Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Blaðsíða 26
58
MIÐVIKUDAGÚR 30. DESEMBER 1987.
Hvað er þér miimisstæðast frá árinu 1987?
Sigurður P. Sigmundsson:
Kosningamar
mjög
minnisstæðar
Gyffi Kristjánssan, DV, Akureyri
„Af landsmálunum eru mér kosn-
ingamar í vor minnisstæöastar og
þá ekki síst aðdragandi þeirra og
úrslit. Þaö gekk ýmislegt á og er
skemmst að minnast samskipta Þor-
steins og Alberts," segir Sigurður P.
Sigmundsson, framkvæmdastjóri
Fiskmarkaðar Norðurlands á Akur-
eyri.
„Hvað snertir mig persónulega þá
er efst í huga að ég tók við nýju starfi
er Fiskmarkaður Norðurlands hóf
starfsemi í haust og það að rífa sig
upp og flytja í annan landsfjórðung
er auðvitað minnisstætt.
Ég er bjartsýnn á framtíð fisk-
markaða á næsta ári og sýnast þau
mál stefha í rétta átt. Hins vegar hef
ég áhyggjur af gengisstefnu stjóm-
valda og fiskvinnslunni í landinu í
framhaldi af því. Ég vona að mönn-
um takist að finna réttu lausnina á
þessu vandamáli og einnig að það
dragi úr hinu gegndarlausa kaupæði
almennings,“ sagði Sigurður.
SigfusJónsson bæjarstjóri:
Afmælishald
Akureyrarbæjar
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri
„Það koma ýmis mál upp í hugann
og fyrst mætti minnast á 125 ára af-
mælishald Akureyrarbæjar 29. ágúst
en það tókst mjög vel,“ sagði Sigfús
Jónsson, bæjarstjóri á Akureyri.
„Fyrri hluta ársins glímdum við
við skuldamál hitaveitu bæjarins og
í framhaldi af því náðist samlkomulag
við ríkisstjómina um að lækka hita-
veitugjald til almennings. Af öðmm
atburðum ársins minnist ég sam-
Við sendum starfsfólki okkar, viðskiptavinum
og landsmönnum öllum óskirum farsælt komandi
ármeð þökk fyrir samstarfið á liðnum árum.
EIMSKIP
þykktar um rýmri opnunartíma
verslana á Akureyri, einnig er Út-
gerðarfélag Akureyringa eignaðist
sinn 6. togara og 50 ára afmælis at-
vinnuflugs á íslandi sem haldið var
upp á hér í bænum.
Hvað snertir mig persónulega er
mér minnisstæðast að við hjónin
eignuðumst dóttur hinn 9. nóvember.
Mér líst ljómandi vel á nýja árið,
það hefur verið mikið góðæri og ég
lít því björtum augum fram á við,“
sagði Sigfús Jónsson.
Ingimar Eydal:
TVær utan-
landsferðir
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Tvennt er efst í huga mér um þessi
áramót,“ sagði Ingimar Eydal,
hljómlistarmaður og kennari á Ak-
ureyri.
„Ég tók þátt í tveimur utanlands-
feröum með bömum frá Akureyri -
annars vegar krökkum úr blásara-
sveit Tónlistarskólans og hins vegar
barnakór úr Barnaskóla Akureyrar.
Þetta voru ævintýraferöir og mjög
gaman að fylgjast með þessum ungu
og hressu æskuhópum á erlendri
grundu.
í Færeyjum lagði ég drög að af-
mælishaldi hljómsveitar minnar. Sú
spurning vaknaði hvort hægt væri
að gæða gamla tónlist okkar því lífi
að höfðaði til fólks í dag. Frumsýning
dagskrár með „Stjömum Ingimars í
25 ár“ er mér mjög minnistæð. Við
stóðum skjálfandi á beinunum bak
við sviðið en þegar fagnaðarlæti
áhorfenda glumdu við undir forspil-
inu vissi ég að allt mundi ganga vel.
Nýja árið leggst vel í mig. Ég er
kominn með nýtt hljóðfæri í stofuna
hjá mér, rafeindapíanó, og ég hlakka
til að takast á við verkefnin sem bíða
mín, bæði í skólanum og í Sjallan-
um.“
Urval
HITTIR
NAGLANN
Á HAUSINN