Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Blaðsíða 25
57
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987.
3Öi 10 mörk en þvi miður nægói það ekki til sigurs að þessu sinni.
DV-mynd Brynjar Gauti
ndknattleik í Danmörku:
tafgaman
lendinga"
ia, eftir 24-25 sigur Dana á Islendingum
• „Dómararnir voru í einu orði sagt
hryllilegir og vissulega höfðu þeir mikil
áhrif á úrslitin. Danska liðið var gott
en við lékum vel í síðari hálfleik,“ sagði
Guðjón Guðmundsson, liðsstjóri ís-
lenska liðsins, í samtali við DV eftir
leikinn.
„Auövitað fyrst og fremst við
okkur leikmennina að sakast“
• „Þetta var mjög svekkjandi. Auö-
vitað er fyrst og fremst við okkur
leikmennina að sakast en dómararnir
voru mjög óhagstæðir. Ég er ekki án-
ægður með minn hlut í leiknum. Við
verðum að taka okkur saman í andlitinu
og vinna Danina á Wórld Cup í Svíþjóð."
Þorgils Óttar skoraði 10 mörk
• Þorgils Óttar Mathiesen átti frá-
bæran leik í gærkvöldi og skoraði 10
mörk. Júlíus Jónasson kom inn á í síð-
ari hálfleik, skoraði 4 mörk og stóð sig
mjög vel. Sigurður Sveinsson var lengi
í gang og skoraði 3 mörk. Sigurður
Gunnarsson skoraði einnig 3 mörk,
Valdimar Grímsson 2 og Guðmundur
Guðmundsson 2.
• Áhorfendur voru um 3000 og þar
af voru margir íslendingar sem hvöttu
landann óspart í leiknum.
• í gærkvöldi gerðu Svisslendingar
og Frakkar jafntefli, 17-17.
• Danir sigruðu á mótinu, hlutu 5
stig. íslendingar urðu í öðru sæti með
3 stig, Svisslendingar í þriðja sæti með
2 stig og Frakkar ráku lestina með 2 stig.
-SK
íþróttir
Svíar hafa yfirburði í tennis
Nýr lisfi hefur verið birtur yflr bestu
tennisleikara heims af alþjóðasam-
bandi þeirra íþróttamanna. Tékkinn
Ivan Lendl, sem lengi hefur verið sak-
aður um þungan leikstíl, er í fyrsta
sæti, en næstir honum koma tveir
Svíar, þeir Stefan Edberg og Mats
Wilander. Svíar eiga raunar fleiri
menn á listanum þvi þeir Kent Karls-
són, Anders Jarryd og Joakim
Nyström teljast allir í hópi tuttugu
bestu í veröldinni. - Þeir valda vel
spaðanum Svíamir, unnu enda Davis
Cup nýverið sem er óopinbert heims-
meistaramót landsliða í íþróttinni.
Bandaríkjamaðurinn Jimmy Con-
nors, sá gamli jaxl, er í fjórða sæti á
afrekalistanum. Þess má til gamans
geta að hann er af sömu kynsloð tenn-
isleikara og sænski galdramaðurinn
Bjöm Borg-sem nú er sestur í helgan
stein. Boris Becker, gullkálfur þeirra
v-þýsku, er í fimmta sæti, hefur verið
ofarlega á mörgum mótum en hreppt
færri verðlaun. Tékkinn Miroslav
Mecjr er í sjötta sæti á heimslistanum
en Astralinn Pat Cash situr í því sjö-
unda. Hann vann Wimbledon síðast-
liðiö sumar sem er mesta mótið í
tennisheiminum. -JÖG
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
Í1.FL.B1985
Hinn 10. janúar 1988 er sjötti fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 6 verður frá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiðimeð 5.000,-kr. skírteini kr. 313,76
Vaxtamiðimeð 10.000,-kr. skírteini kr. 627,52
_________________Vaxtamiði með 100.000,- kr. skírteini___kr. 6.275,28______________
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. júlí 1987 til 10. janúar 1988 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006 hinn 1. janúar 1985
til 1913 hinn 1. janúar 1988.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gialddaga.
Innlausn vaxtamiða nr. 6 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. janúar 1988.
Reykjavík, 31. desember 1987
SEÐLABANKIÍSLANDS
Dregib uar fyrst í Jólahappdrættí Sfifi þ. 3. des. um 10 S0NV SRF-6
ferbaútuarpstækí. Upp komu eftirtalin númer;
1144 13959 39787 44163 47552
48710 59856 103064 105376 115665
Þar sem útsending miba dróst ó langinn hefur stjórn Sflfi
ókuebib, ab sú regla gildi um þennan fyrstp drótt, ab dagsetning
greibslu skipti ekki móli. Ef mibi et greiddur uerbur tækib afhent.
10 stk. S0NV D-30 ferbageislaspilarar komu á númer (þ.t O.des);
19155 19581 28812 31263 39424
65772 85089 85659 98833 121327
10 stk rafdrifnir leikfangabílar komu ó númer (þ.17.des);
17770 26928 30853 41527 71187
78352 94343 99278 102790 108002
5 stk Pajero jeppar lengri komu ó númer (þ.2G.tíes);
841 43662 86610 107266 121439
5 stk Pajero jeppar styttri komu á númer (þ.26.des);
443 3478 43913 93601 103941
Númer gírósebilsins er happdrættisnúmerib. Uinninga ber ab
uitja ó skrifstofu Sfifl Síbumúla 3-5 Reykjauík. Simi 91-62399.
Þökkum stubning nú sem fyrr.