Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987.
11
Spánverjar sameinast
gegn hiyðjuverkasamtökum
Brynhildur Ólafedóttir, DV, Spáni:
Ríkisstjórn Spánar undir stjóm
Gonzalez hefur nú hrundið af stað
mikilh baráttu gegn hryðjuverkum
á Spáni og beinir stjórnin spjótum
sínum sérstaklega gegn hryðju-
verkasamtökum Baska, ETA.
Undir lok síðustu viku gerðist
það í fyrsta skipti í sögu Spánar að
allir þeir flokkar, sem eiga fulltrúa
á spænska þinginu, sameinuðust
og undirrituðu samning um uppr-
ætingu hryðjuverka í Baskahérað-
unum. En þingflokksfulltrúar
þings Baskahéraðanna höfðu rúm-
lega viku áður undirritað sama
samning.
Samnningur þessi gerir ríkis-
stjórn Spánar meðal annars kleift
að semja við ETA um sakaruppgjöf
meðhma þeirra ef þeir í staðinn
láta af obeldi og leggja niður vopn,
fækka flölda herlögreglumanna í
Baskahéruðunum næstu fimm ár-
in og afnema hin svokölluðu
hryðjuverkalög sem verið hafa í
gildi síðan 1985, svo fátt eitt sé
nefnt.
Gonzales og Chirac, forsætisráð-
herra Frakka, staðfestu í síðustu
viku í kjölfar undirritunar samn-
ingsins áframhaldandi samvinnu
landanna gegn hryðjuverkum og
lét Gonzales í ljós von sína um að
þessi samvinna mætti verða öðrum
Evrópulöndum að fordæmi.
Fulltrúar ríkisstjórnarinnar eiga
nú í óopinberum viðræðum við
hinn póhtíska væng ETA. Jafn-
framt því eiga sér stað samnin-
gaumleitanir við ráðamenn ETA
sem nú eru útlægir í Alsír og
stjórna sínum málum þaðan.
Fylgi og máttur hryðjuverkasam-
taka Baska er nú htið og eiga þeir
í mikihi efnahagslegri sem og mál-
efnalegri kreppu. Miklar vonir eru
því bundnar við að takast megi nú
með þessum samningi og aðgerð-
um í kjölfar hans að draga enn úr
mætti samtakanna og jafnvel uppr-
æta alveg hryðjuverk þeirra.
Enn ekki sjónvarpað frá
breska þinginu
Ingunn Ólafedóttir, DV, Birmingham:
Thatcher vill ekki fá sjónvarps-
myndavélar inn í þingsal. Tillögur
um að hleypa sjónvarpsmyndavél-
um inn í þing, svo að almenningur
geti fylgst meö umræðum breska
þingsins, hafa alltaf verið felldar
fram að þessu, sú síðasta fyrir
tveimur áram með tólf atkvæða
mun.
Thatcher hefur aldrei verið hrifln
af hugmyndinni og í síðustu viku
gerðist atvik sem styrkti enn frekar
afstöðu hennar. Þingmaður Verka-
mannaflokksins kaUaði hana
lygara og er hann var látinn yfir-
gefa þingsahnn klöppuðu aörir
þingmenn honum lof í lófa.
Breskir þingmenn hafa alltaf lá-
tið óstjórnlega í þingsalnum,
hrópað og truflað ræðumenn þegar
þeim sýnist. Thatcher hefur ósjald-
an þurít að hækka róminn tU að
yfirgnæfa framíköll andstæðinga
sinna. Það sem af er þessu þingári
hafa þingmenn að sögn hegðað sér
með versta móti og hefur það einn-
ig styrkt Thatcher í andstöðu
hennar við sjónvarpsmyndavél-
arnar.
Áram saman hafa sjónvarps-
fréttamenn reynt að koma mynda-
vélunum inn í þingsalinn en hingað
til hefur almenningur ekki fengið
tækifæri tíl að beija fulltrúa sína
augum í vinnunni. Ef Thatcher
skiptir ekki um skoðun er líklegt
að það verði ekki fyrr en á næsta
áratug sem myndavélarnar fá inn-
göngu á breska þingið.
Útlönd
Forsætisráðherra Irlands, Charles Haughey, var á sunnudaginn viðstaddur minningarguðsþjónustu i Dublin um
fórnarlömb sprengjutilræðis IRA í Enniskillen fyrir rúmri viku. Símamynd Reuter
Kaþólskir biskupar harðorðir í garð IRA
Ingiinn Ólafedóttúr, DV, Birmingham:
Harðorð yfirlýsing frá biskupum
kaþólsku kirkjunnar á írlandi var
lesin upp í öllum kirkjum landsins á
sunnudag. Tilefnið var sprengjutil-
ræði írska lýðveldishersins, IRA,
sem olli dauða ellefu manns í Ennisk-
illen á Norður-írlandi fyrir rúmri
viku.
Skilaboð biskupanna voru í stuttu
máli þau að stuðningur við IRA væri
syndsamlegt athæfi. Það er ekki
lengur hægt að fyrirgefa það viðhorf
að undanfarin ofbeldisverk á írlandi
séu siðferðislega réttlætanleg, sagði
meðal annars í yfirlýsingunni.
Presturinn í Enniskillen var enn
berorðari. Sagði hann að þeir sem
skytu skjólshúsi yfir hryðjuverka-
menn, hjálpuðu þeim að flýja eða
geymdu vopn þeirra væru jafnsekir
um morð og illvirkjarnir sjálfir.
Þessi hörðu viðbrögð kaþólsku
kirkjunnar eru óvanaleg og áður
óþekkt. Kirkunnar menn, eins og
aðrir, vita að IRA myndi eiga mjög
erfitt uppdráttar ef ekki nyti við
stuðnings margra kaþólikka á Norð-
ur-írlandi. Með yfirlýsingu sinni
gæti kirkjan haft áhrif á viðhorf þess-
ara stuðningsmanna til IRA. Það er
skoðun margra að breytt almenn-
ingsálit sé eina leiðin til að rjúfa þögn
þeirra sem vitneskju hafa um starf-
semi samtakanna. Vonir hafa nú
vaknað um það að atburðirnir í Enn-
iskillen muni leiða til róttækra
breytinga á almenningsálitinu og þar
meö hnignun IRA.
IRA lætur þó engan bilbug á sér
finna og lýsti því yfir um helgina að
sprengingin í Enniskillen myndi á
engan hátt hægja á framgangi sam-
takanna. Það er nú vitað að meiri-
háttar breytingar hafa verið gerðar
á stjórn IRA. Meira valdi hefur veriö
dreift til svæðisbundinna deilda og
að sögn var sprengingin í Enniskillen
ákveðin af IRA-deildinni á staðnum
án vitneskju miðstjórnar IRA.
En á meðan IRA boðar áframhald-
andi hryðjuverk er allt útlit fyrir aö
forsætisráðherra írlands undirriti
þann 1. desember samning við
bresku stjómina um framsal hryðju-
verkamanna til Bretlands. Samning-
ur þessi hefur verið umræddur og
gagnrýndur á írlandi en eftir at-
burðina í Enniskillen er þess nú
vænst að hann nái fram að ganga.
Peugeot 205 var einn þeirra bíla sem hækkaði
verulega við tollabreytinguna um daginn. Var því
endursamið við verksmiðjurnar um innflutningsverð
og mjög hagstæðum samningum náð. Við getum
því aftur boðið þennan frábæra bíl Peugeot 205 á
sama gamla verðinu og fyrir tollahækkun.
BILAR TIL AFGREIÐSLU STRAX.
KOMIÐ,
REYNSLUAKIÐ OG
FINNIÐ MUNINN!
ATH. FRÁBÆR
GREIOSLUKiðR.
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2 • Sími 42600
205 XL:
1124 cc vél
Framhjóladrif
Sjálfstæð fjöðrun á
öllum hjólum
(Peugeot fjöðrun í
sérflokki)
Kraftmikil tveggja
hraða miðstöð
Öryggisbelti í aftur-
sæti fyrir þrjá
Útispeglar báðum
megin
Rúðuþurrka og
rúðusprauta á
afturrúðu
Hiti í afturrúðu
Teppalagður
Tauáklæði á sætum
O.fl. o.fl.