Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1988. 3 Fréttir Ny áburðarflugvél til Landgræðslunnar Landgræðsla ríkisins fékk nýja áburðarflugvél á sunnudag en vélin var keypt nýlega í Texas í Bandaríkj- unum. Vélin, sem er af gerðinni Air Tract- or eða flugdráttarvél, er eingöngu ætluð til landbúnaðarstarfa. Hún er árgerð 1984 en hefur aðeins verið flogið um 500 flugstundir. Flugvélin er í mjög góðu ásigkomulagi og ber hún 1000 kíló af áburði og grasfræi í ferð. Flugvéliil kemur í stað land- græðsluflugvélarinnar TF-TÚN sem brotlenti í Fljótshlíð í júlí í fyrra. Hefur nýja vélin hlotið sömu ein- kennisstafi. Henni var flogið til landsins af Gunnlaugi Helgasyni, flugmanni hjá Flugleiðum, en hann var áburðarflugmaður hjá Land- græðslunni sumarið 1961. Ferðin tók 8 daga frá Texas. Fullbúin til áburðarflugs kostar vélin um 8,5 milljónir. Tryggingarfé eldri flugvélarinnar nam tæpum 3 milljónum króna en 5,4 milljónir fengust sérstaklega til kaupanna við afgreiöslu fjárlaga fyrir þetta ár. Aformað er að áburðarflug hefjist strax eftir hvítasunnu og veröur byijað við uppgræðslustörf á Reykja- nesi og flogið frá Keflavíkurflugvelh. -JBj Þoriákshöfn: MJög góð kolaveiði - óttast að snurvoðin skemmi uppeldisstóðvar humarsins Þorlákshafnarbátar hafa aflað vel af kola, sandkola og þykkvalúru und- anfarið. Til að mynda fékk Dalaröst- in 68 tonn af kola í síðustu viku sem er mjög góður afli. Jón á Hofi ÁR og Þorleifur Guðmundsson ÁR hafa einnig veitt vel en þeir heilfrysta afl- ann um borð fyrir Japansmarkað. Þá hefur fyrirtækið Glettingur gert samning um sölu á tvö þúsund lest- um af flatfiski til Hollands á næstu mánuðum. í Japan hefur fengist gott verð fyr- ir heilfrystan kola og jafnvel fyrir sandkola. Verð á þessum fisktegund- um ísuðum hefur einnig verið ágætt í Englandi. Að sögn Kristjáns Andréssonar á hafnarvoginni í Þorlákshöfn er kola- aflinn svipaður nú og hann var í fyrra. Hann benti á að bátarnir væru komnir með svo stórar og öflugar snurvoðir að það væri ekki sambæri- legt við það sem áður var. Hann sagði sjómenn sem stunda humarveiðar, óttast mjög að þessar stóru snurvoð- ir skemmi botninn en uppeldisstöðv- ar humarsins eru á sömu slóðum og kolamiðin. Sjómenn benda á að botninn rótist mikið upp við kolaveiðarnar og að það hafi ekkert verið rannsakað hvaða áhrif það hefur á humarinn en að svona mikið rask hljóti að hafa neikvæð áhrif. Nú eru humarveiöibátamir famir að undirbúa sig fyrir vertíðina sem hefst 24. maí næstkomandi. -S.dór Landgræðslustjóri, Sveinn Runólfsson, færir flugmanninum, Gunnlaugi Helgasyni, blóm við komuna til íslands. Gunnlaugur flaug áburðarflugvél- inni TF-TÚN heim frá Texas. DV-mynd Jakob Ólafsson Kaupin á sköverksmiðju Sambandslns: „Við göngum frá þessu í vikunnr -segir Haukur Ármannsson reksturinn væru ekki á næsta leiti. Það þyrfti hins vegar að skoöa máliö í heild, og ef „einhver skemmd epli“ væru innan fyrir- tækisins þyrfti aö fjarlægja þau. Eins og komiö hefur fram hefur öllu starfsfólki verksmiðjunnar verið sagt upp störfum, enda hugð- ist Sambandið loka verksmiðjunni ef ekki tækist að selja hana. Þar starfa nú um 50 manns, og fyrir- tækið, sem hefur getið sér gott orð, t.d. fyrir framleiðslu á „ACT“- skóm, er mikilvægur hlekkur í at- vinnulífinu á Akureyri. Gyifi Knstjánsson, DV, Akureyri: ,,Ég sé ekki annaö en að við göngum frá þessu raáli nú í vik- unni, og að samningar veröi undir- ritaðir fyrir helgina," segir Haukur Árraannsson Akureyringur sem, ásarat fimm öðrum einstaklingum, er að kaupa Skógerö Iðunnar á Akureyri aJf Sambandinu. Haukur sagði aö strax og samn- ingar hefðu veriö undirritaðir rayndi hann ganga í það mál að kynna sér starfsemi verksmiðjunn- ar, en stórar breytingar varðandi BLY EÐA EKKIBLY? RAÐLEGGING UM NOTKUN BENSÍNS SKODA EIGENDUR NOTIÐ SUPER 98 BLYBENSÍN PEUGEOT EIGENDUR NOTIÐ SUPER 98 BLYBENSIN ALFA ROMEO EIGENDUR NOTIÐ SÚPER 98 BLÝBENSÍN CHRYSLER EIGENDUR PLYMOUTH EIGENDUR DODGE EIGENDUR ÁRGERÐA 1986 - 1987 - 1988 NOTIÐ BLÝLAUSA BENSÍNIÐ CHRYSLER EIGENDUR PLYMOUTH EIGENDUR DODGE EIGENDUR ÁRGERÐA 1985 OG ELDRI NOTIÐ SÚPER 98 BLÝBENSÍN OFANGREINDAR UPPLÝSINGAR MIÐAST VIÐ BIFREIÐAR SEM JÖFUR HF HEFUR FLUTT INN JÖFUR HF NÝBÝLAVEGI 2 KÓPAVOGI SÍMI 42600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.