Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Side 44

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Side 44
 62 #' -25•; 25 F R E T r Á S K O T I Ð Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón- þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn. Jón Steinar Gunnlaugsson: ÁIHur Hæstarétt vilhallaii stjórn- völdum „Ég taldi rétt að upplýsa fólk um það hverja meðferð mál af þessu tagi fá hjá Hæstarétti, almenningur veit afar lítið um það. Ég rek þarna sex mál sem öll snerta mannréttinda- ákvæði stjórnarskrárinnar og dreg þá ályktun af úrslitum þeirra að Hæstiréttur hafi tilhneigingu til þess að þrengja rétt manna stjórnvöldum i vil,“ segir Jón Steinar Gunnlaugs- son hæstaréttarlögmaður. Hann er að tala um bók, Deilt á dómarana, sem hann hefur skrifað og er að koma út. Þar gerir hann grein fyrir röksemdum og álitaefn- um varðandi sex nýleg Hæstaréttar- mál. Þau snerust um Frjálst útvarp Valhallarmanna og fleiri, upptöku á tölublaði Spegilsins án dómsúr- skurðar, álagningu kjarnfóðurskatts og ráöstöfun á gengismun, vald sveit- arstjórna yfir ráðstöfun jaröeigna og loks um frelsi til þess aö hafna aðild að hagsmunasamtökum bænda. „Það er athyglisvert í flestum mál- anna að dómstólarnir koma með niðurstöður sínar án nokkurs rök- stuönings að heitið geti,“ segir Jón Steinar í bókinni. Þetta telur hann ekki aðeins bijóta í bága viö ákvæði í réttarfarslögum um að niðurstöður dóms skuli vera rökstuddar, heldur þýði þetta að dómarar taki sér óeðli- legt vald við túlkun á mannréttind- um í þjóðfélaginu. „Fyrir atbeina dómstólanna hafa mannréttindaákvæöi stjórnarskrár lítið gildi,“ segir Jón Steinar og hvet- ur til þess að sett verði ný stjórnar- skrá þar sem kveðið verði skýrar á um mennréttindi og hlutverk dóm- stóla í því sambandi. -HERB Keflavíkurflugvollur: Lögreglu- bíll valt Lögreglubíll valt á Keflavíkurflug- velh aðfaranótt laugardagsins. Að sögn lögreglunnar á Keflavíkurflug- velh ók lögregluþjónn bílnum og var einn í honum. Við aðalvallarhliðið valt bíilinn. Lögregluþjónninn hrufl- aðist nokkuð og er aumur í skrokkn- um en mun ekki hafa slasast alvarlega. Lögreglubíhinn er mikið skemmdur og óökufær. Tildrög slyssins eru að sögn lög- reglunnar ekki ljós og málið hefur ekki verið rannsakað til hlítar enn sem komið er. -ATA Tvö innbrot á Skaganum Brotist var inn á tveimur stöðum á Akranesi um helgina. Brotist var inn í Trésmiðjuna Akur og Æskulýðs- heimilið Arnardal. Ekki er vitað hverju var stolið í innbrotunum. Töluveröar skemmdir voru unnar á báðum stöðum. Ekki er vitað hverj- ir frömdu innbrotin, málin eru í rannsókn. -sme Veðrið á morgun: Áflog í miðbænum: llla skorinn Áflog á milli tveggja manna í mið- bæ Reykjavíkur á fimmta tímanum í morgun enduðu meö því að annar ■^.mannanna skar hinn illa í andlit. ' - Sauma varð 25 spor, 20 í andlit og 5 í hönd. Skurðurinn í andhtinu nær frá munnviki aftur að eyra. Ekki er ljóst með hvaða hætti áflog- in hófust. í áílogunum greip annar mannanna til vasahnífs og veitti hin- um skurð í andlit. Eftir að hafa skoriö manninn lagði maðurinn á flótta. Lögreglan náði manninum fljótlega. Var hann færður í fanga- geymslu. í morgun var ekki fariö að yfirheyra manninn. Hann er 21 árs gamall. Sá sem var skorinn fékk að fara heim að lokinni aðgerð. Hann er þrít- ugur að aldri. -sme Rigning á Suður- og Austurlandi Á morgun verður austlæg átt um mestallt landið. Rigning verður sunnanlands og austan og líklega norðantil á Vestfjörðum. Urkomu- htið á Vesturlandi og í innsveitum á Norðurlandi. Hiti 3 til 7 stig. LOKI Ólafsmenn drukku frá sér framkvæmdastjórnina á alla-ballinu! ,**--------------- Könnunaiviðræður hefjast í dag í dag munu framkvæmdastjórn Verkamannasambandsins og fulltrú- ar Vinnuveitendasambandsins hitt- ast og ræða stöðuna í samningamál- unum. Kalla menn þetta könnunarviðræöur. Er tahð víst áö samböndin komi sér niður á með hvaða hætti verði unnið í kjarasamn- ingunum næstu vikurnar. Framkvæmdastjórn Verkamanna- sambandsins hélt fund á laugardag- inn og þar var meðal annars samþykkt að óska eftir þessum könn- unarviöræðum við vinnuveitendur. -S.dór Einn stærsti og fullkomnasti frystitogari íslenska flotans, Sléttbakur EA 304, var formlega afhentur Útgerðarfélagi Akureyringa á siglingu um Eyjafjörð i gær. Sléttbakur hefur verið í rúmt ár í viðgerðum og endurbótum hjá Slipp- stöðinni á Akureyri þar sem hann var lengdur um átta metra og honum breytt í frystiskip búið fullkomnustu tækjum og búnaði. Eftir breytingarnar er Sléttbakur annað stærsta skip fiskveiðiflotans og fullkomnasta frystiskipið. Var það mál manna við afhendingu skipsins i gær að sennilega væri Sléttbakur fullkomnasta frystiskip heimsins í dag með öilum þeim búnaði sem i honum væri. Skipstjóri á Sléttbak verður Kristján Halldórsson. gk/DV-mynd gk Manndráp í Reykjavík: ■ ^ ■ •• ■ ^ Jatarsoka voðaverkinu Fjörutíu og eins árs gamall mað- og einnig tæplega þrítugur maður leitt manninn til bana er ekki vitað ur fannst látinn í húsi í Reykjavík sem var handtekinn. Hefur hann á þessari stundu. um helgina. Tæplega þrítugur játað að hafa orðið valdur aö dauða Sásemhefurjátaðvardrukkinn maður hefur játað aö hafa orðið hins. er lögreglan kom á vettvang. Tahð valdur að dauða mannsins. Buið er að úrskurða manninn í ervístaöhinnlátnihafiveriödrep- Það var um klukkan sex á laugar- gæsluvarðhald til 6. febrúar á innnokkrumklukkustundumáöur dagskvöldiðaðhringtvarílögreglu næsta ári. Manninum er gert að en tilkynnt var um hvemig komið og tilkynnt að látinn maður væri í sæta geörannsókn. Ekki er vitað var. Jafnvel er tahð að maðurinn íbúð í húsinu númer 40 við Skip- með hvaða hætti maöurinn varð hafi látist aðfaranótt laugardags- holt. Þegar lögreglan kom á vett- hinum að bana. Áverkar eru á ins. vang var látinn maður í ibúðinni höfði hins látna. Hvort þeir hafi -sme * Laxá í Kjós Leigð á 15,8 milljónir „Við erum mjög hressir með þenn- an samning og stefnum að því að hafa verð á veiðileyfum svipað og í fyrra,“ sagði Árni Baldursson í sam- tali við DV en í gærdag skrifaði hann undir samning um leigu á Laxá í Kjós næsta ár með þeim Skúla Jó- ’hannssyni í Tékkkristal og Bolla Kristinssyni í Sautján. „Þrátt fyrir 30% verðbólgu ætti okkur að takast aö halda veiðileyfum á sama verði. Útlendingatíminn verður 6 til 8 vikur og við ætlum að hleypa íslendingum inn í þann hóp með fluguna," sagði Árni. Erfiðlega gekk að fá upp gefna leigu á ánni en áreiðanlegar heimildir okk- ar segja 15,8 milljónir fyrir sumarið. Páll í Pólaris leigði ána á 15,4 í fyrra. -G. Bender Eldur í bíl Slökkviliöinu í Reykjavík var til- ^ kynnt að kviknað heföi í kyrrstæðum bíl við Stórhöfða 16 aðfaranótt sunnudagsins. Þegar slökkviliö kom á staðinn var töluverður eldur í bíln- um en greiðlega gekk að slökkva hann. -ATA llar gerðir endibíla 25050 SETlDIBiJLJISTÖÐin Borgartúni 21

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.