Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1988, Page 14
14
FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988.
Frjálst.óháÖ dagblaö
Otgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGOLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 700 kr.
Verð í lausasölu virka daga 65 kr. - Helgarblað 80 kr.
Steingrímur og PLO
í svari viö fyrirspum á alþingi í síðasta mánuði lét
Steingrímur Hermannsson þau orð falla að svokölluð
frelsissamtök Palestínumanna, PLO, ættu sjálfsagðan
rétt til sjálfstæðis á herteknu svæðunum á Gazasvæðinu
og vesturbakka Jórdan. Steingrímur hnykkti á þessum
ummælum sínum nokkrum dögum síðar í viðtah á út-
varpsstöðinni Rót og þessu næst hélt utanríkisráðherra
til Stokkhólms og ræddi þar við fulltrúa PLO um hugs-
anlega heimsókn sína eða þeirra til formlegs fundar.
Utanríkisráðherra hefur með öðrum orðum tekið upp
persónulegt stjórnmálasamband við hryðjuverkasam-
tökin PLO þótt hann slái úr og í þegar á hann er gengið.
í Morgunblaðinu í gær rekur Björn Bjarnason, að-
stoðarritstjóri blaðsins, gang þessara mála og sýnir fram
á að Steingrímur verði að læra betur heima áður en
hann hyggst leysa alþjóðadeilur og eða hafa af þeim
afskipti. Öll ber sú atburðarás, sem Björn rekur, vott
um ótímabærar og óviturlegar yfirlýsingar utanríkis-
ráðherrans í þessu máh. Greinin afhjúpar ógöngurnar
sem Steingrímur er kominn í.
Svo er helst að sjá að Steingrímur, Framsóknarflokk-
urinn og málgagn þeirra, Tíminn, hafi tekið upp
hanskann fyrir PLO og vilji gera afstöðuna til þessara
hryðjuverkasamtaka að flokkspóhtísku átakamáh með
Framsókn og PLO sem bandamenn. Verði þeim að góðu.
PLO hefur gengið lengst og harðast fram í skipulögðum
hryðjuverkum gagnvart saklausu fólki, PLO hefur það
á stefnuskrá sinni að útrýma Ísraelsríki og PLO hefur
ekki hlotið viðurkenningu sem sjálfsagður málsvari
Palestínumanna. Hvorki meðal Vesturlanda né meðal
araba sjálfra. Atburðimir á herteknu svæðunum fyrir
botni Miðjarðarhafsins eru sprottnir af frelsisþrá íbú-
anna sjálfra, enda þótt PLO hafi reynt að færa sér þá í
nyt og gera þá að sínum. Margt bendir til að ný kynslóð
Palestínumanna hafni PLO og vinnubrögðum þeirra.
Persónan Steingrímur Hermannsson getur auðvitað
hitt hvern sem er og spjahað við þá sem honum lystir
á göngum eða hhðarherbergjum í húsakynnum Samein-
uðu þjóðanna. Formaður Framóknarflokksins getur
tekið upp stjórnmálasamband við hver þau samtök sem
hugur hans stendur til. En utanríkisráðherra íslenskrar
ríkisstjórnar hefur ekki umboð til opinberra viðræðna
við aðra aðila en þá sem ríkisstjórnin leggur blessun
sína yfir. Ótímabær afskiptasemi af viðkvæmum deilu-
málum gerir ekki annað en að spiha fyrir íslenskum
stjórnmálahagsmunum. Ef Steingrímur Hermannsson
vhl slá sig til riddara á alþjóðavettvangi og gerast heims-
leiðtogi getur hann gert það í nafni Framsóknarflokks-
ins. En ekki í nafni íslensku þjóðarinnar. Að minnsta
kosti ekki þegar hann veðjar á vitlausa hesta og hefur
áhuga á ástarsambandi við hryðjuverkamenn.
íslendingar hafa samúð með baráttu Palestínu-
manna. Þeir fordæma það ofbeldi sem ísraelsmenn beita
á herteknu svæðunum gagnvart vopnlausu fóhd. En
íslendingar hafa frá upphafi stutt tilverurétt Ísraelsrík-
is og telja það enga lausn á deilunum fyrir botni
Miðjarðarhafs að hryðjuverkasamtök nái þar fótfestu
til að halda áfram iðju sinni og hatursherferð gegn ísra-
elsmönnum.
Það er ekkert á móti því að utanríkisráðherra íslands
kynni sér deiluna. En það gerir hann ekki með ótíma-
bærum yfirlýsingum, einhhða samstöðu með PLO eða
gönuhlaupi í fjölmiðlum.
Ellert B. Schram
Fijálshyggjan birtist okkur í
ýmsum myndum. Þessi íslenska
afmyndun á markaðskerfi vest-
rænna stórþjóða er nú á góðri leið
með að naga í sundur ýmsa innviði
okkar þjóðfélags og hefur raunar
nú þegar unnið ómetanlegt tjón.
Því miður er meginástæða þess
sú aö stærsti flokkur þjóðarinnar
hefur gert stefnu þessa að sinni,
þrátt fyrir að ýmsir innan þess
hóps efist stórlega um ágæti henn-
ar. Hins vegar er þeirra fram-
kvæmdin og um leið ábyrgðin.
Þegar blaðran springur, þegar
grái markaðurinn hrynur, þegar
tækin, bátarnir, bílamir og allt
hvað það er, sem fjármagnað hefur
verið á þeim vöxtum sem atvinnu-
tækin engan veginn geta borið,
streymir á uppboð, þegar erlendir
lánveitendur kalla á sitt fé, sem
hinir innlendu munu gera líka og
sennilega ekki ná út, - þá mun ekki
duga að segja, „þetta er ekki mér
að kenna.“
Þá munu of margir eiga um sárt
að binda. Þeir munu hugsa þeim
stjómmálamönnum þegjandi þörf-
ina sem gáfu þessum okurvaxtaöfl-
um lausan tauminn til að moka
saman milljónatugum og hundruð-
um frá atvinnuvegum sem búa við
fjársvelti í bankakerfi sem ekki fær
íjármagn irin til aö sinna eðlilegu
verkefni sínu.
Réttur jarðvegur
Nú er það svo að enginn gróður
þrífst, ekki heldur iilgresi, nema
að jarðvegur sé fyrir hendi. Því
miður er það svo að stjómendur
landsins undanfarin ár hafa dyggi-
lega séö til þess aö réttur jarðvegur
væri fyrir frjálshyggjuna, sem er
eingunis frelsi Qármagnsins.
Við skulum líta yfir sviðið, allt
skal vera fijálst og hömlulaust.
Þetta em fallég orð, en því miður
hryggileg misnotkun á hugtakinu
frelsi. Hvað er þaö sem vera skal
fijálst?
ÖU viðskipti, innflutningur,
höndlun með peninga, erlendar
lántökur og þá ekki síst fijáls kaup
á gjaldeyri og öU meðferð hans.
Þetta er það sem grái markaðurinn
þarf. Hinn rétti jarðvegur fyrir
þann póUtíska gróður sem þrífst á
frelsi fjármagnsins fyrst og fremst,
þótt margt annað sé í fjötrum.
En horfum í hina áttina. Land-
búnaðurinn, býr hann við frelsi?
Nei, því fer fjarri, aUt er þar dyggi-
lega bundið leyfum og höftum.
Enda hafa sömu öfl og nærast á
frjálshyggjunni lengi haft það á
stefnu sinni að leggja hann niöur
að verulegu leyti.
En hvað þá með sjávarútveginn,
þennan óumdeilaiúega höfuðat-
vinnuveg þjóðarinnar? Atvinnu-
vegurinn sem þjóðarbúskapurinn
stendur og feUur með, eins og ítrek-
að hefur sýnt sig. Býr hann viö
frelsi? Varla þarf að ræða slíkt.
AUar veiðar og vinnsla em leyfum
háðar og íjötrum bundnar.
Höfuðmeinið: Fastgengis-
stefnan
En þá komum við að höfuðatriði.
Enn einu atriði sem ekki er frjálst.
Atriði sem stjórnar öUum hinum.
Atriði sem stjómar því að Jón
grái getur tekið erlent lán, (sem er
frjálst að sjálfsögðu), segjum
hundrað miUjónir, lánar það hér í
eitt ár á sjötiu prósent vöxtum og
endurgreiöir síðan á svipuðu gengi.
Því bjargar fastgengisstefnan.
Gera menn sér í hugarlund hvað
Jón grái hefur grætt þegar hann
greiðir lánveitanda sínum e.t.v.
15% vexti? Átta menn sig á því
hver borgar brúsann? Dettur
nokkrum í hug að þeir Jónamir
vUji feUa gengið?
KjáUarinn
Gunnar Hilmarsson, -
sveitarstjóri á Raufarhöfn
Mikil ábyrgð
Nú er komið svo málum að ráða-
menn þjóöarinnar viröast hafa
meiri áhuga á að stjórna í málum
annarra þjóða en sinnar eigin. Fyr-
ir ekki löngu fór einn ráðherra
hennar tfl ísrael tíl að kenna þar-
lendum að stjóma veröbólgu. Nú
vafstrar sá sami í stjómmálum
Austurlanda nær eftir því sem tími
gefst tíl frá því að sætta austur og
vestur í afvopnunarmálum.
ChurchUl gamU sagöi einu sinni.
„Ég hef lært það af langrí reynslu
og þátttöku í opinbem lifi að injög
fáir skUja tU hlítar stjómmál
sinnar eigin þjóðar og enginn
stjómmál annarra þjóða.“ En
ChurchUl vissi ekki að slíkir af-
burðamenn ættu eftir að koma
fram!
„Nú er svo komið málum að ráðamenn
þjóðarinnar virðast hafa meiri áhuga á
að stjórna í málum annarra þjóða en
sinnar eigin.“
Höfuðmein íslenska hagkerfisins
er og hefur verið vitlaust gengi. í
öUu frelsishjaUnu er heldur aldrei
minnst á frjálst gengi, enda myndi
þá frjálshyggjan ekki fá sína nær-
ingu sem hún fær frá atvinnuveg-
um í gegnum „fastgengisstefnuna".
Hvemig stendur á því að sjávar-
útvegurinn lætur þetta viðgangast?
Jú, peningaöflin hafa séð tíl þess
að öU lán og aUt rekstrarfé hans
er háð gengi. Síðan er sagt við
hann, þegar aUt er að fara úr bönd-
unum: Það verður sem allra minnst
að hreyfa gengið, enda bitnar það
fyrst og fremst á ykkur. Þetta þætti
skemmtUeg leikflétta í skák.
„Grámosinn glóir“ heitir verð-
launaverk Thors VUhjálmssonar.
Ekki geri ég ráð fyrir að hinn grái
frjálshyggjumarkaður íslands hafi
verið kveikjan að því nafni.
En gulUð á hinum gráa markaði
glóir líka og það glepur mörgum
sýn. Ég vU þó hvetja ráðamenn
þjóðarinnar tU að staldra við og
íhuga hvert stefnir. Ábyrgð þeirra
sem láta reka á reiðanum verður
mikU en ég vU trúa því að í flestum
ef ekki öflum flokkum sé enn tU
fólk sem viU og getur tekið á þess-
um málum áður en það er um
seinan. Gunnar Hilmarsson
sveitarstjóri
Höfuðmein íslenska hagkerfisins er og hefur verið vitiaust gengi,“
segir greinarhöfundur.