Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Blaðsíða 8
Útlönd MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987. DV Tilbúinn að hlusta Daniel Ortega, forseti Nicaragua, sagði 1 gær að ef fulltrúar kontra- skæruliða reyndust reiðubúnir til þess aö mæta v-þýska stjórnmála- manninum Hans-Júrgen Wizchnew- ski og bandaríska lögfræðingnum Paul Reichler, sem fulltrúum stjóm- valda í Nicaragua, myndu hann og ríkisstjórn hans á móti verða fús til að hlusta á nýjar hugmyndir frá kontrahreyfingunni. Svo virðist sem Ortega sé nú reiðu- búinn til þess að sýna vilja til málamiðlunar, í því skyni að koma á friðarviðræðum milli kontrahreyf- ingarinnar og stjórnvalda í Nic- aragua að nýju. Upp úr viðræðunum slitnaði skömmu fyrir jól, þar sem fulltrúar kontraskæruliða kröföust þess að fá að hitta fulltrúa stjórn- valda augliti til auglitis, en viður- kenndu ekki Reichler og Wizchnew- ski sem verðuga talsmenn þeirra. Ortega virtist í gær jafnmótfallinn beinum samningaviðræðum ennþá, en fullyrti að Reichler og Wizchnew- ski væru fulltrúar stjórnar sinnar gagnvart kontramönnum og að næstu viðræður yrðu haldnar í Pa- nama eða Belize. Talsmaður kontraskæraliða sagði í gær að leiðtogar þeirra vildu fá tækifæri til þess að ræða þessi mál við Miguel Obando y Bravo kardin- ála, sem gegnt hefur hlutverki sáttasemjara í tilraununum til frið- arviðræðna milli stríðandi aðila í Nicaragua, áður en þeir tækju af- stöðu til þeirra. Obando sagði að ef skæruliðarnir gengju að tillögum Ortega myndi hann sjálfur beita sér fyrir beinum viðræðum milh kontraskæruliða og stjórnvalda síðar. Daniel Ortega, forseti Nicaragua, ræðir við fréttamenn í gær. Simamynd Reuter GEYSIFJÖLBREYTT ÚRVAL - GERIÐ VERÐSAMANBURÐ OPIÐ 30. DES.TILKL. 18.30, OG GAMLÁRSDAG TIL KL. 12.00. Ánanaustum, Grandagarði 2, símgr 28855 - 13605. Tíl skipa: Pains Wessex línubyssur, svifblys og handbiys - vörur með gæðastimpli. Farið varlega. Gleðilega hátíð. E EUnoCARD F L 1 G E L D A R 1 7 0 Á R 1200- ;:;t nö‘2 ;tk 1 Hfl fl — NO 3 M60 stk. 2500 ;ísSlí^j;-:T o jjjjjj v) m

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.