Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987.
7
Hvað er þér minnisstæðast frá árinu 1987?
Ólöf Kolbrún Harðardóttir:
Aida mesti
viðburðurinn
„Það sem mér er efst í huga frá
árinu sem nú er að líða er án efa
sýning óperunnar Aidu í Gamla bíói.
Þarna urðum við vitni að einu
kraftaverkinu enn hjá íslensku óper-
unni en þetta var talið ómögulegt af
sumum.
Ég er bjartsýnismanneskja og nýja
árið leggst vel í mig. Ég bind mínar
vonir við að tónlistarskólar verði
ekki teknir af ríkisstyrk og settir á
framfæri sveitarfélaganna eins og nú
er ráðgert en það teljum við óheilla-
vænlega þróun. Ef tónlistarskólamir
verða settir á framfæri sveitarfélag-
anna þá tel ég að aðsókn í þá verði
engan veginn jafnalmenn og hingað
til og því eigi færri kost á námi.
Ég fagna því hins vegar að nú skuli
stefnt að því að taka upp tónlistar-
kennslu á háskólastigi hér á landi.
Við hlökkum til að geta .stefnt nem-
endum að því markmiði að geta lokið
sínu námi hér á landi“
-PLP
Jóhann Hjartarson:
Leiðtoga-
fundurinn
minnisstæður
„Það sem mér er efst í minni frá
árinu sem er að líða er leiðtogafund-
urinn í Washington,“ sagði Jóhann
Hjartarson er DV spurði hann um
minnisstæðustu atburði ársins.
„Þetta er nú það sem ég man helst,
enda hef ég gert mér vonir um að '
eitthvað skáni milli austurs og vest-
urs.“
„Mér eru einnig í fersku minni lok-
in á heimsmeistaraeinvíginu í skák
í Seviila en það var ákaflega
skemmtilegt."
„Hvað varðar komandi ár þá er ég
ekki farinn að hugsa svo langt enn.
Það leggst þó vel í mig. Hvað væntan-
Hega atburði varðar þá horfi ég með
talsverðri eftirvæntingu til kandi-
dataeinvígisins sem hefst í Kanada
þann 24. janúar næstkomandi. Ég
þori þó ekkert að spá um úrslit þess,
þau veröa bara að koma í ljós.“
-PLP
Guðmundur Emilsson:
„Fátækt þessar-
ar þjóðar er
mikil ígóðærinu"
„Fyrst kemur upp í hugann þakk-
læti til þeirra fjölmörgu sem hafa í
orði og verki stutt við bak íslensku
hljómsveitarinnar sem í ár hefur
barist fyrir tilveru sinni - sjöunda
árið í röð. í öðru lagi hvaö fátækt
þessarar þjóðar er mikil í góðærinu
- eða þeirra sem telja sig fulltrúa
þjóðarinnar. Mér barst nefnilega til
eyrna fyrir örfáum dögum að hátt-
virtur alþingismaður og fyrrum
ráðherra, Ragnar Arnalds, sem í
sinni ráðherratíð sýndi menningar-
lífinu óvenjulegan skilning, hafi
stungið upp á við starfsbræður sína
að Atla Heimi Sveinssyni, er hlaut
tónskáldaverölaun Norðurlandaráðs
fyrir 12 árum, yrði loks sýnd sú sjálf-
sagða virðing að njóta heiðurslauna
Alþingis en verið synjað. Fyrir mér
er þetta þjóðarhneisa. Sérstaklega
þegar tillit er tekið til þess að allir
sambærilegir verðlaunahafar á
Norðurlöndunum hafa sjálfkrafa
orðið heiðursþegnar í viðkomandi
landi og þar með getað starfað. að list
sinni óskiptir. Svona vinnubrögð
hljóta að vekja okkur til umhugsun-
ar um hvort þessi þjóð er neysluþjóð
eða menningarþjóð.
Á komandi ári vænti ég einfaldlega
þess að þau atriði sem ég hef nefnt
hér á undan verði lagfærð.“
-JBj
Óskum viðskiptavinum
um land allt
gleðilegs nýs árs.
Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
Starfsmenn Borgarbílasölunnar
<
tn
X]
o
Útsölustaðir: K.R. Heimilið við Frostaskjól, JL-Húsið við Hringbraut,
Borgartúni 31 (húsi Sindra Stáls), Leikfangahúsinu á Skólavörðustíg,
Byggingamarkaði Slippfélagsins og við verslun Hagkaups í Skeifunni
Gleðilegt ár
Fjölskyldupakkar í fjórum stærðum. Eitt mesta úrval landsins af flugeldum,
blysum, bombum, tertum og öðru háloftapúðri á einum stað.
Við gerum vel við börnin og bjóðum þeim skemmtilegan glaðning í tilefni
áramótanna, komi þau með pabba og/eða mömmu á einhvern útsölustað
K.R. Flugelda.