Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987. Neytendur Nýár hjá öldurhúsum Gamlárskvöld er líklega eitt mesta skemmtikvöld ársins hjá íslending- um. Þá er nánast skylda aö skralla fram á nótt enda gera menn það baki brotnu. Skemmtistaðirnir láta ekki sitt eftir liggja og keppast við að aug- lýsa sem veglegast knall þetta kvöld, mikiö er í húfi því áfengisneysla er bklega aldrei meiri en einmitt þetta kvöld og áfengissala er einmitt ein helsta tekjulind öldurhúsa. Hin síðari ár hefur það og færst í vöxt að halda nýársgleði. Hún er haldin að kvöldi fyrsta dags ársins og ber nokkuð annað svipmót en gamlárskvöld. Þetta kvöld eru haldn- ar skemmtanir í ýmsum öldurhúsum og er allt gert til að þær séu sem veglegastar. DV kannaði lítillega verð á skemmtunum þessi kvöld en þær eru mun dýrari en gengur og gerist. Miðaverð á gamlárskvöld reyndist lægst í Casablanca 1.000 kr. en hæst í Hótel íslandi, þar sem miðinn kost- ar i.500 kr. Yfirleitt eru hattar og knöll innifalin i verðinu og stundum eitthvert miðnætursnarl, t.d. á Hótel íslandi og í Broadway. Á þessum böllum eru ýmist hljómsveitir eða diskótek. Á nýárskvöld er verö nokkuð með öðrum hætti enda eru skemmtanir mun fínni. Einn heimildarmaður DV í skemmtanaiðnaðinum sagöi að þessi böll væru haldin til að fólk fengi tækifæri til aö fara út að skemmta sér í sparifótunum án þess að eiga það á hættu að þau yrðu eyöilögö. Þetta eru sannkallaöar hátíðir, viða- miklar skemmtidagskrár frumsýnd- ar og fjórréttaðir kvöldverðir innifaldir í verði. Verö á slíkri skemmtun reyndist lægst í Þórscafé þar sem miðinn kostar 3.700 kr. en hæst í Hótel íslandi þar sem miðinn kostar 7.500 kr. Þar er reyndar þegar uppselt. í Súlnasal kostar miðinn 7.300 kr. og í Broadway 4.500 kr. í Leikhúskjallaranum hittist hópur sem kallar sig ’68 kynslóðin í einka- samkvæmi. -PLP Nýársböll njóta vaxandi vinsælda þótt dýr séu. Þegar brennu lýkur er gjarnan skundaó á ball. Miðaverð á gamlárskvöld Casablanca Evrópa Útópía Broadway Hótel Borg Hótel ísland 2000 Munið að ný filma fylgir framköllun. Nýir móttökustaðir: ÍÁlroirí írslun Isafoldar, Austurstræti. Veið ihúsið, Nóatúni Sport búðin, Vöivufelli Bóka- og rit rangahustð, Gerðubergi Gler augna deildin, Austurstræti * iPtap) I J Q . *r. BHH . 1$ LJ o .4; ;.i., |H KíAA-. Gleðilegt nýtt ár! Simi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.