Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Page 37
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987.
69
Sandkom dv
Manndráp í lit
Miklar skærur voru í Suö-
ur-Afríku um jólin og munu
tugir manna hafa látist í inn-
byrðisátökum blökkumanna
þar. Tíminn greinir frá þess-
um átökum í gær undir afar
athyglisveröri fyrirsögn:
„Svört dráp í Suður-Afríku“.
Nú er úr vöndu aö ráöa. Hvað
er átt viö með fyrirsögninni?
Er þarna átt við að drápin séu
sérstaklega vond og þess
vegna svört. Eru þá til góö
dráp sem eru hvít? Þá hljóta
dráp sem eru á mörkum þess
að vera góð og vond að vera
grá. Viðmælandi Sandkoms
sem las þessa fyrirsögn
k vaðst nú vera alinn upp við
að öll dráp væm vond og því
hlytu þessi s vörtu dráp í Suð-
ur-Afríku að vera alveg
einstaklega slæm og vaknar
þá sú spuming hvort hægt sé
að drepa sama manninn
tvisvar. Aðrir hafa bent á að
með því að kalla drápin í
Suður-Afríku svört sé átt við
að annaðhvort hafl drápar-
arnir eða þeir drepnu veriö
svertingjar en í þessu tilviki
var um innbyrðisátök
blökkumanna að ræða þann-
ig að drápin hljóta að hafa
verið kolbikasvört. Sam-
kvæmt þessari rökfræði
hlýtur það að teljast mjalla-
hvítt dráp þegar hvítur
maður drepur annan hvítan
og þar með gott dráp og nán-
ast guðsþakkarvert. Ja, þetta
em eríiðar og flóknar hug-
renningar fyrir fólk sem í
einfeldni sinni telur öll dráp
vond.
Botninn er
suður í Borg-
arfirði!
Á sömu síðu í Timanum og
tímamótafyrirsögnin um
dráp í öllum regnbogans lit-
um er önnur dálítið kynleg:
„Hvar er dala botn?“ Margir
lesendur Tímans, sem búa í
sveitum, þóttust hafa svör á
reiðum höndum og bentu á
ýmsa staði í sinni sveit sem
gætu átt við þessa lýsingu.
Sums staðar þarf þó sjálfsagt
hæðarmæla til að finna ná-
kvæma staðsetningu dal-
botna en annars staðar er það
á hreinu. Við lestur greinar-
hmar kemur þó í lj ós að ekki
er verið að leita að botnum
neinna dalverpa heldur er
verið að fi alla um hmn doll-
arans og því er ekki skrítið
þó spurt sé hversu langt doll-
arinn eða dalurinn getur
falhð. En svarið við þeirri
spurningu er sýnu erfiðara
en spurningin um dalbotn-
ana. Ekki einu sinni Reagan
getur svarað öðmvísi en fé-
lagarhansíslenskir: „Botn-
inn er suður í Borgarfirði".
Friðrik og
Margeir til
aðstoðar
Nú styttist óðum í einvígi
þeirra Jóhanns Hjartarsonar
og Kortsnojs í Kanada en
fyrsta skákin verður tefld 24.
janúar. Jóhann hefur æft vel
að undanfórnu og hefur Mar-
geir Pétursson aðstoðað hann
dyggilega. Jóhann fær góða
aðstoð í Kanada því auk Mar-
geirs mun þekktasti íslenski
skákmaður allra tíma, Frið-
rik Ólafsson, aðstoða hann.
Friðrik sýndi það og sannaði
á hraðskákmóti Útvegsbank-
ans annan i jólum að hann
hefur fáu gleymt. Hann hafn-
aði í öðm sæti á mótinu og
sá eini sem var fyrir ofan
hann var enginn annar en
Jóhann Hjartarson.
Kallinn á
spýtunum
Talsmenn sértrúarsöfnuða
hafa haldið því fram að tölu-
verð trúarvakning eigi sér nú
stað á íslandi sem annars
staðar. Þessi trúarvakning
virðist nú ekki ná til allra ef
marka má þessa sögu sem þó
er sönn. Maður á miðjum
aldri fór í skartgripaverslun
fyrir jóhn ogætlaði að festa
kaup á fallegri gjöf handa
betri helmingnum. Maðurinn
hafði hug á að kaupa hálsmen
með krossi og leit á nokkur
slík í versluninni. Eitthvað
var maðurinn ekki ánægður
með úrvahð og spuröi af-
greiðslustúlkuna, sem var
ung að árum, hvort ekki
væm til fleiri gerðir. „Jú, jú,“
svaraði stúlkan. „Viö erum
hér með nokkur háismen þar
sem einhver karl hangir á
krossinum!"
Er það nema
von!
Alþýðublaðiö er hið merk-
asta blað sem allt of fáir lesa.
í blaðinu í gær er til að
mynda merkileg frétt á for-
síðu blaðsins og stendur í
fyrirsögn: „Innfluttarkonur:
Ekki skoðaöar vegna smit-
sjúkdóma“. Er það nema von
þótt gæðaeftirlitið sé ekki að
koma of nálægt innfluttum
konum með smitsjúkdóma og
eiga svo á hættu að smitast
sjálfir. Eins og þaö sé ekki
nóg fyrir gæðaeftirlitsmenn
að þurfa að prufukeyra ein'
hverja saltblauta Subam-bíla
þótt þeir þurfi ekki að hætta
heUsunni með því að skoða
smitaðar innfluttar konur!
Umsjón
Axel Ammendrup
Endurmat á Sjátfstæðisflokki
Staksteinar Mb greina frá því 19.
des. sl. að á flokksráðsfundi Sjálf-
stæðisílokksins hafi Friðrik Sophus-
son og Birgir ísleifur Gunnarsson í
ræðum sínum lagt þunga áherslu á
að kynna flokkinn út frá sögulegum
rótum sínum. Eða eins og BÍ sagði:
„Okkar hlutverk er að kveða niður
óhróður andstæðinganna og skapa
flokknum þá ímynd sem er sönn, það
er að Sjálfstæðisflokkurinn er og
ætlar að vera víðsýnn og frjálslyndur
umbótaflokkur, sem byggir á ein-
staklingsfrelsi, og hann er flokkur
velferöar borgaranna og flokkur
mannúðar, flokkur launþega og
vinnuveitanda. Við skulum fara af
þessum fundi staðráðin í aö breiða
þessa sönnu ímynd flokksins út á
meðal fólksins um land allt.“
Verkin hræða
Þetta eru fógur orð hjá BÍ enda tek-
in svo til orðrétt upp úr einni af
ræöum Ólafs heitins Thors og það
var í þessa veru sem hann taldi far-
sælast fyrir land og lýð að Sjálfstæð-
isflokkurinn fótaði sig og markaði
sér stefnu í þjóðmálum. En nú er
öldin önnur og verkin hræða. Ólafur
er allur og svo er Sjálfstæðisflokkur-
inn í þeirri mynd sem Ólafur þekkti
hann. Staðreyndirnar blasa við og
ég nenni hreinlega ekki að telja þær
upp. Þið getið lesið þær í kosningalof-
orðum Sjálfstæðisflokksins fyrir
kosningar og efndunum sem blasa
við í dag. Öll eru loforðin svikin ef
gengisfelling er undan skilin. En þú
verður að meta það, lesandi minn,
hvort gengisfelling hefur ekki þegar
átt sér stað hjá þessari lánlausu
stjórn. En það er athyglivert þegar
tveir ráöherrar ríkisstjórnar þurfa
að standa upp á flokksráðsfundi
innsta kjarna Sjálfstæðisflokksins og
eyða sínum dýrmæta tíma í að skil-
greina stefnumið flokksins. Og það
hlýtur að vera meira en lítið að í
flokki sem víkur svo frá markmiöum
sínum að innsti kjarni flokksins
þekkir þau ekki lengur.
KjaHarinn
Sigurður
Arngrímsson
framkvæmdastjóri
handahófskenndum aðgerðum - eins
og bananalýðveldi.
Rætur mínar og þínar
Ólafur Thors átti sér draum. Þenn-
an draum áttu einnig Jónas frá
Hriflu og Héðinn Valdimarsson. Þeir
höfðu mismunandi forgangsröðun á
verkefnum, en takmarkiö var það
sama: Víösýni, frjálslyndi, umbætur,
mannúð og veíferð var takmark
þeirra fynr okkur öll en ekki fáa
útvalda. Ólafur eygði drauminn og
sá marga hluti hans rætast. Hinir
voru hraktir burt úr flokkum sínum
af annarlegum öflurn - svonefndum
flokkseigendum - en frá láti Ólafs
Thors hefur Sjálfstæðisflokkurinn
fallið smátt og smátt í sömu gryfju
og hinir kerflsflokkarnir. Og það er
„En með tilkomu Borgaraflokksins
upphefst ný stefna og við eygjum nýja
von.“
Ný stefna - Ný von
I um 30 ár hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn verið að fjarlægjast meira og
meira hugmyndir Olafs heitins
Thors um víðsýnan flokk fyrir alla
menn. En allur þorri manna og
kvenna, sem bera sama draum í
brjósti og Ólafur heitinn Thors gerði
og kosið hafa flokkinn, er gleymdur
að kosningum loknum því fyrir-
greiðslan nær aðeins til fárra út-
valdra. Og sama á við um alla aöra
kerfisflokka á íslandi. En með til-
komu Borgaraflokksins upphefst ný
stefna og við eygjum nýja von. Von
um víðsýnan og frjálslyndan um-
bótaflokk sem byggir á frelsi allra
manna. Flokk velferöar, mannúðar
og hinna mjúku gilda. Þar sem laun-
þegar og atvinnurekendur snúa
bökum saman við að byggja upp
þetta land sem nú er stjórnað með
frá þessum rótum stjórnmála sem
skoðanir okkar eru myndaðar. En
rætur keríisflokkanna eru fúnar og
rotnar. Sagan vitnar um það. En við
í Borgaraflokknum höfum tekið upp
í stefnuskrá okkar allt það góða sem
þessir mætu menn börðust fyrir.
Og nú biðjum við þig, lesandi minn,
að taka afstöðu á nýju ári - gera upp
hug þinn - og koma og vera með og
hjálpa okkur við að byggja upp réttl-
átt þjóðfélag þar sem allir eru jafnir
fyrir lögunum og mjúk gildi mann-
úðar eru í heiðri höfð. Hjálpaðu
okkur að gróðursetja og festa þessar
rætur á ný sem nú eru slitnar og
rotnaðar.
Hefjum nýtt tímabil á nýju ári með
því að sameinast, gróa og vaxa í þús-
und ár.
Sigurður Arngrímsson
RAKARASTOFAN
KLAPPARSTIG
Simi 13010
HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG
Sími 12725
Þjóðhátíðar-
IwJ sjóður
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 1988.
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 361 30. september 1977
er tilgangur sjóðsins „að veita styrki til stofnana og annarra
aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd
þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð
hefur tekið í arf.
a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til
Friðlýsingarsjóðs til náttúruverndar á vegum Náttúruvernd-
arráðs.
b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til
varðveislu fornminja, gamalla bygginga og annarra menn-
ingarverðmæta á vegum Þjóðminjasafns.
Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráðstöfunarfé hverju sinni
í samræmi við megintilgang hans og komi þar einnig til álita
viðbótarstyrkir til þarfa, sem getið er í liðum a) og þ).
Við það skal miða, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlag
til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til að lækka
önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi ann-
arra við þau."
Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta komandi árs. Umsóknarfrest-
ur er til og með 26. febrúar 1988. Eldri umsóknir ber að
endurnýja. Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík. Nánari upplýs-
ingar gefur ritari sjóðsstjórnar, Sveinbjörn Hafliðason, í síma
(91) 699600.
Reykjavík, 23. desember 1987
Þjóðhátíðarsjóður