Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Side 29
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987. 61 Hvað er þér miimisstæðast frá árinu 1987? Þorsteinn Baldvinsson: Góður sjávarafli Gyifi Kiistjánssan, DV, Akureyri „Þaö sem mér verður minnisstæö- ast frá árinu er góður sjávarafli lengst af og þaö hversu árið verður gott fyrir sjávarútveginn í heild,“ sagði Þorsteinn Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Samheija á Akureyri. „Varðandi landsmálin eru það að- allega atburðir síðustu vikna sem vekja athygli mína. Annars vegar er það getuleysi Alþingis að taka á efna- hagsmálunum og þessi umræða sem hefúr orðið í kringmn flugstöðvar- bygginguna á Keflavíkurflugvelli. Hún lýsir ábyrgðarleysi ákveðinna þingmanna og embættismannakerf- isins sem við búum við. Það er stórfurðulegt hvemig menn afsaka það að hátt í einum milljarði skuli hafa verið eytt þar umfram það sem áætlað var. Næsta ár leggst fremur illa í mig. Ég held að það verði mun erfiðara rekstrarlega hjá útgeröinni og fyrir þjóðarbúið í heild. Það er alltaf erfitt að þurfa að fara að skera niður eftir góðæri eins og nú mun gerast,“ sagði Þorsteinn. Anna Margrét Jónsdóttir. Velgengnin í London „Velgengnin í London, þegar ég varð í þriðja sæti í keppninni um tit- ilinn ungfrú alheimur, er mér minnisstæðust á þessu ári. Einnig er keppnin hér heima um ungfrú ísland mér afar minnisstæð. Þetta ár hefur verið mjög skemmtilegt hjá mér. Þá sérstaklega vegna þátttöku minnar í þessum keppnum. Á nýju ári eru mínar helstu vænt- ingar þær að ég verði áfram heilbrigð og hamingjusöm," sagöi Anna Margrét Jónsdóttir, ungfrú ísland. -sme Sigríður Stefánsdóttin Tvennar kosningar Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyn: „Þjóðmálin hafa einkennst af óró- leika á árinu. Við fengum kosningar með fjölda framboða, erfiða stjómar- myndun og eftirleikurinn er sá að Alþýðuflokkurinn heldur uppi stefnu gegn kjöram almennings,“ segir Sigríður Stefánsdóttir, bæjar- fulltrúi á Akureyri. „Hvað snertir mig sjálfa stóð ég í tvennum kosningum á árinu, annars vegar þingkosningum og hins vegar kosningu um formannsembætti í Al- þýðubandalaginu sem verður mér mjög minnisstætt. Þetta voru ólíkar kosningar, annars vegar að vera að berjast gegn sínum eigin félögum, hins vegar í hinum hefðbundnu kosningum en hvort tveggja mun geymast í minningunni. Hvaö varðar alþjóðamál þá búum við í heimi þar sem ríkir ófriöur, hungur og mengun hijáir fólk og því verður minnisstætt það litla spor sem stigið' var við undirritun þjóð- höfðingjanna í Washington á dögim- um. Þetta var aö vísu lítið spor en það sýnir okkur þó að enn er von. Af heimaslóöum á Akureyri er af- mælishaldið vegna 125 ára afmælis Akureyrar í ágúst mjög minnisstætt og einnig hin eindæma veðurblíða sem viö höfum búið við.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.