir talsvert dýrari
en hinir. Kosta þeir tólf krónur
stykkið.
Hægt er að kveikja bæði í blöðun-
um og vindlunum á þar til gerðu reipi
sem hangir hjá sölumönnunum eða
á nálægum vegg.
Götusalar í Rangoon bjóða upp á allt sem þarf í tuggu af betelblaði eða
ódýra smávindla. Símamynd Reuter
'ANTOMMUR
STCR.
BYÐUR EINHVER BETUR?
HUOMBÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
Umboðsmenn: Bókaskemman Akranesi - Kaupfélag Borgfirðinga - Hljómtorg ísafirði - KEA Akureyri - Radíóver Húsavik - Eyko Egilsstöðum
- Búland Neskaupstað - Myndbandaleigan Reyðarfirði - Hornabær Hornafirði - Djúpið Djúpavogi - Kf. Rangæinga Hvolsvelli
- M.M.-búðin Selfossi - Sjónver Vestmannaeyjum - Rás Þorlákshöfn - Samkaup Keflavík - Vörumarkaðurinn i Kringlunni Rvk.
- J.L.-húsið Reykjavík