Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Qupperneq 30
62
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987.
Hvað er þér miimisstæðast frá árinu 1987? ___________pv
Amór Guðjohnsen:
Belgíutitillinn í
knattspymu
Það sem mér er efst í huga frá ár-
inu sem er að líða er titillinn sem við
unnum með Anderlecht í vor og
reyndar aUt tímabilið í heild sinni.
Ég er ákaflega ánægður með síöasta
ár og með minn hlut í því, það er
búið að vera skemmtilegt. Hvað
næsta ár varðar þá er ég búinn með
samning minn viö Anderlecht í vor
og vonast til að komast í annað gott
hð utan Belgíu, helst til Frakklands,
Spánar eða Ítalíu. Þegar samningur
minn rennur út hjá Anderlecht er
ég búinn að vera 10 ár í Belgíu sem
mér fmnst alveg nóg. -IS
Áimann Reynisson:
Samkomulag
stórveldanna
minnisstæðast
„Af erlendum vettvangi er mér efst
í huga samkomulag Reagans og Gor-
batsjovs í Washington nú í desember
um útrýmingu meðaldrægra kjarn-
orkuvopna. Samkomulag þetta gefur
mannkyninu vonarglætu um bætt-
samskipti þjóða á milli og von um
að sá tími komi að öllum vígvélum
verði útrýmt,“ sagði Armann Reyn-
isson forstjóri.
„Af innlendum vettvangi er þensl-
an í atvinnulífmu mér efst í huga,
myndun nýrrar ríkisstjómar,
óvenjumikil veðurblíða, gróska í
menningarlífinu og jákvæð þróun á
hinum frjálsa íjármagnsmarkaði til
hagsbóta fyrir almenning. Þar þarf
enn að halda á spöðunum.
Persónulega er mér efst í huga hin
mikla uppbygging í fyrirtækjunum
sem ég á hlutdeild í og kaupin á
Ragnarsbajíarii í Keflavík. Mér
fannst ánægjulegt að leggja mitt af
mörkum til þess að 50 manns héldu
vinnu sinni.
Á komandi ári vænti ég friðar og
farsældar fyrir land og þjóð. Ég vona
að ríkisstjómin hafi hemil á verð-
bólgu og vinnudeilum. Útflutningur
á íslenskum vamingi mætti aukast
til muna.
Hið opinbera og einkaaðilar ættu
að sýna meiri skilning á mikilvægi
menningarstarfsemi. Eg vænti þess
að metnaður allra listamanna rísi
hærra en áður því andleg velferð
landsmanna byggist, þegar öllu er á
botninn hvplft, á sífijórri listsköp-
un,“ sagði Ármann Reynisson.
-ATA
Ólafur Þ. Harðarson:
Stjómin heldur
út næsta ár
„í mínum huga ber efst samkomu-
lag Reagans og Gorbatsjovs um
meðaldrægu flaugarnar. Þótt samn-
ingurinn feli í sér tiltölulega litla
fækkun kjarnavopna þá gerir hann
ráð fyrir eyðileggingu vopna og hefur
að geyma ákvæði um eftirlit, en þessi
ákvaeði gera samninginn merkileg-
an,“ sagði Ólafur Þ. Harðarson,
lektor í stjómmálafræði.
„Af innlendum viðburðum ber
kosningarnar og myndun ríkis-
stjórnarinnar hæst. Kosningamar
sýndu að kreppá gömlu fjórflokk-
anna fer enn dýpkandi. Sigur
Kvennalistans, klofningurinn í Sjálf-
stæðisflokknum og sú staðreynd að
Alþýöuflokkurinn fékk í fyrsta skipti
í hálfa öld meira fylgi en Alþýðu-
bandalagið og forverar þess em
tímamótaatburðir í íslenskri stjóm-
málasögu.
Hvað næsta ár varðar þá er erfitt
að spá því í pólitik gerast hlutimir
hratt. Ég á þó von á aö ríkisstjórnin
haldi út árið. Þrátt fyrir ólik sjónar-
mið sfjómarflokkanna og átök á
vinnumarkaði trúi ég því að stjórnin
geti leyst sín mál nema. einhver
stjórnarflokkanna telji sér í hag að
knýja fram kosningar, en það þykir
mér þó heldur óliklegt,“ sagði Olafur
Þ. Harðarson. -''-ATA
Jón Páll Sigmarsson:
Afskaplega
gottár
„Sviptingar í stjórnmálum eru mér
efstar í huga frá árinu sem er að
líða,“ sagði Jón Páll Sigmarsson, afl-
raunamaður og sterkasti maður
heims.
„Hvað sjálfan mig varðar hefur
þetta verið ánægjulegt ár og gott
gengi mitt í íþróttum er þar efst á
blajji.
Ég held að nýja árið verði afskap-
lega gott að öllu leyti. Ég er sérlega
bjartsýnn á gengi íþróttamannanna
okkar á ólympíuárinu og sjálfur kem
ég til meö að taka á enn um sinn,“
sagði Jón Páll Sigmarsson. -ATA
Guðmundur Ágústsson:
Mikil bytting
á mínum högum
„Mér er persónulega langefst í
huga sú mikla bylting sem orðið hef-
ur á mínum högum. Þaö hvarfiaði
ekki að mér í upphafi ársins að und-
ir árslok ætti ég eftir að sitja hér inni
á þingi og rétta upp hendur," sagði
Guðmundur Ágústsson, þingmaöur
Borgaraflokksins.
„Þessi breyting á mínum högum
tengist náttúrlega óijúfanlegum
böndum öðrum atburði ársins sem
mér er sérstaklega minnisstæður, en
það er stofnun Borgaraflokksins.
Þessi flokkur, sem var stofnaður á
örfáum sólarhringum, hefur. þegar
sett sitt mark á íslenska stjAmmála-
söguogégheftrúáþviaðt’ kkurinn
eigi eftir að vaxa og dafna 1 v-amtíð-
inni.
Hvað næsta ár varðar vænti ég
þess að geta staðið mig í stykkinu
hér á þingi, verði verðugur þess
stuðnings og trausts sem ég hlaut í
kosningunum og að ég geti unnið
landi og þjóð eitthvert gagn með
störfum mínum á Alþingj," sagði
Guðmundur Ágústsson. -ATA
Valgerður Svenisdóttir:
Kosninganóttin
ógleymanleg
„Minnisstæðasti atburðurinn er að
sjálfsögðu kosninganóttin. Það er
ógleymanlegt að vera kosin á Al-
þingi,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir
alþingismaður frá Lómatjöm í Suö-
ur-Þingeyjarsýslu. Hún var kjörin á
þing i kosningunum 25. apríl fyrir
Framsóknarflokkinn í Norðurlands-
kjördæmi eystra.
„Þá hefur merkilegt skref verið
stigið í átt til friðar í heiminum á
árinu.
Á komandi ári er aðalatriðið að
koma einhveiju viti á efnahagsmál-
in, vaxtamálin og koma verðbólg-
unni niður aftur. Atvinnulíf er að
stöðvast," sagði Valgerður. -KMU
Geir H. Haarde:
Kvöldstund í
Þingvallakirkju
„Af innlendum vettvangi eru mér
eftirminnilegastar kosningamar í
apríl, undanfari þeirra og eftirleik-
ur,“ sagði Geir H. Haarde sem
kjörinn var á þing fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn.
„Einnig árangur íslenskra afreks-
manna í útlöndum, bæði handbolta-
landsliðsins og skákmanna okkar.
Af erlendum vettvangi kemur fyrst
í hugann samningur stórveldanna.
Að þvi er mig sjálfan áhrærir er
eftirminnilegust kvöldstund í Þing-
vaUakirkju skömmu fyrir Jóns-
messu.
Á næsta ári vonar maður að hér
verði stjómarfarslegur stöðugleiki
til þess að mönnum auðnist að vinna
á aðsteðjandi efnahagsvanda," sagði
Geir. -KMU
Pétur Guðmundsson:
Bygging
flugstöðvar
ævintýri líkust
„Það sem mér er efst í huga frá
árinu sem er að hða er að sjálfsögöu
vígsla flugstöðvarinnar þann 14.
apríl síðasthðinn og starfræksla
hennar daginn eftir,“ sagði Pétur
Guðmundsson, flugvaUarstjóri í
flugstöð Leifs Eiríkssonar, um árið
1987.
„Einnig er mér hugleikið 'allt sem
hefur fylgt í kjölfarið. Það hafa aldrei
fleiri farþegar lagt leið sína um völl-
inn né fleiri vélar haft hér viðkomu.
Ég er sæll og ánægður með árið
sem nú er að Uða, það hefur verið
ólýsanleg lífsreynsla að fá að vera
þátttakandi í shku ævintýri, þetta
eru nánast forréttindi.
Ég vona að á næsta ári ljúkum við
því sem eftir er, það eru innansleikj-
ur innanstokks, eins og það heitir á
fagmáli? og ýmsar lóðaframkvæmd-
ir. Þegár er búið að skipuléggja hér
framtíðaraðsetur og munu rísa hér
fleiri byggingar. Væntanlega stefnir
aUt uppávið og erum við hér með
aðstöðu til að mæta öllum þjónustu-
atriðum varðandi flug sem upp
kunna að koma í framtíðinni.“ -PLP
Athugið sendið inn alla 10 seðlana í einu umslagi. Skilafrestur til 11. janúar ’88 -
- dregið um sextán glæsilega vinninga -
1. Technics geislaspilari m/fjarstýringu frá Japis að
verðmæti kr. 45.660.-
3. Panasonic ferðaútvarpstæki frá Japis að verðmæti
kr. 7.380.-
7-10. Lazer Tag leiktæki frá Radíóbúðinni, að verðmæti
kr. 2.980.-
2. Sony Discman ferðageislaspilari frá Japis
að verðmæti kr. 27.720.-
4- 6. Bangsi bestaskinn og Gormur vinur hans frá
Radíóbúðinni að verðmæti kr. 8.800.-
11-16. Dansandi dúkkur frá Radíóbúðinni að verðmæti
kr. 1.980.-