Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987. Hvað er þér miimisstæðast frá árinu 1987? DV Ólafur Ragnar Grímsson: Lýðræðislegur styrkur-áfang- ar í afvopnun „Þegar litiö er yfir áriö 1987 er tvennt efst í huga,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, formaöur Al- þýðubandalagsins. „í fyrsta lagi sá mikli lýöræðislegi styrkur sem Alþýðubandalagið sýndi með opinni umræðu um stöðu flokksins og víðtækri þátttöku flokksmanna í vali á nýrri forystu. Það hefur aldrei gerst áður í íslensk- um stjómmálum aö stjórnmála- flokkur hafi á svo opinn, hreinskil- inn og lýðræðislegan hátt gefið allri þjóðinni kost á að fylgjast með úr- lausn viðkvæmra vandamála. Niðurstaðan varð sú að Alþýðu- bandalagið er sterkara og heilsteypt- ara við lok ársins en það var áður og hefur skapað mikilvægt lýðræöis- legt fordæmi fyrir allt stjórnmálalífið í landinu. i öðru lagi eru hin miklu þáttaskil sem urðu við undirritun afvopnun- arsamningsins í Washington. Nú hefur vígbúnaðarhjólinu verið snúið við og samið um raunverulega fækk- un kjarnorkuvopna. Markmiðið er heimur án kjamorkuvopna og nýtt alþjóðlegt öryggiskerfi sem ekki hvíl- ir á gagnkvæmum tortímingarhót- unum hernaðarbandalaga. Fyrsta skrefið hefur veriö stigið í þá átt. Gömlu vígbúnaðarkenningarnar eru ekki lengur í gildi. Á nýju ári mun íslenska þjóðin þurfa að glíma við margvísleg vanda- mál vegna þess að forystuflokkar fráfarandi ríkisstjórnar og núver- andi ríkisstjórnar hafa allt liðið ár komið í veg fyrir að tekið væri á hin- um raunverulegu vandamálum efnahagslífsins. Þeir töldu af póli- tískum ástæðum nauðsynlegt að viðhalda blekkingunum um að tekist hefði að ráöa við verðbólguvandann. Nú er hins vegar komið að því að vemleikinn krefst aðgerða. Þess vegna mun glíman við efnahags- syndir liðins árs setja afdrifaríkan svip á atburðarás ársins 1988,“ sagði Ólafur Ragnar. -KMU Egill Ólafsson: „Þetta var farsælt og gæfuríkt ár“ „Þetta var farsælt og gæfuríkt ár,“ sagði Egill Ólafsson Stuðmaður í samtali við DV. „Það sem mér er þó einna minnisstæðast er að ég lék í myndinni hans Hrafns Gunnlaugs- sonar, í skugga hrafnsins. Þetta var ný reynsla fyrir mig. Annað hef ég ekki að segja um árið 1987. Varðandi næsta ár get ég bara sagt það sem ég hef oft sagt í fjölmiðlum áður; ég býst aldrei við neinu, þess vegna er hamingja mín alltaf ein- hver.“ Bjartmar Guðlaugsson: „Mengun skæðari en kjamorka og eyðni" „Hvað sjálfan mig varðar er mér ofarlega í huga aö mér gekk vel á tónlistarsviðinu á árinu sem er að líða. En hvað varðar þjóðmálin er ég spældur yfir kosningaúrslitunum og mér finnast pólitíkusamir, sem eru við völd, vera slappir. Ég vona þó að þeir standi sig betur á næsta ári og hef ég því hugsað mér að hjálpa þeim svolítið í textunum mínum. Auglýs- ingamennskan og glamúrinn í kringum kosningabaráttuna fór einnig í taugarnar á mér því málefn- in véku þar gjörsamlega fyrir auglýs- ingamennskunni. A næsta ár er ég bjartsýnn - bæði fyrir sjálfan mig og aöra tónlistar- menn. Það er mikilvægt að íslenskar hljómplötur seljist vel en það er for- sendan fyrir því að íslenskt tónlistar- fólk geti starfað. Einnig vona ég að ráöamenn heimsins sjái um að friður verði hér á jörðinni. Mín stærsta ósk er þó sú að jarðarbúar beiti sér fyrir auknum mengunarvörnum á næsta ári. Þeir þurfa að gera sér grein fyrir því að mengun stofnar lífríki jarðar- innar alvarlega í hættu og hún er miklu skæðari en kjarnorkubomban eða eyðni. Annars óska ég bara plötukaupendum mínum og öllum öðrum landsmönnum gleðilegs nýs árs.“ -JBj Guðjón B. Ólafsson: Veikleiki dollarsins „Veikleiki dollarsins er mér einna efst í huga á árinu sem nú er að líða,“ sagði Guöjón B. Ólafsson, forstjóri Sambands íslenskra samvinnufé- laga. „Þetta kom talsvert á óvart og olli íslenskum útflutningsiönaði miklum og vaxandi erfiðleikum. Á nýju ári óttast ég að þeir sem standa hér í atvinnurekstri muni eiga erfiðleikatímabil framundan og ég óttast aö heildarviðskiptakjör þjóðarinnar verði ekki eins hagstæð á næsta ári og þau hafa verið undan- farin tvö ár. Ég vil kannski helst mega vænta þess sem afleiðingu af því að við lærum betur að stýra okk- ar þjóðarbúi og efnahagskerfi og nýta okkur betur þær takmörkuðu auð- lindir sem við eigum - læra sem sagt betri og hagkvæmari vinnubrögð.“ Guðjón B. Ólafsson. -JSS HAGKAU P Reykjavík Akureyri Njarðvík , - / * Við ósíqxm íandsmönnum öCCum , * árs ogfriðar * * * Opnum aftur þriðjudaginn 5. janúar * ¥ *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.