Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987.
Útlönd
íMK
hefur gerst þrátt fyrir tllraunir seölabanka og annarra stofhana til þess
að hefta fall hans.
gagnvart yeni lægst veriö 122,75.
Þessi þróun dollarans ollí í gær
Jones vísitalan um liðlega sextán stig.
Urtetumar fals eítt
Sovéskur andófsmaöur, Isolde
Tufeld, sem nýlega var heimilaö aö
yfirgefa Sovétríkin til þess aö Ieita
sér læknisþjálpar í Bandaríkjun-
um, sagði í gær að yfirlýst úrbóta-
stefna sovésku ríkisstjórnariimar
væri fals eitt. Sagði Tufeld að gyö-
ingar, sem óskuðu eftir að yfirgefa
Sovétríkin, sættu nú enn ákafari
ofeóknum en verið hefði.
Sagði Tufeld aö Mikhail Gor-
batsjov, aöalritari sovéska
kommúnistaflokksins, væri hörku-
tól og aö margir gyðingar liföu viö
mikinn ótta og vonleysi í tilraunum
sínum til aö fá að flytj ast úr landi.
Geimfart með heimþrá
Sovéski geimfarinn Yuri Roman-
enko sneri til jarðar í gær eftír að
hafa dvaliö þijú hundruö tuttugu
og sex daga úti i geimnum en það
er nýtt geimdvalarmet. Roman-
enko mun því fagna nýju ári í faðmi
fjölskyldunnar en hann vakti með-
al annars athygli meðan á geim-
dvölinni stóð raeð því að seglast
þjást af heimþrá.
Fyrsta læknisrannsókn í gær
staðfesti að Romanenko væri viö
góða heilsu.
Á barmi hyfdýpis
• Tvö einbýlishús, skammt frá
Miöjarðarhafsströnd Frakklands,
ramba nú á barmi hyldýpis sem
opnaðist viö jarðrask af völdum
neðanjarðarskriöufalla á svæðinu
í gær.
Jarðrask þetta átti sér stað við
bæina Tourettes og Fayence, ná-
lægt Miðjarðarhafsströnd Frakk-
’ands, síöastliðinn sunnudag. íbúar
bæjanna, sera flestir voru úti við,
heyröu skyndilega miklar drunur
og á, sem rennur við bæina, þorn-
aði upp. Við athugun reyndist
mikið hyldýpi hafa opnast skammt
frá bæjunum. Var það í fyrstu áætl-
að sextíu til áttatíu metra djúpt og
ura fimmtán metrar í þvermál. Það
stækkaði þó rajög ört, einkum
vegna þess að áin streymdi niður
um það í neðanjarðarstöðuvatn
sem kom í ljós við jarðraskið.
Mínútu þögn
íbúar Perú mótmæltu í gær vax-
andi ofbeldisöldu í stjórnmálum
landsins með einnar mínútu þögn,
kirkjuklukkum var hringt og hvit-
um friðardúfum sleppt. Lögregia
og slökkviliö í landinu þeyttu einn-
ig lúðra til þess að marka þessar
friösamlegu aðgerðir sem beint var
gegn sljómmálaofbeldi sem kostað
hefur nær líu þusund mannslíf á
undanförnum sjö árum.
Nær helmingur
ónothæfur
Fjórir tæknimenn létu lífið í gær ton Thiokol við Brigham City í Utah
þegar sprenging varð í MX-flaug á í Bandaríkjunum.
tilraunaskotstað fyrirtækisins Mor- Óhapp þetta er enn eitt í langri röð
Frá tilraunaskotsvæði Morton Thiokol við Brigham City.
Símamynd Reuter
áfalla sem orðið hafa í framleiðslu
og uppsetningu MX-flauganna, sem
eru stórvirkasta vopnið í kjarnorku-
vopnabúri Bandaríkjamanna. Fjöru-
tíu prósent af þeim þrjátíu
MX-flaugum, sem þegar hefur verið
komiö fyrir í skotsílóum, eru í dag
taldar ónothæfar vegna þess að tafir
í framleiðslu undirverktaka hafa
valdið því að flugstjórnarkerfi flaug-
anna er óvirkt.
Gagnrýnendur segja að gallarnir í
stjórnkerfi flauganna séu svo alvar-
legir að þær gætu átt þaö til að lenda
í Bandaríkjunum í stað þess að fljúga
til fyrirhugaðra skotmarka í Sovét-
ríkjunum, ef til þeirra þyrfti að grípa.
Nokkrar opinberar stofnanir og
nefndir bandaríska þingsins hafa
þegar byijað rannsóknir á ásökun-
um um slælega stjórn, lélegt gæðaeft-
irht og svik við framleiðslu
flauganna.
MX-flaugunum er ætlað að bera
allt að tíu kjamaodda til skotmarka
í allt að ellefu þúsund kílómetra fjar-
lægð frá skotstað.
Sextán féllu fyrir hendi óðs manns
Lögreglan í Russellville í Arkansas í
Bandaríkjunum hefur nú fundið alls
sextán lík þeirra er urðu fómarlömb
óðs manns um hátíðarnar.
Ejórtán fórnarlambanna voru úr
fjölskyldu byssumannsins sem
ákærður hefur verið fyrir að skjóta
tvo samstarfsmenn sína.
í gær fann lögreglan sjö lík grafin
nálægt heimili mannsins en á mánu-
daginn fann lögreglan fimm lík
útötuð blóði á heimili hans. Tvö ung-
börn fundust myrt í farangurs-
geymslum tveggja bíla. Maðurinn,
sem er verslunarmaður, er grunaður
um að hafa orðið að bana eiginkonu
sinni, þremur sonum, fjómm dætr-
um, fjómm barnabörnum, tengda-
syni, tengdadóttur og tveimur
öðmm.
• Verslunarmaðurinn var handtek-
inn á mánudaginn eftir að hafa
Sjö lik fundust grafin nálægt heimili verslunarmanns í Arkansas í gær og
er nú fjöldi þeirra sem talinn er hafa falliö fyrir hendi hans orðinn sextán.
Simamynd Reuter
gengið berserksgang um götur bæj- AUt bendir til að fjölskyldan hafi
arins. Skaut hann þá til bana tvo veriö myrt fyrir jól. Jólagjafimir
menn og særði fjóra. lágu óopnaðar undir jólatrénu.
Strauss talaði máli Rusts
Gizux Helgason, DV, Lubedc
Franz-Josef Strauss, forsætisráð-
herra Bæjaralands í Vestur-Þýska-
landi, stakk upp á því í gær við
Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtoga að
fangelsisvist Mathiasar Rust, ofur-
hugans unga sem lenti á Rauöa
torginu í Moskvu í maí, yrði stytt.
Ekki er vitað hvemig Gorbatsjov tók
þeirri málaleitan.
Strauss, sem er einn helsti leiðtogi
hægri manna í Vestur-Þýskalandi,
er í opinberri heimsókn í Sovétríkj-
unum og flaug hann sjálfur Cessna
flugvél sinni inn til lendingar á Sjere-
metjevo flugvellinum rétt utan við
Moskvu á mánudaginn. Sennilega
hefur það ekki hvarflað að honum
aö feta í flugleið landa síns, Mathias-
ar Rust, og lenda á Rauða torginu
enda þótt þaö hefði sparað mjög svo
fjölmennri móttökunefnd vemlegan
bíltúr.
Á mánudagskvöld átti Strauss
tveggja tíma fund með Edvard Sé-
vardnadze, utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna, og í gær sat hann svo
þriggja tíma fund með Mikhail Gor-
batsjov í Kreml.
Að fundinum loknum hélt Strauss
blaðamannafund og átti vart orð til
að lýsa yfir ágæti Gorbatsjovs.
Strauss sagði aö hann hefði í viðræð-
unum bent Gorbatsjov á að þýsku
ríkin tvö hefðu í dag, eftir að samn-
ingarnir um meðaldrægar eldflaugar
væru í. höfn, mestar áhyggjur af
skammdrægum eldflaugum. Sagði
Strauss að Gorbatsjov hefði tekið vel
í að láta kanna þau mál verulega á
næstunni.
Franz-Josef Strauss hefur aldrei
sótt Sovétríkin heim áður en hann
hefur aftur á móti farið í opinberar
heimsóknir til Austur-Þýskalands,
Kína og Albaníu. Fyrir hann er það
töluverður heiður aö fá að eiga við-
ræður við Gorbatsjov en slíkt hefur
ekki ennþá fallið í skaut Helmut
Kohl kanslara.
Auðvitað er Strauss mættur í
Moskvu sem forsætisráðherra Bæj-
ararlands en ekki síður sem flokks-
formaður hægri vængs Bonnstjóm-
arinnar. Bonnstjórnin hefur oft átt í
brösum með Strauss og það er vitur-
legt hjá ráðamönnum í Moskvu að
tryggja sér stuðning hans áður en
fundum Gorbatsjovs og Kohi ber
saman. Það verður unnið að því öll-
um ámm á komandi vikum og
mánuöum að bæta sambúð Vestur-
Þýskalands og Sovétríkjanna og
minnka tortryggni milli ríkjanna.
Eftir þijár vikur kemur Sévardnad-
ze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna,
í opinbera heimsókn til Bonn en sú
heimsókn hefur verið lengi og vendi-
lega undirbúin af vestur-þýska
kolleganum Genscher.
Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi og Franz-Josef Strauss, forsætisráóherra
Bæjararlands, í upphafi viöræðna sinna i gær. Sfmamynd Reuter