Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Page 28
60 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987. Hvað er þér mirmisstæðast frá árinu 1987? Pétur Einarsson: Ferð til Kúbu Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii „Mér er efst i huga ferð sem ég fór til Kúbu en þar sat ég þing Alþjóða leikhúsmálastofnunarinnar. Það var fróðlegt að koma til Kúbu og þar hitti ég m.a. Castro sjálfan og fleiri stór- rnenni," sagði Pétur Einarsson, leikhússtjóri á Akureyri. „Þríhliða samningur ríkisins, Ak- ureyrarbæjar og Leikfélags Akur- eyrar er einnig mjög ofarlega í huga mínum. Sá samningur losaði Leik- félagið við langan skuldahala að langmestu leyti og var það fagnaðar- efni litlu leikfélagi sem á í erfiðleik- um með að draga slíkan hala á eftir sér. Af landsmálunum er mér afar minnisstæð stjórnarmyndunin í vor og sumar, einnig fjölmiðlabyltingin sem hér hefur átt sér stað. Fjölmiðl- arnir hafa hellst yfir okkur af fullum krafti með bæði góðum og slæmum afleiðingum. Ég vona bara að okkur takist að verjast slæmu áhrifunum. Nýja árið leggst vel í mig. Ég sé fram á annasaman tíma enda eigum við eftir að frumsýna bæði Horft af brúnni og Fiðlarann á þakinu áður en starfsárinu lýkur,“ sagði Pétur. VaHýr Sigurbjamarson: Jarðgöng í Ólafsfjarðar- múlanum Gylfi Kristjánsaon, DV, Akureyri „Mál málanna hjá okkur Ólafs- firðingum er auðvitað sú ákvörðun ríkisstjómarinnar að heimila að hafnar verði framkvæmdir við gerð jarðganga í Ólafsfjarðarmúla á næsta ári,“ sagði Valtýr Sigurbjarnarson, bæjarstjóri á Ólafsfiröi. „Hvað varðar atvinnulífið þá er efst í huga að við fengum hingað nýjan togara, Mánaberg, og togarinn Ólafur bekkur kom heim eftir endur- smíði í Póllandi. Þetta á eftir að hafa geysimikil og góð áhrif á atvinnulífið hér í bænum. Mér er einnig mjög minnisstætt er knattspymulið Leifturs vann sér sæti í 1. deild. Margir leikir liðsins í sumar em ofarlega í huganum en enginn þó eins og úrslitaleikurinn við Þrótt og gleðin er úrslitin lágu fyrir. Hvað varðar nýja árið er mér jarð- gangagerðin efst í huga, að þær framkvæmdir gangi vel. Þetta er það mál sem skiptir okkur mestu varð- andi það að menn telji gott að búa hér í framtíöinni," sagði Valtýr. Er vegurinn háll? Vertu því viðbúin/n að ■ vetrarlagi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.