Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Blaðsíða 24
24
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987.
íþróttir
ZSKA Moskva hafnaði
tilboði Víkinga um
tvo leikí í Höllinni
- ZSKA taldi áhættuna of mikla eftir að hafa spurst fýrir um Víkinga
„Það gefur auga leið að allur kostn-
aður samfara leikjunum gegn ZSKA
Moskva verður gríðarlega mikill. í
framhaldi að því fórum við þess á
leit við forráöamenn sovéska liðsins
að leika báöa leikina hér á landi,“
sagði Hallur Hallsson, formaður
handknattleiksdeildar Víkings, í
samtali við DV í gær.
Eins og kunnugt er leika Víkingar
gegn ZSKA Moskvu í átta liða úrslit-
um Evrópukeppninnar í handknatt-
leik en sovéska liðið hefur verið í
fremstu röð í heiminum mörg und-
anfarin ár og meðal annars orðið
Evrópumeistari.
„Samningaviðræður varðandi það
að leika báða leikina hér á landi voru
komnar langt á veg og hnur farnar
að skýrast en þá kom skyndilegt bak-
slag í viðræðurnar. Skeyti kom frá
þeim þar sem þeir sögðu áhættuna
að leika báða leikina hér á landi of
mikia. Við erum þess fullvissir að
þeir hafi spurst fyrir um gengi okkar
í Evrópukeppninni til þessa og kom-
ist síðar að þeirri niðurstöðu að við
værum of sterkir mótherjar til að
leika báða leikina hér,“ sagði Hallur.
„Við buðum þeim að þeir kæmu
frítt út úr þessu dæmi og að auki
buðum við aukagreiðslur sem þeir
voru mjög tilkippilegir fyrir. Kostn-
aður aðeins hvað varðar ferðalagið
til Moskvu er um 40 þúsund krónur
á hvern leikmánn sem gerir um 800
þúsund krónur þegar upp er staðið
sem er ekkert smáræði," sagði Hall-
ur Hallsson.
• Þess má einnig geta að Víkingar
hafa farið þess á leit við Alþjóða
handknattleikssambandið að eftir-
litsdómari verði á leiknum í Moskvu
en enginn slíkur átti að verða á leikn-
um. Ákveðið er að dómarar frá
Júgóslavíu dæmi leikinn í Moskvu
og án eftirlitsdómara þykir Víking-
um líklega of áhættusamt að leika.
• Félögin hafa komið sér saman
um að leika fyrri leikinn í Reykjavík
21. febrúar og viku síðar í Moskvu.
Sovéska hðið hefur innan sinna vé-
banda tvo landsliðsmenn. Liðið sat
yfir í fyrstu umferð keppninnar en í
2. umferð sigraöi liðið ungverska hð-
ið Vezbrem örugglega á heimavelh
en jafnt varð í síðari leiknum sem
fram fór í Ungverjalandi.
-JKS
Islenska kvennalandsliðið í blaki í Lúxemboig:
Lenti í sterkari riðlinum
og hafnaði í fimmta sæti
íslenska kvennalandsliðið í blaki
tók þátt í Pullman-cup í Lúxemborg
17.-20. desember síðastliðinn. Sex lið
kepptu á mótinu og var þeim skipt í
tvo riðla. íslenska liöið var í riðli
með Lúxemborg'og Suður-Kóreu. í
hinum riölinum voru Skotar, Eng-
lendingar og Færeyingar.
Fyrsti leikur íslenska liðsins var
við S-Kóreu og tapaðist hann, 3-0, en
í tveimur hrinunum urðu úrslit 15-9
og 15-10. Næsti leikur var við Lúx-
emborg. íslensku stúlkurnar byrj-
uðu hann mjög vel og sigruöu í fyrstu
hrinu. Næstu tvær vann Lúxemborg
naumlega og í þeirri þriðju voru ís-
lendingar yfir, 14-12, og fengu 5
tækifæri til að gera út um hrinuna.
Það tókst ekki og þar með töpuðu
þær leiknum, 3-1. Með þessu tapi
hafnaði liðið í neðsta sæti í riðlinum
og komst því ekki í íjögurra hða úr-
slit. íslenska liðið fékk mun fleiri stig
í leiknum við Suður-Kóreu en Lux-
emborg í riðlinum.
í hinum riðlinum unnu Englend-
ingar báða sína leiki, 3-0, og Skotar
unnu Færeyinga. Þar af leiöandi var
það hlutskipti Íslendinga að keppa
við Færeyinga um 5. sætið. Þeim leik
lauk meö sigri íslenska liðsins, 3-1.
í úrslitakeppninni sigraði Lúxem-
borg England, 3-2, í mjög jöfnum og
skemmtilegum leik. S-Kórea sigraði
Skotland auðveldlega, 3-0. Það voru
þvi Lúxemborg og S-Kórea sem léku
til úrslita en England og Skotland
um 3. sætið. S-Kórea sigraði Lúxem-
borg, 3-1, og varð þar meö sigurveg-
ari og England varö í 3. sæti eftir 3-0
sigur á Skotlandi.
Mjög vel var að mótinu staðið og
móttökurnar á Hótel Pullman (áður
Holiday Inn) voru frábærar.
-B
UXEMBOURC
íslenska landsliðið í Lúxemborg. Efri röð frá vinstri: Kjartan P. Einarsson, formaður BLÍ, Birna Hallsdóttir, Björk
Benediktsdóttir, Ursula Junemann, Oddný Erlendsdóttir, Sveinbjörg Pálmarsdóttir, Snjólaug Bjarnadóttir, Berglind
Þórhallsdóttir fararstjóri og Leifur Harðarson þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Særún Jóhannsdóttir, Þorbjörg Rögn-
valdsdóttir, Málfríður Pálsdóttir, Sigurborg Gunnarsdóttir, Jóhanna Guðjónsdóttir og Hildur Grétarsdóttir.
Sigur Islands gegn Sviss í Israel
íslenska landsliðið í knattspymu,
sklpaö leikmönnum 18 ára og yngri,
sigraði lið Sviss 1 gær með þremur
mörkum gegn tveimur á alþjóðlega
mótinu í Israel.
Svisslendingar skoruðu fyrsta
mark leiksins en síðan fylgdu þrjú
íslensk í kjölfariö. Bjami Benedil
son jaftiaðj metin, Steinar Guðgeirs-
son kom Islandi i 2-1 og Haraldur
Ingólfsson skoraöi þriöja markið.
Svisslendingar náou síðan að
minnka muninn í 8-2 fyrirleikslok.
• Þetta var fVrsti sigurleikur Is-
lenska liðsins á mótinu ejj í fyrstu
tveimur leikjunum tapaði Island fyr-
ir ísrael og Póhandi. I dag leikur
Island gegn Kýpur og gegn Ungverj-
um á morgun en Ungveriar eru
ólitnir með sterkasta lið mótsins.
Þess má geta að Láras Loftsson
stjómaði íslensku landshði í 100.
skipö í gær gegn Sviss.
Þorgils Óttar MathÍGSSn átti stórleik gegn Dönum i gærkvöldi og skon
Alþjóðlegt mót landsliða í ha
„Þaðerall
aðsigraís
- sagði Andevs Dahl Nielsen, þjátfari Dar
Brynjar Steönsson, DV, Danmörku:
„Þetta var mjög góður leikur og það
er alltaf gaman að sigra íslendinga. Ég
get sagt það eitt um dómarana að leikur-
inn var það spennandi að ég hafði engan
tíma til að fylgjast með þeim,“ sagði
Anders Dahl Nielsen, landsliðsþjálfari
Dana í handknattleik, eftir að Danir
höfðu sigrað íslendinga á alþjóðlega
mótinu hér í Danmörku í gærkvöldi
með 25 mörkum gegn 24 eftir aö staðan
í leikhléi hafði verið 12-15, Dönum í vil.
ísland var alltaf
undir í baráttunni
íslenska hðið átti alltaf í vök að veí*j-
ast í leiknum í gærkvöldi. Danir komust ^ oc,eu.
í 3-8 í fyrri hálfleik og þar með var það Sigurður Sveinsson eftir leikinn í gær-
orðið hlutverk íslenska liösins að vinna kvöldi.
þann mikla mun upp. „Fyrri hálfleikur
hjá okkur var lélegur en þetta var betra
í þeim síðari. Ég er mjög ánægður með
að við gáfumst aldrei upp í leiknum,"
sagði Einar Þorvarðarson markvörður
eftir leikinn.
Miklir heimadómarar
frá Vestur-Þýskalandi
• í síðari hálfleiknum náöu Danir
mest fimm marka forskoti en íslenska
liðinu tókst að minnka muninn í eitt
mark undir lok leiksins.
• Vestur-þýskir dómarar dæmdu
leikinn og voru miklir heimadómarar.
„Þessir dómarar eru frægir í Vestur-
Þýskalandi og þykja mestu heimadóm-