Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987.
5
Fréttir
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar segir efnahagshorfur veni en spáð var fyrir mánuði:
Draga verður úr kaupmætti
- ef ná á markmiðum ríkisstjórnarinnar um viðskiptajöfnuð og minni verðbólgu
úr verðbólgu,“ sagði Þórður.
Um þróun alþjóðaefnahagsmála
að undanförnu, mikið verðfall í
kauphöllum helstu iðnríkja heims
og verulegt gengisfall dollarans,
sagði hann:
„Enginn veit á þessari stundu
með vissu hvað þessi tíðindi boða.
Það er þó víst að þau geta ekki verið
góð. Fyrstu spár sérfræðinga eftir
þessi ótíðindi gera ráð fyrir veru-
lega minni hagvexti en áöur var
spáð. Þessar spár eru hins vegar
byggðar á veikum grunni ennþá og
eru því afar óvissar."
-KMU
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar,
Þórður Friðjónsson, segir að efna-
hagshorfur fyrir næsta ár virðist
vera lakari en gert var ráð fyrir
við gerð þjóðhagsáætlunar og fjár-
lagafrumvarps, fyrir rúmum
mánuði.
„Þessu veldur fyrst og fremst
tvennt. í fyrsta lagi er líklegt að
viðskiptakjör þjóðarbúsins verði
verri en reiknað var með. í öðru
lagi eru rikar ástæöur til að draga
meira úr afla en gengið var út frá.
Þetta gæti því þýtt samdrátt í þjóð-
artekjum á næsta ári, í stað þess
að þær verði óbreyttar frá þessu
ári eins og áður var gert ráð fyr-
ir,“ sagði Þórður Friðjónsson í
erindi sem hann flutti á fjármála-
ráðstefnu Sambands íslenskra
sveitarfélaga í gær.
„Hér verður ekki gerð tilraun til
aö spá niðurstöðum væntanlegra
kjarasamninga. Á hinn bóginn er
alveg ljóst að lakari viðskiptakjör
þjóðarbúsins vegna gengisfalls
dollarans á síðustu vikum og hæg-
ari hagvaxtar í heiminum, og
líklega minni sjávarafli en gert hef-
ur verið ráð fyrir, leiða óhjákvæmi-
lega til þess að draga verður úr
kaupmætti ráðstöfunartekna á
næsta ári, ef ná á markmiöum rík-
isstjórnarinnar um að halda
viðskiptahalla innan við 2% af
landsframleiðslu og draga verulega
Sveitarstjórnarmenn ræða fjármálin.
DV-mynd GVA
Viðtalið
Sigurður Tómas Björgvinsson
„Hef mikinn áhuga
á stjórnmálum<r
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Siguröur Tómas Björgvinsson er
nýráðinn fréttamaður Ríkisútvarps-
ins á Akureyri. Hann hóf störf þar
um mánaðamótin síðustu og er því
að stíga sín fyrstu skref í frétta-
mennskunni þessa dagana.
„Mér líst mjög vel á mig í þessu
starfi á þessum vinnustað. Hér er
góður andi meðal starfsfólksins enda
hresst fólk sem vinnur hér og ég er
því bjartsýnn á framhaldið."
- Hvenær kviknaði áhuginn á fjöl-
miðlun?
„Ég fékk áhugann strax þegar ég
stundaði nám við Fjölbrautaskólann
á Sauðárkróki en þá var ég meðal
annars við útgáfu skólablaða þar.
Síðan lá leiðin í stjórnmálafræði í
Háskólanum og þá jókst þessi áhugi
enn. Ég tók þá „kúrsa“ í fjölmiðla-
fræði sem þar var boðið upp á. Ég
lauk prófi frá Háskólanum í vor.“
- Og var stefnan þá sett á vinnu við
fjölmiðlun? „Já, það má segja það.
Með náminu í Háskólanum kenndi
ég við Fjölbrautaskólann í Garðabæ
og reyndi þá að miðla af þeirri þekk-
ingu á fjölmiðlafræði sem ég hafði
aflað mér. Síðasta árið í skólanum
vann ég svo einnig hjá Umferðar-
ráöi. Þá var ég hinum megin borðsins
Sigurður Tómas Björgvinsson.
ef svo má segja, starfaði meðal ann-
ars að því að miðla upplýsingum til
fjölmiðla þannig að það má segja aö
ég hafi kynnst þessu frá báðum hliö-
um.“
Sigurður er frá Siglufirði og sagðist
því vera kominn langleiðina heim að
námi loknu. En hvað gerir hann í
frístundum sínum?
„Ég reyni að vera sem mest meö
fjölskyldunni. Ég er nýbúinn að eign-
ast dóttur sem er mitt fyrsta barn
og áhuginn beinist mjög að henni.
Einnig les ég mikið. Ég er búinn aö
hafa áhuga á stjórnmálum síöan ég
var unglingur og les mikið um slík
mál,“ sagði Sigurður Tómas Björg-
vinsson.
Gerðardómur í uppgjóri Fjölbrautaskóla Suðuriands:
Tíu milljóna
króna deila
„Ég hef veriö í þessu í 35 ár og
aldrei lent i öðru eins,“ segir Sigfús
Kristinsson, byggingameistari á
Selfossi, en síðan um áramót hefur
staðið deila um uppgjör við hann
vegna lokaáfanga Ejjölbrautaskóla
Suðurlands. Gerðardómur fjallar
nú um uppgjörið sem snýst um 10
millj ónir króna en upphaflegi verk-
samningurinn var 20 milljónir.
Sigfús, sem hefur reist margar
stærstu byggingar á Selfossi, axm-
aðist byggingu tveggja fyrstu
áfanga Fjölbrautaskólans og loks
raeginhluta síðasta áfangans en all-
ir áfangarnir voru boönir út. „Síð-
asta uppgjörið fór í hnút og
bygginganefndin ákvað að halda
eftir fjórum milijónum af uppgjör-
inu á þessum 20 milljóna samningi
þar sem ágreiningur var um nærri
sex milljóna kröfur mínar og
þriggja undirverktaka minna
vegna breytinga og aukaverka,“
segir Sigfús.
Hönnuður hússins er dr. Maggi
Jónsson og var kostnaðaráætlun
hans varðandi umdeilda áfangann
14,7 milljónir króna. Verkfræði-
stofan Ejölhönnun endurskoðaði
þá áætlun síðar og taldi 19-20 millj-
ónir réttari tölur. Tilboð Sigfúsar
var 20 milljónir en tvö önnur boð
bárust, 22 milljónir og 29 milljónir
króna.
Deiluaðilar skipuðu loks sinn
hvom fulltrúa í geröardóm og
sýslumaður skipaði Friögeir
Bjömsson, nú yfirborgardómara,
oddamann dómsins. Von er á úr-
shtum í lok þessa mánaðar.
-HERB
Bændur altt of
Guðmundur Stefánsson landbún-
aðarhagfræðingur sagði á ráðstefnu
um byggðamál á Selfossi um helgina
að eitt þúsund kúabændur og eitt
þúsund sauðíjárbændur gætu auð-
veldlega framleitt allar þær mjólkur-
vörur og allt það kindakjöt sem
þjóðin þyrfti.
Guðmundur sagði aö mjólkurfram-
leiðendur væru nú milli 1.800 og 1.900
og þeir sem hefðu lífsviðurværi sitt
að umtalsverðu leyti af sauðfjárrækt
væru öragglega yfir tvö þúsund.
„Auk þess sem dregur úr sölu hefð-
bundinna búvara, mjólkur og kinda-
kjöts, á sér stað veraleg hagræðing
margir
og framleiðniaukning í þessum
greinum. Það þarf því sífellt færri
hendur til að framleiða það magn
sem til skiptanna er,“ sagði Guð-
mundur.
-KMU
Skógræktarfélag Eyfirðinga:
Sala á jóla-
trjám undirbúin
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii
„Við erum komnir á fulla ferð að
undirbúa söluna á jólatrjánum,"
sagði Hallgrímur Indriðason, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags
Eyfiröinga, í samtali við DV en félag-
ið sér um alla sölu á jólatrjám á
Akureyri.
Fyrir nokkrum dögum var byrjað
að fella trén sem koma á markaðinn
í desember. Hallgrímur sagðist
reikna með felld yrðu um 1500 tré
að þessu sinni og eru þau sótt í næsta
nágrenni Akureyrar, s.s. í Leynings-
hóla, að Ystafelli, í Vaðlareit og
Öxnadal. Þá flytur félagið einnig inn
tré og greinar frá Danmörku.
„Verðið hækkar ekki mikið frá síð-
asta ári,“ sagði Hallgrímur. „Við
höldum varla í við verðbólguna og
ég reikna með að tré af meðalstærð
muni kosta um 1500 krónur."
STÓRKOSTLEG VETRARDEKK
NORÐD
ÍSLENSK ERAMLEIÐSLA
GÆÐI - ÖRYGGI
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
VINNU
STOFAN
HF
SKIPHOLTI35 RÉTTARHÁLSI
s. 31055 s- 84008/84009