Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Síða 31
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987.
Sandkom
31
Auður Auðuns kemur bráðlega út á
bók.
Auður kemur
ábók
Upphlaupið í Sjálfstasðis-
kvennafélaginu Hvöt hefur
vakið talsverða athygh enda
ekki á hveijum degi sem for-
y stumaður flokks og heiðurs-
felagi segir skilið við
flokksdeildina sína með sama
pilsaþyt og þegar Auður Auð-
uns kvaddi Hvöt. Gildir þá
einu þótt deilt sé um tæknileg
atriði en ekki póhtík.
Annars er verið að skrá
ævisögu Auðar Auðuns og er
það verk í höndum flokks-
systur hennar, Bjargar
Emarsdóttur. Auður á fjöl-
breyttan feril að baki í stjóm-
málum og sat meðal annars
í borgarstjóm og á Alþingi
og gegndi bæði embætti borg-
arstjóra og ráðherra.
Karl Steinar
í brúnni
Suðumesjamenn hafa ver-
ið súrir yfir missi fiskiskipa
og aflakvóta og láir þehn það
væntanlega enginn. Nýlega
misstu þeir ryðkláfmn Dag-
stjömuna norður til Akur-
eyrar með kvóta og öUu
saman. Þegar kláfurinn kom
til nýju heimahafnarinnar
stóð yfir þmg verkamanna-
sambandsins á staðnum. Var
tækifærið notað og KarU
Steinari Guðnasyni, þing-
manni af Suðumesjum og
fráfarandi varaformanni
sambandsins, boðið að vera í
móttökunefndinni þegar
Dagstjaman lfegðist að tog-
arabryggjunni. Karl Steinar
sagðist þegar í stað þiggj a
boðið með þvi eina skilyrði
að hann fengi að sigla skipmu
suður aftur. Á það var hins
vegar ekki faUist og þ ví gekk
Karl Steinar úr skaftinu.
Nú mun eiga að sýna kláf-
inn á miðunum fyrir norðan
og tU þess að fá mannskap á
skipið var bmgðið á það ráð
að toppaflamenn útgerðar-
innar vom teknir af hinum
skipum hennar og gerðir að
skipstjóra og 1. stýrimanni á
Dagstjömunni sem hefur víst
fengið nýtt nafn í nýjum
heimkynnum.
Einum
forstjórajeppa
fómað?
Þaö er hægt að losa hring-
orm úr fiskflökum með því
að nota hljóðbylgjur, en til
þess að gera það að veruleika
þarf að hnykkja á rannsókn-
um og samræma aðgerðir
sem nú er unnið að í mörgum
löndum í einu. Um þetta var
rætt á þingi vestfirskra fiski-
deUda fyrir skemmstu, að
sögn Vestfirska fréttablaðs-
ins. Þar var mættur meðal
annarra Hannes Hafsteins-
son sem unnið hefur að
þessum málum vestur í
Bandaríkjunum undanfarin
flmm ár. Hann sagði að til
þess að gera drauminn að
veruleika hér á landi þyrfti
h vert frystihús að leggj a fram
sem svaraði verðmæti eins
forstjórajeppa.
Ormarannsóknir eru
sflmdaðar í Háskóla íslands,
enda er efdr miklu að slægi -
ast hér á landi þ ví orma-
hreinsun kostaði víst 440
mUljónir króna á síðasta ári,
auk þess sem hún er hund-
leiðirUeg. Forstjórajeppamir
yrðu þvi fljótir að borga sig
ef tækist að kýla á ormana
með huggulegum hljóðbylgj
um í staðinn fyrir að ergja
þá með eilífu hnífaglamri.
Garóabær crekki til
- samkvæmt lögum.
Barist fyrir
bæjamafni
Félagsmálaráðuneytið hef-
ur hafnað beiöni bæjarstjóm-
ar í Garðabæ um staðfestingu
á því að Garðabær heiti
Garðabær. Þegar Garðabær
fékk kaupstaðarréttindi var
harrn nefndur í þar til settum
lögum Garðakaupstaður og
þar við situr. Engu að síður
hefur bæjarstjómin aUtaf
notað Garðabæjamafnið og
vUl hafa það. Fógeti hefur
haldið sig við lagabókstafinn
og Garðakaupstað. Þetta er
líklega eina bæjarfélagið á
landinu sem heitir tveim
nöfnum.
Bæj aryfirvöld em ekki af
baki dottin þrátt fyrir úr-
skurð félagsmálaráðuneytis-
ins. Þau hyggjast fela
þingmönnum í Reykjanes-
kjördæmi að flytja frumvarp
tíl laga um breytingu á lögum
um nafn bæj arfélagsins og
verður að vona að þeir muni
þá hvort nafnið er bæjar-
stjóm ástfólgnara.
Sparisjóður
stefnir
sýslumanni
Súðvíkingar hafa lent í
ýmsum hremmingum á
þessu ári og er mesta furða
hve mikið getur gengið á í
jafnlitlu sveitarfélagi. Meðal
annars er Sparisjóður Súða-
vikur í slæmum málum og
reynir nú að innheimta 14
innstæðulausar ávísanir sem
hinir og þessir tóku við af
manni nokkrum. Ávísanirn-
ar em aUar saman um 1,3
mUljóna króna virði og mun-
ar sparisjóðinn víst um
minna, enda með minnstu
peningastofnunum í víðri
veröld.
Á meðal þeirra sem stefnt
er tíl ábyrgðar og endur-
greiðslu er embætti bæjar-
fógetansáísafirði og
sýslumanns ísfirðinga. Þess
vegna hefur Pétur K.Haf-
stein, fógeti og sýslumaður,
vikiö úr sæti dómara og verð-
ur því skipaður setudómari í
málið.
Enga
dráttarvexti
Endurskoöandi vestur á
fiörðum hefur mótmælt því
opinberlega að barnameðlög
skuU nú innheimt með full-
um dráttarvöxtum. Þykir
honum þetta óþjóðleg stefna
og stangast á við brýna þörf
þjóðfélagsins fyrir fjölgun
borgaranna án þess að þeir
sem sinn? þessu hlutverki af
alúð séu beittir harðræði af
yfirvöldum og jafnvel sektað-
ir með jafngerræðislegum
skatti og dráttarvöxtum.
Umsjón:
Herbert Guðmundsson
Jólagjafahandbók
Hin sívinsæla og myndarlega jólagjafahandbók kemur út 3. desember nk.
Þeir auglýsendur sem áhuga hafa á að auglýsa í
JÓLAGJAFAHANDBÓKINNI
vinsamlegast hafi samband við auglýsingadeild
Þverholti 11 eöa í síma 27022 kl. 9-17 virka daga sem fyrst.
í síðasta lagi fimmtudaginn 26. nóv. nk.
HARSNYRTIFOLK
Til sölu í austurbænum lítil hársnyrtistofa.
Upplýsingar á daginn í síma 37464
og á kvöldin í síma 42449.
Laus staða
Staða Ijósmyndara, sem hafa skal umsjón meö
myndastofu Landsbókasafns, er laus til umsóknar
og verður ráðið í hana frá næstu áramótum.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfs-
feril skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir
10. desember næstkomandi.
11. nóvember 1987.
Menntamálaráðuneytið.
LANDSPlTALINN
ÍBÚÐ
2ja - 3ja herbergja íbúð óskast til leigu fyrir sænskan
hjúkrunarfræðing frá 1. febrúar 1988 í eitt ár.
Æskilegt að húsgögn fylgi.
Upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra í síma 29000-484.
Reykjavík 17. nóvember 1987.
FARARHEILL ’87
EFNIR TIL SAMKEPPNI
UM GERÐ HANDRITS
AÐ MYNDBANDITIL
N0TKUNAR VIÐ
UMFERÐARFRÆÐSLU
Skila skal frumsömdu handriti að myndbandi, sem er 2x20
mínútur, til notkunar við umferðarfræðslu í þremur efstu bekkjum
grunnskóla, 7.-9. bekk.
J/g Handritum skal skila sem kvikmyndahandritum, þar sem
fram kemur skýr lýsing á mynd, efnisatriðum og öðrum nauðsynleg-
um upplýsingum.
Jm Sérstök dómnefnd verður skipuð og er Sigurður Helgason,
c/o Fararheill '87, Suðurlandsbraut 6,108 Reykjavík, sími 91-37320,
trúnaðarmaður hennar og veitir hann allar nauðsynlegar upplýsingar.
JKJ Veitt verða ein verðlaun kr. 150 þúsund fyrir besta hand-
ritið að áliti dómnefndar. Verðlaunin framselja rétt til gerðar og sýn-
ingar myndarinnar til Fararheillar ’87. Gera ber sérstakan samning
um framleiðslu hennar. Jafnframt kemur til greina að nýta fleiri hug-
myndir samkvæmt samkomulagi.
J/f Handritum skal skila ómerktum, ásamt lokuðu umslagi með
nafni höfundar. Þau skulu send til Fararheillar '87, c/o Samband ís-
lenskra tryggingafélaga, Suðurlandsbraut 6,108 Reykjavík, í síðasta
lagi 15. desember 1987. Þátttakandi samþykkir reglur samkeppn-
innar með afhendingu handrits.
Famrheillf\
ÁTAK BIFREIÐATRYGGlNGAFtLAGANNA