Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1987, Blaðsíða 32
32
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Miðkoti III, Djúpárhreppi, þingl. eign Ólafs
Kristinssonar, fer fram á skrifstofu embættisins, Austurvegi 4, miðvikudag-
inn 18. nóvember 1987 kl. 17. Uppboðsbeiðandi er Jón Hjaltason hrl.
Sýslumaðurinn í Rangárvallasýslu
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Lyngási I og Ib, Holtahreppi, þingl. eign
Sighvats Sveinbjörnssonar, fer fram á skrifstofu embættisins, Austurvegi
4, Hvolsvelli, miðvikudaginn 18. nóvember 1987 kl. 9.00. Uppboðsbeiðend-
ur eru Ólafur Gústafsson hrl„ Ásgeir Thoroddsen hdl., Ölafur Axelsson
hrl., Hákon H. Kristjónsson hdl., Jón Ólafsson hrl., Guðjón Á. Jónsson
hdl. og Iðnaðarbanki islands.
Sýslumaðurinn í Rangárvallasýslu
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Freyvangi 17, Hellu, þingl. eign Ásgeirs
Gunnarssonar, fer fram á skrifstofu embættisins, Austurvegi 4, Hvolsvelli,
miðvikudaginn 18. nóvember 1987 kl. 16.30. Uppboðsbeiðendur eru Sig-
urður í. Halldórsson hdl. og Helgi V. Jónsson hrl.
Sýslumaðurinn i Rangárvallasýslu
NauðungarUppboð
annað og síðara á fasteigninni Ketilsstöðum, Holtahreppi, þingl. eign Ólafs
Sigfússonar, fer fram á skrifstofu embættisins, Austurvegi 4, Hvolsvelli,
miðvikudaginn 18. nóvember 1987 kl. 9.30. Uppboðsbeiðendur eru Lífeyr-
issjóður Rangæinga, Gísli Baldur Garðarsson hrl„ Sigríður Thorlacius hdl.
og Ólafur Axelsson hrl.
_____________________Sýslumaðurinn í Rangárvallasýslu
Nauðungaruppboð
annað og siðara á lóð og húseign að Torfastöðum 5, Fljótshlíðarhreppi,
þingl. eign Jóns Sigurjónssonar, fer fram á skrifstofu embættisins, Austur-
vegi 4, Hvolsvelli, miðvikudaginn 18. nóvember 1987 kl. 10.30. Uppboðs-
beiðendur eru Ólafur Axelsson hrl„ Lífeyrissjóður Rangæinga, Jón
Ingólfsson hdl„ Steingrímur Þormóðsson hdl. og Sigríður Thorlacius hdl.
Sýslumaðurinn í Rangárvallasýslu
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Króktúni 6, Hvolsvelli, þingl. eign Stefáns
Jónassonar, fer fram á skrifstofu embættisins, Austurvegi 4, Hvolsvelli,
miðvikudaginn 18. nóvember 1987 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur eru Skúli
J. Pálmason hrl„ Jón Ingólfsson hrl„ Sigríður Thorlacius hdl„ Ólafur Axels-
son hrl. og Klemenz Eggertsson hdl.
Sýslumaðurinn í Rangárvallasýslu
EIN STÆRSTA
og glæsilegasta verslunarmiðstöð á höfuðborgar-
svæðinu býður félagssamtökum og öðrum áhuga-
mannafélögum aðstöðu í desember fyrir t.d.:
★ Kynningar
★ Sölustarfsemi
★ Basar
og aðrar uppákomur
Lysthafendur sendi umsókn merkt:
Félag rekstraraðila við Eiðistorg
P.O. box 247
172 Seltjarnarnes,
fyrir 25. nóv. '87.
SPARISKÓR Í BREIDDUM FRÁ
Florence, svart leður og lakk, til í brúnu lika. Lavenderlitir, svart leður og lakk. Verö
Verð 2.990. 2.998.
Billie, svart leður og svart rúskinn. Verð 2.596. Paloma, svart leður og lakk. Verð 2.990.
Spariskór og töskur í stíl
NÝ SENDING.
SKÓSEL
Laugavegi 44, sími 21270
Rikshaw - Rikshaw
Vandað alvörupopp
Þrátt fyrir að hljómsveitin Rikshaw
hafi nú verið starfandi í nokkur ár
er hljómsveitin fyrst nú að senda frá
sér alvöruplötu. Hún gaf reyndar út
fjögurra laga plötu í fyrra en það var
i hálfgerðu plati og gaf alls ekki rétta
mynd af því sem hljómsveitin var að
gera á þeim tíma.
Og reyndar má segja það sama um
þessa plötu því efnið á henni hefur
verið í vinnslu í hátt í tvö ár en engu
að síður held ég að liðsmenn Riks-
haw séu sáttari við þessa plötu en
þá sem kom út í fyrra.
Það fer ekkert á milli mála þegar
hlustað er á þessa plötu að hér eru á
ferðinni menn sem vita hvað þeir
vilja. ÖU vinna er á hæsta fag-
mennskustigi enda miklu tilkostað og
hinir færustu menn í öllum stöðum.
Lögin eru öll eftir liðsmenn Riks-
haw og er þar söngvarinn Richard
Scobie afkastamestur. Textar eru
sömuleiðis heimasmíðaðir og allir
á ensku, sem ekki er mjög óeðlilegt
þar sem plötunni er ætlað að hasla
sér völl á mörkuðum erlendis enda
útgefandinn breskur.
Þetta er þægileg tónhst sem Riks-
haw leikur; engin stór átök og
yfirbragðið frekar mjúkt. Mikið ber
á hljóðgervlum ýmiss konar og
kannski á kostnað gítarsins sem
lendir einhvers staðar í bakrunnin-
um fyrir vikið en hefði mátt
heyrast meira í fyrir mína parta.
Það þarf að gefa þessari plötu
dágóðan tíma, hún grípur mann
ekki við fyrstu hlustun en vinnur
mjög á við nánari kynni. Aðeins
eitt lag er með því sniði að hægt
sé að kalla það vænlegan smell en
það er lagið Ordinary Day sem er
einmitt það lag sem oftast hefur
heyrst opinberlega.
Eg held að Rikshaw menn geti
verið ánægðir með útkomuna á
þessari fyrstu breiðskífu hljóm-
sveitarinnar og vonandi þurfa þeir
ekki að standa jafnlengi í því að
koma út næstu plötu og þessari.
-SþS-
Chris Rea - Dancing with strangers
Lokast inni í lyftu
Chris Rea er sérstæður söngvari.
Rödd hans er eins og liæg norðanátt,
seiðandi og hvíslandi í senn, hkt og
hann sé að að fara með töfraþulu.
Rea heillaði þannig viökvæmar sálir
fyrir tæpum tíu árum, með Fool if
you think it’s over, sem hann skrif-
aöi reyndar fyrir systur sína. Er hún
þar með úr sögunni.
Síðan hefur Rea öðru hveiju skotið
upp kollinum. Það fer iðulega lítið
fyrir honum, ólíkt velflestum popp-
stjörnum sem elska fárviðri sviðs-
ljósanna. Platan On the Beach vakti
nokkra athygli á almennum markaði
í fyrra. Þar var Rea sér og yfirveg-
aðri tónlist sinni trúr. Titillagið var
gott dæmi um þau heillandi áhrif
sem rödd hans hefur. Óviðjafnanlegt.
Dancing with strangers veldur
þannig töluverðum vonbrigðum.
Þetta er aö flestu leyti mjög ómerki-
leg plata. Ástæðan er sú að Rea ræðst
hér til atlögu við formúlur hinnar
dæmigerðu dægurtónlistar. Lagið
Let’s dance er gleggsta dæmiö um
það. Útþynnt uppskrift að poppslag-
ara sem hvorki er fugl né fiskur. Það
er aðeins í upphafi sem Rea nær
flugi. Lagiö Joys of Christmas er
undir sterkum blúsáhrifum og Rea
pikkar gítarinn af öryggi. Það má
einmitt finna nokkrar hhðstæður á
þessari plötu með síðustu breiðskífu
Claptons, August. Á seinni hliðinni
er ennfremur að finna ástaróöinn
Loving you again, þokkalegasta lag
sem hæfir rödd Rea ágætlega. Áhrif
úr suöur-amerískri tónlist eru líka
merkjanleg á b hhðinni. Josie’s tune
gæti þess vegna hafa verið numið á
brntt frá Argentínu.
Engu að síður er Dancing with
strangers klisja, eins og nafnið bend-
ir reyndar til. Hún ber merki stöðn-
unnar og ófrumleika þegar á heildina
er htið. Chris Rea er hæfileikaríkur
tónlistarmaður. Hann er því miður
undir áhrifum frá hugmyndafræði
markaðslögmálanna í þetta skiptið.
Þorsteinn J. Vilhjálmsson
Mick Jagger - Prímitive Cool
Mildur Jagger
Þótt Mick Jagger sé orðinn fjörutíu
og fjögra ára gamall er hann enn
þann dag i dag hálfguö í augum popp-
unnenda. Sem „prímus mótor” í
Rolhng Stones er hann kominn á
pall þar sem aðeins fáir útvaldir eiga
rétt á að vera. Því hlýtur ætíð að
vekja mikla athygli þegar hann gefur
út sólóplötu.
Hefur nú hans önnur plata, þar
sem hann er án félaga sinna í Sto-
nes, htið dagsins ljós og nefnist hún
Primitive Cool.
Nýtur hann þar aðstoðar þekktra
manna, manna sem eru þekktir að
gæðatónlist. Ber þar fyrst að nefna
Dave Stewart sem hefur að hluta til
samiö lög ásamt Jagger og aðstoðar
hann við upptöku. Og meðal hljóð-
færaleikara er koma við sögu má
nefna Jeff Beck og Simon Phihips,
er báðir setja sitt mark á tónlistina,
og í minni hlutverkum má nefna
David Sanborn, Omar Hakim og
Greg Phillinganes.
Það gefur því auga leið, eftir þessa
upptalningu, að tónlistin hlýtur að
hljóma öðruvísi en hjá Rolling Sto-
nes, enda er það reyndin, sjálfsagt
einhverjum til vonbrigða.
Hvað um þaö, að mínu mati hefur
Mick Jagger gert pottþétta plötu með
Primitive Cool. Lögin eru fyrst og
fremst skemmtileg, fáguð og öðruvísi
en maður átti von á frá rokkara núm-
er eitt.
Krafturinn er fyrir hendi í góðum
rokklögum á borð við Throwaway,
Primitive Cool og Shoot of Your
Mouth og einnig fer Jagger vel með
róleg lög á borð við Say You WiU og
hiö guUfallega Party Doll. Ekki tel
ég nú samt að neitt einstakt lag geti
orðið vinsælla en annað. í heild eru
lögin ekki léttmeti á borð við þau lög
sem skreyta vinsældalista. Primitive
Cool þarf hlustun.
Galli plötunnar er helst sá að tón-
listin hefði að ósekju mátt vera
hrárri. Mick Jagger er og verður
grófur söngvari og að fínkemba und-
irspil eins og hér er gert er áUtamál
hvort rétt er. Þar með er ekki sagt
að Mick Jagger hljómi illa. Það tekur
aðeins tíma að venjast honum þó
nokkuð mildari en hann hefur verið
um árin.
HK.