Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987.
7
Atvinnumál
Halldór Ásgrímsson í ræðu á 46. Fiskiþingi:
Minni þorskafli komi niður
á útflutningi á ferskfiski
- þeir sem treyst hafa á aukinn djúprækjuafla munu verða fyrir vonbrigðum
Fiskiþing, hið 46. í röðinni, hófst í
gær. Eftir setningarræðu Þorsteins
Gíslasonar fiskimálastjóra flutti
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráöherra ræðu þar sem hann fór yfir
og ræddi flesta þætti og stöðuna í
sjávarútvegi. Hann ræddi að sjálf-
sögðu mikið um nýja fiskveiðistefnu
sem nú er unnið að mótun á. Sagði
Halldór þaö liggja ljóst fyrir að draga
yrði úr þorskveiðunum á næsta ári
frá því sem verið hefur. Hann sagði
að nauðsynlegt væri að svara því á
hveijum sú minnkun ætti að bitna
og sagði orðrétt:
„Eðlilegt verður að telja að hún
komi frekar niður á útflutningi á
ferskum fiski en þeim afla sem fer í
vinnslu innanlands."
Sagði Halldór að í þjóðhagsspá
væri gert ráð fyrir að verðmæti sjáv-
arafurða á næsta ári yrði svipað og
í ár en ef aflinn yrði minni væri ekki
hægt að ná þessu marki nema með
því að auka verðmætasköpunina
innanlands.
Þá sagði sjávarútvegsráðherra að
margir hefðu ætlað að sækja aukinn
afla í úthafsrækjuna. Nú væri aftur
á móti svo komið að afrakStursgeta
stofnsins stæði ekki undir þeim
væntingum sem við þessar veiðar
hafa verið bundnar. Setja yrði kvóta
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra flytur ræðu sina í upphafi 46. Fiskiþings sem hófst i gær. DV-mynd GVA
á veiðarnar og óhjákvæmilegt að
ýmsir, sem treyst hafa á aukinn djúp-
rækjuafla, verði fyrir vonbrigðum.
Eins sagði Halldór að menn sem
treyst hafa á aukinn afla í gegnum
sóknarmarkið yrðu fyrir vonbrigð-
um á næsta ári því að þeirri sam-
keppni sem haldið hefur verið uppi
innan þess yrði aö linna meö hliðsjón
af minnkandi botnfiskafla.
Þá fjallaði Halldór nokkuö um
veiðar smábáta undir 10 lestum og
taldi óhjákvæmilegt aö setja þá undir
kvótakerfið þótt taka mætti ýmsar
hugmyndir sem fram hefðu komið
þar um til endurskoöunar.
Sjávarútvegsráöherra fjallaði
nokkuð um innlendu fiskmarkaðina
og taldi að þeir yrðu að fá lengri tíma
áður en dómur yrði felldur yfir þeim.
Þó sagði hann alveg ljóst að hiö háa
verð, sem fæst á mörkuðunum fyrir
takmarkaðan afla gæti aldrei orðiö
viðmiðunarverð fyrir fisk yfir landiö
allt.
Loks er að geta ummæla ráðherra
um frekari nýtingu þess hluta sjáv-
arafla sem hent er í hafið. Hann sagði
að 60% þess afla sem frystitogararnir
drægju úr sjó væri fleygt í hafiö aft-
ur. Eins færu 2/3 hlutar af innvigtuð-
um afla skelverksmiðjanna í hafið
aftur. Hann sagði að sá hluti aflans,
sem fleygt væri, gæti orðið undir-
staöa mikillar verðmætasköpunar og
að áfram yrði haldið af fullum krafti
við þær tilraunir og rannsóknir sem
hafnar eru á því sviði. Nefndi hann
þá hugmynd að senda sérstakt skip
á miðin til að hirða lifur til lýsis-
vinnslu, sem og annan úrgang frá
skipunum. Sagðist Halldór nú þegar
hafa falið Rannsóknastofnun sjávar-
útvegsins að gera hagkvæmnirann-
sóknir fyrir slíkt verksmiðjuskip.
-S.dór
Ingótfur Arnarson í ræðu á Fiskiþingi:
Stendur til að
binda smáfiska-
Mótmæla tilraunum til sundrungar
Emil Thorarensen, DV, Eskifirði:
Fundur var haldinn með hags-
munaaðilum i sjávarútvegi á
Austurlandi um helgina. Fundur-
inn var haldinn á Eskifiröi og var
eftirfarandi samþykkt gerð:
Sameiginlegur fundur Útvegs-
mannafélags Austflarða, Skip-
sflóra- og stýrimannafélagsins
Sindra og Alþýöusambands Aust-
urlands, haldinn 14. nóvember
1987, tekur undir og samþykkir
fram komin mótmæli forsvars-
manna landssamtakanna Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna,
Farmaiina- og fiskimannasam-
bands íslands og Sjómannasam-
bands íslands vegna bænarskjals
32 þingmanna á suöur- og suövest-
urhorni landsins um breytingu á
svæðaskiptingu kvótakerfisins og
undirstrikar þekkingu fyrrnefiidra
forsvarsmanna á forsögu svæða-
skiptingar og mótmælir harölega
tilraunum þingmannanna til
sundrungar á úrslitastundu.
drápið í lögum?
í umræðum um endurskoðun fisk-
veiðistefnunnar og stjóm fiskveiða,
sem Eiríkur Tómasson hafði fram-
sögu fyrir á Fiskiþingi í gær, hélt
Ingólfur Arnarson, starfsmaður
Fiskifélags íslands, ræðu. Þar átaldi
hann harðlega það smáfiskadráp
sem stundað hefur verið hér við land.
Ingólfur sagði það þó öllu verst að
í drögum að frumvarpi til laga um
stjómun fiskveiða 1988 til 1991 væri
hreinlega gert ráð fyrir aö verðlauna
menn fyrir smáfiskadráp. Nefndi
hann í því sambandi 4. grein frum-
varpsdraganna þar sem gert er ráð
fyrir heimild til sjávarútvegsráð-
herra um að ákveða að fiskur undir
ákveðinni stærð veröi ekki talinn
með í kvóta fiskiskipa eða aðeins
hluti hans.
í 4. grein frumvarpsdraganna segir
orðrétt um þetta mál: „Ráðherra get-
ur ákveðið, að fiskur undir ákveðinni
stærð, eða fiskur sem veiðist á línu,
skuli ekki eða aðeins að hluta talinn
með í aflamarki eða sóknarmarki
fiskiskips...“
Þetta atriði gagnrýndi Ingólfur
harölega. Hann sagði að í fyrra hefði
meðalþyngd 200 þúsund tonna þorsk-
afla verið 2,2 kíló. Hjá bátum með 45
þúsund tonna afla var meðalþyngdin
2,5 kíló en hjá togurum, sem öfluðu
144 þúsund lestir, var meðalþyngdin
2,1 kíló, Minnst var meðalþyngd
þorsks, sem landað var á Vestur-
landi, 2,24 kíló, og Vestflörðum, 2,26
kíló.
Ingólfur sagði að því miður væri
erfitt að segja til um meðalþyngdina
í ár vegna þess að stór hluti aflans
er nú ekki stærðarflokkaöur. Hann
varaði sterklega viö vaxandi smá-
fiskadrápi.
í þessum umræðum kom fram að
deilt mun veröa á Fiskiþingi um
mismikinn þorskkvóta togara eftir
því hvort þeir eru gerðir út frá Vest-
fjörðum, Norðurlandi eða Austflörð-
um annars vegar eöa Suöur- og
Vesturlandi hins vegar. Flestir sem
rætt var við í gær á Fiskiþingi áttu
von á snörpum og hörðum deilum
um hin ýmsu atriði varðandi fisk-
veiðistjórnunina.
-S.dór
Fiskaflinn langt fram úr tillögum
Marteinn Friðriksson frá Sauð- þvl ætti hrygningarstofninn að
árkróki gagnrýndi það i ræðu sinni vera veikari nú en fyrir 4 árum en
á Fiskiþingi í gær að fiskaflinn svo væri þó alls ekki. Taldi hann
heföi síðastliöin 4 ár farið 400 þús- spár fiskifræðinga byggðar á veik-
und lestum fram úr þvi sem fiski- um grunni.
fræöingar lögðu til. Hann sagöi aö -S.dór
i i
H
i i
BLAÐ
BURDARFÓLK
ODDAGATA
ARAGATA
LITLI-SKERJAFJÖRÐUR
HVERFISGATA 1^66
i i i i i i
i i t (f
AFGREIÐSLA
ÞVERHOLTI 11
i i
1 i
i i
i i
X .
i i
i i
i i
i i
SIMI 27022