Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987.
9
Utlönd
MHfterrand
neiftar vitn-
eskju um
vopnasoluna
Bjami Hinriksson, DV, Bordeaux:
Mitterrand Frakklandsforseti kom
í gærkvöldi fram í útvarpi þar sem
hann svaraði spurningum frétta-
manns um vopnasöluna til írans.
Þessa viðtals var beðiö með eftir-
væntingu því undanfamar vikur
hafa fleiri og fleiri krafist þess að
forsetinn gerði hreint fyrir sínum
dyrum vegna ólöglegrar vopnasölu
til írans sem verið hefur í fréttum.
Hafði forsetinn verið sakaður um að
vita um söluna. Einnig vonuðust
menn til að Mitterrand segði sitt álit
á tilgátum um að hagnaður af vopna-
sölunni hafi runnið í sjóði sósíalista-
flokksins.
í grófum dráttum sagði Mitterrand
að það væri ekki hlutverk forsetans
aö fylgjast með framfylgd vopnasölu-
máls. Til þess væru opinberar stofn-
anir og fjölmargir starfsmenn. Það
væri rétt að einu sinni, í maí 1984,
hafl einn af yfirmönnum leyniþjón-
ustu hersins komið að máli við hann
og sagt honum að grunur léki á um
ólöglega vopnasölu fransks fyrirtæk-
is til írans. Sagðist forsetinn hafa
sagt viðkomandi yfirmanni að ræða
þetta við þáverandi varnarmálaráð-
herra, Charles Hernu, auk þess sem
hann hefði gert það sjálfur nokkrum
dögum seinna. Þetta hefði einungis
verið grunur sem aldrei hefði verið
færður aftur í tal við hann. Þær ör-
yggisstofnanir og leyniþjónustur
sem fylgjast með málum af þessu
tagi hefðu ekki gert frekari athuga-
semdir á þessum tíma.
Forsetinn ræddi stefnu sína í
vopnasölu frá því hann komst til
valda og sagði hann það alltaf hafa
verið afstöðu sína að ekki skyldu
seld vopn til írans þótt tilskipanir
um þau efni hefðu að vísu um tíma
leyft sölu skotfæra.
Varðandi fé til sósíalistaflokksins
sagði Mitterrand afdráttarlaust að
ekki hefði króna runnið í sjóði
flokksins frá vopnasölufyrirtækinu
eða sölumönnum þess. Þar væri ekk-
ert óhreint á ferðinni. Hins vegar
væri hneykslanlegt hvernig vissir
aðilar hefðu komið upplýsingum um
þetta mál á framfæri við fjölmiöla.
Þar vísar forsetinn til þess að leyni-
legri skýrslu var lekið til fjölmiðla
af andstæðingum forsetans, segja
sumir, sem vildu gera úr þessu pólit-
ískt hneykslismál.
Forsetinn sagði aö nú þyrfti í eitt
skipti fyrir öll að setja lög um eftirlit
með fjármálum stjórnmálaílokka og
kosningaherferða. Hann væri tilbú-
inn að boða til sérfundar svo að þetta
mál væri í höfn fyrir forsetakosning-
arnar í vor. Mitterrand sagðist á
næstu dögum vinna að þvi aö þetta
mætti verða. Varðandi framboð til
forseta sagðist hann ekki hafa tekið
ákvörðun um hvort hann byöi sig
fram aftur eða drægi sig í hlé.
Eftir þetta viðtal er erfitt að segja
hvort forsetanum hefur tekist að
hreinsa hendur sínar af vopnasölu-
málinu. Þótt hann sjálfur sé kominn
með tiltölulega hreinan skjöld er
ennþá margt mjög óljóst hvað snertir
ráöherra og ýmsar stofnanir og hlut
þeirra í málinu þótt forsetinn lýsti
yfir fullu traustu sínu á fyrrum for-
sætisráðherra og varnarmálaráð-
herra sósíalista.
Forseti Frakklands, Francois Mitterrand, hvatti i gær til lagasetningar um
eftirlit með sjóðum stjórnmálaflokka i kjölfar ásakana um hagnað flokks
hans af ólöglegri vopnasölu fransks fyrirtækis. Simamynd Reuter
T\!ftB0ÚN°uí'
ÚTSÖLUR
mUM FYRIRJÖLAVÖRUM
TÍSKUVERSLUNIN
YLFA
20 - 40%
AFSLÁTTUR
KAUPGARÐI
KÓPAVOGI
TISKUVERSLUNIN
YKKAR
20 - 40%
AFSLÁTTUR
KLEIFARSELI26
HJÁ SELJASKÓLA